Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 14.05.2007, Qupperneq 18
|mánudagur|14. 5. 2007| mbl.is daglegtlíf Á ferðalögum og framandi stöðum er margt öðruvísi en heima og því mikilvægt að vera með viðeigandi tryggingar. »20 fjármál Oddur Örvar Magnússon á veiðihund sem kallaður er Húsavíkur-Óðinn og saman fara þeir á fuglaveiðar. »21 gæludýr Hann er sannur herramað-ur, dálítið sjálfmiðaðuren sýnir konum kurteisieins og tíðkaðist um miðja síðustu öld og þær hrífast af. Hann opnar fyrir þeim dyrnar og býður þeim til sætis, daðrar djarft og dansar tangó. Hann gengur undir nafninu Tino the tango lover. – Tino, hvaða augum lítur þú kon- ur? „Ég lít á þær með aðdáun, virðingu og lotningu. Eina vandamál mitt hér á Íslandi er svo margar konur, svo lítill tími“, svarar þessi suðræni lat- ínó-elskhugi sem hingað er kominn til þess að vera. – Tino, hvaða ráð myndirðu gefa karlmönnum í samskiptum við kon- ur? „Hrósa þeim og tala við þær með hjartanu ásamt „dassi“ af klassískri kurteisi,“ svarar hann að bragði eins og sá sem sjálfstraustið hefur. Kostuleg kóngaveröld En eins og á bak við alla mikla menn er kona og á bak við Tino the tango lover er Halla Frímannsdóttir. Hún sigraði reyndar í fyrstu drag- kóngakeppninni sem haldin var hér á landi árið 2005. Jamm, Tino er drag- kóngur. „Tino er ættaður frá Argentínu og bókstaflega elskar konur, tangódans, nautakjöt og eðalvín,“ segir Halla og brosir í gervi Tinos. „Hann kom til Íslands á vængjum ástarinnar og þenur þá daglega enda margar fal- legar gyðjur hérlendis. Tino hefur al- gjörlega slegið í gegn, líka í steggjap- artíum þar sem hann kennir karlmönnum nokkur tangódansspor, háttvirta mannasiði og fleygar dað- urlínur sem gott er að hafa í brjóst- vasanum úti á galeiðunni.“ Halla tók fyrir rúmum tveimur ár- um þátt í dragkónganámskeiði hjá Maríu Pálsdóttur leikkonu sem hún segir hafa verið alveg stórskemmti- legt. „Ég hafði aldrei spáð í það hvernig er að vera maður og mig langaði bara að vita það,“ segir Halla sem hefur gaman af því að reyna sig í nýju umhverfi og aðstæðum. – Og hvernig er að vera karl- maður? „Það er pungsveitt atriði en gríð- arlega skemmtilegt. Á námskeiði Maríu var okkur konunum kennt auk ýmissa „mannasiða“ að setja á okkur skegg og snyrta skeggbrodda. Eng- inn karlmaður er heldur trúverðugur með tvö brjóst og til þess að þrýsta þeim niður og fá karlmannlegri vöxt þurfa dragkóngar að klæðast níð- þröngu magabelti,“ segir Halla à la Tino the tango lover og hlær inni- lega. Að gera eitthvað öðruvísi „Það má heldur ekki gleyma þeirri upplifun að búa til karlmann- skynfæri. Að skapa dragkóng snýst meira um að búa til kar- akter en minna um búninga eins og hjá dragdrottning- unum. Það þarf þess vegna að rannsaka at- ferli karlmanna af nákvæmni og ég verð að segja að það kom verulega á óvart hversu miklar þreifingar virð- ast vera á klofsvæði karlmanna í dag- legu lífi þeirra. Tino the tango lover er frábrugðinn kynbræðrum sínum að þessu leyti en daðrar og dansar þeim mun meira við konur.“ Halla ætlar nú að halda námskeið fyrir allar þær konur sem vilja finna karlmanninn í sjálfri sér og hafa gaman af. „Þetta er auðvitað til- tölulega nýtt í menningunni hér en á vaxandi vinsældum að fagna erlend- is. Þetta snýst fyrst og fremst um leiklist, enda er þetta hálfgert uppi- stand. Svo er bara eitthvað spreng- hlægilegt að gera eitthvað öðruvísi eins og að klóra sér í pungnum.“ Það er Tino the tango lover sem opnar dyrnar og hvetur allar stelpur til þess að efla dragkóngamenningu landsins. Morgunblaðið/Kristinn Suðrænn sjarmör Tino er ættaður frá Argentínu og elskar konur, tangódans, nautakjöt og eðalvín. Dragkóngur – námskeið fyrir kon- ur. Haldið í sal Samtakanna ’78 30. maí og 1. júní. www.kmk.is. Ég Tino er sannur herramaður en ef til vill dálítið sjálfmiðaður Skartgripasérfræðingurinn Helen Mo- lesworth hjá uppboðshaldaranum Christie sýnir hér mikla skartgripi sem á að selja í Genf nú í þessari viku. Hringarnir eru afar verðmætir og sá dýrasti sem er safírhringur er metinn á annað hundrað milljónir íslenskra króna. Eins gott að týna ekki þessum Daðrar djarft og dansar tangó í karlmannsdragi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.