Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÝTT TÖLUBLAÐ KOMIÐ ÚT! FULLT AF SPENNANDI EFNI: • Gestur Jónsson lögmaður. • Á að bjarga Flateyri? • Þekktustu kóngarnir í stjórnun. • Laxinn er 15 milljarða atvinnugrein. • Áhugamál 20 forstjóra. Áskriftarsími 512 7575 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞEGAR svona ósigrar skella á er það innri samstaða flokksmanna sem hefur brostið,“ sagði Guðni Ágústsson á vorfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins í gær og átti þar við niðurstöður kosninganna hinn 12. maí. Formaðurinn sagði einungis við framsóknarmenn sjálfa að sakast í þeim efnum en tengdi sundurlyndi þeirra við langt sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn. „Það er vegna þess að okkar innri sam- staða brotnar, og jafnvel vegna þess að við látum ekki reyna á með ágreiningi ef brýtur á stórum mál- um í samstarfi þessara flokka.“ Framsóknarflokkurinn hafði fimmtán þingmenn þegar samstarf við Sjálfstæðisflokkinn hófst en sjö þegar því lauk. Þetta sagði Guðni að mætti aldrei gerast aftur. Blásið til sóknar Það ætlar hann sér líka að tryggja. Í ræðu sinni sagði hann Framsókn eiga að vera eina af þremur sterkum súlum í íslenskum stjórnmálum. Þar tilgreindi hann Sjálfstæðisflokkinn til hægri en nefndi engan ákveðinn flokk til vinstri í því samhengi. Hann telur flokkinn geta sótt sér fylgi hratt og rifjaði upp sigurinn í haustkosningunum 1979, eftir slæm- an ósigur 1978. „Ég tel að okkur beri að stefna að því að verða 25% flokkur, eiga fylgi hér á höfuðborg- arsvæðinu upp á 15-20% og 25-35% í landsbyggðarkjördæmunum.“ Skuggaráðuneyti Guðni fór yfir helstu atriðin í ís- lenskum stjórnmálum í dag og sagði það helsta verkefni ríkisstjórnarinn- ar að hemja verðbólguna. Þá kynnti hann meðal annars áætlanir um að setja á fót skuggaráðuneyti, líkt þeim sem tíðkast í Bretlandi og Ástralíu þar sem ráðherraefni fylgj- ast með sínu málefnasviði hver og móta stefnu flokksins. Hann vill ekki hentistefnu þar sem viðkvæði framsóknarmanna er „nei“ í öllum málum og benti á VG til samanburð- ar. Í umhverfismálum telur hann Framsókn þurfa að skýra stefnu sína fyrir kjósendum. „Við elskum okkar land og viljum alls ekki fórna hverju sem er,“ sagði hann. Miðjan er Framsóknar Valgerður sagðist hrærð yfir hin- um afgerandi stuðningi sem hún fékk til embættis varaformanns. Í þakkarræðu sinni sagði hún flokk- inn hafa verk að vinna. „Ný forysta mun standa vel saman í þeirri bar- áttu sem framundan er. Við erum á miðjunni og við eigum miðjuna, við hleypum engum öðrum þar að.“ Aðspurð vildi hún ekki taka undir að hin nýja sókn yrði einungis sókn til vinstri. „Við vitum líka að það eru ýmsir sem sækja inn á miðjuna. En ég segi, vinstrimenn geta aldrei orð- ið miðjumenn því þeir hugsa fyrst og fremst um að eyða en minna um að afla, og hægrimenn hafa alltaf dregið lappirnar í sambandi við jöfn- uð. Þannig að miðjan er okkar, við þurfum bara að láta hana blómstra.“ Hrærð Valgerður Sverrisdóttir tekur við hamingjuóskum frá Sæunni Stefánsdóttur, ritara Framsóknarflokksins. Valgerður segir mikið verk framundan, en að Framsóknarflokkurinn eigi miðjuna í íslenskum stjórnmálum. Morgunblaðið/Sverrir Þjóðlegur „Í öllu hinu þjóðlega er ekkert til sem er hallærislegt – það er í tísku í dag að vera bóndi og róa til fiskjar,“ sagði Guðni. Í HNOTSKURN »Valgerður var ein í kjöriog hlaut 89,5% atkvæða. Finnur Ingólfsson og Siv Frið- leifsdóttir fengu 5 atkv. hvort. » Í ávarpi sínu sagði Guðniverðtrygginguna vera kerfi sem þyrfti að komast út úr á næstu árum. Sagði hann ofurlaunamenn eiga að leggja meira til samfélagsins en þeir gera nú. »Þá sagði hann það einföld-un að kenna kvótakerfinu alfarið um ástand þorskstofns- ins nú og telur stóra ógn í því að þorskveiðar falli í þann far- veg sem Hafró leggur til. Valgerður Sverrisdóttir er nýkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins Framsókn líti í eigin barm LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu þurfti að brjóta hliðarrúðu bif- reiðar til að komast að ökumanni hennar sem læsti sig inni eftir að hafa verið neyddur til að stöðva bíl- inn aðfaranótt sunnudags. Maður- inn, sem er 25 ára, sveiflaði klauf- hamri en var yfirbugaður og færður á lögreglustöð. Að sögn lögreglu hefur hann komið við sögu lögregl- unnar áður. Um klukkan 1.20 kom beiðni frá lögreglumönnum um aðstoð vegna ökumanns sem ók norður Vestur- landsveg og sinnti ekki stöðvunar- merkjum. Bifreið mannsins hafði mælst á 120 km hraða þar sem leyfilegur hraði er 80 km á klukku- stund. Þrátt fyrir ljós og hljóðmerki lögreglunnar lét maðurinn sér ekki segjast og jók hraðann. Þótti akstur hans glæfralegur og virtist ökumað- ur ekki vera með fulla stjórn á bif- reiðinni. Lögreglubifreiðar voru sendar bæði frá Reykjavík og Akranesi. Ökumaður hélt akstri áfram í gegn- um Mosfellsbæ og síðan inn á Hval- fjarðarveg. Ók hann á allt að 200 km hraða og í raun var mildi að ekki skyldu verða slys á fólki. Skammt frá botni Hvalfjarðar, norðan við Brynjudalsá, þvingaði lögregla manninn til að stöðva bílinn með því að keyra utan í hann. Þá hafði elt- ingarleikurinn tekið um hálfa klukkustund. Neitaði að yfirgefa bílinn Hins vegar tók ekki betra við eft- ir að bifreiðin var stöðvuð því að ökumaðurinn læsti bílnum, neitaði að opna og sveiflaði klaufhamri. Greip lögreglumaður því til þess ráðs að brjóta hliðarrúðu og var maðurinn í kjölfarið handtekinn. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni leikur grunur á um að maðurinn hafi bæði ekið undir áhrif- um áfengis og lyfja. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum í gærdag. Þurftu að brjóta rúðu til að ná ökumanninum LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu lýsir eftir vitnum að tilraun til nauðgunar snemma á laugardags- morgun. Tilraunin átti sér stað á Hverfisgötu, á móts við Þjóðleik- húsið, um sexleytið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er talið að maður um þrítugt hafi dregið konu á tvítugsaldri inn í Trað- arkotssund og reynt að koma fram vilja sínum. Konunni tókst með miklu harðfylgi að komast undan. Í kjölfar þess að tilkynna árásina til lögreglu var hún flutt á neyð- armóttöku fyrir þolendur kynferð- isbrota á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi. Lögregla vinnur úr upplýsingum vitna Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hafa nokkur vitni gefið sig fram og er verið að vinna úr upp- lýsingum frá þeim. Einnig hafa upptökur úr eftirlitsmyndavélum verið skoðaðar en að sögn lög- reglu hefur það ekki leitt neitt nýtt í ljós. Árásarmaðurinn er talinn vera um 185-190 cm á hæð, með stutt mjög dökkt eða svart hár, svarta skeggbrodda eða svart skegg. Hann er grannvaxinn og sterkar líkur er á því að hann sé af er- lendu bergi brotinn. Hann var klæddur í rauða og vínrauða peysu eða jakka og svartar buxur. Þeir sem kunna að hafa upplýs- ingar um árásarmanninn eru vin- samlegast beðnir um að hafa sam- band við lögreglu, í síma 444 1100 eða 444 1000. Tilraun til nauðgunar á Hverfisgötu KARLMAÐURINN sem grunaður er um að hafa skotið af haglabyssu í átt að eiginkonu sinni á föstudags- kvöld hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. júní nk. vegna rannsóknarhagsmuna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísa- firði miðar rannsókn vel en ekki fékkst upp gefin ástæða þess að maðurinn mundaði skotvopn sitt á umræddum tíma. Gæsluvarð- hald vegna skotárásar KONA á þrítugsaldri slapp ómeidd þegar hún ók utan í vegg í Hval- fjarðargöngunum í gærkvöldi. Loka þurfti göngunum í um klukkustund og skapaðist mikið umferðaröngþveiti norðan þeirra enda margir á leið til höfuðborg- arinnar eftir helgina. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Akranesi varð slysið á áttunda tímanum. Bifreið konunnar valt þegar hún keyrði utan í vegg nærri syðri munna ganganna. Telja má víst að öryggisbelti hafi bjargað henni frá meiðslum en bifreiðin er ónýt. Að sögn lögreglu var konan ekki undir áhrifum áfengis og alls óvíst er enn hvort um hraðakstur var að ræða. Rannsókn lögreglu heldur áfram. Umferðartafir vegna bílveltu UM klukkan tíu í gærkvöldi lagði Fimm tinda-hópurinn af stað á síð- asta tindinn af fimm en það var Hekla sem var síðust í röðinni. Hóp- urinn var nokkuð á eftir áætlun en lengri tíma hafði tekið að komast niður af Snæfelli en ráðgert hafði verið. Hópurinn ákvað að ganga á hæsta fjall í hverjum landshluta yf- ir helgina, alls fimm fjöll, í því skyni að afla Sjónarhóli, sem er ráðgjaf- armiðstöð fyrir aðstandendur barna með fötlun og langveikra barna, stuðnings. Er hægt að styrkja málefnið á heimasíðu hóps- ins, www.5tindar.is. Hópurinn hafði þegar gengið á Heiðarhorn, Kaldbak, Kerlingu og Snæfell þeg- ar lagt var á Heklu í gærkvöldi en meiningin var að koma aftur niður af fjallinu nú í morgunsárið. Klífa fimm hæstu tindana til styrktar góðu málefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.