Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 30

Morgunblaðið - 14.05.2007, Side 30
30 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ SigríðurTryggvadóttir fæddist í Gröf í Eyjafjarðarsveit 20. júní 1923. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri þriðjudag- inn 24. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Tryggvi Stefánsson frá Eyrarlandi í Öngulsstaðahreppi, f. 1887, d. 1968. Móðir Sigríðar var Guðrún Sigurrós Jónsdóttir, f. í Laugalandi á Þela- mörk 1889, d. 1966. Systur Sig- ríðar eru þrjár, Ingibjörg, f. 1916, d. 1992, Hrefna, f. 1918, d. 1996, og Anna Sigurbjörg, f. 1927. 9) Börkur, f. 16.1. 1957, 10) Björk, f. 5.10. 1958, d. 25.7. 1996, maður hennar Jóhannes Stef- ánsson, 11) Anna, f. 12.8. 1960, og 12) Þröstur, f. 24.12. 1961. Barna- börn Sigríðar eru 18 og barna- barnabörnin eru 26. Sigríður sleit barnsskónum í Gröf, þar sem hún ólst upp við þeirra tíma aðstæður, í torfbæn- um á Gröf, og naut þar leiðsagnar og kennslu sem þá bauðst. En á unglingsárum hennar flutti fjöl- skyldan til Akureyrar og þar bjó Sigríður alla ævi síðan. Fyrstu árin á Akureyri starfaði Sigríður hjá skóverksmiðjunni Iðunni. Eft- ir að hún stofnaði heimili með manni sínum og eignaðist sitt fyrsta barn var hún heimavinn- andi húsmóðir þar til yfir lauk. Útför Sigríðar var gerð í kyrr- þey frá Höfðakapellu 2. maí. Hinn 30. janúar 1955 giftist Sigríður Ragnari Pálssyni, f. í Hvammi í Laxárdal í Skagafirði 20. júlí 1923. Þau skildu 1990. Þau eignuðust tólf börn, þau eru: 1) Regína, f. 24.5. 1945, gift Júníusi Guðna- syni, d. 2006, 2) Æv- ar, f. 4.8. 1946, fórst af slysförum 25.3. 1982, 3) Tryggvi, f. 22.8. 1947, 4) Erling, f. 25.10. 1948, kona hans Dagbjört Sig- rún Torfadóttir, 5) Örn, f. 13.5. 1950, kona hans Svanhvít Ingj- aldsdóttir, 6) Úlfar, f. 15.11. 1951, 7) Stefán, f. 15.9. 1953, 8) Fríður, f. 30.12. 1954, maður hennar Svanberg Reynir Gunnlaugsson, Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Þessar línur úr kvæðinu „Íslenska konan“ eftir Ómar Ragnarsson koma upp í hugann þegar ég minnist móður minnar því þær eru eins og ortar um hana. Mamma, þessi æðru- lausa, nægjusama og jákvæða kona sem alltaf sá betri hliðarnar hjá öll- um. Hún með sitt jafnaðargeð og góða skap, alveg sama hvað á dundi. Hún var sívinnandi á heimilinu frá morgni til kvölds öll mín æskuár, enda við systkinin mörg, engin nú- tíma heimilistæki, né heitt vatn, fyrr en mörgum árum síðar. Mömmu- maturinn alltaf jafngóður, sama úr hvaða hráefni hann var. Hún var ein af þessum harðdug- legu alþýðukonum sem aldrei kvart- aði þótt vinnudagurinn væri bæði langur og strangur. Hún hafði mikið dálæti á allskyns bókum og las eins mikið og tími gafst til. Eins þótti henni gaman að spila á spil og fór oft á spilavist, ég man þegar ég var lítill þegar hún kom af spilakvöldunum oft með aðalverðlaunin en ef ekki þau, þá fannst mér betra að hún fengi háðungarverðlaunin frekar en að koma tómhent heim. Einnig hafði hún unun af að hlusta á fallega tón- list, bæði íslenska og ekki síst óp- erusöng með mönnum eins og Mario Lanza, Benjamin Gigli, Caruso og fleiri snillingum. Hún fylgdist vel með öllum fréttum og hafði gaman af flestum íþróttum alla tíð. Ung í anda og alltaf jafn gaman að ræða málin við hana. Elsku mamma mín, það verður mikill söknuður að geta ekki hitt þig né talað við þig í síma fram- ar. Ég er þakklátur fyrir að hafa átt svona góða mömmu eins og þig og trúi því að þú sért á góðum stað og vel hafi verið tekið á móti þér á nýj- um vettvangi. Hafðu þökk fyrir allt og blessuð sé minning þín. Það er við hæfi að enda á þessum línum úr kvæðinu Íslenska konan. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. Þinn elskandi sonur, Erling. Elsku mamma mín. Þær stundir hafa komið að ég þurft á því að halda að geta sagt ein- hverjum frá því, hvað ég hræddist, þarfnast einhvers til að eiga með mér leyndarmál, eða til að samfagna mér yfir unnu afreki. Á slíkum stundum getur enginn komið í stað góðrar móður. Mikið var mér brugðið, þegar ég frétti um skyndileg veikindi þín og viku seinna varstu dáin. Söknuður minn er mikill og ég mun ætíð minn- ast þín sem þeirrar yndislegustu og vammlausustu manneskju sem ég hef umgengist. Aldrei aftur munu ég, þú og Tryggvi bróðir sitja klukkutímum saman yfir spilum í tíma og ótíma. Því sjaldan fengum við nóg af spilamennsku, einkum fyrr á árum þegar þú varst vel frísk. Það er mikið skarð höggvið í til- veru okkar systkina, ættingja og vina við fráfall þitt, en þín mun ætíð verða minnst fyrir alla þína hlýju, hjálpsemi og nærgætni. Þú máttir aldrei neitt aumt sjá. Vonandi líður þér vel, þar sem þú ert nú. Hafðu þökk fyrir allt. Hvíl í friði. Örn og fjölskylda. Sigríður Tryggvadóttir ✝ Guðmunda Lára Guðmunds-dóttir fæddist í Reykjavík 12. janúar 1913. Hún lést á dval- arheimilinu Hornbrekku laug- ardaginn 5. maí síðastliðinn. Hún ólst upp á Strönd á Eyrarbakka, hjá fósturforeldrum sínum Gunn- ari Halldórssyni og Þorbjörgu Jónsdóttur, sem þar bjuggu. For- eldrar Guðmundu voru hjónin Guðmundur Þorsteinsson, f. í V- Skaftafellssýslu 2. september 1873, d. 10. júní 1912, og Gróa Hannesdóttir, f. á Stéttum á Stokkseyri 23. maí 1878, en alin upp í Hvammi í Landsveit, d. 1969. Systkini Guðmundu, sem öll eru látin, voru þrjú, Kristinn, f. 25. ágúst 1907, d. 1990, maki Dýrleif Árnadóttir, börn þeirra Guðmundur, Guðrún Lóa og Stella. Guðrún, f. 3. september 1908, d. 1. febrúar 1966, maki Auðunn Magnússon, dóttir þeirra Sigríður, maki Hafsteinn Júlíusson. Þau eru búsett í Kan- ada. Óskar Guðmundsson, f. 1910, d. 1956. Útför Guðmundu verður gerð frá Höfðakapellu á Akureyri í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast Mundu minnar. Ég man ekki eftir mér öðru vísi en Munda mín væri hjá mér. Hún kom til foreldra minna árið 1935, þegar ég fæddist. Ég á þrjá eldri bræður og áttum við heima í Tjarnargötu 36 ásamt for- eldrum okkar. Einnig var hjá okk- ur móðursystir okkar. Fjölskyldan átti sumarbústað við Elliðavatn og vorum við þar mikinn part af sumrinu. Þar voru nú engin þægindi, neysluvatn var sótt í Elliðavatnið, olíulampar og aladinlampar voru notaðir til ljósa. Kolavél var í eld- húsinu og kolaofn í stofunni. Munda átti forláta grammófón, sem hún spilaði mikið á fyrir mig og sátum við oft saman úti í garði á Sveinsstöðum, en það hét sum- arbústaðurinn. Ég á mjög góða mynd af okkur, þar sem ég sit í fangi Mundu. Hún fór frá okkur til Danmerkur rétt áður en stríðið byrjaði og lokaðist hún inn í stríð- inu. Er út kom, þá fór hún að gæta barna, sem henni var einkar lagið, enda í mesta máta barngóð og hlý- leg manneskja. Þegar stríðinu lauk varð hún eftir í Danmörku. Og síðar meir, er ég fór til Danmerkur, þá heim- sótti ég Mundu mína og þekkti ég hana strax, en hún var nokkra stund að þekkja Beggu litlu, sem þá var orðin stór. Ég heimsótti vinkonurnar Ransí og Mundu í hvert skipti, sem ég kom til Kaup- mannahafnar. Þær bjuggu lengst af í Finlandsgade 