Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 17
daglegtlíf
Krónan er að veikjast segja
hagfræðingar nú eða styrkjast.
Hvað þýðir það? Unnur H. Jó-
hannsdóttir skoðar málið. »18
fjármál
Manon Anna Victoria Robertet,
sem verður tíu ára í sumar, fékk
Astró í átta ára afmælisgjöf
fyrir tæpum tveimur árum. »19
gæludýr
Harpa og Ágúst hittastsamt oft í kirkju því þautaka bæði virkan þátt ístarfi eldri borgara við
Fella- og Hólakirkju ,,Við erum nú
rétt í æsku ellinnar, skal ég segja
þér,“ segir Harpa Jónsdóttir stríðn-
isleg á svip þegar blaðakona spyr
þau um aldur og fyrri störf. ,,Ég er
nú bara í sandkassanum ef við för-
um að skilgreina aldur út frá því,“
segir Ágúst glaðlega en hann er 82
ára og alveg sáttur við að hafa
skyndilega verið gerður að upplýs-
ingafulltrúa félagsstarfsins í kirkj-
unni. ,,Hér er sko unnið gott starf,
skal ég segja þér og svo hef ég hana
Hörpu mér til halds og trausts. Það
er nú ekki verra. Hún veit svo
margt.“
Í ljós kemur að Harpa hefur
tengst Fella- og Hólakirkju frá upp-
hafi eða frá því að fyrsta skóflu-
stungan að kirkjunni var tekin árið
1982. „Ég var í kvenfélaginu Fjall-
konunum sem voru á fyrstu árum
kirkjunnar með mjög öflugt starf
hér og hér er ég enn, nú með eldri
borgurum,“ segir Harpa.
Ágúst segir að það hafi einmitt
verið systir sín, sem líka starfaði
með kvenfélaginu, sem hafi dregið
sig í starfið þegar hann varð ekkju-
maður. ,,Ég kom fyrst í kyrrð-
arstundirnar en þær eru alla þriðju-
daga klukkan 12. Djákninn okkar,
hún Ragnhildur Ásgeirsdóttir er
með þær núna og hún er afskaplega
indæl manneskja. Eftir kyrrð-
arstundirnar er boðið upp á súpu og
brauð og síðan, á milli kl. 13 og 16,
er opið hús eldri borgara og þá er
oft fjölbreytt dagskrá. Stundum
koma fyrirlesarar og eru með
fræðslu, stundum spilum við og
stundum förum við í stuttar skoð-
unarferðir,“ segja þau Ágúst og
Harpa sem hrósa starfinu út í eitt.
Jónsmessuferðalag
til Svíþjóðar
,,Ég er búinn að vera hér í þrjú ár
og síðan er hópurinn þrisvar búinn
að leggja land undir fót. Nú um
Jónsmessuna ætlum við að fjöl-
menna til Svíþjóðar, í lítinn bæ sem
heitir Rättvik og er víst svipaður
Skálholti. ,,Það verður sko gaman,
þetta verður stíf dagskrá,“ segir
Ágúst sem er lítið hrifinn af ferðum
til Kanaríeyja. Hörpu finnst hins
vegar ágætt að fara til Kanaríeyja.
Þetta segja þau bara dæmi um hvað
ólíkir einstaklingar með ólíkar skoð-
anir séu undir þessu heildarheiti
eldri borgarar. ,,En hér er alls kon-
ar fólk og allir velkomnir,“ segja
þau aðspurð.
En hvaða hlutverki gegnir trúin í
þessum félagsskap?
,,Hún gegnir töluverðu hlutverki,
þótt maður sé ekki æpandi og vein-
andi um hana á hverju götuhorni.
Það sést kannski best í kyrrð-
arstundunum,“ segir Ágúst. Hörpu
finnst trúin sameina hópinn og
halda saman. ,,Hún styrkir líka og
ef fólk á erfitt þá finnur það oft
mikla samúð og stuðning í kyrrð-
arstundunum. Það er oft erfitt að
útskýra trúna en mér finnst mjög
gott og mikilvægt að rækta hana,“
segir Harpa.
Þau eru sammála um að starfið
gefi sér óskaplega mikið. ,,Á föstu-
dögum er maður farinn að bíða eftir
þriðjudeginum,“ segir Ágúst og
Harpa tekur undir það. Þau brosa
nú bara eins og lífsreynd aðspurð
hvort einhver rómans blómstri í fé-
lagsskap eins og þessum ,,Hér sýnir
fólk kærleik og vináttu og réttir
hvað öðru hjálparhönd ef á þarf að
halda. Það þurfa allir á því að
halda,“ segir hún og hann tekur
undir að það sé félagsskapurinn
sem skipti mestu máli og það sem
fólk sé að sækjast eftir. ,,Súpurnar
hjá matseljunum hérna eru líka af-
bragð. Það er nánast aldrei sama
súpan en allar eru þær góðar,“ segir
upplýsingafulltrúinn nýbakaði bros-
andi og ítrekar að eldri borgurum
sé velkomið að koma og kynna sér
starfið.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ferðahugur Hópur eldri borgara úr félagsstarfinu ætlar að fara til Rättvik í Svíþjóð um Jónsmessuna og ekki var laust við að komin væri ferðahugur í marga, jafnvel galsi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Vinátta Ágúst og Harpa segja starfið með eldri borgurum gefa sér mikið.
Ekki rómans en kærleikur og vinátta
Harpa Jónsdóttir og Ágúst Ísfeld eru sko ekkert sest
í helgan stein, þennan sem svo oft er verið að vísa til
þegar eldri borgarar hætta að vinna. Þau eru heldur
ekki gengin í klaustur eins og orðasambandið vísaði til
í fornu máli. Unnur H. Jóhannsdóttir komst að því
hvað þau hafa fyrir stafni.
ÞEGAR börnin á heimilinu eru hætt að leika sér með litlu
tuskudýrin borgar sig að taka þau til hliðar og geyma þau
vel. Á tískusýningu í Rio de Janeiro í Brasilíu nú um síð-
ustu helgi var m.a. vörumerkið Alessa að kynna línuna
næsta sumars. Þar var meðal annars þessi fyrirsæta í bol
þar sem tuskudýrin hafa auðsjáanlega fengið nýtt hlut-
verk. Semsagt safnið birgðum af litlum krúttlegum tusku-
dýrum fyrir næsta sumar til að tolla nú almennilega í
tískunni.
Tuskudýrin í
aðalhlutverki
|mánudagur|11. 6. 2007| mbl.is