Morgunblaðið - 14.05.2007, Síða 34
34 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
SJÁÐU, VIÐ FENGUM JÓLAKORT FRÁ
BREIÐBANSFYRIRTÆKINU OKKAR
ÁHUGAVERÐ
TEIKNING...
MYND AF JÓLASVEININUM
AÐ BERJA GERVIHNATTAR-
DISK MEÐ STÓRU SÆLGÆTI
GETTU HVAÐ
GERÐIST, KALLI
BJARNA!
ÉG MUNDI LOKSINS EFTIR
AÐ TAKA EGGJASKURNINA
MEÐ Í SKÓLANN...
EN KENNARINN MINN VAR
HORFINN! HÚN ER HÆTT!
HÚN ÆTLAR AÐ GIFTA SIG
ÉG VISSI AÐ VANDAMÁLIN
HENNAR ÆTTU SÉR DÝPRI
RÆTUR EN EGGJASKURN!
ÞAÐ ER ÓGNVEKJANDI AÐ
VERA VEIKUR Á NÓTTUNNI
HVAÐ EF ÞAÐ ER
EITTHVAÐ ALVARLEGT AÐ
MÉR? HVAÐ EF ÉG ÞARF
AÐ FARA Á SPÍTALA?
HVAÐ EF ÞEIR ÞURFA AÐ
TROÐA FULLT AF SLÖNGUM Í
MIG? HVAÐ EF ÉG ÞARF AÐ
FARA Í AÐGERÐ? HVAÐ EF
AÐGERÐIN MISTEKST? HVAÐ
EF ÞETTA ER SÍÐASTA NÓTT
SEM ÉG Á EFTIR ÓLIFAÐ?
ÞÁ GET ÉG
VERIÐ
ÁNÆGÐUR
MEÐ AÐ GETA
SOFIÐ Á
MORGUN!
ÞAÐ ER
FÁTT EINS
SAMÚÐAR-
LÍTIÐ OG
ÞREYTT
TÍGRISDÝR
HÉRNA HRÓLFUR,
FARÐU ÚT MEÐ
RUSLIÐ!
HÚN ER KOMIN Í
EINUM OF MIKIÐ
JÓLASKAP
PÓST-
HÚSHUNDURINNMINN, GRÍMUR,
ER TÝNDUR
MÁ ÉG HENGJA
UPP MYND
AF HONUM?
VIÐ HENGDUM
UPP MYND AF
HONUM FYRIR
LÖNGU SÍÐAN
ÉG HÉLT AÐ
ÞAÐ YRÐI GAMAN
AÐ VERA Í
HLJÓMSVEIT SEM
SPILAR BARA LED
ZEPPELIN LÖG, EN
AÐDÁENDURNIR
ERU KLIKKAÐIR!
JÁ, ÞEIR
VERÐA
FREKAR
REIÐIR EF VIÐ
SPILUM EKKI
LÖGIN EINS OG
LED ZEPPELIN
GERÐI
LALLI, VIÐ LÉTUM REYNA Á
ÞETTA EN ÉG ER HRÆDDUR
UM AÐ VIÐ NEYÐUMST TIL
ÞESS AÐ LÁTA ÞIG FARA
EKKERT MÁL,
ÉG ÆTLAÐI HVORT
EÐ VAR AÐ HÆTTA
HVAR
ERU
ÞEIR?
EF ÉG LIFI AF
KVÖLDIÐ
ÉG ÆTTI AÐ REYNA AÐ
LEGGJA MIG AÐEINS ÁÐUR
EN VIÐ LENDUM
POKI AF
HNETUM
OG HANN
BROSIR
ÞAÐ
ÞARF
EKKI
MIKIÐ TIL
ÞESS AÐ
GLEÐJA
SUMA
dagbók|velvakandi
Jólastjarnan mín
Fyrir 5 árum keypti ég fallega jóla-
stjörnu fyrir jólin, setti hana eftir
jólin á ískistu í björtu þvottahúsi (oft
sól að morgni). Hún var alltaf mjög
falleg en blöðin roðnuðu þó aldrei
aftur. Meðan ég var í ferðalagi í
september vantaði hana vökvun og
varð nær því ónýt. Ég fleygði henni
en tók áður af „rytjulegan afleggj-
ara.“ Ég taldi víst að hann myndi
deyja en ákvað þó að fylgjast vel
með honum og setti afleggjarann á
stofuborð sem stendur fyrir innan
stóran glugga sem sól skín inn um á
sólar-dögum frá kl. 9-13 á morgn-
ana. Plantan fékk góða vökvun einu
sinni í viku þ.e. á fimmtudögum,
dafnaði afar vel og varð fallega
græn. Um mánaðamót febr/mars
byrjuðu nýjustu blöðin hennar að
roðna og nú skartar hún mörgum,
mörgum fagurrauðum háblöðum og
er orðin 25 cm að hæð. Mér finnst þó
að frá því að sólardagarnir urðu
fleiri og heitari sé hún ekki eins
frískleg. Þegar ég sá greinina í
Mbl.um „langlífar jólastjörnur“
hugsaði ég með mér: „Ekki virðist
nú margt líkt með skyldum.“ Jóla-
stjarnan mín hefur alltaf verið í
dagsbirtu (nema á nóttunni), aldrei
komið nálægt halógenljósi og það
hefur enginn haldið uppi samræðum
við hana, en hún hefur þó sýnt mér
þakklæti sitt fyrir góða umönnun.
Margrét Sigurgeirsdóttir.
Íslendingar öðlist fullt versl-
unarfrelsi á ný
Halldór Laxness sagði í einni af rit-
gerðum sínum eitthvað í þá áttina að
Íslendingar væru sérfræðingar í
tittlingaskít en þegar kæmi að stóru
málunum þá þegðu þeir. Þetta kom
upp í hugann við að hlusta á kjafta-
vaðalinn í kosningabaráttunni um
allt og ekki neitt. Nú hafa Frakkar
kosið sér nýjan forseta, Sarkozy.
Frakkar eru þekktir fyrir að búa til
góða osta og eru alls 220 ostar
nefndir hver öðrum betri. Eru Ís-
lendingum þá ekki boðnir þessir ost-
ar til kaups í öllum matarmörkuðum
hér á landi? Nei, það er öðru nær.
Annað hvort er bannað að flytja þá
inn eða verndartollarnir eru það háir
að engum verslunarmanni dettur
innflutningur í hug. Árið 1855 fengu
Íslendingar fullt verslunarfrelsi og
það mest fyrir tilstilli Jóns Sigurðs-
sonar, forseta. Áratugina á eftir var
óheftur innflutningur á öllum mat-
vörum til landsins. En á þriðja ára-
tug síðustu aldar var innflutningur á
helstu landbúnaðarafurðum, svo
sem kjöti og mjólkurvörum, bann-
aður og þar með var verslunarfrels-
inu rænt af Íslendingum. Svo er enn,
þrátt fyrir yfirklór stjórnvalda um
að lækka tolla sem eru það háir fyrir
að innflutningur er útilokaður.
Áhugamaður.
Veit Guðrún Helga ekki betur?
Varðandi skrif Guðrúnar Helgu
Brynleifsdóttur, hæstaréttarlög-
manns, í Morgunblaðinu 9. maí, um
stúlkuna sem fékk íslenskan rík-
isborgararétt á skömmum tíma, vil
ég benda Guðrúnu á að allir sem búa
í þessu landi þurfa ekki að leita langt
til að skoða persónulega hagi fólks.
Allir hafa aðgang að skattaskýrslum
á ákveðnum tímapunkti.
Anna Björnsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
KRAKKARNIR í deildinni Asparlundi í leikskólanum Sólbrekku á Seltjarn-
arnesi notuðu góða veðrið til að skreppa í göngutúr um Nesið.
Morgunblaðið/Ómar
Fram, fram fylking…
SPK og knattspyrnudeild HK
skrifuðu undir nýjan samstarfs-
samning til tveggja ára þar sem
SPK verður aðalstyrktaraðili
meistaraflokks og 2. flokks karla í
knattspyrnu hjá HK. Samningur-
inn gildir til 1. maí árið 2009.
Skrifað var undir samninginn í
höfuðstöðvum SPK í Hlíðasmára 7.
maí. Undir hann rituðu, frá vinstri,
Ólafur K. Ólafs, forstöðumaður hjá
SPK, Halldór Valdimarsson, for-
maður knattspyrnudeildar HK, og
Ingólfur V. Guðmundsson, aðstoð-
arsparisjóðsstjóri SPK. Leikmenn
meistaraflokks karla voru við-
staddir undirritunina.
Þetta er enn einn liðurinn í
miklum stuðningi SPK við HK en
sparisjóðurinn hefur styrkt allar
deildir og alla flokka í HK um ára-
bil.
Samningur Meistaraflokkur karla hjá HK, Ólafur K. Ólafs forstöðumaður
hjá SPK, Halldór Valdimarsson formaður knattspyrnudeildar HK og Ing-
ólfur V. Guðmundsson aðstoðarsparisjóðsstjóri SPK.
SPK eykur stuðn-
ing sinn við HK