Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 60
Í gærkvöldi var þátturinn La-ter With Jools Holland sýnd-ur á BBC 2-sjónvarpsrásinni. Björk kom þar fram ásamt hljóm- sveitinni sinni og flutti þrjú lög, þar af tvö af nýju plötunni. Þátt- urinn var tekinn upp á miðviku- daginn var.    Nokkrar aðrar hljómsveitirkomu fram í þættinum sem raðað var í hring umhverfis sviðið og var sérstök upplifun að sitja beint á móti bítlinum fyrrverandi, Paul McCartney. Ég hef aldrei verið mikill Bítlaunnandi, en hljómsveitin á samt virðing- arverðan sess í tónlistarsögunni – maður getur ekki annað en bugtað sig fyrir henni. Þegar ég hitti McCartney aðeins á eftir virtist hann hinn viðkunnanlegasti náungi og ég verð líka að segja að lögin voru grípandi sem hann flutti í þættinum ásamt eldhressri hljómsveit. Að minnsta kosti hummaði ég lögin í rúminu síðar um kvöldið og gat ekki hætt.    Ég spilaði í einu Bjarkarlagi afþremur, en það heitir Earth Intruders. Eftir það fór ég af svið- inu og settist inn í græna her- bergið svokallaða, en þar var hægt að fylgjast með því sem fram fór á sjónvarpsskjá. Síðasta lagið sem Björk söng var „Declare Your Independence“, en það er mjög pönkað og ég hefði haldið að það nyti sín ekki annars staðar en á tónleikum – helst þegar áheyr- endur eru orðnir mjög fullir! Það kom þó betur út en ég bjóst við, að hluta til vegna myndatökunnar, sem var hröð og æsileg. Hið sjón- ræna undirstrikaði að nokkru brjálæðislegt andrúmsloftið í tón- listinni. Tónlist í sjónvarpi er samt ekkiþað sama og tónlist á tón- leikum. Þegar við komum fram í Saturday Night Live í Bandaríkj- unum í apríl máttu lögin sem við fluttum ekki taka lengri tíma en fjórar mínútur. Við þurftum því að stytta lögin. Þegar ég spurði Björk af hverju útskýrði hún fyrir mér að sjónvarpsmínútur „væru ekki eins og aðrar mínútur“. Tón- listarupplifun er allt öðruvísi í sjónvarpi en á tónleikum. Hljóð- styrkurinn er minni og því þarf að grípa til annarra ráða til að ná til- skildum áhrifum. Myndatakan vegur þar upp á móti og nær- myndir af söngvaranum og hljóð- færaleikurunum skapa spennu og undirstrika það sem er að gerast í tónlistinni hverju sinni. Það dugir þó aldrei alveg.    Í sjónvarpsþáttaröðinni Tíu fing-ur sem ég hafði umsjón með voru oft mjög löng tónlistaratriði, þau lengstu tóku um fimmtán mín- útur. Ég heyrði stundum fólk kvarta yfir því. Vandamálið við flutning klassískrar tónlistar í sjónvarpi er að styrkleikabrigðin skila sér ekki, sterkir kaflar verða aðeins miðlungssterkir, en veikir kaflar sterkari, vegna einhvers sjálfvirks mekanisma í útsending- unni sem erfitt er að eiga við. Þar sem klassísk tónlist byggist mun meira á styrkleikabrigðum en dægurtónlist er flutningur hennar í sjónvarpi ákaflega vandmeðfar- inn.    Þetta er örugglega aðalástæðanfyrir því að sjónvarpsstöðv- arnar eru oft tregar til að sinna klassískri tónlist að einhverju ráði. Það er þó hæglega mögulegt að gera henni skil á annan hátt en að flytja heilu verkin á skjánum, t.d. með litríkum viðtalsþáttum, sem eru sívinsælt sjónvarpsefni ef þeir eru vandaðir og gerðir af þekk- ingu á klassískri tónlist. Hvað mig varðar þá er ég alltaf til í meira svoleiðis. Hinar lööööngu sjónvarpsmínútur » Þegar ég spurðiBjörk af hverju út- skýrði hún fyrir mér að sjónvarpsmínútur „væru ekki eins og aðr- ar mínútur“. AP Viðkunnanlegur Jónas Sen stóðst ekki töfra og tónlist Sir Pauls McCartney þegar hann hitti hann í tónlistarþætti Jools Holland í vikunni. senjonas@gmail.com Á TÚR MEÐ BJÖRK Jónas Sen 60 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2:15 - 4:15 - 6:15 - 8:15 B.i. 10 ára DIGITAL ZODIAC kl. 10 B.i. 16 ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:30 LEYFÐ DIGITAL 3D MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 LEYFÐ / KRINGLUNNI OCEAN'S 13 kl. 3:50 - 5:30 - 6:30 - 8 - 9 - 10:40 - 11:30 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 2 ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára THE REAPING kl. 11:30 B.i.16.ára BLADES OF GLORY kl. 1:50 - 3:50 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ GOAL 2 kl. 1:50 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU MYND SUMARSINS? VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag og mánudagSparBíó* 450kr PIRATES 3 KL. 2 Í ÁLFABAKKA OG KEFL. KL 4 Á AKUREYRI. BLADES OF GLORY KL. 1:50 Í ÁLFABAKKA www.SAMbio.is GOAL 2 KL. 1:50 Í ÁLFABAKKA, 1 Í KEFL. MEET ROBINS. KL. 1 Í ÁLFABAKKA OG KL 6 Á AKUREYRI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.