Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VERÐSKULDUÐ VIÐURKENNING Vladimír Pútín, forseti Rúss-lands, afhenti Þorsteini I. Sig-fússyni prófessor Alheims- orkuverðlaunin í Pétursborg á laugardag. Þetta er sennilega ein- hver mesta viðurkenning, sem ís- lenskur vísindamaður hefur fengið. 146 verkefni voru tilnefnd til verð- launanna. Þrír vísindamenn fengu verðlaunin, Vladimír Jeliferjevitsj Nakorjakov frá Rússlandi og Jeffrey Hewitt frá Bretlandi fyrir rannsóknir sínar á sviði tækni til að nýta jarð- varma til orkuframleiðslu og Þor- steinn fyrir rannsóknir á notkun vetnis sem orkugjafa. „Þróun í orkumálum er í auknum máli að verða trygging stöðugleika og framfara í heiminum,“ sagði Pútín við afhendinguna. „Áreiðanlegar orku- lindir ákvarða beint efnahagslegan árangur ríkja og lífsgæði milljóna manna um allan heim.“ Pútín óskaði verðlaunahöfunum til hamingju með verðlaunin og tók sér- staklega fram að dómnefndin hefði hrósað Þorsteini mjög fyrir rann- sóknir hans. Pútín tók aftur til máls þegar verð- launaafhendingunni lauk og fjallaði þá aftur um orkuvandann: „Ein af helstu áskorununum, sem blasa við í heiminum, er að óendurnýjanlegar orkulindir eru að minnka á sama tíma og eftirspurnin eftir orku heldur áfram að vaxa og gáleysisleg notkun hefðbundinna orkulinda getur, svo ekki sé meira sagt, haft alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar fyrir um- hverfið.“ Síðar bætti Pútín við: „Ólík- ir hagsmunir gera erfitt fyrir að leysa þessi vandamál á pólitíska sviðinu, en án hjálpar vísindamanna yrði með öllu ógerlegt að leysa þau. Án lausn- anna, sem vísindin geta boðið, yrði enginn grundvöllur til að takast á við þessar áskoranir.“ Rússar eru stórtækir í framleiðslu á gasi og olíu og standa framarlega í orkutækni. Þrjú af stærstu orkufyr- irtækjum Rússlands eru á bak við orkuverðlaunin, þeirra á meðal Gazp- rom. Þorsteinn Sigfússon sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að hann vonaði að þessi verðlaun yrðu til að styrkja útrás Íslendinga á sviði orku- tækni. Orð Pútíns bera því vitni að Rússar eru farnir að hugsa til þess að sá tími muni renna upp að þær auð- lindir, sem nú bera uppi rússneskan efnahag, muni þverra. Rússar standa tæknilega framarlega í orkumálum í heiminum og sú staðreynd að verð- launin voru í ár veitt íslenskum vís- indamanni opna ýmsa möguleika á samskiptum og samvinnu við Rússa í orkumálum, ekki síst í ljósi þess hverjir eru bakhjarlar þessarar við- urkenningar. Þorsteinn I. Sigfússon er vel að verðlaununum kominn. Hann hefur unnið ötullega að sínum rannsóknum um árabil og verið ákafur stuðnings- maður vetnisverkefnisins hér á landi. Niðurstaða dómnefndarinnar sýnir hversu langt hann hefur náð. NÝ STAÐA Í HVALVEIÐUM Það er komin upp ný staða í hval-veiðum innan ríkisstjórnarinnar. Í samtali við Morgunblaðið í gær tók Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverf- isráðherra, afdráttarlausa afstöðu gegn hvalveiðum. Umhverfisráðherra sagði: „Ég er andvíg hvalveiðum í atvinnu- skyni. Sú afstaða breyttist ekki við að verða umhverfisráðherra. Auðvitað er það skýr réttur hverrar þjóðar að nýta auðlindir sínar með sjálfbærum hætti. Um það er ekki deilt. Hins vegar snú- ast hvalveiðar um ímynd Íslands á al- þjóðavettvangi. Ef við lítum á þær út frá efnahagslegu hliðinni þá hefur engum tekizt að sannfæra mig um það enn þá að hvalveiðar í atvinnuskyni borgi sig. Við getum verið ósammála fólki, sem hefur mjög sterkar tilfinn- ingar til hvala og lítur á þá sem tákn fyrir náttúruvernd í heiminum. En við verðum að vera raunsæ, þegar við horfum til þess hvernig þær geta skað- að orðstír okkar í alþjóðlegu sam- hengi. Við erum ekki frumbyggjar eins og inúítar í Alaska, sem hafa alltaf veitt hval. Mér finnst sjálfsagt að veita þeim hvalveiðikvóta á menningarleg- um rökum en þau rök eiga ekki við um okkur.