Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 37
✝ Elis StefánAndrésson
fæddist á Eskifirði
11. september árið
1932. Hann lést á
heimili sínu, í Boga-
hlíð 14 á Eskifirði,
1. júní síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Andrés Eyj-
ólfsson, f. á Vöðlum
í Vöðlavík 28. októ-
ber 1887, d. 16. des-
ember 1961, og
Guðný Þórdís Stef-
ánsdóttir, f. í Núps-
hjáleigu á Berufjarðarströnd 18.
október 1888, d. 18. ágúst 1967.
Alsystkini Elisar eru Guðrún Sig-
ríður, f. 15. september 1929, og
Jón Pétur, f. 1. febrúar 1931.
Systkini Elisar samfeðra eru: a)
Eyjólfur, f. 28. október 1910, d.
25. apríl 1987, b) Árnmar Jóhann-
es, f. 27. júlí 1914, d. 1. október
1983, c) Sigurborg, f. 18. nóvem-
ber 1915, d. 23. maí 1980, d) Jó-
hann, f. 18. nóvember 1915, d. 29.
Helga, f. 7. desember 1985. 2)
Guðni Þór vélstjóri, f. 26. maí
1956, í sambúð með Láru Metú-
salemsdóttur, f. 1. ágúst 1950.
Þau eiga þrjá syni, þeir eru Hlyn-
ur Metúsalem Ársælsson, f. 20.
febrúar 1975, Heiðar Högni, f. 1.
júlí 1981, og Arnar, f. 10. ágúst
1987. 3) Andrés rafvirki, f. 22.
ágúst 1957, kvæntur Svönu Guð-
laugsdóttur, f. 6. júlí 1961. Þau
eiga tvær dætur, þær eru Guð-
laug Dana, f. 17. mars 1981, og
Ingunn Eir, f. 15. júlí 1983. 4)
Njóla hjúkrunarfræðingur, f. 16.
febrúar 1959, gift Jóni G. Ragn-
arssyni, f. 15. janúar 1959. Þau
eiga fimm börn, þau eru Sindri
Mar, f. 25. desember 1978, Aron,
f. 14. janúar 1983, d. 14. janúar
1983, Teitur Frímann, f. 11. des-
ember 1984, Aðalheiður, f. 15.
janúar 1988, og Elis Stefán, f. 28.
júní 1991. Barnabarnabörnin eru
fimm.
Elis Stefán starfaði lengst af til
sjós en seinni árin af starfsævinni
vann hann sem vélstjóri hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar.
Útför Elisar verður gerð í dag
frá Eskifjarðarkirkju og hefst at-
höfnin klukkan 14.
maí 1981. Einnig átti
hann fjögur systkini
sammæðra sem öll
létust í frum-
bernsku.
Elis kvæntist 11.
desember 1954 Aðal-
heiði Ingimundar-
dóttur frá Kleifum í
Kaldrananeshreppi í
Strandasýslu, f. 27.
maí 1933. Foreldrar
hennar voru Ingi-
mundur Magnússon,
f. á Kleifum í Kaldr-
ananeshreppi í
Strandasýslu 20. febrúar 1902, d.
15. desember 1978, og Njóla
Dagsdóttir, f. á Ósi í Hrófbergs-
hreppi í Strandasýslu 11. desem-
ber 1911, d. 24. mars 2000. Börn
Elisar og Aðalheiðar eru: 1) Ingi-
mundur stýrimaður, f. 29. júní
1955, kvæntur Höllu Jóhannes-
dóttur, f. 5. október 1951. Hann á
þrjú börn, þau eru Sigurlaug
Dóra, f. 18. febrúar 1977, Árni
Heimir, f. 21. desember 1981, og
Allt á sér upphaf og endi. Lífs-
göngu tengdaföður míns er lokið.
