Morgunblaðið - 18.06.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2007 37
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
20/6 kl 20, 29/6 kl 20, 1/7 kl 15,
1/7 kl 20, 5/7 kl 20, 13/7 kl. 20,
14/7 kl 15, 14/7 kl. 20, 11/8 kl. 20,
12/8 kl. 20, 18/8 kl. 20, 19/8 kl. 20,
30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR
Á Byggðasafninu eru sex sýningar opnar í sumar:
Saga Egyptalands, Þannig var... Saga Hafnarfjarðar,
Leikfangasýning, Sívertsens-húsið, Siggubær og Álfasýning.
Opið alla daga kl. 11:0017:00 og til 21:00 á fimmtudögum.
HAFNARBORG, MENNINGAR- OG LISTASTOFNUN HAFNARFJARÐAR
Til 24. júní 2007
Salur I, Temma Bell Ný málverk
Salir II og III, Louisa Matthíasdóttir og Leland Bell,
Sameiginlegt líf, uppstillingar
Bogaskáli, Ruth Boerefijn, Innra landslag Innsetning
Opið: kl. 11:0017:00 alla daga nema þriðjudaga, á fimmtu-
dögum er opið til kl. 21:00.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS. Fim 21/6 kl. 20 UPPS. Fös 22/6 kl. 20 UPPS.
Lau 23/6 kl. 20 UPPS. Sun 24/6 kl. 20 UPPS. Fim 28/6 kl. 20 Síðustu sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Iceland’s favourite places, Ís-lenskir eftirlætisstaðir, heitirnýútkominn dvd-mynddiskursem inniheldur myndbönd
frá yfir hundrað stöðum á landinu
og ætlaður er til landkynningar.
Þar eru náttúrufari, menningu og
sögu hvers staðar gerð góð skil í
máli og myndum. Mynddisknum er
skipt upp í sex landshluta með
fjölda staðarvala innan hvers hluta
og notandi getur einnig valið um
talsetningar á sjö tungumálum,
ensku, frönsku, þýsku, dönsku, jap-
önsku, kínversku og íslensku.
Það er fyrirtækið Profilm sem á
heiðurinn af disknum en Anna Dís
Ólafsdóttir framleiddi hann. Allt
myndefnið var tekið upp á síðustu
þremur árum með bestu mögu-
legum myndgæðum, svokallaðri
háskerputækni (HDV – high def-
inition video) og hefur ekkert verið
til sparað, tónlist meðal annars sér-
samin af þeim Sigtryggi Bald-
urssyni og Ben Frost. Margir les-
endur og þýðendur voru fengnir til
verksins ásamt þulum fyrir hvert
tungumál.
Svo ýtarlegur diskur um Ísland
hefur ekki verið gefinn út áður, að
sögn Hinriks Ólafssonar, sem er
framleiðandi hjá Profilm en hann
hefur unnið sem leiðsögumaður í
um áratug og nýttist sú reynsla vel
við gerð disksins. „Okkur finnst við
hafa einstakt efni í höndunum og
gjörning sem ekki hefur verið gerð-
ur áður í þessu formi og með slíkt
efni. Viðbrögð við disknum hafa
verið frábær og kemur það til af því
hvað efnið er aðgengilegt og efn-
ismikið, við höfum lagt gríðarlega
vinnu í þetta verkefni og gengið í
gegnum margar ófarnar slóðir hvað
tæknilegar útfærslur varðar.“
Fyrir Íslendinga og útlendinga
Diskurinn er ekki eingöngu ætl-
aður útlendingum heldur nýtist
hann einnig Íslendingum við að
kynnast landinu. „Einnig má geta
þess að við höfum fengið fyr-
irspurnir frá fjölda íslenskra fyr-
irtækja sem hafa hug á því að nýta
sér diskinn sem gjöf. Til gamans
má geta þess að verkefnið er komið
í „útrás“ þar sem í undirbúningi
eru samskonar verkefni fyrir nokk-
ur önnur þjóðlönd,“ segir Hinrik.
Hinrik segir starfsmenn Profilm
stolta af útkomunni, þeir sjái nú ár-
angur þrotlausrar vinnu. Profilm
framleiðir heimildarmyndir og sjón-
varpsþætti ásamt því að vinna ýmis
verkefni erlendis og þjónusta er-
lenda heimildamyndagerð á Íslandi.
