Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 26

Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 26
26 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning ✝ Brynja Þórð-ardóttir fæddist á Eskifirði 10. mars 1921. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 27. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þórður Eiríksson bátasmiður frá Vatt- arnesi við Reyð- arfjörð, f. 14. júní 1884, d. 20. júlí 1965 og Guðrún Jón- asdóttir frá Svína- skála við Eskifjörð, f. 28. september 1887, d. 13. des- ember 1928. Systkini Brynju eru Guðbjörg, f. 30. september 1912, d. 18. janúar 1995, Eiríkur Kristinn, f. 13. október 1914, d. 15. ágúst 1987, Þuríður, f. 8. júlí 1916, d. 24. október 1985, eftirlifandi alsystk- ini eru Jónína, f. 8. júlí 1916 og Jónas, f. 24. september 1923. Hálf- systkini samfeðra eru Halldór, f. 9. febrúar 1934, d. 20. september 1997, Gunnar, f. 6. mars 1935, d. 3. nóvember 1999 og Erna, f. 29. október 1936, búsett á Staten Isl- and í New York. Brynja var alin upp hjá ömmu sinni og afa, þeim Brynju og Skúla. Brynja giftist árið 1940 Skúla Einarssyni frá Hafranesi við Reyð- arfjörð, f. 26. nóvember 1914, d. 15. október 2003. Foreldrar hans voru Einar Friðriksson bóndi á Hafranesi við Reyðarfjörð og Guð- rún Hálfdánardóttir. Börn Brynju og Skúla eru: 1) Edvard, f. 25. júlí 1941, maki Þuríður Gunnarsdóttir, f. 3. desember 1946. Börn þeirra eru: a) Skúli, maki Hanna Dóra Jó- hannsdóttir. Dætur þeirra eru Sig- rún Gróa og Auður Harpa. b) Edvard Börkur, maki Berg- hildur Erla Bern- harðsdóttir, synir þeirra eru Sig- urbjörn B. og Edv- ard Dagur. c) Ótt- har, maki Sigríður Arndís Jóhann- esdóttir, börn þeirra eru Edvard Börkur, Andrea Ósk og Arn- ór Gauti. 2) Börkur, f. 8. nóvember 1942, maki Katrín Þor- kelsdóttir, f. 23. ágúst 1950. Dætur þeirra eru a) Katrín Þóra, sam- býlismaður Haukur Guðmundsson, börn þeirra eru Katla Björt og Arnór Ari. b) Arna, búsett í for- eldrahúsum. 3) Ólöf Guðrún, f. 3. september 1947, maki Sigurður Ingi Guðmundsson, f. 6. desember 1949. Börn þeirra eru a) Skúli Örn, í sambúð með Berglindi H. Edw- ardsdóttur. b) Lára Gró, sambýlis- maður Viðar Kárason. Börn þeirra eru Elín Ólöf og Nökkvi Viðar. Fyrir átti Ólöf Brynju Viðars- dóttur, f. 29. október 1964, maki Björn Rúnar Magnússon, f. 9. febr- úar 1960. Börn þeirra eru: Andri og Erna Guðrún. Brynja var alin upp hjá ömmu sinni og afa, þeim Brynju og Skúla. Brynja starfaði lengi við þjón- ustustörf, meðal annars á hótelum og veitingastöðum, en síðustu starfsár sín vann hún sem aðstoð- armanneskja skólatannlækna Reykjavíkurborgar. Útför Brynju verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku tengdamamma. Minningarnar um þig eru mér of- arlega í huga nú þegar við kveðjum þig. Þú varst kraftmikil, ákveðin og viljasterk. Það sést þegar litið er yfir æviskeið þitt. Ofarlega í huga þínum voru æskuár þín á Eskifirði. Þar fæddist þú í Zauthens-húsinu ásamt fimm alsystkinum þínum. En ekki voruð þið lengi í föðurhúsum þar sem móðir ykkar lést þegar