Vorið 1979 kom ég fyrst til Eski-
fjarðar til að dvelja þar sumarlangt
á heimili Ella og Öllu, syni þeirra
Andrési hafði ég kynnst þá um vet-
urinn í Reykjavík er hann var þar
við nám. Það var tilhlökkun og kvíði
í huga mínum þegar ég steig upp í
bílinn til þeirra bræðra Andrésar og
Guðna Þórs til að halda af stað til
Eskifjarðar þennan maímorgun fyr-
ir 28 árum. Ferðin austur tók sextán
tíma, gat kom á bensíntankinn og
púströrið fór undan en vel var tekið
á móti mér á Eskifirði og ætíð síðan.
Mér leið strax eins og ég væri eitt
af börnum þeirra Öllu og Ella,
sumrin sem ég dvaldi hjá þeim urðu
fleiri áður en við Andrés fluttum bú-
ferlum austur.
Hugurinn fer á fullt og minning-
arnar streyma fram.
Elli fullur eftirvæntingar með
sonum sínum að taka á móti nýja
hraðbátnum, Heiðu. Elli mikið veik-
ur. Spjall við matarborðið og yfir
kaffisopa í Bleiksárhlíðinni. Ættar-
mótin og allar glæsilegu veislurnar
hjá þeim hjónum. Stund yfir sjón-
varpinu. Elli með barnabörnunum.
Elli og Alla á gullbrúðkaupsafmæli
sínu fyrir þremur árum í Reykjavík
þegar að þau buðu öllum afkomend-
um sínum út að borða. Elli alsæll og
stoltur yfir sínum, yndisleg kvöld-
stund í faðmi fjölskyldunnar. Þessar
minningar og margar fleiri ylja
manni um hjartaræturnar núna.
Það var gott að vera í návist Ella.
Hann var traustur, rólegur og yf-
irvegaður maður með ákveðnar
skoðanir. Dugnaður var honum í
blóð borinn og hlutina átti að fram-
kvæma strax. Hvergi leið honum
jafnvel og heima á Eskifirði. Sjórinn
heillaði alla tíð.
Elli fékk alvarlegt hjartaáfall
sumarið 1984, þá rúmlega fimmtug-
ur er þau hjónin voru í fríi úti í Sví-
þjóð. Hann jafnaði sig aldrei á því,
fékk fleiri áföll og var oft mikið veik-
ur. Hann þurfti snemma að hætta að
vinna vegna veikinda og voru það
honum þung spor í byrjun. Alla stóð
alltaf eins og klettur við hliðina á
honum, samrýnd hjón og erfitt að
nefna annað þeirra á nafn án þess að
hitt fylgi með.
Ég kveð Ella með söknuði, það
voru forréttindi að fá að kynnast
honum.
Megi góður Guð vaka yfir tengda-
móður minni á þessum erfiðu tíma-
mótum, börnum þeirra, barnabörn-
um og öðrum aðstandendum.
Svana.
Elsku afi, nú ertu farinn frá okk-
ur. Mér brá nokkuð við að heyra að
þú værir dáinn. Þó það væri búið að
segja mér lengi að þú værir veikur
bjóst ég ekki við þessu strax.
Kannski vildi ég ekki bara trúa því –
ég held ég sé ennþá ekki búin að ná
þessum vonda sannleika. Védís
hafði ekki einu sinni fengið að sjá
þig áður en Guð tók þig frá okkur –
ég vona bara að þér líði mikið betur
þarna uppi. Ég veit þú varst orðinn
veikur og búinn að vera lengi. Ég
reyni hugga mig við það að þér líði
betur núna og að þetta sé betra.
Amma er rosalega sterk. Hún
gerði allt til að þér liði betur og
sömuleiðis hugsaðir þú til hennar.
