Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„Persónuvernd á
að standa vörð
um það að per-
sónuupplýsingar
séu ekki notaðar
með þeim hætti
að það geti, án
sérstakrar
ástæðu og heim-
ildar, skert frelsi
fólks og einkalíf.
Mörkin liggja þar
sem eðlilegu og lögmætu markmiði
sleppir og farið er að nota upplýs-
ingarnar í öðrum til gangi, mögulega
til að koma höggi á aðra,“ segir Sig-
rún Jóhannesdóttir, forstjóri Per-
sónuverndar, en stofnunin fagnar
því í dag að á þessu ári eru liðin 25
ár síðan fyrsta persónuverndar-
löggjöfin tók gildi.
Að sögn Sigrúnar er lykilatriði í
störfum Persónuverndar að finna
einstigið á milli þess að nýta nýja
upplýsingatækni og kosti hennar án
þess að ganga of langt. Bendir hún á
að stundum sé upplýsingum safnað í
einum tilgangi, en þær síðar notaðar
í öðrum tilgangi. Nefnir hún sem
dæmi uppsetningu myndavéla í bún-
ingsklefum, miðbæ Reykjavíkur, á
heimavistum framhaldsskóla, í
verslunum eða á veitingastöðum.
„Tilgangurinn er upphaflega
kannski aðeins að koma í veg fyrir
þjófnað, skemmdarverk eða stuðla
að auknu öryggi, en síðan er mynd-
efnið notað til að segja fólki upp
störfum eða verkstýra með ósann-
gjörnum hætti,“ segir Sigrún og tek-
ur fram að hlutverk Persónuverndar
sé að benda á hættuna sem kunni að
fylgja slíku fyrir einkalífið. „Hún á
að leitast við að koma því til leiðar að
menn gæti hófs og fari einvörðungu
að þeirri línu sem nauðsynlega þarf
til að ná öryggis- eða eignavörslu-
markmiðinu, en ekki lengra.
Við megum ekki fara út í slíkar
öfgar með notkun eftirlitstækni að
við upplifum að Stóri bróðir sé vakn-
aður og orðinn virkur með þeim
hætti sem löggjöfin beinlínis á að
hindra,“ segir Sigrún og tekur fram
að mönnum beri einnig að varast
það að leggja allt traust sitt á vélar.
„Vélar bregðast ekki við. Við leysum
ekki öll vandamál með því að skrúfa
upp fleiri eftirlitsvélar. Slíkt getur
þvert á móti skapað ný og jafnvel
óleysanleg vandamál.“
Aðspurð segir Sigrún gríðarlegar
breytingar hafa orðið síðan fyrsta
persónuverndarlöggjöfin tók gildi á
sínum tíma, bæði hvað varðar hug-
myndir manna um þörfina fyrir lög-
gjöfina og eins hafi veruleikinn sem
við búum við breyst allverulega.
„Það hefur hefur orðið gríðarleg
bylting í vinnslu persónuupplýsinga
og tækni til að vinna úr þeim. Kom-
inn er til sögunnar ýmiss konar
vöktunarbúnaður sem notaður er til
persónueftirlits sem ekki þekktist
fyrir 25 árum,“ segir Sigrún og
nefnir í því samhengi notkun gps-
tækninnar til að fylgjast með ferð-
um fólks, eftirlit með netnotkun al-
mennings, tölvupóstnotkun starfs-
manna og merkingu hluta með
örmerkjum.
„Því er spáð að eftir 10-15 ár verði
allar dýrar vörur merktar með ör-
merki, t.d. gleraugu fólks, úr, tölvur
eða DVD-diskar,“ segir Sigrún og
bendir á að örmerki sendi sífellt út
bylgjur sem geri það að verkum að
afar auðvelt verði að fylgjast með
neysluvenjum og ferðum fólks. Tek-
ur hún fram að tilgangur merkjanna
sé að fylgjast með staðsetningu og
framleiðslu vöru t.d. með það að
markmiði að koma í veg fyrir að fals-
aðar vörur séu í umferð auk þess
sem örmerkin auðveldi fólki að end-
urheimta stolna merkta muni. „Það
er allt gott og gilt. Hins vegar er
möguleiki á misnotkun fyrir hendi
og því er afar mikilvægt að neyt-
endur séu sér meðvitandi um þá
hættu og skapi nauðsynlegt aðhald.“
Hvað felst í samþykki?
Aðspurð segir Sigrún almenning
oft á tíðum ekki vera nógu meðvit-
aðan um mikilvægi þess að huga að
því hvernig persónuupplýsingar séu
notaðar og fara varlega við und-
irritun samþykkisyfirlýsinga. „Sam-
kvæmt lögum er vinnsla persónu-
upplýsinga almennt heimil ef hún
byggist á samþykki einstaklings-
ins,“ segir Sigrún, en bendir á að
enda þótt undirritun liggi fyrir þurfi
að uppfylla ýmis skilyrði.
