Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 31.03.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 55 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Barðstrendingafélagið og Borgfirðingafélagið | Félagsvist í Konnakoti, Hverfisgötu 105, í dag kl. 14. Dalbraut 18–20 | Fjölbreytt félagsstarf alla daga. Mánudaga myndlist, leikfimi, brids. Þriðjudaga fé- lagsvist. Miðvikudaga samvera í setustofu með upplestri. Fimmtudaga söngur með harm- onikkuundirleik. Föstudaga postulínsmálun og úti- vist þegar veður leyfir. Heitt á könnunni og með- læti. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl. 9– 16.30 er fjölbreytt dagskrá m.a. opnar vinnustofur og spilasalur, léttar gönguferðir um nágrennið o.fl. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Fimm- tud. 10. maí leikhúsferð í Borgarleikhúsið að sjá „Ást“. Skráning hafin á staðnum og í s. 575-7720, allir velkomnir. Strætisvagnar S4, 12 og 17. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglu- manna | heldur hefðbundinn sunnudagsfund deild- arinnar á morgun 1. apríl kl. 10 á Grettisgötu 89, 1. hæð. Félagar, fjölmennið. Kirkjustarf Boðunarkirkjan | Hlíðasmára 9, 3. hæð, Kópavogi. Vinalegur söfnuður sem boðar Orð Drottins Jesú Krists og Biblíuna. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Fræðsla fyrir börnin. Í dag prédikar Ragnheiður Laufdal. Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58–60, 3. hæð. Fundur í Kristniboðsfélagi karla mánudaginn 2. apríl kl. 20. Herra Sigurbjörn Einarsson talar um Hallgrím Pétursson. Fundurinn er öllum opinn, kon- um og körlum. 70ára afmæli. Í dag, 31.mars, verður sjötug Anna Jenný Marteinsdóttir, Suðurvör 2, Grindavík. Af því tilefni mun hún eyða deginum í faðmi fjölskyldunnar. 60ára afmæli. Í dag, laug-ardaginn, 31. mars, er sextug Eyvör Baldursdóttir, fv. strætisvagnastjóri, Prestastíg 3, Reykjavík. dagbók Í dag er laugardagur 31. mars, 90. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Geðsvið Landspítala – háskóla-sjúkrahúss og Endurmennt-unarstofnun Háskóla Íslandsstanda fyrir námskeiðinu Of- virkni fullorðinna dagana 7. og 8. maí. Jón Friðrik Sigurðsson, forstöðusál- fræðingur á geðsviði LSH, er skipu- leggjandi námskeiðsins ásamt Ernu Guðrúnu Agnarsdóttur: „Leiðbeinendur á námskeiðinu eru dr. Susan Young dósent og Gísli H. Guðjónsson, prófessor í réttarsálfræði, sem bæði starfa við Institute of Psychi- atry í Lundúnum,“ segir Jón Friðrik. „Ekki þarf að kynna Gísla fyrir íslensk- um lesendum, en Susan er virt fræði- kona á sviði ofvirkni fullorðinna, og tal- in meðal þeirra fremstu í sínu fagi.“ Einkenni og tengd vandamál Viðfangsefni námskeiðsins er sál- fræðileg meðferð unglinga og fullorð- inna með einkenni ofvirkni og athygl- isbrests: „Farið verður yfir ferilinn frá greiningu til meðferðar, fjallað ítarlega um kjarnaeinkenni ofvirkni og athygl- isbrests eins og minnisvandamál, erf- iðleika með tímastjórnun, lausn vanda- mála og hvatvísi, og tengd vandamál eins og erfiðleika með félagsleg tengsl, kvíða, pirring og reiði,“ segir Jón Frið- rik. „Þegar börn og ungmenni greinast með ofvirkni og athyglisbrest hvílir það oft á foreldrum að hjálpa börnum sín- um að ná stjórn á vanda sínum,“ segir Jón Friðrik, en um helmingur þeirra sem greinast með ofvirkni og athygl- isbrest í æsku hefur enn einhver ein- kenni á fullorðinsárum. „Að greina þennan vanda og veita meðferð getur veirð vandasamt fyrir meðferðaraðila og mjög krefjandi fyrir skjólstæðing- inn,“ segir Jón Friðrik. „Þarf oft að leggja mikla áherslu á að hvetja ein- staklingana til að taka breytingum á lífi sínu, sem sumar eru mjög krefjandi.