Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn- arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD www.hi.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 74 76 0 5/ 07 METNAÐARFULLT, FRAMSÆKIÐ OG HAGNÝTT NÁM 6 námsleiðir ■ BA í hagfræði ■ BS í hagfræði ■ BS í fjármálum Umsóknarfestur er til 5. júní. Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr. Styrktu stöðu þína og sæktu um. Rafræn skráning og upplýsingar um námið eru á vef viðskipta- og hagfræðideildar, www.vidskipti.hi.is. ■ BS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum ■ BS í reikningshaldi ■ BS í stjórnun og forystu FIMM fyrrverandi for- menn Sambands ungra sjálfstæðismanna skipa sæti á nýju Alþingi og gegna reyndar þing- mennsku fyrir þrjá flokka. Þrír þeirra eru þing- menn Sjálfstæðisflokks. Geir H. Haarde, for- sætisráðherra og for- maður Sjálfstæð- isflokksins, var formaður SUS á árunum 1981 til 1985. Sigurður Kári Kristjánsson var formaður á árunum 1999 til 2001 og er nú að hefja sitt annað kjörtímabil á þingi. Guðlaugur Þór Þórðarson var formaður SUS 1993 til 1997 og sest nú fyrsta sinni á þing. Ellert B. Schram sest nú á þing fyrir Samfylkinguna, en hann var formaður SUS 1969 til 1973 og þingmaður Sjálfstæðisflokks þrjú kjörtímabil. Jón Magnússon verður þingmaður Frjálslynda flokksins, en hann var formaður SUS 1979 til 1981 og hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem varaþing- maður. Fimm fyrrverandi formenn SUS á þing fyrir þrjá flokka Geir H. Haarde Sigurður Kári Kristjánsson Guðlaugur Þór Þórðarson Ellert B. Schram Jón Magnússon ELLERT B. Schram var í 12. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík sem fram fór í nóvember sl., en þrátt fyrir það náði hann inn á þing í alþingiskosningunum. Mörður Árnason náði 7. sæti í prófkjörinu en missti samt af þingsæti. Átta efstu sætin í prófkjörinu voru bindandi. Mörður varð í 7. sæti og Steinunn Valdís Óskarsdóttir varð í 8. sæti. Þar á eftir komu Kristrún Heimisdóttir, Valgerður Bjarnadótt- ir, Guðrún Ögmundsdóttir og Ellert. Guðrún dró sig út af listanum og kjörnefnd Samfylkingarinnar ákvað að færa Ellert upp fyrir Valgerði. Hann skipaði því 5. sæti framboðs- lista flokksins í Reykjavík norður, næst á eftir Steinunni Valdísi. Mörð- ur skipaði 4. sæti listans í Reykjavík suður og Kristrún 5. sætið. Ótrúlegar tilviljanir Ellert sagði í samtali við Morgun- blaðið að það væri tilviljun í hvoru kjördæminu menn lentu og síðan væri það afleiðing kosningakerfisins að hann sjálfur hefði komist inn á þing en ekki Mörður eða Kristrún, sem bæði náðu betri árangri í próf- kjörinu. „Þetta er svona í lífinu. Það eru stundum ótrúlegar tilviljanir. Ég hafði aldrei látið mig dreyma um að ég kæmist á þing, “ sagði Ellert. Ellert sagðist geta tekið undir það að þetta kosningakerfi væri skrítið. „Ég skil t.d. ekki að Samfylkingin er með fleiri þingmenn en Sjálfstæðis- flokkurinn í Reykjavík norður þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið 7% meira af atkvæðum. Ég veit ekki ennþá hvernig þeir hafa reiknað mig inn.“ Lenti í 12. sæti í prófkjöri og komst á þing Mörður Árnason Ellert B. Schram LÖGREGLAN á Suðurnesjum kærði í gær ökumann fyrir akstur utan vega við Reykjanesvita. Mað- urinn ætlaði að stytta sér leið yfir opið svæði en ekki vildi betur til en svo að bifreiðin festist í blautum jarðveginum og þurfti að kalla út björgunarsveitina Þorbjörn frá Grindavík til að losa bifreiðina. Þá stöðvaði lögregla akstur beltagröfu á malbikuðum vegum í Innri-Njarðvíkurhverfi Reykjanes- bæjar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru töluverð ummerki á yfirborði vegarins eftir gröfuna en ökumaður hennar hafði ætlað að nota hana í garðinum hjá sér. Hann má reikna með kæru vegna ólög- legs aksturs vinnuvélar á opinber- um vegum og vegna skemmda á yf- irborði akbrautanna. Sökk