Ég vona hún sé bara sátt en þið átt-
uð gott líf saman á Eskifirði. Ég
fékk alltaf að koma í heimsókn á
sumrin og vera hjá ykkur nokkrar
vikur og fannst það alltaf alveg æð-
islegt. Þegar ég fékk heimþrá kætt-
ir þú mig alltaf og gerðir eitthvað
með mér svo ég varð hress aftur og
vildi þá bara vera hjá þér. Þú
kenndir mér að dorga á bryggjunni
og setja færi á veiðistöng og svo
gátum við Kristín verið úti á
bryggju og leikið okkur í kringum
bátinn þinn jafnvel þótt þið væruð
búin að banna okkur að vera á
bryggjunni. Það var bara svo gam-
an.
Þú varst mesti rólyndismaður
sem ég hef kynnst. Aldrei vildir þú
rífast við ömmu og yfirleitt bara
jánkaðir og brostir ef eitthvað var.
Ég sakna þín, elsku afi, vonandi
hittumst við einhvern tímann seinna
á betri tímamótum. Ég ætla reyna
vera sterk og vona þú fylgist með
litlu barnabarnabörnunum sem fæð-
ast núna ár eftir ár. Ég vildi að ég
hefði getað kvatt þig betur.
Kveðja,
Aðalheiður (Alla yngri).
Elsku fallegi afi okkar.
Það er ekki langt síðan ég sagðist
ætla í heimsókn til ömmu og afa.
Það er óendanlega sárt að hugsa til
þess að nú verður það bara amma.
Það er svo stutt síðan að ég kom til
ykkar og mér fannst þú líta svo vel
út, mér fannst þú hress og heil-
brigður. Við töluðum mikið um lang-
afabarnið þitt sem er á leiðinni, nýja
bátinn hans pabba, hús til sölu á
Eskifirði og fleira sem vakti áhuga
þinn. Þennan dag hafðirðu mikið að
segja en þetta var afmælisdagur
ömmu og hún var mikið í símanum.
Mér þykir vænt um þennan dag sem
Guð gaf mér til að kveðja þig. Ekk-
ert var þó fjarlægara í huga mínum
en að þú myndir deyja stuttu
seinna. Afi minn, þú varst mér svo
kær, alltaf þegar ég kom í heimsókn
sastu á móti mér og alltaf sá ég hlýj-
an hug þinn í garð minn sem skein
út frá augum þínum. Þú veittir
Andrési Leon langaafastráknum
þínum mikla athygli og vildir allt
fyrir hann gera, lékst við hann og
hjálpaðir. Andrés Leon sótti mikið í
þig og alltaf gat hann platað þig í að
leika við sig, spurning hvor skemmti
sér betur. Hann var mikill afastrák-
ur enda ekki ósvipaðir strákar, þið
tveir. Þú varst svo góður, blíður og
kær. Þakka þér fyrir allar þær góðu
stundir sem við áttum saman.
Nú ertu farinn frá okkur og við
söknum þín. Við heyrum samúðar-
kveðjur allt í kringum okkur. Okkur
þykir vænt um þær en reynum að
brynja okkur þegar við svörum:
,,takk“. Við reynum að hugsa sem
minnst í margmenni svo við brotn-
um ekki saman. Við reynum að vera
sterkar. Við þurfum að vera sterkar
fyrir ömmu, það er það eina sem við
getum gert fyrir hana núna. Vera
sterkar og vera til staðar fyrir hana.
Við systurnar eyddum miklum
tíma í Bleiksárhlíðinni hjá ykkur.
Við spiluðum oft vist saman og borð-
uðum kleinurnar hennar ömmu. Við
vorum svo oft í pössun hjá ykkur.
Þú varst gjafmildur og góður afi. Í
dag eigum við sitt náttborðið hvor
eftir þig, dalla úr rennibekknum
þínum, útskorin skóhorn og fleiri
einstaka hluti eftir þig. Við varð-
veitum þessa hluti alltaf. Þetta
áhugamál þitt gerði þig að miklum
listamanni.
Við gleymum þér aldrei og varð-
veitum þig í hjarta okkar. Sál þín lif-
ir áfram á himnum og í kringum
okkur. Við biðjum þig um baráttu-
strauma í sorginni svo við getum
verið sterkar fyrir ömmu.
