Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.IS
OCEAN'S 13 kl. 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6:15 - 8:15 - 10:15 B.i. 10 ára DIGITAL
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 5:45 LEYFÐ DIGITAL 3D
/ KRINGLUNNI
OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 9 - 10:40 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 8 - 10:40
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára
BLADES OF GLORY kl. 6 B.i.12.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
GOAL 2 kl. 3:50 B.i.7.ára
/ ÁLFABAKKA
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM
ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU
MYND SUMARSINS?
Opið hús í dag kl. 17:30-18:30
530 1800
25.900.000 - LAUS STRAX
Falleg 2. herb. 72 fm íbúð á 1. hæð
(ekki jarðhæð) auk geymslu með tvennum
rúmgóðum svölum í suður og vestur og
stæði í bílageymslu. Sölumaður
Draumahúsa tekur á móti gestum.
Vesturgata 53b 1.hæð - 101 Rvk
UM ÞESSAR mundir er að koma út
DVD-útgáfa með fjórum myndum
með Gary Cooper, einni virtustu og
vinsælustu kvikmyndastjörnu 20. ald-
arinnar. Pakkinn nefnist „Gary Coo-
per: MGM Movie Legends Collec-
tion“ og inniheldur titlana The
Winning of Barbara Worth, The Real
Glory, The Cowboy and the Lady og
Vera Cruz.
Þetta er eigulegur kassi, bæði fyrir
þá sem þekkja Cooper, og engu síður
hina, vilja fá smjörþefinn af sögu-
frægri stórstjörnu og tilfinningu fyrir
hvað hann stóð fyrir í kvikmyndasög-
unni.
Þó að þrjár af myndunum fjórum
séu vestrar, eru þær ólíkar og ætlað
að sýni feril stjörnunnar í hnotskurn.
The Winning of Barbara Worth, er
tölvulituð svart/hvít mynd og þögul,
gerð 1926, af Henry King. Líkt og
aldurinn gefur til kynna er efnið há-
dramatískt og fjallar um sveitastúlku
sem þeir togast á um, bóndasonurinn
Cooper og járnbrautarverkfræðingur
af austurströndinni (Ronald Colem-
an). Ekki spurningin hvor hefur bet-
ur.
The Real Glory (Henry Hathaway
1939), er stríðsmynd úr spænsk-
ameríska nýlendustríðinu upp úr
aldamótunum 1900. Sögusviðið er
Filippseyjar og leikur Cooper banda-
rískan liðsforingja sem lendir í mann-
raunum miklum og hetjudáðum.
Cooper er aftur kominn á vestra-
slóðir í The Cowboy and the Lady
(’38), sem sýnir nýja hlið á stjörnunni.
Þetta er rómantísk gamanmynd um
kúreka sem kynnist vinnukonu
(Merle Oberon), sem reynist ættstórt
einkabarn í dulargervi. Cooper gat
verið liðtækur gamanleikari, ef svo
bar undir.
Fjórða myndin, stórvestrinn Vera
Cruz, er gerð af meistara Robert Ald-
rich 1954. Mótleikarinn er enginn
annar en Burt Lancaster og þeir fara
mikinn í meinfyndnum átakavestra,
ákaflega heillandi í minningunni. Með
minnisstæðum, hrikalegum aukaleik-
urum, sem ég komst að síðar að eru
engir aðrir en höfðingjarnir Jack
Elam, Ernest Borgnaine og Charles
Bronson. Ég hef Sergio Leone grun-
aðan um að hafa kynnt sér rækilega
vestrana hans Aldrich áður en hann
fór út í spaghetti-vestragerðina og
fann sinn Cooper í Eastwood. Ekki
síst Vera Cruz.
Gary Cooper í feitum
vestrapakka
MYNDDISKAR
Sæbjörn Valdimarsson
Kvikmyndastjarna Gary Cooper.
það hvers ætlast var til af ungum
konum á fyrri hluta 20. aldar og
Sæfarinn eftir sjálfan Jules
Verne er auðvitað sígild saga.
Formötun bókanna miðar að
því að sem flestir geti lesið þær
óháð tölvukosti, hægt er að sækja
þær sem hreinan texta, á HTML-
sniði til aflestrar á vefsíðum og
fyrir Plucker-rafbókarsýninn sem
fáanlegur er endurgjaldslaust
fyrir Palm-lófatölvur.
Bókasafnið kostar ekkert
21.000 bækur Fjöldi sjálf-
boðaliða vinnur nú að því að skrá
bækur inn á vefinn á hinum ýmsu
tungumálum. Yfir 21.000 bækur
eru fáanlegar á vefsíðunni.
www.gutenberg.org
VEFSÍÐA vikunnar má segja að
sé eldri en Netið sjálft, en upphaf
hennar má rekja til þess að há-
skólaneminn Michael Hart fékk
árið 1971 aðgang að tölvu við Ill-
inois-háskóla, sem þótti þá síður
en svo sjálfsagt mál. Gísli Árna-
son kynnti sér vefsíðu Guten-
berg-verkefnisins, en þar má
finna tugþúsundir bóka endur-
gjaldslaust.