„Við getum t.d. ekki sagt að mað-
ur hafi samþykkt eitthvað nema
hann hafi í raun vitað og skilið hvað
hann var að samþykkja. Það eru
fjölmörg dæmi um það að fólk hafi í
raun ekki átt val heldur staðið
frammi fyrir því að verða að segja já
til að fá ákveðna þjónustu. Aðrir
standa jafnvel frammi fyrir því að fá
ekki vinnu ef þeir gera athugasemd-
ir við að vinnuveitandi fái upplýs-
ingar um viðkomandi frá tilteknum
aðilum. Hvers virði er þá sam-
þykkið? Hér verður að virða sann-
girnissjónarmið og hlutverk Per-
sónuverndar er m.a. að minna á
þau,“ segir Sigrún og bendir á að
forsenda þess að Persónuvernd geti
skilað árangri sé að almenningur sé
virkur og varkár. „Fólk má ekki
samþykkja hvað sem er og treysta á
að einhver bjargi málum síðar, jafn-
vel eftir að í óefni er komið.“
Gæta þess að staðinn sé vörður
um frelsi fólks og einkalíf
Í ár eru liðin 25 ár síðan
fyrsta persónuvernd-
arlöggjöfin tók gildi.
Henni var ætlað að
vernda einstaklinga
vegna skráningar á
upplýsingum um einka-
málefni þeirra.
Morgunblaðið/Júlíus
Gæta þarf hófs „Við megum ekki fara út í slíkar öfgar með notkun eftir-
litsmyndavéla að við förum að upplifa það að Stóri bróðir sé vaknaður.“
Í HNOTSKURN
»Erindum sem Persónu-vernd berast á ári hverju
hefur fjölgað margfalt.
» Í fyrra bárust Persónu-vernd 764 erindi. Allt
stefnir í að þau verði 900 á
þessu ári.
»Persónuvernd er sjálfstæðstofnun sem heyrir undir
dómsmálaráðuneytið. Þannig
getur ráðherra ekki haft af-
skipti af álitum stofnunar-
innar. Álitin er aðeins hægt að
kæra til dómstóla.
Sigrún
Jóhannesdóttir
GISTINÆTUR á hótelum í maí síð-
astliðnum voru 116.000 en voru
101.500 í sama mánuði árið 2006, sem
er fjölgun um 14.500 nætur eða rúm
14%. Gistinóttum fjölgaði í öllum
landshlutum nema á Austurlandi þar
sem fjöldinn stóð í stað milli ára,
4.300 nætur.
Aukningin var hlutfallslega mest á
samanlögðu svæði Suðurnesja, Vest-
urlands og Vestfjarða þar sem gisti-
nóttum fjölgaði um 2.000, úr 8.100 í
10.100 milli ára (26% aukning). Á
Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um
rúm 17%, úr 7.600 í 8.900. Á Suður-
landi fór gistináttafjöldinn úr 9.000 í
10.200 milli ára, sem er 14% aukning.
Gistinæturnar á höfuðborgarsvæð-
inu í maí síðastliðnum voru 83.400 en
voru 72.600 í sama mánuði árið 2006.
Gistinóttum
fjölgaði í maí
GEIR Jón Þóris-
son, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík,
vill ekki taka und-
ir að ástand vegna
drykkjuláta og of-
beldisverka í
miðbæ Reykjavík-
ur sé með verra
móti þessar vik-
urnar. Hann segir
nýtilkomið reykingabann þó hafa há-
vaða og læti á götum úti í för með sér
en ekki sé útséð með þau áhrif til
lengri tíma. „Það væri tilbúningur að
segja að fangaklefar séu alltaf fullir.
Við eigum eina og eina helgi sem það
gerist. Það var nokkuð mikið að gera
á föstudagskvöldið hjá lögreglunni,
enda fullt tungl og stórstreymi, en á
laugardaginn var mjög gott ástand,“
segir Geir Jón. Hann hefur ástandið
fyrir tíu árum til viðmiðunar, þegar
skemmtistöðum var lokað klukkan 3.
Miðbærinn oft
verið verri
Geir Jón Þórisson
♦♦♦
ÚR VERINU
ELLEFU sjúklingar greindust með
HIV-sýkingu hér á landi á síðasta
ári, átta karlar og þrjár konur. Tveir
karlar og ein kona greindust með al-
næmi og einn karlmaður lést af völd-
um sjúkdómsins á árinu. Landlækn-
isembættið segir að þessar tölur
bendi til þess að HIV-sýking og al-
næmi sé enn sjaldgæfur sjúkdómur
hér á landi en þó landlægur.
Fram kemur í ársskýrslu embætt-
isins, að hlutur gagnkynhneigðra
fari vaxandi ár frá ári. Hafa verði í
huga, að helmingur þeirra sem
greinast sé af erlendu bergi brotinn
og margir þeirra komi frá svæðum
þar sem útbreiðsla HIV-smits sé al-
geng meðal gagnkynhneigðra.
11 greindir
með HIV-smit
♦♦♦
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SAMTÖK sjávarútvegsins á Norð-
urlöndunum hafa ákveðið að stofna
norræn fagsamtök. Sett hefur verið
á fót undirbún-
ingsnefnd undir
forystu Péturs
Bjarnasonar,
framkvæmda-
stjóra Fiskifélags
Íslands, og stefnt
er að boðun form-
legs stofnfundar í
haust.
Lítið samstarf
hefur verið í sjáv-
arútvegi á norrænum vettvangi á
undanförnum árum. Norræna ráð-
herranefndin hefur þó fiskimálafull-
trúa og nefndir embættismanna og
vísindamanna í sjávarútvegi. Pétur
Bjarnason segir að þessir aðilar hafi
haft áhuga á að fá samstarfsaðila í
greininni sjálfri, til að efla sjávarút-
veginn á Norðurlöndunum. „Þeir
hafa saknað þess að hafa ekki að-
gang að samstarfsaðilum til að leita
til um ýmis verkefni sem áhugi er á
að vinna að,“ segir Pétur.
Hefur stofnun norrænna samtaka
verið til umræðu síðustu tvö til þrjú
árin. Forystumenn heildarsamtaka
sjávarútvegsins á Norðurlöndunum
hittust í tengslum við ráðherrafund
sem haldinn var í Björneborg í Finn-
landi fyrir skömmu. Þar var ákveðið
að stofna samtökin.
Pétur Bjarnason er formaður und-
irbúningsnefndar sem vinna mun að
málinu og hann reiknar með því að
samtökin verði formlega stofnuð í
haust. Auk Fiskifélags Íslands eru
sambærileg hagsmunasamtök á hin-
um Norðurlöndunum aðilar að sam-
tökunum.
Bæta ímynd útvegsins
Pétur segir að hlutverk nýju sam-
takanna verði væntanlega fyrst og
fremst að vinna að verkefnum með
Norrænu ráðherranefndinni og
mynda samstarfsvettvang til að ýta
norrænum sjávarútvegi fram á veg-
inn. Hann telur ekki að skortur verði
á verkefnum. Nefnir að vinna þurfi
að því að bæta ímynd sjávarútvegs-
ins á Norðurlöndunum. „Ég reikna
með að hin almenna ímynd sjávarút-
vegsins á heiminum sé heldur nei-
kvæð. Norðurlandaþjóðirnar standa
hins vegar betur, hvað varðar um-
gengni við náttúruna og lög og rétt.
Samtök sem þessi gætu vakið at-
hygli á því hvað við erum að gera vel
í sjávarútvegi og það væri hægt að
nýta við markaðssetningu afurð-
anna,“ segir Pétur. Á ráðherrafund-
inum í Finnlandi var haldin nám-
stefna sem nefndist Ímynd fiskveiða
og þar kom fram að mörg verkefni á
þessu sviði biðu nýrra samtaka.
Pétur nefnir einnig að Norður-
löndin eigi það sameiginlega verk-
efni að útrýma sjóræningjaveiðum.
Samtök hagsmunaaðila gætu unnið
að því máli.
Loks segir Pétur að byrjað sé að
skoða möguleikana á að koma af stað
nýju norrænu eldhúsi með nauðsyn-
legri vöruþróun og líst honum afar
vel á það verkefni. Það sé liður í því
að gera norræn matvæli eftirsótt og
sé því mikið hagsmunamál fyrir sjáv-
arútveginn.
Pétur tekur fram að ekki sé ætl-
unin að norræn samtök útvegsins
verði sjálf með mikla starfsemi, frek-
ar að þau vinni að verkefnum með
Norrænu ráðherranefndinni og öðr-
um hagsmunaaðilum.
Stofna norræn
heildarsamtök
sjávarútvegsins
Morgunblaðið/ÞÖK
Afurðir Ný norræn samtök munu vinna að bættri ímynd sjávarútvegsins.
Pétur Bjarnason
FYRSTI fundur aðila að samráðs-
vettvangi um efnahagsmál var hald-
inn í gær í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
stýrði fundinum en auk hans sátu
fundinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra, Árni M. Mathie-
sen fjármálaráðherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra og
fulltrúar frá Samtökum atvinnulífs-
ins, Alþýðusambandi Íslands, Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, BSRB
og BHM.
Rætt var um tilhögun samráðsins,
almennar efnahagshorfur, aflasam-
drátt og mótvægisaðgerðir, málefni
Íbúðalánasjóðs og komandi kjara-
samninga.
Samráðs-
fundur um
efnahagsmál
♦♦♦