Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.06.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is SKÓLAÁRINU er lokið í grunn- skólum borgarinnar og nemendur komnir í frí. Ýmislegt í eigu grunn- skólabarna fylgir þeim þó ekki á vit sumarsins, en geymslur skólanna eru víðast fullar af alls kyns óskila- munum sem safnast hafa upp í vet- ur. Þar er að finna allt frá húfum og treflum upp í skólatöskur og dýran hlífðarfatnað. „Mér finnst sorglegt að sjá hvað það eru mikil verðmæti sem virðast fara forgörðum,“ segir Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri í Háteigs- skóla, um þann fjölda óskilamuna sem þar er að finna að kennslu- árinu loknu. „Þetta hefur verið að aukast jafnt og þétt á undanförnum árum og við tengjum þetta við vel- megunina,“ segir hann. Allt talið og flokkað Þegar Ásgeir áttaði sig á magni óskilamunanna í Háteigsskóla í vor, fékk hann starfsfólk skólans til þess að telja alla hlutina og meta verð- mæti þess sem skilið hafði verið eft- ir. „Við settum, að við töldum, hóf- legt mat á hvern flokk. Við vorum að reyna að halda okkur við það sem við töldum eðlilegt verð á þess- um hlutum.“ Var áætlað verð á hverja úlpu 5.000 krónur, 400 krón- ur á vettlinga og 3.000 krónur á peysur, svo dæmi séu tekin. 2.500 krónur á hvert barn hafa tapast í vetur Niðurstöður talningarinnar og verðmatsins hjá starfsfólki Háteigs- skóla reyndust vera nokkuð slá- andi. Samkvæmt útreikningum þeirra er verðmæti þeirra muna sem grunnskólabörn glötuðu í skól- anum í vetur rúm ein milljón króna. Um 400 nemendur eru í skólanum og því má áætla að hver þeirra hafi að meðaltali tapað munum í skól- anum fyrir um 2.500 krónur í vetur. Foreldrum hafi svo verið sendar þessar upplýsingar í tölvupósti og hafi það ýtt við mörgum. Breytt verðmætamat? Ásgeir segir að í Háteigsskóla hafi óskilamunum fjölgað undan- farin á og spyrja megi hvort verð- mætamat fólks sé að breytast. Hann segist hafa heyrt að í sumum skól- anna séu munir mun fleiri. Ásgeir segir að skólinn auglýsi óskilamunina vandlega á hverju vori og einnig yfir vetrartímann. Við skólaslit sé haldin sýning á óskilamunum og þeim raðað upp. „Þá kemur fólk og tekur það sem það þekkir og á,“ segir Ásgeir. Af- gangurinn fari í Rauða krossinn og nýtist því með þeim hætti. Skólaslit voru í Háteigsskóla í gær og segir Ásgeir að þá hafi margir foreldrar komið ásamt börnum sínum og farið í gegnum óskilamunina. Nokkuð hafi verið tekið „en mér finnst reyndar ótrú- lega mikið eftir og það kemur veru- lega á óvart. Mér finnst varla sjá högg á vatni eftir daginn og þó hef ég séð foreldra í allan dag koma og sækja óskilamuni,“ segir Ásgeir. Í öðrum skólum sem Morgun- blaðið ræddi við í gær var svipaða sögu að segja af fjölda óskilamuna og í Háteigsskóla. Ingibjörg Möller, aðstoðarskólastjóri í Hlíðaskóla, segir mikið magn óskilamuna hafa safnast upp í skólanum í vetur, bæði í skólahúsinu sjálfu og íþrótta- húsinu. Vettlingar frá ömmu „Við auglýsum alltaf á vorin og höfum opið hús og hvetjum for- eldra til þess að koma og skoða. En það er alltaf voða mikið sem geng- ur ekki út,“ segir Ingibjörg. Föt af ýmsu tagi verða eftir meðal óskil- amuna. „Þarna er mikið af húfum og vettlingum sem einhverjir hafa lagt mikla vinnu í að prjóna, vett- lingar og sokkar prjónaðir af ömm- um og góðir skór.“ Algengt sé að fötin séu ekki merkt og í sumum tilvikum þekki börn ekki fötin sín aftur. Dæmi sé um að nemendur hafi átt tvær til þrjár úlpur meðal óskilamuna í skólanum að vetri loknum. Tengjum þetta við velmegunina Morgunblaðið/G.Rúnar Óskilamunir Um 400 nemendur eru í Háteigsskóla og áætlað er að hver þeirra hafi tapað munum fyrir 2.500 kr. Óskilamunir fyrir tugi milljóna í grunnskólunum Í HNOTSKURN » Meðal óskilamuna í Há-teigsskóla að vetrinum loknum voru 152 húfur, 78 íþróttapokar, 18 hettupeysur, 50 bolir, 23 flíspeysur, 41 úlpa, 42 handklæði og 30 nestisbox. »Hátt á fimmta tug grunn-skóla er í Reykjavík. Því er næsta víst að verðmæti óskil- amuna í þeim öllum nemur tugum milljóna króna. »Algengt virðist að munirsem ekki eru sóttir séu gefnir til Rauða krossins eða annarra hjálparsamtaka. » Í Austurbæjarskóla feng-ust þær upplýsingar að þar hefði 9. bekkur í vor selt óskilamuni og ágóðinn runnið í ferðasjóð árgangsins. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is JÓRUNN Frímannsdóttir, formaður velferð- arráðs, segir heimili fyrir íbúa á vegum hins opinbera vera skilgreind sem heimili og svo hafi verið í langa tíð. Sú staðreynd að um heim- ili sé að ræða en ekki stofnun skipti höfuðmáli í þessu sambandi og því hafi verið ákveðið að miða við sama ferli og þegar Miklabraut 20 var sett á laggirnar. Spurð um þá skoðun lög- manna íbúa við Njálsgötu að ekki sé hægt að líkja Njálsgötu 74 við heimilið á Miklubraut 20 svarar Jórunn því til að eini munurinn á heim- ilunum felist í því að á Njálsgötu verði mun meiri félags- og heilbrigðisþjónusta sem komi utan úr bæ. Velferðarsvið muni leggja til starfsfólk á heimilið en um verði að ræða vakt allan sólarhringinn. Heimilismönnum verði boðið upp á öfluga félags- og heilbrigðisþjón- ustu frá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkur- borgar og heilsugæslunni í Reykjavík, líkt og gert sé fyrir önnur heimili. Nauðsynlegt að láta reyna á þetta Hvað varðar byggingarleyfi, sem lögmenn íbúanna telja líklegt að þurfi að afla, segir Jór- unn að ekki standi til að breyta fasteigninni að innan eða utan og því þurfi ekki að sækja um bygging- arleyfi, samkvæmt skipu- lags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Að sögn Jórunnar er nauðsynlegt að láta reyna á þetta. „Ef þetta er ekki heimili þá er ansi margt annað sem fellur undir þá skilgreiningu að vera stofn- un og hvar stöndum við þá, t.d. varðandi sambýli fatlaðra af ýmsu tagi?“ Spurð um þær áhyggjur íbúa Njálsgötu að þeir verði fyrir miklu ónæði af völdum starf- seminnar svarar Jórunn að reynslan sýni að svo verði ekki. Þá verði alltaf starfsmaður og jafnvel starfsmenn á staðnum. Reynist þeir einstaklingar sem þarna búi ekki hæfir til að dvelja þarna þá missi þeir strax húsnæðið. Jórunn segir heimilið góða leið til að hjálpa þeim tíu einstaklingum sem þar muni dvelja af stað til nýs og betra lífs. „Reynslan af Miklu- braut hefur sýnt okkur að við getum náð ótrú- legum framförum. Mennirnir geta nýtt sér margt ef þeir fá bara þennan litla stuðning sem þeir þurfa til þess að ná fótfestu.“ Unnið hafi verið faglega að því að finna hentugt húsnæði og hvað staðsetninguna varði sé ekki hægt að fara með svona heimili út fyrir miðsvæðið vegna þess að reynslan sýni að þá færu ein- staklingarnir ekki heim. Brýnt að finna samvinnugrundvöll Varðandi áhyggjur margra af sameiginleg- um garði Njálsgötu 74 og annarra húsa bendir Jórunn á að hægt sé að koma í veg fyrir að ein- staklingarnir fari inn í garðinn. Hægt væri að loka honum þannig að hann væri eingöngu fyr- ir íbúa hinna húsanna. Nauðsynlegt sé að finna samvinnugrundvöll og gefa þessu tækifæri. „Við yrðum afskaplega þakklát ef hægt væri að gera þetta í samvinnu við íbúa þannig að borg- aryfirvöldum væri gefið tækifæri til að reyna þessa leið og byggja á þeirri reynslu sem við höfum og sjá hvort þetta geti ekki átt samleið þarna í umhverfinu, jafnvel með öryggis- myndavélum, aukinni löggæslu eða öðrum að- gerðum til að koma til móts við íbúana.“ Jórunn segir að þótt engin krafa verði gerð til þess að tilvonandi íbúar heimilisins láti af neyslu hafi reynslan hins vegar sýnt að lífs- munstur breytist mjög mikið við að fá stuðning og hjálp. „Ótrúlegur árangur hefur náðst og auðvitað vonum við að það geti orðið þarna líka. Ég held að þetta sé leiðin til þess að gera bæinn okkar fallegri og skemmtilegri, það er mín sannfæring og þeirra sem best þekkja til á þessu sviði. Ég held að samfélagið þurfi á því að halda að við látum reyna á þetta.“ Þurfum að gefa þessu tækifæri Möguleiki að auka löggæslu við Njálsgötu til að koma til móts við íbúa í nágrenninu Í HNOTSKURN »Njálsgata 74 verður heimili fyrirheimilislausa karla en ekki stofnun. »Eini munurinn á því og heimilinu áMiklubraut 20 felst í öflugri félags- og heilbrigðisþjónustu. »Til stendur að starfsmaður verði tiltaks í húsinu allan sólarhringinn. Njálsgata 74 Húsnæðið hefur verið deiluefni nágranna og yfirvalda. Morgunblaðið/RAX Jórunn Frímannsdóttir NÝR varafor- maður Fram- sóknarflokksins verður kjörinn á morgun en mið- stjórnarfundur verður þá hald- inn á Grand hóteli í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 13 og mun Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, ávarpa fund- armenn í upphafi hans. Að því loknu taka við önnur ávörp og al- mennar umræður. Velja nýjan varaformann BRAUTSKRÁNING frá Háskól- anum í Reykjavík fer fram í dag, laugardag, í Háskólabíói. Að þessu sinni verða 337 nemendur braut- skráðir frá skólanum. 43 nemendur útskrifast með meistarapróf í lögfræði og er þetta í fyrsta sinn sem Háskólinn í Reykjavík útskrifar lögfræðinga með fullnaðarpróf í lögum. Sem dæmi um vinsældir og gott orðspor lagadeildar HR má nefna að í vor sóttu tæplega 180 manns um að fá að hefja nám við lagadeild HR, seg- ir í fréttatilkynningu. Reikna má með að um helmingi þeirra verði veitt skólavist. 337 braut- skráðir frá HR BENEDIKT S. Lafleur hyggst reyna á nýjan leik að synda yfir Ermarsundið en í fyrra varð hann frá að hverfa vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Benedikt mun vænt- anlega þreyta sundið á tímabilinu 7.-14. júlí og hyggst hann halda ut- an til Dover í Bretlandi undir lok júní til undirbúnings. Í tilkynningu kemur fram að sundið tileinki Benedikt baráttunni gegn mansali og alþjóðlegri klám- væðingu. Verður efnt til áheita- söfnunar vegna sundsins en pen- ingana á að nota til að styðja forvarna- og kynningarverkefni Stígamóta. Benedikt hyggst ennfremur synda Drangeyjarsund í ágúst. Hægt verður að fylgjast með Erm- arsundsævintýri Benedikts á vef- síðunni www. ermasund.is. Reynir aftur við Ermarsund
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.