Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 35
kl. 6 Ísl. tal - 450 kr.
eeee
SV, MBL
eee
LIB Topp5.is
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
www.haskolabio.is Sími - 530 1919
Hostel 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 18 ára
The Invisible kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára
Lives of Others kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
450 k
r.Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 10 ára
SPRENGHLÆGILEG GRÍNMYND MEÐ LARRY
THE CABLE GUY OG DJ QUALLS ÚR ROAD TRIP
ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR!
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
eeee
L.I.B. - Topp5.is
eee
V.I.J. - Blaðið
eeee
Empire
eeee
H.J. - MBL
NÝ LEYNDARMÁL
NÝR MÁTTUR
ENGAR REGLUR
Frábær ævintýramynd
fyrir alla fjölskylduna
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6 og 8
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 18 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
OG ALLS EKKI,
UNDIR NEINUM
KRINGUMSTÆÐUM,
FYRIR VIÐKVÆMA
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR
STRANGLEGA
BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
OG ALLS EKKI,
UNDIR NEINUM
KRINGUMSTÆÐUM,
FYRIR VIÐKVÆMA
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR
STRANGLEGA
BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
eeeee
S.V., MBL
eeee
K. H. H., FBL
eeee
KVIKMYNDIR.COM
DAS LEBEN DER ANDERN / LÍF ANNARRA
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
SANNLEIKURINN er oft lyginni
líkastur og maður verður að trúa
því að hann sé grundvöllur stóru-
ndarlegrar myndar um samsafn
furðufugla, þar sem hún er byggð á
minningum og metsölubók aðal-
persónunnar, Augusten. Hann er
frábærlega leikinn af nýliðanum Jo-
seph Cross og skínandi leikhóp-
urinn er helsti kostur myndar sem
er hvað helst við hæfi alætna á
kvikmyndir.
Augusten er aðeins 14 ára þegar
foreldrar hans skilja og honum er
komið fyrir hjá sálfræðing (Cox),
sem er manna ruglaðastur. Þegar
mæðginin fara að reyna að standa á
eigin fótum úti í lífinu og leita að
skáldinu í brjósti sínu, uppgötva
bæði hvað helst samkynhneigð.
Murphy er greinilega hæfi-
leikamaður og óbanginn við að ráð-
ast á garðinn þar sem hann er ill-
viðráðanlegur. Hvorki atburðarásin
né persónurnar ná tökum á áhorf-
andanum, Augusten er sá eini sem
má kalla geðþekkan, annars er
mannskapurinn upp til hópa roggin,
fötluð sníkjudýr. Bening er ynd-
isleg sem konan sem enginn skilur
og er öldungis hissa á því að heim-
urinn hafi ekki uppgötvað hennar
stórkostlegu ljóðlist. Túlkun Bening
á tættri, vanheilli og forfallinni pil-
luætu, er með því besta sem hún
hefur gert. Aðrir leikarar eru litlu
síðri.
Sótsvartur húmor er yfirleitt
skammt undan, þetta furðuverk á
fína spretti en Murphy teflir á tæp-
asta vað og er oft við það að missa
jafnvægið á flughálum botni.
Skrýtnir fuglar
MYNDDISKAR
Gamandrama
Bandaríkin 2006. Sena 2007. 116 mín.
Öllum leyfð. Leikstjóri: Ryan Murphy. Að-
alleikarar: Annette Bening, Alec Baldw-
in, Brian Cox.
Með skærin á lofti (Running With Scis-
sors) Furðuverk Cross og Evan Rachel
Wood í hlutverkum sínum
Sæbjörn Valdimarsson
ALKÓHÓLISMI var lengi vel
óskilgreindur, í mesta lagi litið á
hann sem „óhreinan“ sjúkdóm,
sem stafaði af einberum aum-
ingjaskap. Hollywood var sama
sinnis, ekki vantaði að áfengi var
eilíflega haft um hönd í bíómynd-
um, en jafnan á ofur kúltíveraðan
hátt. Einu umtalsverðu undantekn-
ingarnar, allt fram á ofanverða síð-
ustu öld, eru The Lost Weekend
og Days of Wine and Roses, sem
segir á áhrifaríkan hátt sígilda
hörmungarsögu um hvernig fólk
verður Bakkusi að bráð.
Joe Clay (Lemmon) er viðfelld-
inn og lífsglaður náungi á uppleið í
starfi. Honum þykir að vísu full
gott í staupinu fyrir smekk Kirs-
ten (Remick), glæsilegrar stúlku
sem hann kynnist á nýjum vinnu-
stað.
