Morgunblaðið - 14.05.2007, Page 44
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 134. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Unnið að áframhaldandi
stjórnarsamstarfi
Samfylkingin hefur látið þau boð
út ganga til framsóknarmanna að
þeir séu velkomnir til stjórnarsam-
starfs við Samfylkinguna og Vinstri
græna. Líkur eru þó taldar á því að
framsóknarmenn haldi áfram sam-
starfinu við Sjálfstæðisflokkinn.
Fólk í innsta kjarna beggja flokka er
byrjað að leggja línur að áframhald-
andi samstarfi. » Forsíða
600 æðavíkkanir á ári
Gerðar hafa verið yfir 7.100
kransæðavíkkanir með hjartaþræð-
ingu frá því að slíkar aðgerðir hófust
hér á landi fyrir 20 árum. Síðustu ár
hafa rúmlega 600 kransæðavíkkanir
verið gerðar á hverju ári. » 9
Æðarstofn rannsakaður
Háskólasetrið í Stykkishólmi er
að hefja viðamikla rannsókn á
æðarfuglinum á Íslandi. Áætlað er
að æðarstofninn sé um 900.000 fugl-
ar og eitt af markmiðum rannsókn-
arinnar er að svara því hvort hægt
sé að fjölga þeim. » 17
Lofa háum verðlaunum
Ýmsir auðkýfingar í Bretlandi
hafa lofað miklu verðlaunafé fyrir
upplýsingar sem leiddu til þess að
fjögurra ára stúlka, sem rænt var í
Portúgal, fyndist heil á húfi. » 15
Frækileg björgun
Íslendingaliðið West Ham bjarg-
aði sér frá falli með frækilegum sigri
á Englandsmeisturum Manchester
United á útivelli í gær. » Íþróttir
SKOÐANIR»
Staksteinar: Tap Samfylkingar
Forystugrein: Óbreytt samstarf
Ljósvaki: Eyra – haldið eða slitið?
Frá Helsinki: Einfaldleikinn sigraði
UMRÆÐAN»
Varanleiki ákvarðana – at-
kvæðavægi
Um hjónavígslu samkynhneigðra
Hjól sem samgöngutæki …
Kalt er konulausum
Nýir alþingismenn
Hundfúll, segir Mörður Árnason
Á lokasprettinum er beðið og vonað
KOSNINGARNAR 2007»
Heitast 10°C | Kaldast 2 °C
Norðlæg eða breyti-
leg átt, 3–10 m/s. 3–12
stig að deginum, hlýj-
ast syðra. » 10
Anna Jóa fór á sýn-
ingu á verkum Roni
Horn, Oz, sem hún
telur vera völundar-
hús sem vert sé að
týna sér í. »41
MYNDLIST»
Horn í
Hafnarhúsi
HÖNNUN»
Myndir frá sýningu fata-
hönnunarnema. » 38
Sæbjörn Valdimars-
son gefur hrollvekj-
unni Uppskerunni
tvær stjörnur, telur
handritið ansi hug-
myndasnautt. »40
KVIKMYNDIR»
Frekar léleg
hrollvekja
FÓLK »
Lars von Trier illa hald-
inn af þunglyndi » 41
KVIKMYNDIR»
Vinalegur mafíósi í Nes-
inu. »37
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ríkisstjórnin hélt velli …
2. Feðgin létust í eldsvoða
3. Diaz átti erfitt
4. 30% kjósenda Sjálfstæðisflokks
strikuðu Árna Johnsen út
FJÖLBRAUTASKÓLI Vesturlands
á Akranesi á 30 ára starfsafmæli í
haust. Í skólanum er boðið upp á
fjölbreytt nám, en farin hefur verið
óhefðbundin leið til að bregðast við
samkeppni nýrra framhaldsskóla í
nágrenni Akraness. Öllum Pólverj-
um sem búsettir eru á Vesturlandi
hefur nú verið sent bréf þar sem
þeim er boðið að kynna sér starfs-
nám í byggingargreinum í FVA.
„Við rennum alveg blint í sjóinn
með þetta,“ segir Hörður Helgason,
skólameistari FVA. „Ef vel tekst til
gæti hópur Pólverja skráð sig í nám
fyrir haustið og þá bregðumst við við
því með viðeigandi hætti. Þetta er að
okkar mati tilraunarinnar virði og
við sjáum hver viðbrögðin verða,“
segir Hörður.
Nýlega var undirritað samkomu-
lag um byggingu nýs kennsluhús-
næðis fyrir byggingar- og mann-
virkjagreinar fyrir nemendur FVA
og vonast Hörður til að það verði
tilbúið á næsta ári. | 17
Pólverjum
boðið í
starfsnám
EIRÍKUR
Hauksson segist
ekki hrifinn af
þeirri hugmynd
að skipta Evrópu í
tvennt í Söngva-
keppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, í
samtali við norska
dagblaðið Aften-
posten.