þú varst 7 ára að aldri og ykkur var öllum komið fyr- ir í fóstur. Móðurmissirinn var þér þungbær og barst þú þess merki alla ævi og talaðir alla tíð mikið um það. Einnig að systkinahópurinn tvístrað- ist. Alla tíð barst þú hlýhug til fóstur- móður þinnar Ólafar Baldvinsdóttur og dóttur hennar Elínar Jónsdóttur sem voru þér sem besta móðir og syst- ir. Á elliárum þeirra hlúðir þú að þeim eftir bestu getu. Heimili ykkar Skúla bar vott um fagurkera og umhyggju. Það var mik- ið lagt upp úr matargerð og voruð þið þar mjög samstiga eins og á öðrum sviðum. Oft var það þannig að ekki var lokið við eina stórmáltíðina þegar byrjað var að leggja grunn að þeirri næstu og þá gjarnan sagt „hvað eigum við að hafa á morgun“. Þú hafðir mjög gaman af að ferðast, ekki síst til út- landa og lágu leiðir ykkar Skúla oft til suðlægra slóða. Ferðirnar ykkar Skúla til Ernu og Hadda í Ameríku voru ófáar. Ég veit að þar áttuð þið góðar og skemmtilegar stundir með fjölskyldu þeirra. Í fyrrahaust fórst þú með Ernu til Ameríku og dvaldir hjá henni um tíma. Ég veit að sú ferð var þér mjög mikils virði og talaðir þú oft við mig um hana. Ekki verður hjá því komist að minn- ast á listhneigð þína. Á efri árum fórst þú að læra að myndlist. Þegar þú varst orðin 81 árs hafðir þú málverka- sýningu í Gerðubergi sem góður róm- ur var gerður að og seldust margar mynda þinna. Myndlistin stytti þér stundir eftir að hann Skúli þinn dó og jafnframt kom félagslyndi þitt vel í ljós. Þú dróst ekki af þér að keyra á bílnum þínum á hina ýmsu staði til að spila félagsvist og sækja fleiri skemmtanir eldri borgara. Ekki má gleyma Félagi austfirskra kvenna sem þér þótti vænt um og ræktir mjög vel. Í nóvember í fyrra, þegar þú veikt- ist skyndilega, varst þú ákveðin í að ná þér að fullu aftur Þá kom annað áfall þegar þú lær- brotnaðir. Enn og aftur sýndir þú mikinn dugnað og ákveðni. Þú varst búin að ná þér það vel að þú gast farið þinna ferða án hjálpar- tækja og varst farin að keyra bílinn þinn. Elsku Billa mín, þú fórst þína hinstu för með reisn. Ég þakka þér og Skúla fyrir allar okkar góðu stundir öll þau ár sem ég fékk að njóta samvistar við ykkur. Hvíl þú í friði. Katrín Þorkelsdóttir. Brynja Þórðardóttir  Fleiri minningargreinar um Brynju Þórðardóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Guðrún RósaSigurðardóttir fæddist í Hælavík 9. september 1930. Hún lést í hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 31. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Stefanía Halldóra Guðnadótt- ir, fædd í Hælavík í Sléttuhreppi 22.6. 1897, d. 17.11. 1973 og Sigurður Sigurðs- son, fæddur á Læk í Aðalvík 28.3. 1892, d. 6.5. 1968. Systkini Guðrúnar Rósu voru: Jakobína, f. 1918, d. 1994, Sigurborg Rakel, f. 1919, d. 2005, Ólafía Ásdís, f. 1920, d. 1998, Sigríður Stefanía, f. 1922, d. 2001, Sigurður Kristinn, f. 1923, d. 1934, Kristján Stefán, f. 1924, d. 1997, Ingólfur Marteinn, f. 1926, d. 1971, Baldvin Lúðvík, f. 1928, d. 1990, Guðmundur Jóhann, f. 1929, d. 1979, Guðni Kjartan, f. 1931, d. 1936, Fríða Áslaug, f. 1940, Guðný Sigrún, f. 1945. Guðrún Rósa giftist 20.9. 