“ Þetta er skýr og klár afstaða hjá umhverfisráðherra. Þeim mun athyglisverðara er að sjá viðbrögð Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra, í Morgun- blaðinu í dag vegna ummæla umhverf- isráðherra. Sjávarútvegsráðherra segir, eins og ekkert sé sjálfsagðara, að hvalveiðar haldi áfram í samræmi við reglugerð, sem gildi til loka þessa fiskveiðiárs. Hefur það farið fram hjá sjávarút- vegsráðherra, að ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og að hún er skipuð með öðrum hætti en hin fyrri? Nýr flokkur er orðinn samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn og nýr umhverfisráðherra, sem er fulltrúi Samfylkingar, hefur lýst sig andvígan hvalveiðum. Einar K. Guð- finnsson getur ekki látið eins og ekk- ert hafi breytzt. Reglugerðum er hægt að breyta með einföldum hætti. Sam- fylkingin hlýtur að taka þetta mál upp á vettvangi ríkisstjórnarinnar og gera kröfu til þess að þegar í stað verði tek- ið fyrir frekari hvalveiðar. Hvalbát- arnir eru að vísu ekki lagðir af stað og sjálfsagt erfitt fyrir Kristján Loftsson að selja hvalkjötið frá sl. hausti til Jap- an vegna þess að Japanir hafa ekki lengur áhuga á hvalkjöti. Einar K. Guðfinnsson verður að horfast í augu við að hann hefur fengið nýja samstarfsmenn í ríkisstjórn, sem eru einfaldlega ekki sammála honum um hvalveiðar og umhverfisráðherra getur ekki látið þá félaga Einar og Kristján Loftsson bruna áfram eftir skýrar yfirlýsingar hennar um and- stöðu við hvalveiðar. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Starfið í Hrafnagilsskóla erfjölbreytt og á ýmsanhátt hefur áherslum veriðbreytt þar á undanförn- um árum. Vandi sem kom upp í skólanum varpar ljósi á hvernig nú er tekið á málum innan skól- ans. Þannig er að færa þarf 7. og 8. bekki skólans nær hvor öðrum en þeir eru, sem hefur valdið tauga- titringi meðal einhverra nemenda, og spilar þar inn í að bekkirnir eru hvor á sínu stigi grunnskól- ans: mið- og unglingastiginu. Til að jafna ágreininginn hefur málið verið rökrætt innan bekkj- anna og með skólastjórnendum: „Þau sáu til að mynda ýmsa ókosti við þetta fyrirkomulag sem við höfðum ekki tekið eftir,“ segir Karl. Anna: „Það var til dæmis hita- mál fyrir verðandi áttunda bekk að sjöundi bekkur skyldi færast upp á unglingastigið á sama tíma og þau. Að sjöundi bekkur skyldi hljóta sömu réttindi og þau, og fannst erfitt að una því. En við hlustuðum á þau og ræddum mál- in af alvöru.“ Karl: „Núverandi níundi bekkur og verðandi tíundi bekkur höfðu líka mikið til málanna að leggja og þurftu að sjá fyrir sér kosti og galla og taka afstöðu út frá þeim.“ Og Anna bætir við: „Það þarf að hlusta á sjónarmið nemenda því oft kemur eitthvað upp sem mað- ur hafði ekki hugsað út í, það þarf að taka tillit til og rökstyðja gagn- vart nemendum ef ekki er hægt að verða við. En ekki taka ákvarð- anir „af því bara“.“ Þið takið semsagt mark á því sem nemendur hafa um málin að segja? Karl: „Já við gerum það. Sam- ræðan er lykill að okkar skóla- starfi.