Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 1

Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 182. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is 26 79 / IG 11 Veiðarfæri til lax-silungs-og sjóveiða Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun Á SIGURGÖNGU BRYNHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR KOM FORN- HETJUNUM INN Í BARNAHERBERGIN >> 17 LÍFLEGRI MIÐBORG Á HAMINGJUMARKAÐI SVALI KÖTTUR Í GÚRÚTJALDI >> 20 FRÉTTASKÝRING Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is MARK Skagamannsins Bjarna Guðjónsson- ar gegn Keflvíkingum í Landsbankadeild- inni í knattspyrnu í fyrrakvöld hefur vakið mikla umræðu í þjóðfélaginu. Löglegt en sið- laust segja margir en eftir að Keflvíkingar höfðu spyrnt boltanum út af svo hægt væri að hlúa að meiddum leikmanni ÍA fengu þeir ekki boltann frá Skagamönnum eins og þeir flestir reiknuðu með. Og það sem verra er, og hleypti eðlilega illu blóði í Keflvíkinga, var að Bjarni spyrnti boltanum yfir mark- vörð Keflvíkinga og í netið fór hann. Bjarni hefur beðist afsökunar á að hafa skorað markið en hann segist hafa ætlað að þruma boltanum aftur fyrir endamörk. Engin háttvísisregla til Kristinn Jakobsson, reyndur og góður dómari, gat ekki annað en dæmt markið gilt. „Okkur dómurum er uppálagt að framfylgja því að menn sýni ekki dónaskap og rudda- skap en leikmenn túlka sína háttvísi eins og þeir vilja. Í þessu tilviki fannst mér hún ekki vera túlkuð rétt. Það er hins vegar engin háttvísisregla til heldur ákvæðið að menn beri virðingu fyrir og sýni náunganum kær- leika eins og í daglegu lífi,“ sagði Kristinn við Morgunblaðið. „Ég gat ekkert gripið inn í, innkastið var rétt framkvæmt og mark Bjarna fullkomlega löglegt. Ég hafði ekkert agavald til að dæma vitlaust innkast þegar ég sá að boltinn var á leið inn þótt ég glaður hefði viljað. Að mínu mati þurfum við að gera það sama og Bretarnir, þar ber leikmönnum engin skylda til að sparka boltanum út af þegar menn liggja meiddir. Sá eini sem má stöðva leik undir þeim kringumstæðum er dómarinn.“ Tryggvi Guðmundsson, framherji FH- inga, hefur oft lent í svipaðri aðstöðu og Bjarni en hefur ekki dottið í hug að spyrna í átt að marki andstæðinganna undir svona kringumstæðum. „Við leikmenn ræðum það ekkert sérstaklega þegar svona kemur upp. Oftast sparka menn boltanum beint út af og láta andstæðinginn fá boltann til baka með þeim hætti. Ég tók einu sinni rangt innkast viljandi en fékk að launum gult spjald fyrir að óvirða leikinn. Mér hefur aldrei dottið í hug að sparka í átt að markinu og ég átta mig ekki á því hvers vegna Bjarni gerði það. Hann bauð hættunni heim. Ég trúi því ekki að hann hafi ætlað að gera þetta viljandi en þetta var kjánalegt af honum,“ sagði Tryggvi við Morgunblaðið. | Íþróttir Morgunblaðið/RAX Fögnuður Skagamenn fagna marki í Landsbankadeildinni í sumar. Háttvísi í boltanum Ákaft deilt um mark Bjarna Guðjónssonar Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Evu Bjarnadóttur „ÞETTA hlýtur að vera áfellisdómur fyrir Hæstarétt Íslands og það er spurning hvort hægt sé að leggjast lægra en að brjóta mannrétt- indi fjölfatlaðs barns og hafa af því réttmætar bætur,“ sagði Eggert Ísólfsson, faðir Söru Lind- ar, níu ára gamallar stúlku sem veiktist strax eft- ir fæðingu árið 1998, og fékk alvarlegar heila- skemmdir. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu fjórum árum síðar að 100% ör- orku hennar mætti rekja til mistaka lækna – dæmdi henni rúmlega 28 milljónir króna í bætur – en Hæstiréttur sneri dómnum og sýknaði ríkið. Dómur Hæstaréttar féll í mars árið 2004 og segir lögmaður Söru Lindar, Heimir Örn Her- bertsson, málsmeðferð Hæstaréttar gagnrýnis- verða. Þremur dögum áður en flytja átti málið munnlega barst tilkynning frá réttinum þar sem sagði að hann hygðist afla umsagnar læknaráðs um hvað í raun orsakaði skaða stúlkunnar. Þar sem fjórir þeirra sem sátu í læknaráði störfuðu á Landspítala – háskólasjúkrahúsi þótti Heimi Erni sem Sara Lind hefði ekki fengið réttláta málsmeðferð. Í niðurstöðu Mannréttindadómstólsins segir að stúlkan hafi með réttu getað óttast að lækna- ráð hafi ekki með öllu verið hlutlaust í umfjöllun sinni og var dómstóllinn sammála um að brotið hefði verið gegn 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu. Stúlkunni voru dæmdar 6,4 milljónir króna í bætur og rúmlega 1,5 milljónir króna í málskostnað. Breyta þarf lögum um læknaráð Matthías Halldórsson, landlæknir og formað- ur læknaráðs, segir læknaráð vera úrelt fyrir- bæri sem starfi samkvæmt lögum frá upphafi 5. áratugarins þegar önnur viðhorf ríktu í heil- brigðismálum. Hann vill fá lögunum breytt. „Yf- irlæknarnir á deildunum eru auðvitað illa í stakk búnir til að segja hvort spítalinn hafi staðið sig eða ekki því þeir eru starfsmenn spítalans. En það er hvorki þeim að kenna, né læknaráði, held- ur lögunum sem við erum bundin af.“ Heimir er sammála landlækni um að breyta þurfi lögunum. „Þá ríkti annað viðhorf og þótti ekki tiltökumál að dómstólar tækju virkan þátt í gagnaöflun. Það þykir þó ekki gott í dag því það vekur efasemdir um hlutleysi dómstólsins.“  Brotið á rétti | 8 Hæstiréttur braut gegn réttindum fatlaðs barns Í HNOTSKURN »Sara Lind Eggertsdóttir fæddist ákvennadeild LSH 5. mars 1998. Hún veiktist strax alvarlega, varð fyrir um- talsverðum heilaskemmdum og hlaut 100% varanlega örorku. » Héraðsdómur taldi læknamistökhafa orðið og dæmdi henni 28 millj- ónir króna í bætur. Hæstiréttur sneri dóminum við og sýknaði ríkið. Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðaði níu ára íslenskri stúlku í hag MIKIÐ var um dýrðir á Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar 25. lands- mót Ungmennafélags Íslands var sett. Óhætt er að segja að um „risalandsmót“ sé að ræða því UMFÍ fagnar 100 ára afmæli sínu og er því ekkert til sparað til að gera hátíðina hina veglegustu. Fjöldi fólks lagði leið sína í Kópavoginn til að berja augum hin ýmsu tónlistar- og íþróttaatriði. Auðsjáanlegt var að allir skemmtu sér vel þó svo að nokkrir regndropar féllu. Morgunblaðið/Golli Stærsta landsmót UMFÍ PILTUR á tvítugsaldri var í gær sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um kynferðisbrot sem átti sér stað á salerni í kjallara á Hótel Sögu aðfaranótt 17. mars sl. Rétt- argæslumaður stúlkunnar segir dóminn hafa litið of mikið til ofbeld- isþáttar málsins en ekki til þess að samræðið var ekki með hennar vilja. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að framburður stúlkunnar sé trú- verðugur en í kjölfarið kemur þessi klausa: „Ef byggt er á frásögn [stúlkunnar] af því sem gerðist eftir orðaskipti þeirra inni á snyrtingunni lítur dómurinn svo á að það að ákærði ýtti [stúlkunni] inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf, geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningar- laga, eins og það hugtak hefur verið skýrt í refsirétti og í langri dóma- framkvæmd. Nægir þetta eitt til þess að ákærði verði sýknaður af ákærunni.“ Ofbeldi að svipta frelsi Jafnframt er sýknað á þeirri for- sendu að stúlkan hafi ekki veitt við- nám eða kallað eftir hjálp. Margrét Gunnlaugsdóttir, réttar- gæslumaður stúlkunnar, segir for- dæmi fyrir því að nóg hafi þótt að loka einhvern inni til að það flokkist undir ofbeldi. Það að stúlkan mótmæli ekki – vegna hræðslu – ætti ekki að leiða til sýknu. Hún segist afar ósátt við dóminn. | 2 Atburðarásin ekki talin ofbeldisfull

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.