Þau verða ástfangin og Joe er
snöggur að koma Kirsten á bragð-
ið. Hún er veik fyrir súkkulaði og
hann brýtur auðveldlega niður
varnarmúrana með ljúffengum
hanastélum. Það reynist dýrkeypt,
Kirsten verður á nokkrum árum
forfallinn drykkjusjúklingur líkt og
bóndi hennar sem sökum óreglu
missir hverja vinnuna af annarri
og íbúðina, uns botninum er náð.
Lærdómsrík mynd og vel gerð,
sem Wilder er von og vísa. Hefur
fengið eftirlætið Lemmon til liðs
við sig, sem er einkar sannfærandi
sem alkinn sem tekur sig á og nær
að rífa sig upp úr ræsinu með
hjálp AA-samtakanna. Remick er í
senn hrífandi og þjáð í túlkun sinni
á rósinni sem féll.
Dagar víns og rósa á ekki síður
erindi við samtímann en áhorf-
endur fyrir hartnær hálfri öld, en
hún er einnig gleðilegur vitn-
isburður um framfarirnar sem orð-
ið hafa í meðferðinni á sjúkdómn-
um. Hér blasa við tímar
spennitreyja og skilningsleysis
sem hafa vikið fyrir mannúðinni og
vísindunum sem samtök á borð við
SÁÁ standa fyrir. Undarlegur galli
á að flestu leyti stórfenglegri
mynd, er dóttirin, sem nánast
gleymist.
Flæðir vín,
fölna rósir
MYNDDISKAR
KLASSÍKIN
Bandaríkin 1962. Sam myndir. 117 mín.
Leikstjóri: Blake Edwards. Aðalleikarar:
Jack Lemmon, Lee Remick, Charles
Bickford.
Dagar víns og rósa
(Days of Vine and Roses) Vestri
Fimm stjörnur Lemmon og Remick í hlutverkum sínum.
Sæbjörn Valdimarsson
ÞEGAR svikahrappurinn Ray (Ja-
red Leto) hittir Mörthu Beck (Ha-
yek) verður fjandinn laus. Hún er
„skemmd vara“, eins og lög-
reglumaðurinn Hildebrandt (Gan-
dolfini) lýsir henni. Geðklofi sem var
misnotuð í æsku og finnur sálu-
félaga í Ray, sem hún nær tökum á
er hann ætlar að gera hana að fórn-
arlambi sínu. Hann lifir á „einmana
hjörtum“, gjarnan einstæðum
mæðrum sem eiga einhverja banka-
innstæðu sem hann hirðir og heldur
á brott.
Þegar Martha kemur til sögunnar
kárnar gamanið og þau fara að
skilja eftir sig morðslóð.
Lonely Hearts Killers segir frá
rannsókn málsins. Tveir lög-
reglumenn á Long Island, Hilde-
brandt og Robinson (Travolta),
komast á sporið og lýsir myndin
mæta vel óhugnanlegu andrúmsloft-
inu sem umlykur sálarlaus af-
styrmin og tíðarandanum á sögu-
tímanum, um 1950. Útlitið er
óaðfinnanlegt og leikurinn er safa-
ríkur hjá aðalleikurunum fjórum.
Það kemur ekki á óvart hvað snertir
Gandolfini og Travolta kann að lifa
sig inn í hlutverk, þá sjaldan hann
fær eitthvað bitastætt. Hayek er yf-
irþyrmandi sem svellandi, snaróður
kvendjöfull sem vefur Ray um fing-
ur sér. Hann er óaðfinnanlega túlk-
aður af Leto (Requiem for a Dream
‘00), sem til þessa hefur að mestu
farið framhjá manni í tugum mynda.
Hann smjattar á auvirðilegri per-
sónunni og kemur virkilega á óvart.
Myndir um raðmorðingja eru oft-
ar ofan en upp, Lonely Hearts Kill-
ers, sem byggð er á sönnum atburð-
um (gerð af barnabarni Robinsons),
er í hópi þeirra betri. Vönduð, fanta-
vel leikin, trúverðug en jafnframt
hrollvekjandi sýn inn í sjúkan heim
manndrápara.
Illþýði upprætt
MYNDDISKAR
Spennumynd
Bandaríkin 2006. Myndform. 103 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: Todd
Robinson. Aðalleikarar: John Travolta,
James Galdofini, Selma Hayek.
Lonely Hearts Killers Gandolfini Leikurinn er safaríkur.
Sæbjörn Valdimarsson