Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
FLUGELDAR... KOMIÐ.
SKRÍTNIR HATTAR... KOMIÐ.
FLAUTUR... KOMIÐ...
LAMPASKERMUR...
LAMPASKERMUR?
KOMIÐ
SNOOPY!
MATUR!
EF ÞÚ
VILT EKKI
MATINN
ÞINN ÞÁ
GEF ÉG
KETTINUM
HANN!
ÞETTA
DUGAR
ALLTAF
STOPP
!
SVONA (MMF)
Á ÞESSI LEIKUR
EKKI AÐ VERA! ÞÚ ERT
SAMT
EKKI
BÚINN AÐ
NÁ MÉR
HELGA VAR AÐ
VÆLA Í MÉR VEGNA
ÞESS AÐ HENNI
FINNST ÉG DREKKA
OF MIKIÐ!
FÓR
ÞAÐ Í
TAUGARNAR
Á ÞÉR?
ERTU EKKI
AÐ GRÍNAST
?!
ÉG ER SVO PIRRAÐUR AÐ ÉG
ÆTLA AÐ VERA HÉRNA Í ALLAN
DAG AÐ NÖLDRA YFIR ÞVÍ!
GÓÐU FRÉTTIRNAR
ERU ÞÆR AÐ ÞAÐ
ER HÆTT AÐ RIGNA...
SLÆMU FRÉTTIRNAR
ERU HIINS VEGAR
ÞÆR AÐ ÞETTA TJÓN
FELLUR EKKI UNDIR
FLÓÐTRYGGINGUNA
ÞÍNA...
NÁGRANNI OKKAR VAR AÐ
SEGJA SATT... ÞAÐ ER
FYRIRTÆKI SEM GERIR
HEIMAVERKEFNI FYRIR BÖRN
ÞEIR SENDA
VINNUNA Á INNAN
VIÐ TVEIMUR
SÓLARHRINGUM
OG VERÐIN ERU
GÓÐ. VIÐ ÆTTUM
AÐ HRINGJA
EN
KLUKKAN
ER AÐ
VERÐA
TÓLF...
FYRIRTÆKIÐ
ER Á
INDLANDI
ÉG ER EKKI VISS
UM AÐ MÉR FINNIST
ÞETTA VERA Í LAGI
ÞAÐ ER
GOTT AÐ
HAFA ÞIG
HÉRNA HJÁ
MÉR Í L.A.
JÁ, ÉG ÆTTI AÐ
KOMA OFTAR Í
HEIMSÓKN TIL
ÞÍN HINGAÐ Á
VESTURSTRÖNDINA
KANNSKI
ÆTTIR ÞÚ
BARA AÐ
VERA HÉRNA
ÁFRAM
NEI, MÉR
MUNDI BARA
LEIÐAST... ÉG
HEFÐI EKKERT
AÐ GERA
Æ, NEI!
dagbók|velvakandi
Ringulreið í sjúkrahúsmálum
Við hjónin erum komin hátt á áttræð-
isaldur og erum bæði orðin þreytt og
hvorugt okkar heilt heilsu. Við erum
hrædd við ring-
ulreiðina sem ríkir
í sjúkra-
húsmálum, þar á
meðal af-
skiptaleysi hvað
varðar okkur aldr-
aða. Þegar ég tal-
aði við ykkur í
fyrra skiptið var
maðurinn minn
komin með
lungnabólgu í
fjórða skipti og var hann náðarsam-
legast lagður inn. Á þriðja degi var
hann spurður af lækni hvort hann
ætti ekki konu heima. Hann sagði að
svo væri. „Þá ferð þú heim,“ sagði
læknirinn. Hann var ekki spurður
hvort kona hans væri hraust og væri
þess megnug að hugsa um hann. Ég
er ekki hjúkrunarfræðingur og er
m.a. haldinn geðsjúkdómi, er mani
depri. Ég er orðinn 77 ára og lang-
þreytt á sjúkdómi mannsins míns. Nú
er hann aftur kominn á sjúkrahús,
hann datt innanhúss. Kraftar mínir og
heilsa þola ekki meira þessa óvissu.
Verður hann kannski sendur heim á
morgun? Spyr sá sem ekki veit.
Sigurlaug Sveinsdóttir.
Óánægja með Ríkisútvarpið
Ég vil koma á framfæri óánægju
minni með að Ríkissjónvarpið skyldi
ekki sýna leik Íslands og Svíþjóðar.
