Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Hostel 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 18 ára
28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Hostel 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 18 ára
Hostel 2 LÚXUS kl. 5:50 - 8 - 10:10
The Last Mimzy kl. 3:40
Pirates of the Carribean 3 kl. 5 - 9 B.i. 10 ára
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
The Hoax kl. 5:30 - 8 - 10.30 B.i. 12 ára
28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Unknown kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Painted Veil kl. 5:30
It’s a Boy Girl Thing kl. 8 - 10:10
Spider Man 3 kl. 5:20 B.i. 10 ára
Fracture kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
It’s a Boy Girl Thing kl. 3:45 - 5:50
Spider Man 3 kl. 5 - 8 B.i. 10 ára
ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR!
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
eeee
L.I.B. - Topp5.is
eee
V.I.J. - Blaðið
eeee
Empire
eeee
H.J. - MBL
Frábær ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna
NÝ LEYNDARMÁL
- NÝR MÁTTUR - ENGAR REGLUR
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
SÍÐUS
TU
SÝNIN
GAR
OG ALLS EKKI,
UNDIR NEINUM
KRINGUMSTÆÐUM,
FYRIR VIÐKVÆMA
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR
STRANGLEGA
BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
R I C H A R D G E R E
GABBIÐ
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
Mesta ævintýri
fyrr og síðar...
...byrjar við
hjara veraldar
ÞEIR ERU LOKAÐIR INN OG
MUNA EKKI HVAÐ GERÐIST.
ÞEIR TREYSTA ENGUM
OG ÓTTAST ALLA.
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ FLOTTUM LEIKURUM.
eeee
S.V. - MBL
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
MIKE MCCARTNEY er virtur
ljósmyndari og tónlistarmaður.
Hann er fæddur í Liverpool undir
lok heimsstyrjaldarinnar síðari og
hefur unnið töluvert við undirbún-
ing þess þegar borgin verður menn-
ingarborg Evrópu á næsta ári. Í lok
nóvember hefst svo íslenska menn-
ingarhátíðin ICE2007 þar sem hann
mun einnig koma töluvert við sögu,
en hátíðin er gjöf Íslendinga til Liv-
erpool í tilefni 800 ára afmælis borg-
arinnar og fjöldi íslenskra lista-
manna úr ýmsum áttum mun taka
þátt. Og jú, hann er bróðir Pauls.
Fullorðnir karlmenn að gráta
Hann byrjar viðtalið á að tala um
veðrið sem sannfærði mig um að
þessi tengsl á milli Reykjavíkur og
Liverpool eru ekki alveg úr lausu
lofti gripin. Hann er staddur á heim-
ili sínu í Wirral, skammt frá Liver-
pool. Wirral eiga sína Þingvelli,
Thingwall, þar sem áður fór fram
víkingaþing. Mike er menningar-
sendiherra svæðisins og er
skemmtilega grobbinn af því en seg-
ir mér að helsta hlutverk embættis-
ins hafi verið til að hjálpa Liverpool
að verða menningarborg. „Ég sá
hvernig það gjörbreytti Glasgow að
vera menningarborg Evrópu. En
þegar Liverpool sótti um hafði eng-
inn trú á að við ynnum. Svo biðum
við úrslitanna og þegar þau voru
kynnt varð einnar sekúndu þögn.
En svo varð allt vitlaust, ég hef aldr-
ei séð jafnmarga fullorðna karlmenn
gráta eins og börn, þar á meðal ég.“
Bjarkaræði og Bítlaæði
Mike hefur heyrt að Íslendingar
séu líkir íbúum Liverpool. „Íslend-
ingar eru þekktastir fyrir Bjark-
aræðið og Liverpool fyrir Bítlaæðið
en það er meira undir niðri. Út á við
virðast íbúarnir vera villtir og árás-
argjarnir en það er bara til þess að
reyna á aðkomumenn. En ég er að
koma til Íslands, þá get ég athugað
hvort þeir eru raunverulega eins og
Liverpool-búar og séð hvort landið
er galdrastaður eins og Liverpool.“
Mike kemur í dag ásamt yngsta syni
sínum til landsins og verður í þrjá
daga. Hann hefur ekki planað neitt,
það fá aðrir að sjá um það. „Ég er í
höndum ykkar Íslendinga. Hvað þið
gerið við mig og son minn er á ykkar
ábyrgð. Rétt eins og ef þú kæmir til
Liverpool. Þá segi ég fólki að hafa
ekki áhyggjur, koma bara og njóta
lífsins. Vandamálið verður að fá þig
til að yfirgefa staðinn.“ Hann hefur
heyrt mikið um birtuna á Íslandi,
sumarnæturnar. Landið gæti því
verið kjörið til þess að sinna hans
helstu hugðarefnum, ljósmyndun.