5 á Amager og alltaf var þar tekið vel á móti manni. Svo var það, að aðstæður mínar voru þannig, að ég átti von á þriðja barni mínu og var að flytja í gamla húsið að Tjarnargötu 36 með bróðurdóttur mína og manni, sem var í guðfræðideild í Háskól- anum. Það var mikið að gera og datt mér þá í huga að skrifa Mundu og spyrja hana hvort hún gæti hugsað sér að koma og að- stoða mig. Það voru nú ekki marg- ir, sem trúðu því, að hún mundi koma. En þegar Begga litla þurfti á aðstoð að halda, þá héldu henni engin bönd og hún kom til mín sumarið 1963 og var hjá mér í ár. Soffíu dóttur mína kallaði hún allt- af Beggu litlu. Ransí og Munda fluttu svo á efri árum til Íslands og bjuggu á Ak- ureyri. Þar var gott að koma í heimsókn. Ransí dó fyrir nokkrum árum og var þá ákveðið að Munda færi á dvalarheimilið Hornbrekku á Ólafsfirði þar sem hún gat ekki búið lengur ein. Vil ég að lokum þakka fyrir fóstrið á mér og börnunum mínum. Blessuð sé minning góðu og grandvöru konunnar, sem aldrei brást, þegar mest á reið. Guð blessi hana í eilífðinni. Bergljót Sveinsdóttir. Guðmunda Lára Guðmundsdóttir ✝ Einar Péturssonfæddist í Reykjavík 28. sept- ember 1944. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítala – háskólasjúkrahúss 18. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Pétur Óli Lár- usson, f. í Reykja- vík 21.6. 1911, d. 17.10. 1994, og Sig- ríður Einarsdóttir, f. í Hömrum í Grímsneshreppi í Árnessýslu 1.5. 1912, d. 14.4. 1977. Systkini Einars eru fjögur, Valgerður, f. 1939, Guðmar, f. 1941, Guðríður, f. 1949 og Jó- hanna f. 1953, d. 1991. hverfinu í Reykjavík þar sem hann lauk gagnfræðaskólaprófi. Strax að gagnfræðanámi loknu hóf Einar að stunda sjómennsku sem hann gerði eins lengi og heilsa hans leyfði. Einar stundaði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík á árunum 1967-1968 þaðan sem hann öðlaðist skip- stjórnarréttindi. Á sjómannsferli sem spannaði rúm 30 ár kom Ein- ar víða við og þá ýmist sem há- seti, stýrimaður eða skipstjóri. Sjómennska átti hug Einars allan sem sást best á því að listrænir hæfileikar hans fundu sér farveg í ótöldum málverkum hans þar sem hafið og sjómennska voru meginstef. Útför Einars var gerð í kyrrþey að ósk hins látna. Einar kvæntist ár- ið 1973 Eddu R. Há- konardóttur hjúkr- unarkonu. Þau eignuðust tvö börn: Jón Birgi f. 10.6. 1975, og Sigríði f. 17.11. 1976. Edda átti dóttur frá fyrra hjónabandi, Helgu Skúladóttir, f. 22.12. 1962, sem Einar í gekk í föðurstað. Einar og Edda skildu. Seinni konan í lífi Einars var Margrét Geirsdóttir, f. 13.09. 1943. Þau kynntust 1990 og myndaðist með þeim traust og djúp vinátta. Einar ólst upp í Smáíbúða- Þegar sumarið heilsaði kvaddir þú, elsku vinur. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt og það fékkst þú svo sannarlega að reyna. Það er aðdáun- arvert hvað þú varst sterkur í öllum þínum veikindum og það var líka einstakt hvað þú gast séð björtu hliðarnar á lífinu sem lék þig svo grátt. Frá því að þú veiktist fyrst, innan við tvítugt, og greindist í kjölfarið með þennan ólæknandi æðasjúk- dóm, hefur hvert áfallið rekið annað. Síðustu árin reyndust þér þung- bær, enda líkaminn brostinn eftir áratuga baráttu. Þrátt fyrir miklar framfarir læknavísindanna hefur ekki enn tekist að vinna bug á þess- um erfiða sjúkdómi sem bæði móðir þín og systir dóu úr. Þú varst stór partur af mínu lífi síðastliðin 18 ár og þó ég vissi að hverju stefndi gengur mér illa að sætta mig við að þú ert ekki lengur