Við biðjum Guð að blessa ömmu
og gefa henni styrk til að halda
áfram. Við elskum þig.
Þínar sonardætur,
Ingunn Eir og Guðlaug Dana
Andrésdætur.
Elli mágur minn er dáinn. Ég
missti þar ekki bara skemmtilegan
og tryggan mág, ígildi stóra bróður,
heldur vin. Vin, sem ég kynntist
fyrst um rúmlega miðja síðustu öld
þegar hann kom með systur mína og
litlu frændur í heimsókn til tengda-
fólksins á Strandirnar. Ég þekkti
stóru systur lítið þá vegna aldurs-
munar en Elli mágur heillaði mig
strax þegar hann sýndi mér hvernig
ætti að tengja á milli á jeppanum
svo maður kæmist í smávegis öku-
ferð. Þegar ég svo hafði sumardvöl
hjá þeim á síldarárunum gaf ungi
sjómaðurinn sér tíma til að skreppa
með mágkonu sína á rúntinn þótt oft
væri stutt stopp í landi og þá kynnt-
ist ég Austfjarðaökulaginu sem mér
þótti mjög sérstakt. Ljúfmennið El-
is var hæglátur maður og jafnlynd-
ur sem hafði ákveðnar skoðanir og
kom jafnan sínu fram með hægð-
inni. Umhyggja hans gagnvart fjöl-
skyldunni náði ekki aðeins til konu
og barna heldur naut ég einnig góðs
af. Það lýsir vel hugulsemi hans og
forsjárhyggju þegar þau lánuðu mér
bílinn sinn þegar þau fóru til út-
landa að það var búið að tryggja bíl-
inn sérstaklega á mig. Eins þegar
hann borgaði sektina fyrir mig þeg-
ar ég, einstæða móðirin var tekin í
tollinum fyrir að kaupa of mikið af
fötum á börnin mín. Elli var glæsi-
menni og kunni sig vel og ég minnist
þess hvað hann var alltaf smart
klæddur, skórnir hans flottir og
gaman að dansa við hann. Vináttu-
böndin styrktust svo síðar á lífsleið-
inni þegar meiri tími gafst til heim-
sókna landshorna á milli. Mót-
tökurnar voru alltaf konunglegar og
þótt heilsan væri ekki alltaf góð þá
vildi mágur minn fyrir alla muni
gera eitthvað skemmtilegt eins og
að skreppa í Vöðlavík, fara á sjó eða
sýna okkur eitthvað markvert á
heimaslóðum sínum. Ég þakka mági
mínum fyrir innihaldsríkar sam-
verustundir, gestrisnina, hlýjuna og
skemmtilegheitin, sama hvort tekið
var í spil, spjallað eða farið í smá-
ferðalög. Minning um góðan dreng
og skemmtilegan félaga lifir í hug-
um okkar.
Guðbjörg Ingimundardóttir
og Sigurður G. Ólafsson.
Við kveðjum Ella í dag. Kveðju-
stund getur reynst erfið þó við telj-
um okkur vera undir hana búin. Á
ögurstundu getur kraftur hennar
kallað fram tilfinningar, minningar
og jafnvel tár. Þetta er einmitt það
sem kom yfir mig þegar ég frétti um
hægt andlát Ella föstudagskvöldið
fyrir sjómannadagshelgina. Það var
svo ótrúlegt til þess að hugsa að sjá
hann aldrei meir. Hingað til hef ég
alltaf gengið út frá því sem vísu að
þegar ég kem í mína árlegu heim-
sókn til systur minnar og mágs á
Eskifirði, þá muni ég hitta Öllu og
Ella, tengdaforeldra systur minnar,
í leiðinni. Það er erfitt að sjá Öllu
fyrir sér eina. Í mínum huga voru
Alla og Elli eitt, Alla hin ástríka
húsmóðir, Elli svo ósköp rólegur
henni við hlið og þau bæði órjúf-
anlegur hluti af Eskifirði. Á sumrin
man ég oft eftir afa- og ömmubörn-
unum í heimsókn, bæði heimabörn-
um og þeim sem komu lengra að.
Um húsið hljómaði Alla amma eða
Elli afi í annarri hverri setningu.
Börnin okkar hjóna voru engin und-
antekning. Svo barnelsk voru Alla
og Elli að það þótti sjálfsagt mál að
börnin mín fengju að njóta alls þess
kærleika til barna sem þau höfðu
uppá að bjóða eins og þau væru
þeirra eigin.
Við hittum Ella afa síðast í húsum
systur minnar og mágs á aðventunni
sl. í stuttri heimsókn fjölskyldunnar
austur. Alla amma kom færandi
hendi að vanda og gaf yngstu
drengjunum mínum tveim ásamt
langömmusyni sínum jólasokka með
vasaljósi í, jólakúlum og smávegis
nammi. Auðvitað var Elli afi með í
för og naut þess að horfa á börnin
gleðjast yfir þessum gjöfum og
spjalla rólega við fullorðna fólkið
meðan litlu drengirnir ærsluðust út
um allt í kring. Mig grunaði ekki þá,
að þarna væri ég að kveðja Ella í
síðasta sinn í þessu lífi. Við vissum
vel um veikindi hans til margra ára
en það var eins og hann ætti níu líf.
Alla hugsaði líka alltaf svo vel um
hann, passaði upp á lyfin, mataræð-
ið og fór með honum í allar nauðsyn-
legar heimsóknir til lækna. En
vissulega höfðu nýlegar fréttir um
versnandi veikindi Ella gert okkur
grein fyrir að kannski færi að stytt-
ast í hinstu kveðju. Samt, eins og
svo margir reyna, þá er það alltaf
svo óviðbúið þegar stundin rennur
upp. Ég, eiginmaður minn og börnin
okkar kveðjum Ella með söknuði og
viljum votta eftirlifandi maka hans,
Aðalheiði Ingimundardóttur, okkar
dýpstu samúð svo og fjórum börn-
um þeirra, tengdabörnum, barna-
og barnabarnabörnum.
Vegir skiptast – allt fer ýmsar leiðir
inn á fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdags kveðja,
Öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem keðja,
krossför ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið
stórt og smátt er saman bundið.
(E.Ben.)
Sunna Guðlaugsdóttir.
Elis Stefán Andrésson
✝
Faðir okkar,
STEINGRÍMUR ATLASON
fyrrv. yfirlögregluþjónn í Hafnarfirði,
Hjallabraut 43,
Hafnarfirði,
lést miðvikudaginn 6. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Steingrímsson,
Atli Steingrímsson.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
auðsýndu samúð og vinarhug við andlát okkar
ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
AGNESAR GUÐNÝJAR HARALDSDÓTTUR,
Ólafur Bjarki Ragnarsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Pétur Már Pétursson,
Ragnar Ólafsson, Hólmfríður Jóna Guðmundsdóttir,
Kristinn Ólafur Ólafsson, Helga Þórisdóttir,
Haraldur Ólafsson
Helgi Ólafsson, Wanpen Srima Ólafsson,
Björg Kristín Ragnarsdóttir, Sigurgeir Árni Ægisson,
Pétur Bjarki Pétursson, Kolbrún Gísladóttir,
Dagbjört Svana, Davíð Már, Agnes Ólöf, Ólafur Bjarki, Ólöf
Kolbrún,
Sigríður Kolbrún, Guðný, Agnes, Sigríður Pálína og Ægir Frímann.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur vináttu og hlýhug við andlát,
Sigríðar Pálsdóttur.
Þórhallur Hermannsson,
Rannveig Þórhallsdóttir, Már V. Magnússon,
Sigríður Kristín Þórhallsdóttir, Höskuldur Þórhallsson,
Geirfinnur Þórhallsson, Hrólfur Þórhallsson,
Arnhildur Þórhallsdóttir, Hörður Jónsson.