“ Unnið með dygðir og Mozart á samverustundum Auk samræðunnar er í starfi Hrafnagilsskóla lagt út af fjórum meginstoðum til að efla þá sýn sem skólinn stendur fyrir: Að allir hafi það góða í sér og mögu- leikann til að verða betri mann- eskjur. Í fyrsta lagi eru það dygð- ir; og er lögð sérstök áhersla á þrjár „kjarnadygðir“, virðingu, ábyrgð og góðvild. Auk þess er tvisvar á ári lagt út af vináttu á samverustundum nemenda. Þegar hin nýja stefna skólans var tekin upp voru fleiri dygðir til umræðu, en þeim var fækkað til að hafa samræðurnar skýrari, auk þess sem hægt er að leggja út af kjarnadygðunum þremur á marga vegu. Samverustundirnar fara fram að morgni hvers dags í sérrými, þar sem nemendur fyrsta til sjö- unda bekkjar koma öll saman og sitja á gólfinu. Í upphafi er farið með skólaheitið: „Ég kem í skól- ann til að læra og nýta hæfileika mína til fulls.“ Í kjölfarið tekur einhver stjórn- anda mál til umræðu við nem- endur, gjarnan sem tengist skóla- stefnunni eða annað sem mikilvægt er að fjalla um. Næst flytja nemendur úr einum bekkn- um eitthvað sem þeir hafa und- irbúið með sínum umsjónarkenn- ara. Síðan er sungið sam lög. Að lokum er sérstö arstund og er þá hlusta mínútna brot úr klassísk gjarnan úr verkum Mozar Á unglingastiginu eru s stundirnar ekki daglegar haldnar vikulega. Auk s stundanna er farið í svo gæðahring með neme hverjum bekk, vikulega. þeirra er að efla samr skoðanaskipti meðal neme þeim er einnig oft hægt ágreining og finna leiðir sem allir geta sætt sig vi hvað fer úrskeiðis. Að gera allt Mikill metnaður „Við ætl mannsson skólastjóri og A Hrafnagilsskóli í Eyjafjarðarsveit hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið 2007 í flokki skóla. Af því til- efni heimsótti Hjálmar Stefán Brynjólfsson skólann og tók þau Karl Frímannsson skólastjóra og Önnu Guðmundsdóttur aðstoðarskólastjóra tali. Eitt af því sem einkennirskólastarfið í Hrafna-gilsskóla er fjölbreytnií þeim aðferðum sem notaðar eru í náminu. Meðal þess sem skólinn hefur unnið að er að auka samvinnu milli bekkja skóla- stigsins, oft á milli nærliggjandi árganga. Auk þess hefur verið brugðið á það ráð að skipa kenn- arateymi sem kenna nemendum sameiginlega. Einnig hefur verið notast við samþættingu milli greina, jafnvel svo ólíkra sem út- saumi og stærðfræði. Áherslan í einstökum viðfangs- efnum og verkefnum er að auka ábyrgð nemenda og val þeirra. Þannig útbúa flestir nemendur sérstakar sýnismöppur þar sem þeir safna sjálfir saman því sem þeir hafa unnið best á árinu. Í lok ársins komu foreldrarnir í Hrafnagilsskóla og fengu að heyra og sjá hvað nemendur völdu í sínar möppur og hvers vegna. Vægi skriflegra prófa minnkað Skólinn hefur sett sér það sem sérstakt markmið að minnka vægi skriflegra prófa til að auka fjöl- breytnina í námsmati. Til dæmis hafa verið tekin upp munnleg próf í stærðfræði sem hefur skilað sér í því að margir nemendur, sem áð- ur höfðu ekki tækifæri til þess, ná nú að láta ljós sitt skína. Anna Guðmundsdóttir aðstoð- arskólastjóri nefnir einnig „svindlpróf“ og „samvinnupróf“ sem dæmi um óhefðbundnar leiðir til að auka fjölbreytnina í próf- aflórunni. Síðarnefndu prófraun- ina þreyta nemendur í samein- ingu. En svindlprófin eru allnýstárleg að sögn Önnu: „Nemendur mega koma með svindlmiða í prófið, sem á að vera eitt handskrifað A4-blað. Þau eiga sjálf að vega og meta efni til umfjöllunar og velja þa þau telja að muni koma þe gagni á prófinu. Svo er bæ og gæði svindlmiðans met Karl Frímannsson skóla bendir á að þessar nýstárl leiðir séu hluti þróunarve sem skólinn tekur þátt í ti minnka vægi skriflegra pr auka fjölbreytnina: „Þega Fjölbreyttar námsaðfer til að auka ábyrgð neme Útskýrt Einn af nemendunum sýnir móður sinni efni úr sýnismöp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.