1953 Hirti Magnúsi Guðmundssyni, f. í Reykjavík 6.2. 1924. Áður eignaðist Guðrún Rósa Kjartan Baldursson, f. jónsson. Fósturdóttir þeirra er Katr- ín Birna Viðarsdóttir. 5) Ingibjörg, f. 1962 synir hennar eru Stefán Þór Bjarnason, f. 1986 og Ingólfur Kol- beinn, f. 1998. 6) Skarphéðinn Þór tón- menntakennari, f. 1963, kona hans er Guðrún Sigríður Loftsdóttir, f. 1966, þeirra börn eru Anna Sigríð- ur, f. 1988 og Hjörtur Ingi, f. 1996. Fyrir átti Guðrún Sigríður Valdi- mar Þór, f. 1982. Sonur Hjartar Magnúsar Guð- mundssonar er Karl lögregluþjónn, f. 1948, kona hans er Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir, f. 1950, börn þeirra eru a) Jón Þór, f. 1969, maki María Gunnarsdóttir, dætur þeirra eru Þorbjörg Birta, f. 2001 og Ragn- heiður Anna, f. 2006. b) Gunnar Kristófer, f. 1973. c) Bryndís, f. 1980 og d) Hjördís María, f. 1994. Guðrún Rósa bjó í Hælavík til 6 ára aldurs og flutti þá á Hesteyri. 15 ára gömul flutti hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur. Hún fór í Kvöldskóla KFUM og K. Stundaði tónlistar- og myndlistarnám. Var kaupakona, starfaði á vöggustofu, húsmóðir, fiskverkakona, auk ým- issa annarra starfa. Hún starfaði síðast á Kópavogshæli. Guðrún Rósa bjó í Kópavogi frá 1954 til dauða- dags. Síðustu fimm árin dvaldi hún í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar sem hún naut frábærrar umönn- unar. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 11. 1951, d. 1999. Faðir: Baldur Maríusson. Kona Kjartans var Ás- dís Emilía Björgvins- dóttir, f. 1960, dóttir þeirra er Guðrún Edda, f. 1999. Börn Guðrúnar og Hjartar eru: 1.) Lilja, f. 1953 félagsliði, fyrr- verandi maki Magnús Aðalsteinsson, börn: a) Helga, f. 1975, unnusti Bjarki Þórðarson, b) Hjörtur, f. 1980. 2) Sigrún sérkennari, f. 1954, börn: a) Magnús Þór Hallgrímsson, f. 1971 og b) Jó- hann Gunnar Jónsson, f. 1981, maki Unnur Stella Guðmundsdóttir, f. 1980, þeirra sonur er Gunnar Máni, f. 2004. 3) Guðmundur skipasmiður, f. 1955 kona hans er Þórhalla Jóns- dóttir, f. 1958, sonur þeirra er Kjart- an Arnar, f. 2001. 4) Stefanía hjúkr- unarfræðingur, f. 1956, maki Helgi Hrafnsson, f. 1961. Dóttir Stefaníu er Guðrún Rósa Björnsdóttir, f. 1976, synir Helga og Stefaníu eru Hrafn, Sigmundur og Hans, fóst- urdóttir þeirra er Anna Vilborg Óm- arsdóttir. 4) Gunnhildur, f. 1957 fyrrverandi maki Gunnar Frið- Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til móður minnar, þakklæti fyrir það sem hún gerði og kenndi, mér og öðrum, það sem hún var, heil og sönn í öllu sem hún gerði, hún kom eins fram við alla og ætlaðist til þess sama af öðrum. Samheldni frændgarðsins var mikil, þau vildu vita hvert af öðru og koma til hjálpar ef þurfti og vera til staðar ef þörf var á. Þetta var það sem ég kynntist í barnæsku og taldi að svona væri lífið. Að alast upp í Kópavoginum á þess- um tíma var frábært fyrir börn, bær- inn sambland af sveit og borg. For- eldrar mínir kynntust í kór verkamanna og höfðu þau bæði mikla ánægju af tónlist. Ef óróleiki var í stóra barnahópnum settist hún niður og söng fyrir hópinn og þagnaði hann þá og róaðist. Keppni var að þekkja söngvara síðasta lags fyrir fréttir áður en þulur sagði nafn hans. Þetta varð skemmtileg keppni og þjálfaði hlustun. Heimilið var alltaf fullt af börnum og svo komu kettirnir, þeir sóttu til henn- ar eins og litlu börnin. Foreldrar mínir gerðu flest saman, enda er erfitt að minnast annars án þess að minnast hins. Einnig var það þannig að það sem þau gerðu, gerðu þau með okkur börn- unum. Mamma hafði mjög gaman af rækta garðinn sinn, sótti gjarnan fjöl- ærar plöntur út í náttúruna og gróð- ursetti þar. Þau áttu hvert einasta handtak í húsinu og lóðinni, þau áttu líka hvert einasta handtak í barna- hópnum. Hún mamma kenndi okkur að vera trú samfæringu okkar, verja lítilmagnann og vera réttlát. Hún var afar eftirsótt til vinnu, sérstaklega fiskvinnslu. Ég man eftir fiskverkanda sem sótti fast að fá hana í handflökun og var tilbúinn að borga henni karl- mannskaup ef hún kæmi til hans í vinnu. Þau foreldrar mínir stofnuðu verslunina Hjartarkjör sem þau ráku í 10 ár. Það var skemmtilegur tími og þau eignuðust þar vini sem fylgdu þeim eftir það. Þau höfðu bæði mjög gaman af að ferðast, sérstaklega um landið okkar og var afskaplega gaman að fara með þeim. Síðasta stórferðalag sem fjölskyldan fór í var á Horn- strandir, hún var léttfætt þegar hún steig á land í Hælavík og gekk með okkur börnum, tengdabörnum og barnabörnum um víkina og sagði okk- ur frá. Eftir að við börnin þeirra fluttum vítt og breitt um landið voru þau dug- leg að heimsækja okkur og þurfti ekki mikið tilefni til. Hún fór t.d. ævintýra- ferð um miðjan vetur í mikilli ófærð til Ólafsfjarðar til að vera við fæðingu barnabarns, og tókst að komast á leið- arenda áður en barnið fæddist. Þegar sonur pabba, sem alist hafði upp hjá mömmu sinni og hafði lítið samband haft við okkur, kom til þeirra fullorðinn og með sína eigin fjölskyldu, þá var eins og fjölskyldan væri orðin fullkom- in, Síðastliðin fimm ár dvaldi mamma í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þar sem henni leið frábærlega og viljum við fjölskylda hennar þakka því frá- bæra starfsfólki fyrir þá alúð og vænt- umþykju sem þau sýndu henni og okk- ur öllum. Einnig langar okkur að þakka af öllu hjarta séra Írisi Kristjánsdóttir fyrir stundina sem hún átti með okkur í Sunnuhlíð hinn 31. maí. Lilja Hjartardóttir. Guðrún Rósa Sigurðardóttir  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Rósu Sigurðardóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Marinó E. Árnasonfæddist á Ísafirði 5. nóvember 1912. Hann lést á Dvalarheimilinu Höfða 2. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Árni Guð- brandsson bakari á Ísa- firði, f. 11 júlí 1880, d. 11. júlí 1944, og Sigríð- ur Einarsdóttir, f. 7. september 1872, d. 7 júlí 1958. Marinó átti þrjár systur, Sigríði, Jóhönnu og Þórunni. Þær eru allar látnar. Marinó kvæntist 8. júní 1935 Hansínu Guðmundsdóttur, f. 26. júní 1913, d. 27. janúar 2001. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Hansson, Akurgerði og Marsibil Þorbjörg Gísladóttir. Börn Hansínu og Marinós eru: 1) Þór- ir, f. 10. september 1935, kvæntur Erlu Ingólfsdóttur, f. 28. september 1935. Þau eiga tvö börn, fimm barnabörn og eitt barnabarnabarn. 2) Drengur, f. 2. janúar 1941, d. 9. janúar 1941. 3) Atli, f. 20. febrúar 1942. 4) Árni, f. 30. júlí 1945, kvæntur Höllu V. Friðbertsdóttur, f. 29. júní 1949. Þau eiga þrjú börn og tvö barnabörn. 5) Val- gerður, f. 1. júní 1951, gift Guðmundi Sigurðssyni, f. 20. septembar 1946. Þau eiga eina dóttur. Úför Marinós fer fram frá Akra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Með fáum fátæklegum orðum ætla ég að minnast Marinós Árnasonar, tengdaföður míns. Hann var orðinn roskinn maður þegar ég kynntist hon- um og tengdamóður minni, Hansínu Guðmundsdóttur, sem lést fyrir rúm- lega sex árum. Fremur stutt viðkynn- ing kemur þó ekki í veg fyrir að ég tel mig hafa fengið sæmilega glögga sýn á líf þeirra og háttu. Sú mynd sem við mér blasti í upphafi vakti strax hjá mér virðingu. Þau voru bæði í mínum augum fulltrúar þess besta sem bjó í íslensku alþýðufólki á liðinni öld. Því fólki sem með eljusemi lagði grunninn að þeirri lífssæld sem við nú teljum sjálfsagða. Marinó fór ungur að róa til fiskjar enda ólst hann upp í sjávarplássi. Hann reri m.a. á opnum bátum frá Bolungarvík og fannst mér, land- krabbanum, mikið til um lýsingar hans og frásagnir af vosbúðinni sem fylgdi starfinu. Um tvítugt flutti Mar- inó suður og settist að á Akranesi, eignaðist fjölskyldu og sinnti þar ýms- um störfum. Flest tengdust þau sjón- um og um skeið gerði hann út trillu. Marinó var vinnusamur og átti því láni að fagna að vera heilsuhraustur fram á elliárin. Hann gat því stundað erfiðisvinnu fram undir áttrætt. Ég er ekki í vafa um að lunderni og jákvætt lífsviðhorf áttu þátt í því jafn- vægi sem einkenndi allt fas Marinós. Hann var enda nægjusamur og reglu- samur og lifði regluföstu lífi. Hann var grannur og kvikur í hreyfingum og gjarna með glettnisglampa í augum. Þau ár sem ég þekkti hann og meðan heilsan leyfði stundaði hann reglu- bundið gönguferðir á Akranesi. Áður munu hann og Hansína hafa gengið á fjöll og nutu þau þess að ferðast inn- anlands og erlendis bæði í smærri og stærri hópum. Heyrt hef ég að Mar- inó hafi gengið á Skarðsheiðina á átt- ræðisaldri. Marinó átti gott með að lynda við fólk enda gerði hann ekki miklar kröf- ur fyrir eigin hönd. Var eftir því tekið að jafnt yngri sem eldri samferða- menn hans sóttust eftir félagsskap hans. Þó var Marinó ekki sérlega fé- lagslyndur. Það stafaði hins vegar frá honum innri friður sem gerði nærveru hans þægilega. Þegar leið á ævikvöld- ið og Marinó bjó á Dvalarheimilinu Höfða veitti ég því athygli hvað starfs- fólk og sambýlingar auðsýndu honum mikla hlýju. Hann var þeirrar gerðar. Guðmundur Sigurðsson. Marinó E. Árnason  Fleiri minningargreinar um Mar- inó E. Árnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.