til staðar. Þegar við ræddum sam- an um enn eina aðgerðina sem stóð fyrir dyrum hjá þér sagðir þú allt í einu: Þú þakkar nú fyrir karlinn, Magga mín, ef þetta fer á verri veginn. Við skulum nú bara vera bjartsýn, Einar minn, sagði ég og bjóst ekki við að illa færi. Elsku stelpur mínar á deild 11G, sem var orðin annað heimili Einars, innilegar þakkir fyrir hönd Einars. Elsku Sigga mín, það var erfið lífsreynsla fyrir þig að horfa upp á baráttu pabba þíns síðustu dag- ana. Þú stóðst þig eins og hetja og haltu því áfram elskan, ég fylgist með þér úr fjarlægð. Kæri Teddy okkar í Austur- brún, þú sem reyndist Einari svo vel og varst honum sannur vinur, innilegar þakkir. Elsku Nonni minn, þið Sigga eigið alla mína samúð. Þá skilja leiðir í bili, hjartans vin- urinn minn. Ég þakka alla þína um- hyggju og ástúð, allt sem þú varst mér og allt sem þú vildir fyrir mig gera en gast oft ekki vegna þinna veikinda. Allar okkar stundir í blíðu og stríðu þakka ég af öllu hjarta. Mig langar til að kveðja þig með þessum fallegu ljóðlínum eftir Sigurbjörn Einarsson. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu, vinur, mér sem vorið bjarta, það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla Drottinn launi elskuna þínu alla. Guð geymi þig elsku vinur. Þín Margrét Geirsdóttir (Magga) . Einar Pétursson Elsku amma Helga, við eigum ótal góðar minningar um þig sem okkur langar til að rifja upp nú þegar við kveðjum þig. Það er alltaf glatt á hjalla þegar fjölskyldan hittist og margar sög- urnar sem lifa eftir slíka fundi. Eitt sinn vorum við í sumarbú- staðnum og þú ætlaðir að laga á þér hárið með hárfroðu, en endaðir með að sprauta raksápunni hans pabba í hárið á þér. Svo komstu fram með hvítan raksápuhjálm yfir höfðinu og var mikið hlegið. Kaldbaksvík hefur alltaf verið uppáhaldsstaður fjölskyldunnar og þú fórst með hvert sumar. Í Kald- baksvík lagðir þú oftar en ekki veðurkapal til að segja til um veðr- ið næsta dag við mikla eftirvænt- ingu viðstaddra, því við viljum auð- vitað alltaf fá gott veður í Kaldbaksvík. Í síðustu ferðunum, þegar fæturnir voru orðnir slæmir, léstu ekkert stoppa þig og þú tókst Helga Kristín Stefáns- dóttir Mogensen ✝ Helga KristínStefánsdóttir Mogensen fæddist á Akureyri 14. nóv- ember 1923. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 7. apríl síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Bústaða- kirkju 13. apríl síð- astliðinn. bara göngugrindina með, fín og flott í gönguferð út við vatn með bómull í eyrun- um. Það er akkúrat sem þú varst amma, alltaf fín og flott og við munum minnast þín fyrir þinn ein- staka „elegans“. Jólaboðin voru sér- stök og á yngri árum var okkur gerð grein fyrir því að orðin lifr- arkæfa og kakó voru bannorð, en lever- postej og súkkulaði það eina rétta. Um jól og gamlárskvöld var alltaf svaka stuð í Básendanum og mikl- ar veislur haldnar að hætti ömmu. Kræsingarnar létu ekki á sér standa og besta laufabrauðið í bænum var á boðstólum sem fjöl- skyldan var búin að hjálpast við að búa til. Það er stiklað á stóru, en minn- ingarnar eru margar og góðar. Við kveðjum þig með söknuði elsku amma en við vitum að það fer vel um þig þar sem þú ert núna. Nú heilsar vorsins blíði blær og brosir himinn, land og sær, allt lofar ljósið bjarta. Ó, syng af gleði, sála mín, lát sumar Drottins ná til þín og lífga hug og hjarta. (Sigurbjörn Einarsson) Ingigerður, Ágúst og Helga Ragnhildur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.