Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 37

Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 37 MERKIÐ fyrir Ólympíuleikana í London árið 2012 hefur verið harð- lega gagnrýnt undanfarið. En hvað finnst fagmönnum? Guðmundur Oddur Magnússon (betur þekktur sem Goddur) er prófessor í graf- ískri hönnun í Listaháskólanum og það er fátt í merkinu sem minnir hann á Ólympíuleikana. Eins og minnismerki um hryðjuverk „Góð merki þurfa helst að segja á svipstundu fyrir hvað þau standa. Og ef um er ræða upp- hafna atburði eins og Ólympíuleika þarf glæsileika og tign. Þetta merki hefur hvorugt til að bera. Við fyrstu sýn er eins og þetta sé minnismerki um hryðjuverk, grunnurinn sem á að mynda 2012 er eins konar sprengjubrot. Ef ég reyni að vera jákvæður og sjá eitthvað hátíðlegt við þetta má sjá einhvers konar „confetti“- skraut í þessu – og þá fæ ég um leið eitthvert „eighties“ óbragð í munninn. Ótrúlegir stælar og laust við allt sem prýða má gott merki.“ Frá rómantík til endaloka póstmódernismans Fram til 1924 létu menn vegg- spjald duga til að kynna leikana en frá árinu 1924, þegar vetrarleik- arnir hefjast, hafa hverjir leikar fengið sitt sérstaka merki í viðbót við ólympíuhringina sjálfa. „Merkjagerðin fylgir greinilega tíðaranda og í raun hugmyndasögu – nítjándu aldar rómantíkin er ráð- andi fram yfir seinni heimsstyrjöld þegar módernisminn tekur við með merkinu frá Helsinki 1952 og nær hámarki 1964 í Tókýó. Op-Art tek- ur svo við í Mexíkó og München, Kóreu-merkið er svo fyrsta eig- inlega „pó-mó“ merkið, í anda póstmódernismans, sem endar svo í handverks-rómantík frá Aþenu og tómu rugli í London 2012. Merki fyrir Ólympíuleika þarf að segja eitthvað um staðsetningu leikanna í hvert skipti. Yfirleitt hefur það tekist ágætlega en aldrei eins illa og núna. Það þarf líka að hafa yfirbragð festu og hátíðlegrar stundar – það er fokið í flest skjól þegar því er heldur ekki að heilsa.“ Bestu og verstu Ólympíu- merkin til þessa „Þau sem bera af er Tókýó 1964 og Mexíkó 1968 – enda bæði dæmi um afrek í hönnunarsögu. Annars vegar það japanska fyrir glæsi- legan módernískan einfaldleika og það mexíkóska fyrir optíska grafík. Þessi ná því að segja á hvaða stað leikarnir eru haldnir á glæsilegan hátt. Það versta er Montréal 1976, það er ekki endilega slæmt – bara ekki sérstaklega vel heppnað. Merki vetrarleikanna eru mörg ágæt enda ískristallar heppilegt fóður í merkjagerð – líklega finnst mér merkið frá Tórínó 2006 bara best. Merkið frá Lake Placid 1980 er sýnu verst.“ „Merki Ólympíuleikanna aldrei tekist jafnilla og núna“ Illa heppnað Montréal-leikarnir.Fagurt Merki leikanna í Tókýó.Gott Vetrarólympíuleikarnir 2006. Sýnu verst Lake Placid 1980. ÓL Mexíkó Merki leikanna í Mexíkó 1968 erdæmi um afrek í hönnunarsögu, að mati Godds. Morgunblaðið/Árni Sæberg Goddur Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor í grafískri hönnun. Tómt rugl Merki ÓL í London 2012. Fréttir á SMS OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára / AKUREYRI / KEFLAVÍK OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára eee S.V. - MBLA.F.B - Blaðið FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS WWW.SAMBIO.IS NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni!“ tv - kvikmyndir.is „SANNUR SUMAR- SMELLUR... FINASTA AFÞREYINGARMYND“ Trausti S. - BLAÐIÐ MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI eee LIB, Topp5.is 48.000 GESTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.