Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 21
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 21 Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350                      !!"! #$%&' ()  ( *+,&' -.' /0 1((  222"34,33"'  5 5 6 verið eitthvað erfiðir í skapinu, því veiðimenn vita það mætavel að á veiðum þýðir ekkert að vera með marga hunda saman sem eru stans- laust til vandræða,“ segir Oddur Örvar. Bráðinni er gefinn „séns“ Óðinn þurfti ekki að fara í neina sérstaka þjálfun til að verða veiði- hundur þar sem veiðieðlið er þess- Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Ó ðinn er enskur setter og er það sem kallað er standandi fuglahundur. Það þýðir að hann leit- ar uppi bráð og þegar hann er búinn að finna fugl „tekur hann stand“ og bendir á fuglinn eða staðsetningu hans, sé hann í felum,“ segir Oddur Örvar Magnússon um veiðihundinn sinn sem fengið hefur viðurnefnið Húsavíkur-Óðinn því báðir búa þeir félagar á Húsavík og fara ávallt saman á fuglaveiðar. Enski setterinn er háfættur, tígu- legur, tiltölulega grannvaxinn og ber sig nokkuð tignarlega. Höfuðið er langt og grannt og hálsinn sterk- byggður. Enska setterinn er hægt að þjálfa til að leita með miklum hraða og áhuga að fuglum, sem dreifðir eru á víðáttumiklum veiði- lendum. Enskur setter er í eðli sínu vingjarnlegur og hentar því vel sem fjölskylduhundur. Þrátt fyrir það býr hann yfir villtu eðli. Hann þarfnast ákveðinnar og yfirvegaðrar þjálfunar til að verða góður heim- ilishundur. Oddur Örvar eignaðist Óðin sum- arið 2002. „Vinur minn Guðmundur Borg- þórsson tilkynnti mér það nokkru áður að hann hefði pantað fyrir mig hund frá Noregi þegar í það stefndi að sá hundur, sem ég átti þá fyrir, þyrfti að hverfa yfir móðuna miklu sökum veikinda. Á þeim tímapunkti var það svo sem ekkert á planinu að eignast annan hund, en það varð engu tauti við Guðmund komið því hundlaus yrði ég ekki. Eftir að hann hafði sannfært mig endanlega um að þessi umræddi hundur kæmi úr allra bestu ræktun í Noregi lét ég slag standa. Óðinn kom frá rækt- andanum Kjetil Helden, sem hefur ræktunarnafnið Kvernmomarka’s, í Vedalen í Norður-Noregi sem er hálfgert Mekka norskra hundarækt- enda.“ Mannblendinn ljúflingur Þegar spurt er út í lundarfarið svarar eigandi Óðins því til að fer- fætlingurinn sé mikill ljúflingur og einkar mannblendinn. Oftar en ekki vill hann bara fá að kúra í fanginu á manni, en það er oftast sammerkt með veiðihundum, sem koma úr úr- valsræktun, að skapið er mjög gott. Veiðimenn, sem hafa ræktað þessar hundategundir, eru löngu búnir að vinsa úr þá einstaklinga, sem hafa um hundum eðlislægt. „Það þarf ekkert að kenna þeim að leita að fugli. Þjálfunin fer fram á stöð- ugleika hundsins þegar hann er bú- inn að finna fugl, sem þýðir að hund- urinn sé kyrr og fæli ekki fuglinn upp fyrr en veiðimaðurinn segir honum að reka fuglinn í loftið svo hægt sé að koma skoti á bráðina. Þjálfunin felst í að halda hundinum stöðugum svo hann skemmi ekki veiðitækifærið sem hann var búinn að skapa veiðimanninum. Í Evrópu er bráðin aldrei skotin sitjandi held- ur er henni gefið tækifæri með því að reka hana upp í loft. Þennan veiðihátt eru íslenskir veiðimenn farnir að tileinka sér með tilkomu sitjandi fuglahunda,“ segir Oddur. Enskur setter hefur haldið vin- sældum sínum vegna nytsemi, gáfna, gæflyndis og fegurðar. Þessir þrekmiklu útivistarhundar eru gjarnan í uppáhaldi jafnt hjá veiðimönnum sem gæludýraeig- endum. Blítt lunderni enska setters- ins gerir hann að tryggum félaga en hann þarfnast mikillar hreyfingar og líður því betur utan borg- armarka. Orðinn „frægur“ í útlöndum Hundaræktarfélag Íslands er með deildir, bæði fyrir „sæki“ og standandi veiðihunda. Þar fara fram veiðipróf þar sem hundarnir eru hæfnisprófaðir og dæmdir svo hægt sé að nota þá í frekara rækt- unarstarfi. Á sérstökum sýningum HÍ er svo líkamsbyggingin tekin út. Óðinn er lifandi dæmi um það þegar saman fer frábær veiðihundur og falleg líkamsbygging enda hefur honum hlotnast fjöldinn allur af fyrstu einkunnum, bæði á sýningum og í veiðiprófum, að sögn eigandans. Húsavíkur-Óðinn er líka eini enski setterinn á Íslandi sem hlotið hefur íslenskan veiðimeistaratitil. Hróður Húsavíkur-Óðins hefur farið víða því birst hafa m.a. myndir af honum á netsíðum, í veiðiblöðum og dagatölum norskra og ítalskra ræktenda auk þess sem Húsavíkur- Óðin er að finna í hundabók sem út kom í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Það má því segja að Óðinn sé orðin „frægur“ í útlandinu. Á standi Óðinn finnur fugl og bendir svo á staðsetningu hans. Veiðifélagarnir Oddur Örvar Magnússon ásamt hinum norsk-ættaða Húsavíkur-Óðni. Trygga veiðifélaganum finnst gott að kúra í kjöltu TENGLAR ..................................................... www.simnet.is/flatey/odinn www.nesk.no

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.