Michael Hart velti því fyrir sér
hvernig hægt væri að nýta sér
tæknina og ákvað að færa sígild-
ar bókmenntir á rafrænt form,
nokkuð sem aldrei hafði verið
gert áður, ekki skipulega a.m.k.
Hart hófst handa við að vélrita
inn sjálfstæðisyfirlýsingu Banda-
ríkjanna, sem hann hafði með-
ferðis fyrir tilviljun í bakpoka sín-
um og þannig hófst
Gutenberg-verkefnið, sem nú hef-
ur sínar aðalbækistöðvar á vefn-
um gutenberg.org.
Fjöldi sjálfboðaliða vinnur nú
að því að skrá bækur inn á vefinn
á hinum ýmsu tungumálum.
Rúmlega 21.000 bækur eru fáan-
legar á rafrænu formi á vefsíðu
Gutenberg-verkefnisins, sumar á
mörgum tungumálum. Bækurnar
eiga það sameiginlegt að vera
ókeypis og lúta ekki lögum um
höfundarrétt þar sem
höfundar eru í
langflestum til-
fellum látnir fyr-
ir tugum eða
hundruðum
ára. Það þýðir
auðvitað ekki
að bók-
menntirnar
séu af verri
endanum,
þær eru af
öllum sort-
um, reyf-
arar og
heimspeki,
skáld- og
fræðirit.
Jeeves og
Wooster eftir
P.G. Wodehouse
eiga pláss á Guten-
berg-vefnum, dæmi-
sögur Esóps, Lísa í
Undralandi, Sher-
lock Holmes, Ríki
Platóns, Stikilsberja-Finnur og
svo mætti lengi telja. Það verður
hins vegar að viðurkennast að
fræðibækurnar á Gutenberg eru
margar hverjar úreltar og líklega
ekki sniðug hugmynd að nota
þær við nám.
Engu að síður er það bókin
,,Manual of Surgery“ sem er sú
bók sem mest hef-
ur verið sótt
einhverra
hluta vegna
undanfarinn
mánuð á
Guten-
berg-
vefnum.
Sú bók er
leið-
arvísir
um
skurð-
aðgerðir,
fyrsta út-
gáfan kom
út árið
1904, en það
er sjötta út-
gáfan sem birt
er á Gutenberg-
vefnum. Sú er mun
nýrri, kom út árið
1921, og eru mikl-
ar nýjar upplýs-
ingar í henni enda lærðu menn
mikið í fyrri heimsstyrjöldinni,
sem lauk árið 1918.
Íslenskar bækur eru því miður
fáar á vef Gutenberg-verkefn-
isins, aðeins fimm talsins, en eru
þó allar lestursins virði. Leið-
arvísir í ástamálum eftir Jónínu
Sigríði Jónsdóttir, gefur sýn inn í
Jóhannes Gutenberg
POPPSTJARNAN
George Michael vígði
nýjan og endurbættan
Wembley-leikvang í
Lundúnum í fyrradag
með tónleikahaldi. Mich-
ael söng ýmsa slagara
Wham!-dúettsins heitins
við góðar undirtektir
tónleikagesta, auk laga-
smella frá einsöngv-
araferli sínum.
Michael sagði í samtali
við blaðamenn í gær að það hefði verið
stórkostleg stund að fá að vígja leikvang-
inn. „Ég hef fundið til sterkra tengsla við
Wembley frá því í æsku.“ Margt var
frægra gesta á tónleikunum. Má þar nefna
fyrrum Kryddpíuna Geri Halliwell og
Ivönu Trump, fyrrum eiginkonu auðjöf-
ursins Donalds Trump.
Michael hefur verið í sviðsljósinu síð-
ustu daga vegna lögbrota sinna. Hann var
dæmdur til 100 klukkustunda þegnskyldu-
vinnu fyrr í vikunni, fyrir að keyra undir
áhrifum lyfja sem gerðu hann óökuhæfan.
George Michael kom síðast fram á Wem-
bley árið 1999 og þar áður árið 1985, á
Live Aid tónleikunum, þá sem helmingur
Wham!-dúettsins. Af öðrum tónlist-
armönnum og hljómsveitum sem koma
fram á Wembley í sumar má nefna Muse,
Metallica, Elton John, Duran Duran og svo
verða þar Lundúnatónleikar Live Earth.
Flottur Michael
á Wembley.
Michael vígði
Wembley