Eiríkur segir menn ekki mega
gerast of gagnrýna á keppnina, tón-
listin sé það sem skipti öllu máli.
Hann vildi þó gjarnan leggja nið-
ur sms-kosningu í keppninni og
taka upp gamla stigagjafarfyrir-
komulagið, að dómnefnd í hverju
landi gefi lögunum stig. Ekki mætti
gera lítið úr tónlist ríkjanna sem
komust áfram, mikið væri af góðri
tónlist frá austanverðri Evrópu. Ís-
land hafnaði í 13. sæti í undan-
keppninni, hlaut 77 stig. 14 stigum
munaði að Eiríkur kæmist í úrslit.
Aftenposten segir mikið hafa ver-
ið rætt um það í Helsinki seinustu
daga að níu af þeim tíu löndum sem
komust áfram í forkeppninni skyldu
vera frá Austur-Evrópu.
Eiríkur sagði í samtali við Morg-
unblaðið eftir forkeppnina að
„austurblokkin“ hefði hana í hendi
sér. | 39
Vill ekki
skipta Evr-
ópu í tvennt
Eiríkur Hauksson
Eftir Sigmund Ó. Steinarsson
sos@mbl.is
„ÉG á afar erfitt
með að tjá mig
mikið þessa
stundina – ég er
eins og blaðra
sem allt loftið er
úr. Þetta er stór-
kostleg stund
fyrir mig, Björg-
ólf Guðmunds-
son og alla
stuðningsmenn West Ham,“ sagði
Eggert Magnússon, stjórnar-
formaður West Ham, þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann á flug-
vellinum í Manchester í gær,
stuttu eftir að ljóst varð að West
Ham hafði bjargað sér frá falli í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu á
Englandi á elleftu stundu – með
glæsilegum sigri á Englandsmeist-
urum Manchester United á Old
Trafford, 1:0.
„Það voru tvennir sigurvegarar
sem fögnuðu hér í Manchester;
leikmenn United, sem tóku á móti
Englandsmeistarabikarnum, og
við, sem fögnuðum sigri á meist-
urunum og tilverurétti okkar í úr-
valsdeildinni. Þetta var ótrúleg
stund og við Björgólfur vorum í
sjöunda himni í stúkunni á Old
Trafford – stoltir af okkar mönn-
um,“ sagði Eggert og hann sagði
að framtíðin væri björt hjá West
Ham.
„Það hefur aldrei verið nein
lognmolla í kringum mig í sam-
bandi við knattspyrnuna, sem er
allt mitt líf og yndi,“ sagði Eggert,
sem fagnaði sigrinum á Manchest-
er United á Old Trafford á þann
hátt að athygli vakti. „Ég er til-
finningaríkur og læt mínar tilfinn-
ingar – í gleði og sorg – í ljós með
látbragði. Þannig hef ég alltaf
verið og það er engin breyting þar
á þó að ég sé nú starfandi í Eng-
landi,“ sagði Eggert og bætti við
að hann og Björgólfur væru
keppnismenn. „Við viljum hafa líf í
kringum okkur og erum tilbúnir
að berjast. Við Bjöggi þekkjum vel
mótlæti og höfum gengið í gegn-
um ýmis erfið tímabil. Síðustu vik-
urnar hafa verið eins og ævintýri.
Þó að blásið hafi á móti höfðum
við alltaf trú á því sem við vorum
að gera,“ sagði Eggert Magn-
ússon. | Íþróttir
Eggert Magnússon vakti athygli á Old Trafford
Reuters
Bjargvætturinn Enginn leikmanna West Ham hefur verið eins mikið í sviðsljósinu í vetur og Carlos Tevez sem hér
fagnar með Mark Noble eftir sigurinn á meisturunum í gær. Tevez var bjargvættur liðsins eins og svo oft áður.
Síðustu vikurnar
eins og ævintýri
West Ham bjargaði sér frá falli með sigri á meisturunum
Í HNOTSKURN
» West Ham sýndi mikinnstyrk með því að vinna sjö
af síðustu níu leikjum sínum í
ensku úrvalsdeildinni.
» West Ham skaut liðumeins og Charlton, Sheffield
United, sem féllu ásamt Wat-
ford, Fulham og Wigan, aftur
fyrir sig á lokaspettinum.
» Eggert Magnússon ræðirvið Alan Curbishley um
framhaldið á miðvikudaginn.
Eggert Magnússon
♦♦♦