Það er sú listgrein sem hann hefur
stundað hvað mest en listin hefur
átt hug hans lengi.
Andalúsíuhundurinn og
Brjóstmynd af Voltaire
„Fyrst þarftu að uppfylla grunn-
þarfirnar, vinna fyrir brauðinu. Svo
spyr maður sig hvort það sé ekki
eitthvað meira.“ Þetta meira vitr-
aðist honum þegar hann var þrettán
ára. Það var þáttur í sjónvarpinu,
heimildarmynd frá BBC um súr-
realisma. Salvador Dali, Luis Bunu-
el og Andalúsíuhundinn. Öll þessi
einkennilegu erlendu nöfn og hvern-
ig fólk leit á lífið, trúna, listina,
hugsunina og staðsetti þetta allt í
þessum súrrealíska draumaheimi.
„Svo fór ég upp í svefnherbergið
mitt og yfir ljósrofanum teiknaði ég
auga. Svo teiknaði ég annað auga
við hliðina og loks mannshöfuð og
upp úr höfðinu óx sveppur. Full-
komlega rökrétt, ekki satt? Þannig
kemur listin inn í mann. Svo ferðu í
bækurnar, Eyjan eftir Aldous Hux-
ley, bækur sem breyta hvernig þú
lítur á lífið. Þú sérð myndir, Brjóst-
mynd Voltaires eftir Dali. Við pabbi
horfðum á verkið og ég spurði hann:
Sérðu einhverja brjóstmynd? Hvor-
ugur okkar sá hana en svo fórum við
í hinn enda herbergisins og þá blasti
brjóstmyndin við okkur. Það eru
svona hlutir sem breyta sýn þinni á
lífið, það skiptir máli hvar þú stend-
ur.“
Mike hefur líka verið í hljómsveit.
Hún hét Scaffold og náði ágætis vin-
sældum og lög á borð við „Lily the
Pink“, „Liverpool Lou“ og „Thank
U Very Much“ náðu efstu sætum
breska vinsældalistans. „Ég átti
bróður sem var í rokkhljómsveit, þú
kannast máski við hann. Að fara í
hans tegund tónlistar hefði verið
sannkallað feigðarflan. Þannig að
við fórum í grínið.“
Ég spyr hann hvernig hafi verið
að alast upp með Paul. Hann spyr
mig hvort ég eigi bróður og þegar
ég játa því þá segir hann það ná-
kvæmlega eins. „Hann er bara bróð-
ir þinn og þú elst upp með honum.
Sú staðreynd að hann breytti heim-
inum er eini munurinn. En nýja
platan hans er fjandi góð.“
Barnabækur um náttúruvernd
Mike er ásamt Andra Snæ
Magnasyni í dómnefnd fyrir smá-
sagnasamkeppni sem haldin verður
fyrir skólabörn í Liverpool en
merkilegt nokk eiga þeir ekki ólíkan
bakgrunn í barnabókmenntum.
Andri Snær er þekktur fyrir Söguna
af bláa hnettinum en McCartney
hefur einnig skrifað barnabók með
umhverfisboðskap, Sonny Joe and
the Ringdom Rhymes, um ungan
borgarstrák úr Liverpool sem fer í
sveitina en þarf að hafa mikið fyrir
því að komast aftur til manna-
byggða. Aftur til Liverpool.
„Liverpool er eins og eldfjall“
Segir Mike – sem áður hafði líkt
borginni við sérstaka eyju á eyjunni
og heldur áfram: „Borgin bíður
lengi óvirk en svo gýs hún alltaf
reglulega. Upphaflega var hún lítil
hafnarborg en varð svo ein helsta
hafnarborg veraldar og spúði út úr
sér skipum um allan heim. Svo kom
heimsstyrjöldin síðari, Liverpool
fékk gríðarlegt vægi sem hafn-
arborg og var sprengd hálfa leið til
heljar. Svo komu Bítlarnir og fleiri
tónlistarmenn, fótboltaliðið gýs allt-
af reglulega og svona má lengi telja.
Nú erum við bara að bíða eftir
næsta gosi, það er alveg að koma.“
Spurður um athyglisverðar hljóm-
sveitir í Liverpool núna þá vísar
hann spurningunni til næstu kyn-
slóðar. Hann kallar á son sinn
Sonny sem nefnir að The Corals og
The Zutons séu að gera góða hluti
og margar fleiri gætu fylgt í kjölfar-
ið.
Með það þakka ég fyrir mig og
kveð, hann kveður með margföldum
þökkum beint úr sínu þekktasta tón-
verki. „Thank U Very Much.“
Eldfjallaeyjurnar Liverpool og Ísland
McCartney Ætlar að athuga hvort Ísland sé galdrastaður.
Spjall við Mike McCartney um
Liverpool, Ísland og listina