Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI SJÖTTA bindi æviskráa MA-stúd- enta er komið út hjá bókaútgáfunni Skrukku ehf. Þar er að finna æviá- grip allra þeirra sem brautskráðust frá Menntaskólanum á Akureyri á árunum 1974-1978. Bókin er 608 blaðsíður og í henni er fjallað um alls 535 MA-stúdenta í máli og myndum. Ritstjóri og höf- undur er Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur og sér til halds og trausts hafði hann ritnefnd skip- aða fulltrúum allra árganganna sem koma við sögu í bókinni. Gunnlaugur annaðist á sínum tíma útgáfu fyrstu fimm binda ævi- skráa MA-stúdenta á árunum 1988- 1994. Þar eru æviágrip þeirra sem útskrifuðust frá skólanum frá 1927 til 1973. Sú útgáfa var gjöf til MA frá útskriftarnemum 1973 í tilefni 10 ára stúdentsafmælis þeirra. „Æviskrár MA-stúdenta eru ein- stakt verk í sinni röð og reyndar getur enginn annar framhaldsskóli landsins státað af jafn ítarlegu nem- endatali og Menntaskólinn á Akur- eyri,“ segir í tilkynningu frá útgef- endum. „MA-stúdentar, og aðrir velunnarar skólans, hafa lengi vænst þess að tekinn yrði upp þráð- urinn og haldið áfram þessari merkilegu útgáfustarfsemi. Vorið 2005 ákváðu Gunnlaugur og nokkrir fulltrúar stúdentsárganganna 1974- 1978 að stíga í sameiningu fyrsta skrefið í verkefni sem lyktaði nú með útgáfu sjötta bindisins. Stúd- entar 1976 tóku að sér forystuhlut- verk ritnefndar, sem sett var á laggir, og vildu á þann hátt heiðra Menntaskólann á Akureyri í tilefni 30 ára stúdentsafmælis síns vorið 2006. Aðstandendur útgáfunnar voru í upphafi svo bjartsýnir að ætla að unnt yrði að gefa sjötta bindið út á árinu 2006 en verkið tafðist af ýms- um ástæðum. Með samstilltu átaki tókst hins vegar að leiða það til lykta. MA-stúdentar 1974-1978 skora hér með á yngri árganga skólans að taka við keflinu og stuðla að framhaldi útgáfunnar.“ Nýtt bindi æviskráa MA-stúdenta útgefið Æviskrár Ritnefnd sjötta bindis MA-æviskrárinnar. Aftari röð frá vinstri: Eiríkur Rögnvaldsson (stúdent 1975), Gunnar Stefánsson (1975), Helga Jónsdóttir (1977), Guðrún Rögnvaldardóttir (1978), Atli Rúnar Halldórsson (1974), Hilmar Þór Hilmarsson (1978) og Sólrún B. Kristinsdóttir (1974). Fremri röð frá vinstri: Guðbjörg Sigurðardóttir (1976), Gunnlaugur Har- aldsson, og Hildur Friðleifsdóttir (1976). Fjarverandi voru Anna Guðný Aradóttir (1976), Geirþrúður Pálsdóttir (1977) og Jón Höskuldsson (1978). MARÍA Júlía, fyrsta björgunar- skúta Vestfirðinga, hefur verið til viðgerðar hjá Skipavík hf. í Stykk- ishólmi að undanförnu. Viðgerðin er liður í því að gera skipið upp í sem næst upprunalegri mynd og varðveita sem fljótandi safn. Vestfirðingar fengu Maríu Júlíu 1950 og þjónaði hún sem björg- unarskip þeirra en var einnig notuð við landhelgisgæslu og hafrann- sóknir. Á hún sér merka sögu á þessum sviðum. Árið 1968 var hún seld til einkaaðila og gerð út sem fiskiskip til ársins 2003. Þá stóð til að selja skipið úr landi en fyrir for- göngu Byggðasafns Vestfjarða og Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti fékkst það keypt fyrir söfn- in. Er nú unnið að viðgerð og end- urgerð skipsins í upprunalegri mynd, eftir því sem fjármunir fást. Viðgerð heldur áfram Í Stykkishólmi var skrokkur skipsins yfirfarinn og það botn- hreinsað og málað. Að sögn Sævars Harðarsonar, framkvæmdastjóra Skipavíkur, lítur skipið mjög vel út og skrokkurinn þéttur miðað við aldur. Skipið kom oft í slipp í Stykkishólmi á meðan það þjónaði hlutverki sem fiskiskip og þekkja skipasmiðirnir það vel. Búið er að rífa af skipinu allt það járn sem sett hefur verið á það eftir að hlutverki þess sem varðskips lauk. Að sögn Jóns Guðbjartssonar, sem sæti á í nefnd um verkefnið, verður Maríu Júlíu nú siglt til Bol- ungarvíkur þar sem viðgerð heldur áfram. Þá er fyrirhugað að taka skipið í slipp á Ísafirði þar sem nýr hvalbakur verður smíðaður, í stað þess sem hefur verið rifinn. Skrokkurinn í góðu lagi Við skyldustörf María Júlía við hafrannsóknir á sinni tíð. Fallbyssan er líka uppi og allt klárt til að verja landhelgina, ef á þarf að halda. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Í slipp María Júlía hefur verið botnhreinsuð og skrokkurinn málaður. ALLS verða 372 kandídatar braut- skráðir á háskólahátíð sem haldin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 9. júní nk. og hefst kl. 10:30. Þetta er mesti fjöldi kandí- data sem brautskráður hefur verið í einu frá Háskólanum á Akureyri. Hátíðarávarp flytur hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. 372 braut- skráðir frá HA SUMARSÝNING Iðnaðarsafnsins verður opnuð í dag kl. 14. Þar verð- ur að finna úrval 40-50 ára gamalla húsgagna frá Valbjörk, þekktu fyr- irtæki á Akureyri á sínum tíma. All- ir eru velkomnir, aðgangur ókeypis og boðið verður upp á Braga-kaffi og Lindu-súkkulaði! Safnið verður opið kl. 13-17 daglega í sumar. Valbjörk í há- vegum í sumar AUSTURLAND LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÉG hef fengið nokkuð margar fyrirspurnir utan af landi, ekki síst frá Austurlandi. Ég ákvað að halda námskeið þar og taka síðan hring um landið í kjölfarið,“ segir Pálmi Guðmundsson hjá ljosmyndari.is, sem heldur ljósmyndanámskeið næstu daga á Egilsstöðum og Reyðarfirði og í kjölfarið á sex stöðum á norðan- og vestanverðu landinu. Pálmi segir að fólk af þessum stöðum hafi fylgst með síðunni hans en ekki átt kost á því að komast á námskeið til hans, en ljosmyndari.is heldur námskeið allt árið í Mosfells- bæ. „Ég hef áður verið beðinn um að halda námskeið á vegum sí- menntunarmiðstöðva á Vesturlandi og Vestfjörðum og á vegum starfs- mannafélaga og þau hafa gengið vel. Það er því spennandi dæmi að fara í þessa ferð,“ segir Pálmi. Hann verður á ferðinni í tæpan mánuð og hyggst einnig nota tím- ann til að skoða sig um og taka myndir á stöðunum. Vilja byrja aftur Námskeiðin eru ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í ljós- myndun og einnig þeim sem hafa tekið myndir en vilja öðlast meiri þekkingu, og skiptir ekki máli hvort þátttakendur eru með dýrar eða ódýrar myndavélar. Pálmi fer yfir helstu atriði stillinga stafrænna myndavéla og gefur þátttakendum ráð í viðleitni þeirra til að taka góð- ar myndir við mismunandi aðstæð- ur. Einnig fer hann yfir tölvumálin, hvernig hægt er að koma skipulagi á myndasafnið og geyma það á öruggan hátt. Mikil aukning hefur verið í ljós- myndun á undanförnum árum með tilkomu stafrænu tækninnar. Pálmi segir að þátttakendur í námskeið- um hans skiptist gjarnan í tvo hópa, annars vegar séu þeir sem aðallega taki myndir af börnunum og í ferðalögum og hins vegar þeir sem áður hafi haft áhuga á ljósmyndun og vilji komast aftur af stað. „Ljósmyndun er skemmtilegt áhugamál og nú kostar það lítið að taka myndir. Það kemur fólk á öll- um aldri á námskeið hjá mér, meðal annars fólk sem komið er um sjö- tugt og vill komast aftur af stað í ljósmyndun og vera sjálfbjarga með allt ferlið,“ segir Pálmi. Fer hringinn með ljósmyndanámskeið Ljósmynd/Pálmi Guðmundsson Ljósmyndun Ljósmyndarar geta víða fundið gott myndefni. Í HNOTSKURN »Ljosmyndari.is heldur nám-skeið í júnímánuði á Egils- stöðum, Reyðarfirði, Húsavík, Akureyri, Sauðárkróki, Borg- arnesi, Stykkishólmi og á Ísa- firði. »Hvert námskeið tekur tvodaga og stendur í alls 8 klukkustundir. RÝMINGARÆFING verður haldin í dag, laugardaginn 9. júní, á áhrifa- svæði Jökulsár á Dal, en hún er loka- hnykkurinn á gerð nýrra viðbragðs- og rýmingaráætlana fyrir áhrifa- svæði Hálslóns. Ætlunin er að láta reyna á rýmingaráætlunina með þeim hætti að íbúar á svæðinu fái boð um rýmingu. Allir íbúar og sumarhúsaeigendur á svæðinu er hvattir til þess að taka þátt í æfingunni og hjálpa til við að gera hana sem raunverulegasta með því að rýma hús sín og skrá sig í fjöldahjálparstöð og aðstoða þannig viðbragðsaðila við að æfa sig. Þeir munu fá boð frá Neyðarlínunni með SMS- og talskilaboðum um að æfing- in sé hafin og þeir beðnir að fara í fjöldahjálparstöð á Egilsstöðum. Þeir sem mæta í fjöldahjálparstöðina skrá sig þar og geta að því loknu farið aftur heim en boðið verður upp á léttar veitingar í skólanum fyrir íbúa. Æfing vegna Jökulsár á Dal Opið hús í Menntaskólanum á Akureyri laugardaginn 9. júní klukkan 14-16. Þar verður kynning fyrir væntanlega nýnema á náminu í skólanum og öðru sem fylgir því að vera í MA. Einnig verða til viðtals námsráðgjafar, brautastjórar og nemendur. Foreldrar og forráðamenn velkomnir líka. Skólameistari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.