Morgunblaðið - 31.03.2007, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 33
Baðið Ljós og skuggar spila stórt hlutverk í útliti baðherbergisins. Innfelld
ljós undir baðkerinu kallast á við birtuna sem kemur inn um gluggann.
Morgunblaðið/Sverrir
Dyngja Heimasætan, Dilja er búin að hreiðra vel um sig í herberginu sínu.
Mynstrið á veggnum er álímt og tónar við bleiku munina sem ráða ríkjum.
„Við vissum náttúrulega
ekkert hvað við vorum að
fara út í – höfðum aldrei
byggt áður eða komið ná-
lægt slíku...“
gengið niður á jarðhæð með stórum
bílskúr, þvottahúsi, öðru baðherbergi
auk herbergis sem hefur margþætt
hlutverk. „Þetta er svona vinnu-,
gesta-, leik- og aukasjónvarps-
herbergi,“ útskýrir Edda. „Þetta
finnst mér algjör lúxus, ekki síst út af
krökkunum. Um helgar gista alltaf
einn eða tveir aukakrakkar með öll-
um þeim látum sem því fylgir og þá
er alveg frábært að hafa svona afdrep
fyrir þá. Mér finnst líka frábært að
hafa svona stað þar sem hægt er að
henda pappírum og öllu þessu dóti
sem maður vill ekki hafa flæðandi út
um allt hjá sér.“
Beðið eftir pallinum
Alls er húsið tæplega 300 fermetr-
ar að stærð og segist Edda sérstak-
lega ánægð með hvernig til tókst við
hönnun þess. „Þegar við vorum að
leita að arkitekt keyrðum við um
hverfi og skrifuðum niður heimilis-
föng. Þá kom í ljós að Baldur hafði
hannað sex hús af tíu sem okkur
fannst flott.“ Sjálfur segist hönnuður-
inn hafa fengið nokkuð frjálsar hend-
ur þegar hann settist niður við að
teikna og Edda tekur undir það. „Við
sögðum bara hvað við vildum og vor-
um strax ánægð með teikningarnar.
Auðvitað voru svolitlar tilfærslur en
formið á húsinu var klárt nánast frá
upphafi.“
Eins og vera ber í nýbyggðu húsi
standa örlítil frágangsatriði út af
borðinu. Til að mynda er enn beðið
eftir hurðum innandyra og það er eft-
ir að ganga frá lýsingu í herbergjum
svo eitthvað sé nefnt. Mesta óþreyjan
er þó tengd garðinum og pallinum,
sem Edda vonast til að verði kominn
upp fyrir sumarið. „Það verður frá-
bært að geta gengið beint út úr stof-
unni í góðu veðri en auðvitað má bú-
ast við því að það taki sinn tíma að
ganga frá lóðum og götum í hverfinu.
Reyndar fluttum við í Sjálands-
hverfið þegar það var alveg nýbyggt
og núna, þegar við fórum tveimur ár-
um seinna, var allt orðið glerfínt.
Þannig að þetta er alveg ótrúlega
fljótt að koma.“
X
S
TR
E
A
M
D
E
S
IG
N
IX
0
7
03
0
15
Innréttingar
Faxafen 8 • 108 Reykjavík
Sími 577 1170 • Fax 577 1172 • www.innx.is
Þinn draumur
Opið alla virka daga frá 9 - 18
og á laugardögum frá 11 - 16
...okkar veruleiki
Okkur hjá Inn X finnst að allir eigi skilið fullkomið eldhús.
Við bjóðum upp á stílhreinar og sérlega notendavænar
ítalskar innréttingar. Þarlendir sérfræðingar, með eldheita ást á
matargerð hafa náð fullkomnun í aðlögun eldhúsumhverfis að
þörfum þeirra sem njóta þess að elda - og borða góðan mat.
Innréttingarnar frá Inn X, sem eru unnar í gæðavottuðum
verksmiðjum, vinna á útliti, gæðum, stíl og nýtingu.
Þó er það verðið sem kemur mest á óvart.
Fjölbreytnin í gerðum, litum og lögun er ótrúleg.
Ekki er ólíklegt að nú þegar sé búið að hugsa
fyrir þínum sérstöku óskum og eldhúsið þitt bíði eftir þér.
Komdu til okkar í Inn X og leyfðu hönnuðum okkar að aðstoða þig
við að setja saman draumaeldhúsið þitt.
Þín veröld - veldu Inn X
Innrétting á mynd er Tidra. Hægt er að velja um 5 liti af Tidra innréttingum.