“ Nánari upplýsingar og skráning er á vef Endurmenntunarstofnunar á slóð- inni www.endurmenntun.is. Nám- skeiðið er ætlað sálfræðingum og lækn- um og öðrum sem taka þátt í meðferð unglinga og fullorðinna með athygl- isbrest og ofvirkni. Heilsa | Námskeið á vegum Endurmenntunarstofnunar og LSH 7. og 8. maí Ofvirkni fullorðinna  Jón Friðrik Sig- urðsson fæddist í Reykjavík 1951. Hann lauk stúd- entsprófi frá MH 1971, BA í sálfræði frá Háskóla Ís- lands 1976, meist- araprófi frá Há- skólanum í Stirling 1988 og doktorsprófi frá Institute of Psychiatry, Kings College 1998. Jón Friðrik hefur starfað við kennslu, rannsóknir og klínísk störf. Hann er nú forstöðusálfræðingur á geðsviði LSH og dósent við læknadeild HÍ og kennslufræði- og lýðheilsudeild HR. Jón Friðrik er kvæntur Ásrúnu Matt- híasdóttur lektor og eiga þau tvö börn. Tónlist Salurinn, Kópavogi | Í dag kl. 17. Blásarasveit Reykjavíkur undir stjórn Kjartans Ólafssonar flytur verk eftir 3 tón- skáld, þ. á m. útskriftarverk Benedikts Hermanns Her- mannssonar úr LHÍ. Einleikari: Una Sveinbjarnardóttir. Að- gangur ókeypis og allir velkomnir. Myndlist Gallerí Lind | Myndlistarmaður aprílmánaðar hjá Gallerí Lind er Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir sem sýnir olíu- málverk unnin á þessu ári. Hrafnhildur Inga hefur haldið nokkrar einkasýningar undanfarin ár, nú síðast í Hafn- arborg. Sýningin opnar kl. 17 þann 30. mars og stendur til 13. apríl. Listasafn ASÍ | Í dag kl. 14 opnar Borghildur Óskarsdóttir sýningu sína „Opnur“. Uppistaðan í sýningunni er ættar- og fjölskyldusaga sem tengist hinum ýmsu stöðum á sunn- anverðu landinu, náttúrunni þar og húsunum. Sýningin stendur til 29. apríl, opið kl. 13–17. Aðgangur ókeypis. Sjá nánar www.asi.is. Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þverholti 2, í Bókasafni Mosfellsbæjar. Opnun í dag kl. 15. Sjömílnaskór, samsýning 7 listamanna: Þórdís Aðalsteinsd., Unnar Örn, Oddvar Hjartars., Ingibjörg Birgisd., Heiða Harðard., Eyþór Árnas. og Berglind J. Hlynsd. Stendur til 28. apríl. Opið virka daga kl. 12–19 og laugard. kl. 12–15. Næsti bar | Ingólfsstræti 1a. Í dag kl. 17 opnar Bagga mál- verkasýningu. Suðsuðvestur | Sýning Snorra Ásmundssonar, „Ég og vinnustofa mín“, samanstendur af sjálfsmynd, teikningum af listunnendum og myndbandi sem tekið er upp á vinnu- stofu listamannsins. Fyrirlestrar og fundir Sögufélag, Fischersundi 3 | Aðalfundur Sagnfræðinga- félags Íslands hefst kl. 16. Venjuleg aðalfundarstörf. Kl. 17 flytur Hrefna M. Karlsdóttir fyrirlestur, „Deilur um veiðar á almennu hafsvæði. Síldveiðarnar í Norðursjó 1950–1976“. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Blessuð sértu borgin mín 2007. Borgaraþing í dag kl. 13. Þingið fjallar um Íbúða- lýðræði. Fyrirlesarar verða Snorri F. Hilmarsson, Audun Engh frá Noregi, Einar Eiríksson og Bryndís Schram. Í pall- borði verða samgönguráðherra, umhverfisráðherra og þingmenn úr Reykjavík auk fulltrúa í borgarstjórn. Fréttir og tilkynningar Hann – hún & heimilið | Ný lífsstílsverslun opnar laug- ardaginn 31. mars. Ber hún nafnið Hann – hún & heimilið og er til húsa í Bæjarlind 16, Kópavogi. Verið velkomin í glæsi- lega verslun og þiggið kaffibolla. Útivist og íþróttir Samfylkingin í Reykjavík | Samfylkingin gengur um Elliða- rárdalinn í dag, laugardag. Mæting við Rafstöðina kl. 13. Gengið um dalinn í 1 klst. í góðum félagsskap frambjóðenda í Reykjavík. Allir velkomnir. VERKIÐ Stúlka er eftir ástralska myndhöggvarann Ron Mueck. Það er nú til sýnis á Contemporary Art Center á Malaga og virtust margir vera áhugasamir um að skoða þetta risavaxna stúlkubarn. Stara á stúlku Reuters Auglýstu atburði á þínum vegum hjá okkur Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1100 • Tónleika • Myndlistarsýningar • Leiksýningar • Fundi • Námskeið • Fyrirlestra • Félagsstarf • Aðra mannfagnaði SKÁLHOLTSSTAÐUR býður upp á fjölbreytta dagskrá í dymbilviku og á páskum. Í Skálholtsskóla eru sér- stakir kyrrðardagar í dymbilviku frá miðvikudagskvöldi fram á laug- ardag. Umsjón með þeim hafa sr. Helga Soffía Konráðsdóttir og Kristinn Ólason. Boðið er upp á fjölbreytta dag- skrá í helgi og kyrrð staðarins, seg- ir í fréttatilkynningu. Fáein pláss eru laus og er skráning og frekari upplýsingar í síma 486 8870 og með netfanginu rektor@skalholt.is. Á skírdagskvöld verður guðs- þjónusta í Skálholtsdómkirkju kl. 21, prestur séra Egill Hallgrímsson. Á föstudaginn langa er messa kl. 16, prestur séra Sigurður Sigurð- arson vígslubiskup. Að kvöldi föstu- dagsins langa verður tónlistarstund í kirkjunni sem Barna- og unglinga- kór Biskupstungna annast undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar organista. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Á páskadag er guðsþjónusta kl. 8 árdegis og sama dag er hátíð- arguðsþjónusta kl. 14. Fjölbreytt dag- skrá í Skálholti MANNRÉTTINDASKRIFSTOFA Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands munu 2. apríl nk. standa fyrir ráðstefnunni „Mann- réttindasamningar Sameinuðu þjóðanna. Áhrif þeirra, fram- kvæmd og tengsl við mannréttinda- sáttmála Evrópu.“ Á ráðstefnunni flytja nokkrir helstu sérfræðingar mannréttinda- mála í Evrópu fyrirlestra um þetta áhugaverða málefni. Valgerður Sverrisdóttir utanrík- isráðherra flytur ávarp. Ráðstefnan verður haldin í Nor- ræna húsinu og stendur frá 13.30- 17. Upplýsingar um fyrirlesara og nánari dagskrá má sjá á www.laga- deild.hi.is Ráðstefna um mannréttindi UMFERÐARÓHAPP varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Suður- landsbrautar í Reykjavík miðviku- daginn 28. mars milli klukkan 8 og 9. Umferð þar er stjórnað með um- ferðarljósum. Lentu þar saman fólksbifreið af VW Polo-gerð og vöruflutningabifreið af gerðinni Volvo. Ágreiningur er uppi um stöðu umferðarljósa þegar áreksturinn varð og því eru þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu beðnir um að hafa sam- band við lögreglu í síma 444 1000. Lýst eftir vitnum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.