Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 43
Orlando Home Sales
Are you visiting Orlando soon?
Our team is in Orlando, Florida and ready to show you some of the best
deals in this great buyer's market. To set up an appointment in April
while you are in Orlando, please contact:
Thorhallur Gudjonsson from Gardatorg (354) 896-8232
Meredith Mahn from Domus Pro (321) 438-5566
For more information, visit us at:
www.LIVINFL.com
Domus Pro Inc. Vacation Home Sales Division
001-321-438-5566
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
GLAÐHLAKKALEGUR mæti ég til
starfa, laust fyrir klukkan átta að
morgni, tilbúinn að takast á við fjöl-
breytileg verkefni dagsins.
Byrja á því að bjóða góðan daginn á
kaffistofunni og fá mér einn kaffibolla,
þar sem ég mæti alltaf korteri fyrir
upphaf vinnutíma. Það geri ég bara því
andinn í skólanum er góður og gaman
að byrja daginn á smá spjalli um dag-
inn og veginn.
Að því búnu fer ég fram í anddyri til
að taka á móti nemendum. Aðstoða þá
við að raða skóm í hillur, hjálpa sumum
úr vetrarfatnaði, spjalla við þau um hitt
og þetta og reyni að láta þeim líða vel
þegar þau mæta til starfa.
Þegar bjallan hringir aðstoða ég
kennarana við að koma öllum í fallegar
raðir fyrir utan sína stofu.
Allir komnir í stofuna sína og byrj-
aðir að læra þannig að ég geng um
ganginn og hengi upp þann fatnað sem
eftir varð á gólfinu ásamt því að ég kem
óskilamunum til síns heima. Fer síðan
fram og tek til við að raða skólamjólk-
inni í réttar töskur. Ein mjólkurtaska
fyrir hvern bekk í skólanum. Er síðan
tilbúinn að afhenda töskurnar umsjón-
armönnum sem koma fyrir frímínútur.
Þá verð ég að drífa mig í útigallann.
Kem mér fyrir í anddyri skólans og
hjálpa kennurum að senda nemendur
út í frímínútur. Oftast þarf maður að
aðstoða við að renna upp, losa fasta
rennilása, snýta einum eða tveimur,
reima fyrir þennan eða hinn, loka hurð
og bregða sér út fyrir.
Í frímínútunum geng ég um skóla-
svæðið. Gæti þess að ekkert komi uppá
milli nemenda. Boltaleikirnir gangi
eðlilega fyrir sig og ekki sé verið að
kasta snjó í mann og annan. Er bjallan
hringir þarf að sjá til þess að allir
standi í fallegri röð uns kennarinn
hleypir inn. Þá þarf oft að þurrka
ganga og sjá til þess að allir skór kom-
ist í réttar hillur. Ekki óalgengt að að-
stoða þurfi þá minnstu úr kuldaskón-
um.
Þegar allir eru komnir inn í sína
stofu fæ ég smá tíma til að kasta mæð-
inni og fá mér kaffitár. Get þó ekki
dvalið lengi við það því ég þarf að fylgja
7 ára nemendum í sundlaugina. Kem
mér því aftur í útifötin og fylgi þeim að
skólabílnum þar sem þau standa í fal-
legri röð. Inn í bíl og passað uppá að
allir séu með beltin spennt og sitji fal-
lega í sætum sínum. Er komið er í
sundlaugina þarf að gæta þess að allir
fari í réttan klefa en svo dríf ég mig aft-
ur út í bíl því ég þarf að nota tímann til
að undirbúa matarhlé nemenda.
Fer því í að raða hnífapörum í skúff-
ur, draga fram ræstingarvagninn, setja
vatnskönnur á borð ásamt glösum en
verð því næst að koma mér aftur niður
í laug að sækja krakkana.
Í sundlauginni þarf yfirleitt að kíkja
inn í klefa og athuga hvort allir séu
mættir út í bíl. Sjá svo um að allir
spenni sig og séu stilltir og prúðir.
Þegar í skólann er komið fylgi ég
nemendum að sinni stofu, hjálpa þeim
að koma sundfötunum á snagann sinn
og sé til þess að þau gangi í röð í mat-
salinn. Í matsalnum aðstoða ég þau
yngstu við að komast í sætið sitt með
matinn, þurrka af borðum, fylli á vatns-
könnur, fer með óhreint leirtau í upp-
vask, sópa gólf og lít til með að allir
nærist vel. Þegar þau yngstu hafa mat-
ast þarf að passa uppá að þau fari út í
frímínútur og að þau eldri fari í fallega
röð við mötuneytið.
Þá fer ég ýmist út til að gæta að
þeim yngri eða sinni sömu hlutverkum
í matsalnum með eldri nemendum og
ég gerði hjá þeim yngri.
Eftir hádegis- og frímínútnahlé
nemenda gefst mér tími til að fá mér
smá hádegisbita áður en leið mín liggur
í heilsdagsskólann.
Þar sinni ég ýmsum hlutverkum yfir
daginn. Ég tek á móti börnunum, passa
að þau skrái sig inn og séu að koma á
réttum tíma. Aðgæti ef einhvern vant-
ar, hvort viðkomandi sé heimavið
vegna veikinda eða bara seinn úr sinni
heimastofu.
Síðan þarf að koma nemendum í
hópa við að leira, lita, fara með þau í
útileiki og aðstoða þau við eitt og ann-
að. Inn á milli útbý ég síðdegishress-
ingu fyrir börnin því vinnudagur
þeirra er líka langur. Einnig þarf að
vera í góðum samskiptum við for-
ráðamenn sem hafa samband, fylgjast
vel með því hvenær börnin eiga að fara
heim, hvort þau verði sótt eða komi sér
sjálf og vita sem mest um hvernig dag-
ur þeirra hefur þróast þegar for-
ráðamenn sækja þau.
Þegar þetta allt er búið fer klukkan
að nálgast fjögur og vinnudegi að ljúka.
Þau eru sem sagt ýmiss störfin sem ég
sinni sem skólaliði í skólanum mínum.
LEIFUR S. GARÐARSSON,
skólastjóri Áslandsskóla
í Hafnarfirði.
Skólaliði í einn dag
Frá Leifi S. Garðarssyni: