Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 13
Snerpa
HEKLA, Laugavegi 172-174, sími 590 5000, www.hekla.is, hekla@hekla.is
Vorsprung durch Technik www.audi.com
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
4
1
2
A3 Sportback 1,8 TFSI® · 5 dyra · 160 hestöfl · Sjálfskiptur S-tronic
Líttu inn hjá okkur og fáðu að reynsluaka Audi A3
SAMFARA breytingum á Baugi
Group var tilkynnt um stofnun nýs
félags, Stoðir Group, sem Skarp-
héðinn Berg Steinarsson verður
forstjóri fyrir. Fyrirhugað er að
innan þess félags verði stærstu
eignir Baugs á sviði fasteignarekst-
urs, svo sem Fasteignafélagið Stoð-
ir og eignarhluti félagsins í Keops
og Nordicom í Danmörku. Samfara
þessu hefur verið ákveðið að auka
eigið fé Stoða Group um 40 millj-
arða króna frá því sem nú er og
stefnt er að skráningu félagsins á
kauphöll OMX á Íslandi á næstu tólf
mánuðum. Kristín Jóhannesdóttir
verður stjórnarformaður Stoða
Group.
Á aðalfundi Baugs Group fyrir
helgi voru auk Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar eftirtaldir kjörnir í
stjórn: Don McCarthy, Kristín Jó-
hannesdóttir, Jóhannes Jónsson,
Ingibjörg S. Pálmadóttir, Hans
Kristian Hustad og Hreinn Lofts-
son. Einar Þór Sverrisson og Guð-
rún S. Pétursdóttir voru kjörin í
varastjórn félagsins.
Stoðir Group fara á
hlutabréfamarkað
Stoðir Meðal eigna fasteignafélagsins Stoða Group er Keops í Danmörku,
sem á margar af helstu og frægustu fasteignum Kaupmannahafnar.
SAMKVÆMT frétt á vef Bloom-
berg um helgina var Exista meðal
kaupenda á 29% hlut í bresku
íþróttavörukeðjunni JJB Sports,
sem er næststærsta keðja Bret-
lands á því sviði. Andvirði hlutarins
mun vera 190 milljónir sterlings-
punda, jafnvirði um 24 milljarða
króna. Seljandi er stofnandi keðj-
unnar, David Whelan, sem mun
víkja sæti úr stjórn fyrirtækisins.
Kaupandi með Exista er Chris
Ronnie, sem einnig stundar íþrótta-
vörusölu. Mun Ronnie taka sæti
sem framkvæmdastjóri en David
Whelan var skipaður heiðursforseti
félagsins, en hann opnaði fyrstu
verslun sína árið 1971.
Í frétt Bloomberg segir að hagn-
aður JJB Sports hafi dregist saman
um 15% á síðasta ári. Varð keðjan
að grípa til verðlækkana í harðri
samkeppni við stórar keðjur á borð
við Tesco og Sports World Int-
ernational. Um síðustu áramót var
JJB Sports með 416 verslanir í
rekstri og 39 líkamsræktarstöðvar.
Exista
kaupir í
Bretlandi
SAMSKIP hafa
fest kaup á hluta
af flutningaþjón-
ustu belgíska
flutningafyrir-
tækisins Delphis
Team Lines
(DTL). Um er að
ræða sérhæfða
gámaflutninga-
þjónustu frá dyr-
um seljenda að
dyrum kaupenda
í yfir tíu Evrópulöndum og taka
Samskip formlega við rekstrinum 1.
júlí nk. Kaupverðið er ekki gefið
upp.
Að sögn Jens Holger Nielsen,
framkvæmdastjóra gámaflutninga-
þjónustu Samskipa í Evrópu,
styrkja þessi kaup enn frekar leið-
andi markaðsstöðu félagsins í
gámaflutningum innan Evrópu,
einkum í Eystrasaltslöndunum og
Rússlandi, og á Spáni og í Portúgal.
Munu flutningar félagsins til og frá
Eystrasaltslöndunum og Rússlandi
nema samtals um 100 þúsund
gámaeiningum á ári með tilkomu
flutningaþjónustu DTL.
Eftir kaupin munu eigendur
DTL einbeita sér að frekari upp-
byggingu á sjóflutningum félagsins
en samningurinn við Samskip felur
m.a. í sér áframhaldandi samstarf
félaganna á þeim vettvangi. Yfir-
taka Samskipa á þessari flutninga-
þjónustu DTL hefur hins vegar
engar breytingar í för með sér fyrir
viðskiptavini, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Yfir 20 gámaflutningaskip eru nú
í föstum áætlunarsiglingum á veg-
um Samskipa í Evrópu.
Fjárfesta
í Belgíu
Kaup Enn bæta
Samskip við sig.
SENDINEFND Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, undir forystu Benjam-
ins Hunt, hefur undanfarna daga
kynnt sér íslensk efnahagsmál á
fundum með fulltrúum stjórnvalda
og atvinnulífsins. Hliðstæðar við-
ræður fara fram árlega við flest
184 aðildarríki sjóðsins. Í sam-
ræmi við áherslu Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins á gagnsæi og greitt upp-
lýsingaflæði heldur sendinefndin
fréttamannafund í dag til að kynna
niðurstöður sínar um íslenskt
efnahagslíf.
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
í heimsókn
♦♦♦
♦♦♦
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF