Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 15 ERLENT Kanadískir gæðanuddpottar Verð frá 490.000,- www.spakongen.is ÆÐSTI hernaðarleiðtogi Talibana í Afganistan, múllann Dadullah, beið bana í átökum í suðurhluta landsins um helgina, að sögn afg- anskra embættismanna. Fréttamönnum var sýnt lík Da- dullah og heimildarmenn úr röð- um Talibana staðfestu að hann hefði fallið. Talsmaður Atlantshafs- bandalagsins sagði að Dadullah hefði fallið í átökum Talibana við afganska og vestræna hermenn í Helmand-héraði. „Það tekur áreið- anlega einhver við hlutverki hans síðar en þetta er mikið áfall fyrir uppreisnarmennina,“ sagði tals- maður NATO í Afganistan. Fréttamenn á staðnum sögðu að erfitt væri að meta hvaða áhrif dauði Dadullah hefði á uppreisn Talibana vegna þess að uppreisn- armennirnir störfuðu oft í litlum og laustengdum hópum sem berð- ust yfirleitt sjálfstætt. Dadullah hefur í mörg ár verið talinn einn af grimmúðugustu leiðtogum Talib- ana. Hann er tal- inn hafa fyrir- skipað liðs- mönnum Tali- bana að háls- höggva meinta njósnara, er sagður hafa stjórnað skæruhernaði hreyfing- arinnar í Helmand-héraði, skipu- lagt sjálfsmorðsárásir og látið ræna Vesturlandabúum, meðal annars ítölskum blaðamanni og tveimur frönskum starfsmönnum hjálparstofnana, en þeir voru allir látnir lausir síðar. Dadullah sagði nýlega í viðtali við fréttamann breska rík- isútvarpsins, BBC, að hundruð manna biðu eftir fyrirmælum frá honum um að gera sjálfsmorðs- árásir á erlenda hermenn í Afgan- istan. Hernaðarleiðtogi Talibana sagður hafa fallið í átökum Múllann Dadullah AÐ minnsta kosti 60 manns biðu bana í tveimur sprengjutilræðum í Írak í gær, þar af 50 í árás á byggingu tveggja stjórn- málaflokka Kúrda í bænum Mahmur í norðanverðu landinu. A.m.k. tíu til við- bótar létu lífið þegar bíll hlaðinn sprengi- efni var sprengdur í loft upp á útimarkaði í Bagdad. Um 4.000 bandarískir hermenn leituðu að þremur félögum sínum sem saknað er eftir árás á bandaríska hermenn sunnan við Bagdad á laugardag. Fjórir hermenn og íraskur túlkur féllu í árásinni. Utanríkisráðuneyti Írans sagði í gær að stjórn landsins hefði orðið við beiðni bandarískra ráðamanna um að hefja viðræður við þá um aðgerðir til að binda enda á blóðsúthellingarnar í Írak, efla stjórn landsins og lina þján- ingar þjóðarinnar. Tilkynnt verður síðar í vikunni hvenær viðræðurnar hefjast og hvaða embættismenn taka þátt í þeim. Íranar fallast á viðræður við Bandaríkjamenn um Írak Sorg Kona syrgir ættingja sinn eftir árás í Bagdad í gær. PÓLITÍSK staða Pervez Musharr- afs, forseta Pakistans, hefur veikst verulega vegna aðildar bandamanna hans að átökum sem kostuðu tugi manna lífið um helgina, að sögn sérfræðinga í stjórnmálum landsins. Er jafnvel talið að átökin geti orðið Mushar- raf að falli. Að minnsta kosti 38 manns, flestir þeirra andstæðingar Mus- harrafs, biðu bana í gær og á laugardag í átökum í borginni Karachi. Stuðningsmenn forset- ans börðust þá við félaga í flokk- um stjórnarandstöðunnar og stuðningsmenn Iftikhars Muham- mads Chaudrys sem Musharraf vék úr embætti forseta hæsta- réttar landsins 9. mars. Andstæðingar Musharrafs segja að hann hafi rekið dóms- forsetann til að tryggja sér stuðning hæsta- réttarins komi til málaferla vegna tilrauna hans til að halda forsetaembættinu. Musharraf leggur nú mikið kapp á að fá þingið til að kjósa hann forseta til fimm ára í viðbót áður en efnt verður til þingkosninga. Blóðug átök gætu orðið Pervez Musharraf að falli Pervez Musharraf RÚM milljón manna tók þátt í mót- mælum í Izmir, þriðju stærstu borg Tyrklands, í gær til að krefjast þess að haldið yrði í veraldlega þjóð- skipulagið sem hefur verið í land- inu allt frá stofnun lýðveldis 1923. Margir mótmælendanna héldu á fána landsins og myndum af stofn- anda lýðveldisins, Kemal Atatürk. AP Rúm milljón Tyrkja mótmælir AUÐUGIR Bretar hafa lofað sam- tals 2,5 milljónum punda, sem svarar rúmum 300 milljónum króna, í verð- laun fyrir upplýsingar sem leiddu til þess að Madeleine McCann, fjögurra ára stúlka, fyndist heil á húfi. Stúlkunni var rænt kvöldið 2. maí sl. úr hóteli í Algarve í Portúgal, þar sem hún lá sofandi ásamt tveggja ára tvíburum hjónanna Kate og Gerry McCann. Foreldrarnir höfðu fengið sér að borða á veitingastað hótelsins í um 50 metra fjarlægð. Þeir segjast hafa farið til barnanna á um hálfrar klukkustundar fresti um kvöldið. Madeleine átti fjögurra ára af- mæli á laugardag og foreldrar henn- ar gáfu þá út yfirlýsingu þar sem þeir hvöttu fólk til að gera allt sem á valdi þess stæði til að finna stúlkuna. Eggert lofar framlagi Breska dagblaðið The News of the World og ýmsir auðugir Bretar hafa lofað alls 1,5 milljónum punda, tæp- um 190 milljónum króna, í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiddu til þess að Madeleine fyndist. The News of the World sagði að stærsta framlagið kæmi frá J.K. Rowling, höfundi metsölubókanna um Harry Potter. Blaðið sagði fram- lagið „mjög höfðinglegt“ en rithöf- undurinn vildi að ekki yrði greint frá fjárhæðinni. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem hafa lofað fram- lögum, að sögn fréttavefjar BBC. Á meðal annarra eru sir Philip Green, eigandi Topshop, auðkýfingurinn sir Richard Branson og Simon Cowell, dómari í sjónvarpsþáttunum Amer- ican Idol. Áður hafði breska dagblaðið The Times skýrt frá því að skoski auðkýf- ingurinn Stephen Winyard hefði lof- að milljón punda, sem svarar 126 milljónum króna. Fjölmargir þekktir fótboltamenn og þjálfarar hvöttu mannræningjana til að skila stúlkunni. Á meðal fót- boltamannanna eru John Terry, fyr- irliði enska landsliðsins, Portúgal- arnir Cristiano Ronaldo hjá Manchester Utd., Paulo Ferreira hjá Chelsea, Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri Chelsea og Luiz Felipe Scolari, þjálfari landsliðs Portúgals. Lofa andvirði 300 milljóna í verðlaun  Viðamikil leit að ungri stúlku sem rænt var í Portúgal  Auðkýfingar og fótboltastjörnur leggja hönd á plóginn AP Bænasamkoma Portúgali með mynd af Madeleine við helgistað í Fatima í Portúgal þar sem María mey á að hafa birst þremur börnum fyrir 90 árum. Angouleme. AFP. | Tvö rúmensk pör voru handtekin eftir að þau reyndu að selja tveggja mánaða stúlku á bílastæði stórmarkaðar nálægt Angouleme í suðvest- anverðu Frakklandi, að sögn frönsku lögreglunnar í gær. Fimmtán ára stúlka, líklega móðir barnsins, var flutt á sjúkra- hús en tveir karlmenn og ein kona á lögreglustöð. „Hvað býður þú í barnið?“ sagði annar karlmannanna við fólk á bílastæðinu og hélt á barninu. Kona gerði öryggisvörðum stórmarkaðarins viðvart og þeir héldu fjórmenningunum þar til lögreglan kom á staðinn. Einn ör- yggisvarðanna slasaðist í rysk- ingum. Saksóknari sagði að hópurinn yrði ákærður í dag en ekki er ljóst hvað verður um barnið. Svipaður atburður átti sér stað í Portúgal þar sem móðir fjög- urra mánaða drengs var hand- tekin á föstudag fyrir að reyna að selja hann fyrir utan stórmarkað í bæ norðan við Lissabon. Barnið var flutt á sjúkrahús til skoðunar. Konan er erlendur ríkisborgari en barnið fæddist í Portúgal, að sögn þarlendra fjölmiðla. Móðirin gekk að fólki við stór- markaðinn og bauð son sinn til sölu fyrir sem svarar 800.000 til 1,3 milljóna króna. Hún reyndi að selja barnið í nokkrar klukku- stundir á aðalgötu bæjarins. Átta karlmenn, sem voru með konu- inni, voru einnig handteknir. „Móðir barnsins stóð við út- ganginn og ætlaði ekki að sleppa einni kvennanna, þrábað hana að kaupa barnið og nefndi ýmsar verðhugmyndir,“ var haft eftir sjónarvotti. „Hvað býður þú í barnið?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.