í blautan jarðveginn KARLMAÐUR á fertugsaldri sem slasaðist alvarlega í vinnuslysi á föstudag liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss. Maðurinn var við vinnu í miðbæ Reykjavíkur, við rústir húsanna í Lækjargötu 2 og Austurstræti 22, þegar hann féll af vinnupalli í um þriggja metra hæð. Fljótlega eftir að komið var með manninn á slysadeild var ljóst að meiðsli hans væru alvarleg. Kom í ljós að rifbein höfðu stungist bæði í hjarta og annað lunga mannsins. Hann gekkst undir umfangsmikla aðgerð sem gekk vel og er honum nú haldið sofandi í öndunarvél. Rifbein stung- ust í hjarta og lunga LÍÐAN fimmtán ára pilts sem slas- aðist í Sundlaug Kópavogs þann 26. apríl sl. er óbreytt. Honum er hald- ið sofandi á gjörgæsludeild Land- spítala – háskólasjúkrahúss í Foss- vogi. Að sögn vakthafandi sérfræðings á deildinni er sömu sögu að segja af karlmanni á þrítugsaldri sem slas- aðist lífshættulega í umferðarslysi 6. maí sl. þegar hann reyndi að af- stýra árekstri bifhjóls og bifreiðar. Óbreytt líðan eftir slys FYRSTU fundir þingflokka Sam- fylkingar og Vinstri hreyfing- arinnar græns framboðs voru haldnir í gær, eftir kosningarnar á laugardag. Á fundunum komu saman gamlir og nýir þingmenn og ræddu um stöðu mála og það sem framundan er í starfi þing- flokkanna. Þá var vel tekið á móti nýjum þingmönnum, en þeim var fagnað með blómum þegar þeir komu til fundanna. Nokkuð er um nýliðun í þing- flokkum Samfylkingar og Vinstri grænna. Sex nýir þingmenn setj- ast á þing fyrir Samfylkinguna af átján þingmönnum alls. Níu eru í þingflokki Vinstri grænna og þar af eru fjórir nýir. Sex konur eru í þingliði Samfylkingarinnar og átján karlar en í hópi Vinstri grænna eru fjórar konur og fimm karlar. Reikna má með því að þing- flokkar Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknarflokks og Frjálslynda flokksins, komi saman á næstu dögum til skrafs og ráðagerða. Nýir þing- flokkar funda Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nýliðun Fjórir nýir þingmenn eru í þingliði Vinstri grænna en alls eru þingmenn flokksins níu talsins. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ræddu málin Ellert B. Schram er í hópi nýrra þingmanna Samfylkingar og hér ræðir hann við félaga sína. SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð- isins fór í tvö útköll í gærmorgun. Um klukkan tíu kviknaði eldur í grennd við gaskúta sem stóðu úti undir húsvegg á einbýlishúsi við Þingvað í Norðlingaholti. Eldur- inn breiddist út og læstist í klæðningu og þakskegg. Rúður sprungu og húsið fylltist af reyk. Eldsupptök eru ókunn. Miklar skemmdir urðu á húsinu en engan íbúa sakaði. Eldur kom einnig upp í húsbíl uppi við Rauðhóla en eigandanum tókst að mestu að slökkva hann með slökkvitæki. Talið er að eld- urinn hafi kviknað út frá rafkerfi bílsins. Hús fyllt- ist af reyk MEÐALALDUR þess hóps þing- manna sem kjörnir voru á þing í alþingiskosingunum á laugardag er 49,2 ár. Þetta er eilítið hærri meðalaldur en eftir kosningarnar árið 2003, en þá var meðalaldur þingmanna 48,9 ár. Séu kjör- dæmin skoðuð hvert fyrir sig kemur í ljós að meðalaldur þing- manna er lægstur í Suðvest- urkjördæmi, eða 43,8 ár. Í Norðvesturkjördæmi er með- alaldur þingmanna hins vegar hæstur, 56,6 ár. Munar rúmum sex árum á meðalaldri þing- manna þar og í því kjördæmi sem hefur næsthæstan meðalaldur, sem er Suðurkjördæmi, en þar er meðalaldurinn 50,9 ár. Þingmennirnir sem kjörnir voru á laugardag eru á mis- jöfnum aldri. Sá yngsti sem kjör- inn var á þing er framsókn- armaðurinn Birkir Jón Jónsson, sem fæddist árið 1979 og verður 28 ára gamall á árinu. Elsti þing- maðurinn er Ellert B. Schram sem kosinn var á þing fyrir Sam- fylkinguna. Ellert fæddist árið 1939 og verður því 68 ára á þessu ári. Meðalaldur þingmanna 49,2 ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.