Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 41
GOAL 2 kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
BLADES OF GLORY kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SPIDER MAN 3 kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
NEXT kl. 8 B.i. 16 ára
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA TVEIR
KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
eee
S.V. - MBL A.F.B - Blaðið
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
eeee
S.V.
eeee
V.J.V. TOPP5.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
25.000 MANNS
Á AÐEINS 10 DÖGUM!
Íslandsvinurinn Roni Horn kom
fyrst til landsins fyrir rúmum 30 ár-
um, hreifst af því og hefur notað
landið „sem útivinnustofu af ótak-
markaðri stærð og með óteljandi
möguleika“ eins og hún segir í texta
sýningarskrár.
Landið hefur þannig haft mikil
áhrif á listsköpun hennar. Jafn-
framt hefur hún opnað Íslendingum
og umheiminum ferska sýn á landið
með augum aðkomumannsins – í
fyrstu með ljósmyndum af sambýli
manns og náttúru svo sem í mynd-
um af réttum og sundlaugum víðs
vegar um landið – sem smám saman
verður heimavanur (að eigin sögn
„varanlegur túristi“) og skynjar
mótandi afl veðursins sem virðist
renna saman við sjálfsvitund Ís-
lendinga líkt og Horn gefur til
kynna í ljósmyndaröð af heillandi
ásjónu ungrar konu, You are the
Weather (Þú ert veðrið).
Horn hefur orðið vitni að sífellt
umfangsmeiri umbreytingu lands-
ins af mannavöldum og þeirri ógn
sem steðjar þess vegna að ósnort-
inni náttúru þess. Í því samhengi
má túlka fyrsta verkið sem blasir
við gestum sýningarinnar „My Oz“
sem er nýopnuð í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, sem við-
burð á Listahátíð í Reykjavík. Við
innganginn er ljósmynd á standi –
sem minnir á skilti – þar sem sést
dulúðugt jökullón. Sé litið til hægri
sjást fleiri slík „skilti“, m.a. af and-
liti manns á táningsaldri, snæuglu,
fleiri myndir af fljótandi jökulís og
dökkleitt vatnsyfirborð. Hið síðast-
nefnda sést einnig aftan á mörgum
myndanna. Áþekk „skilti“ eru víðar
í safninu og þau líkt og varða veg-
inn á ferð sýningargesta, nánast
eins og viðvörunarskilti. Ómótuð
framtíð unglings og lands (á norð-
urslóðum) – ósnortin fegurð – verð-
ur hún aurugum lónum að bráð?
Unglingurinn horfir spyrjandi í
augu okkar og ekki er laust við
ásökun undir hvössum brúnum ugl-
unnar.
Ljósmyndirnar eru allar af ein-
hvers konar yfirborði, sem jafn-
framt er breytingum háð á einn eða
annan hátt. Augu táningsins og ugl-
unnar vísa til óræðra djúpa undir
niðri. Í undurfallegu verki sem sam-
anstendur af tveimur stórum
stykkjum af heilsteyptu rafi með
„ómeðhöndluðu yfirborði og eldslíp-
uðum toppi“ fullkomnast spennan
milli yfirborðs og dýpis. Í tærleika
sínum og innri glóanda minnir það á
augasteina og er að mörgu leyti
táknrænt fyrir listsköpun Horn –
hvernig augu hennar nema um-
hverfið einbeitt og opin í senn,
draga það í innri heim, og end-
urvarpa á dularfullan og seiðandi
hátt í hinni „innri“ mynd.
Listfræðingurinn og sýning-
arstjóri sýningarinnar, Linda No-
ren, ræddi í fyrirlestri um hvernig
Horn lætur áhorfandann samsama
sig sjónarhorni hennar, líkt og horft
sé yfir öxl hennar. Hún benti á að á
kápu (glæsilegrar) sýningarskrár sé
óvenjuleg mynd af Horn þar sem
hún horfi sjálf til okkar íhugul og
rannsakandi, jafnvel dæmandi
augnaráði, en segja má að það sé þó
í hæfilegri fjarlægð á bakvið hina
opinberu sýningarframsetningu.
Hún virðist fela sig að hluta á bak
við stafina sem mynda titil sýning-
arinnar en þeir skilja jafnframt eft-
ir óræðar eyður í ásjónu hennar.
Líkt og Noren bendir á byggir
ímyndun (nánar tiltekið svonefnt
„hvergi“) Horn á raunverulegum og
ósnortnum stöðum – sem vissulega
eiga á hættu að hverfa, þ.e. yfirborð
þeirra að mást út en jafnframt
hverfa þeir inn í aðra veröld minn-
inga og ímyndunar.
Áhorfandanum er haldið í vissri
fjarlægð í verkum Horn en þau búa
yfir fagurfræðilegu seiðmagni og
ágengum krafti. Þessir eiginleikar
birtast einkar skýrt í sal F á efri
hæð safnsins þar sem gengið er líkt
og inn í helgidóm eða miðalda-
kirkju. Hvítir veggir skera sig úr
dökkgráu gólfi, lofti og súlum. Á
þeim hanga myndraðir sem sýna
sérstæða fegurð íslensks konuand-
lits – sem jafnframt mætti sjá sem
táknmynd norrænnar fegurðar eða
sem ásjónu Íslands – í mismunandi
veðri, birtu og vatnsumhverfi. Svip-
brigði konunnar haldast nánast
óbreytt og augu hennar þrengja sér
inn í skynjun sýningargesta án þess
að láta neitt uppi. Síendurtekið and-
litið endurspeglar óseðjandi þrá
Horn eftir fegurð sem er síbreytileg
og rennur sífellt úr greipum.