Einnig hefur Profilm þróað og
framleitt nýja tækni í gerð mynd-
bandavefsíðna í samvinnu við ís-
lenska margmiðlunarfyrirtækið
IGM og má þarf meðal annars
nefna nýopnaðan fræðsluvef Orku-
veitu Reykjavíkur.
„Iceland́s favorite places er eitt
af mörgum verkefnum sem við höf-
um verið að vinna að ásamt fyrr-
nefndri þjónustu,“ segir Hinrik.
Diskurinn hafi vakið athygli og sé í
stöðugri þróun. Ætlunin er að upp-
færa diskinn með nýjum upplýs-
ingum og myndefni þegar fram líða
stundir. „Sem dæmi má nefna að
þessa vikuna standa yfir upptökur í
Hrísey í Eyjafirði, m.a. á einstöku
fuglalífi í eynni.“ Einnig er í smíð-
um vefsíða í tengslum við Iceland́s
favourite places. „Diskurinn hefur
verið kynntur fyrir erlendum sem
innlendum aðilum og lýsa allir yfir
hrifningu sinni með hvað diskurinn
er aðgengilegur. Margir undrast af
hverju þetta hafi ekki verið gert
fyrr vegna þess hversu not-
endavænn og handhægur diskurinn
er,“ segir Hinrik stoltur af útkom-
unni.
Profilm fjármagnaði og fram-
leiddi verkefnið en hlaut einnig
styrk úr minningarsjóði Margrétar
Björgólfsdóttur sem kom að góðum
notum.
Tungumálaörðuleikar
Hinrik bendir á til gamans að við
talsetningu efnisins hafi oft verið
erfitt að fylgjast með framvindunni
þegar heilu tökudagarnir fóru fram
á kínversku og japönsku. Í upphafi
var ákveðið að kvikmynda tiltekna
staði úr lofti, m.a. Gullfoss og Geysi
og ná þar nýju sjónarhorni á þessa
þekktu og þjóðkunnu áfangastaði.
Jóhann Sigfússon stjórnaði kvik-
myndatöku og dagsskrárgerð en
hann hefur langa reynslu sem kvik-
myndatökumaður bæði erlendis
sem og hér heima. Einnig sá Krist-
inn H. Þorsteinsson um kvikmynda-
töku á ákveðnum svæðum og Hilm-
ar Darri Flygenring annaðist
klippingu.
Yfir hundrað tökustaðir
Háskerpa Kyrrmynd úr myndskeiði á disknum. Myndin er frá Brúarhlöðum.
Kristinn H. Þorsteinsson
Kaffipása Jóhann Sigfússon, kvikmyndatökumaður og leikstjóri, fær sér
kaffisopa eftir þyrlutökur af Heklusvæðinu.
Eftirlætisstaðir Kápa DVD-
disksins Iceland́s favorite places.
Nýr DVD-mynddiskur sýnir Ísland með ýtarlegri hætti en áður hefur verið gert
Fréttir á SMS
TÓNLISTARMAÐURINN Rod
Stewart hefur nú gift sig í þriðja
sinn.
Hinn 62 ára rokkari játaðist fyr-
irsætunni Penny Lancaster, 36 ára,
seinasta laugardagsmorgun í
sautjándu aldar kastala í litlum bæ
rétt fyrir utan ítölsku Rivíeruna.
Fyrir utan brúðina og brúðgum-
ann voru aðeins tveir vottar við-
staddir athöfnina sem tók um hálf-
tíma.
Eftir að Stewart og Lancaster
voru orðin formleg hjón fóru þau í
garð í þorpinu þar sem ljósmyndari
myndaði þau í bak og fyrir. Síðan
fóru þau tvö og vottarnir að mót-
orbátahöfn þorpsins og létu flytja
sig í skútu sem lá fyrir utan strand-
lengjuna og var skreytt með rauð-
um blöðrum.
Steward og Lancaster hafa verið
saman í um sjö ár og eiga saman
eina dóttur sem fæddist 2005. Sein-
ast var hann giftur fyrirsætunni
Rachel Hunter og á fimm börn úr
fyrri samböndum.
Stewart giftir sig í þriðja sinn
Reuters
Nýgift Rod Stewart og Penny Lan-
caster á skútunni eftir athöfnina.