Furðulegt er að RÚV skuli láta Sýn
yfirbjóða sig. Ég geri þá kröfu til
Sjónvarpsins að sýna helstu íþrótta-
viðburði því það dugir mér ekki að
hlusta á lýsingu í útvarpi. Ég slökkti
á útvarpinu. Það versta er að þrátt
fyrir óánægju mína með þjónustu
RÚV er ekki hægt að segja því upp.
Gunnar Örn Gunnarsson.
Bágborin aðstaða í Hátúni
Í Hátúni 10A og 10B búa ein-
staklingar sem eiga mjög erfitt og
geta ekki bjargað sér sjálfir. Nýlega
voru stofnuð félagasamtökin Vænt-
umþykja sem eiga m.a. að vinna að
bættri aðstöðu íbúa húsanna. Ým-
islegt er þó bágborið við félagið,
skortur á fjármagni og annað því um
líkt svo ekki sé talað um stjórn fé-
lagsins. Svo illa hefur gengið að halda
samtökunum saman að á síðastliðnu
ári hefur fjórum sinnum verið skipt
um stjórn. Svo virðist sem yfirmenn
Öryrkjabandalagsins og formaður
hússjóðsins, Brynja vilji ekkert koma
þar nærri og skipta sér af hvernig
staðan er í Væntumþykju. Þó voru
það einmitt þau sem hvöttu íbúana til
að stofna félagasamtökin.
Íbúi.
Furðulegt menntakerfi
Enska er kennd á enskri tungu í ís-
lenska skólakerfinu. Nú ætlar
Menntaráð Reykjavíkur að kenna
Pólverjum íslensku á pólsku. Í Kali-
forníu er hins vegar spænskumæl-
andi fólki kennd enska á ensku. Hvað
vita Kaliforníubúar sem Menntaráð
Reykjavíkur veit ekki?
Bjarni Kristjánsson.
Sigurlaug
Sveinsdóttir
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
EF ófærðin er ekki vegna óveðurs
þá er hún vegna vegaframkvæmda.
Verið var að tvöfalda hringtorg á
Selfossi á dögunum. Þeir eru án efa
fleiri vegirnir sem verið er að laga í
sumar.
Morgunblaðið/Eyþór
Tvöföld ófærð
FÖSTUDAGINN 1. júní 2007 fór
fram afhending verðlauna í Nor-
ræna húsinu fyrir bestu lausnir í
verkefninu Unglingar, lýðræði og
heimabyggð, síðara hluta, hópvinn-
unni, en verðlaun fyrir fyrri hlutann,
ritgerðavinnuna, hafði farið fram 3.
mars sl. Verkefnið er rekið á vegum
samtakanna Landsbyggðarvina í
Reykjavík og nágrenni.
Í vetur tóku um 200 nemendur í
efstu bekkjum 8 grunnskóla víðs
vegar um landið þátt í verkefni, sem
fjallaði um það hvernig unglingarnir
teldu sig geta stuðlað að betri
heimabyggð.
Athygli vekur að í þessu verkefni
geta jafnvel krakkar, sem eiga við
lesblindu að stríða eða hafa aðeins
búið í nokkur ár á Íslandi, verið full-
gildir þátttakendur vegna þess, að
við mat á verkefnum var lögð aðal-
áhersla á góða hugmynd, skýra út-
færslu og hvort hugmyndin stuðlaði
að betri byggð, en minni á formið,
umbúðirnar.
Fyrstu verðlaun hlaut Grunnskól-
inn Hellu, 13 nemendur, 8. bekkur.
Verðlaunin voru ferð til einhvers
hinna þátttökuskólanna, sem Spari-
sjóðirnir á Íslandi munu standa
straum af í samvinnu við LBVRN.
Önnur verðlaun hlaut Öxarfjarð-
arskóli en þau þriðju Grunnskóli
Drangsness. Önnur og þriðju verð-
laun voru í formi vandaðra bóka frá
Eddu-útgáfu fyrir hvern verðlauna-
hafann. Forseti Íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, og Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir, verndari verkefn-
isins og fv. alheimsfegurðardrottn-
ing, afhentu verðlaunin.
Grunnskólinn Hellu
fékk 1. verðlaun
Sigurvegarar Frá verðlaunaaf-
hendingunni í Norræna húsinu.