Ljósmyndir af yfirborði Thames-
árinnar í Englandi í næsta sal birta
enn „lokaðra“ yfirborð en þar býður
Horn upp á brotakenndan neð-
anmálslestur. Þau verk kallast á við
samsett yfirborð teikninga á neðri
hæð safnsins sem og textaverk í
öðrum sal sem kveikja rým-
isskynjun og hugrenningatengsl og
skírskota til mikilvægs áhrifavalds í
listsköpun Horn, bandarísku skáld-
konunnar Emily Dickinson. Í enn
öðru verki er raðað saman ljós-
myndum af búningsklefum Sund-
hallar Reykjavíkur og þar birtist á
táknrænan hátt leikur Horn með
yfirborð og dýpi: þar virðast rými
opnast inn á við, gægjugöt og aðrar
gáttir vísa til annarra rýma en
lokast jafnharðan aftur með múr-
steinshleðslu sem hefur spegilslétt,
lakkað yfirborð og er síbreytileg
eftir sjónarhorni. „Oz“ Roni Horn
er völundarhús þar sem vert er að
týna sér.
Fjarlægð „Áhorfandanum er haldið í vissri fjarlægð í verkum Horn en þau búa yfir fagurfræðilegu seiðmagni.“
Ásjónur og djúp
Myndlist
Listahátíð í Reykjavík
Roni Horn – My Oz
Til 19. ágúst. Opið alla daga kl. 10–17.
Aðgangur kr. 500. Eldri borgarar og ör-
yrkjar kr. 250. Hópar (10+) kr. 250. Yngri
en 18 ára: ókeypis. Ókeypis á fimmtu-
dögum.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
Anna Jóa
Á MEÐAN nýjabrumið var á mynd-
diskunum, þótti aukaefnið sem gjarn-
an fylgir, kærkominn bónus. Maður
byrjaði að skoða aukaefnið, góndi á
gömlu sýnishornin eins og naut á ný-
virki, viðtöl við stjörnurnar og kvik-
myndagerðarmennina. Þau höfðu fátt
nýtt til málanna að leggja, en það tók
nokkur ár að ná því á hreint.
Nýjasta dótið sem skeytt er á
mynddiskana, eru atriði sem hafa
annaðhvort lent viljandi í ruslakörf-
unni eða mislukkast af einhverjum
ástæðum. Hvort sem er mega þau
oftast nær missa sig.
Þegar um veigamiklar myndir er
að ræða er jafnan fengur í hluta auka-
efnisins, t.d. er minnisstæð heimild-
armynd Christiane Kubrick um gerð
The Shining og sú sem fylgdi hátíða-
útgáfu Gladiator og fjallaði á upplýs-
andi hátt um stafræna brellusmíði og
nútímalega stórmyndgerð.
Fyrir nokkru setti Sony nýja
DVD-útgáfu af Spider-Man 2 á mark-
aðinn, vitandi að beðið er með mikilli
eftirvæntingu Spider-Man 3 (eins og
kom á daginn.) Útgáfan hefur af litlu
nýju efni að státa öðru en nokkrum
atriðum sem höfðu verið klippt, en
geymd til betri tíma (þessara hluta?).
Eins er rætt við kvikmyndagerð-
armennina og sýnishornið úr S-M 3.,
fylgir með, en stór spurning hvort
hægt er með fullri sanngirni að kalla
aukaefnið kaupbæti.
Reuters
Spiderman 2 „Útgáfan hefur af litlu nýju efni að státa öðru en nokkrum
atriðum sem höfðu verið klippt, en geymd til betri tíma.“
Aukaefnið er upp og ofan
Sæbjörn Valdimarsson
MYNDDISKAR
DANSKI kvikmyndaleik-
stjórinn Lars von Trier
segist hafa þjáðst svo mjög
af þunglyndi að hann hafi
ekki getað sinnt starfi sínu.
Hann segir í samtali við
danska dagblaðið Politiken
að óvíst sé hvort hann leik-
stýri aftur kvikmynd, hann
hafi glatað einbeitingunni
þegar hann var lagður inn
á sjúkrahús í byrjun árs. „Maður
getur ekki búið til kvikmyndir þeg-
ar maður er þunglyndur,“ segir
Trier. Það geti tekið tvö ár að ná
sér af alvarlegu þunglyndi. „En
sjáum til,“ segir Trier.
Sér hafi fundist þetta ein-
kennilegt ástand, hann sé iðulega
með þrjú verkefni í huga í einu en
sér hafi liðið eins og auðu blaði.
Hann telur óljóst hvort hann geti
hafið forvinnu að kvikmyndinni
Antichrist, eða Antikristur,
sem hann hugðist hefja
tökur á um mitt ár. Þar
segir af því að Satan hafi
skapað himin og jörð, ekki
Guð. „Ég geri ráð fyrir því
að Antikristur verði mín
næsta kvikmynd, en ég er
ekki viss.“
Trier er þekktastur fyrir
svokallaða Dogma-nálgun í
kvikmyndagerð, reglur sem hann
setti og fékk fleiri leikstjóra til liðs
við sig. Reglurnar fólust í því að
banna alla sviðsmyndagerð, lýs-
ingu, hljóðklippingar o.fl, í raun að
vinna kvikmyndir eins hrátt og eins
mikið af fingrum fram og kostur
væri.
Trier sendi seinast frá sér kvik-
myndina Direktören for det hele,
eða Forstjóri heila klabbsins.
Ekki viss um að hann leik-
stýri sökum þunglyndis
Lars von Trier