Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 15

Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                                           ! "##$        ! "#$%&  !' ! "#$%& ''(! ! "#$%& )$%& * ! "#$%& + !, '$%& -%&.'#%/+01+  2 + ! ! "#$%& 3"#4 0, '$%& * , '1+ $%&   $ $%& !"."!5"!6!7 87!%&,&$%& 9.$%& :"!$%&       ;<$%& +% $%& + = ! + ".=> +0 ! "#$%& ?! 9 ' 2 +  ! "#$%& ! +$%& @$ !8$%& !900 0.6(6 $%& A +"(6 $%&      ! B "!9+". ". - ! $%& -.#68 $%& "  # $ % &                                                                    - + !5 6'# 0  +, 6C+ ' 0D 3"#+ EF&E; G&F<&HGH &;&H HGG&&;<F <F&EG&GG <&F<E&FE E&E;&E G;&HG& G;&HE&<E FH&<&;; &;& &<&;EG&F &H<&EH ;H&G<&FHH H&F;G&HF H&E;&E <;&;G 5 H&&H<E <&& ;E&<<&H< 5 5 5 &E& 5 5 FFI FIE <EI ;<I HEIG HFIF ;EI< HEI; FI ;FIG GI HHIH IHF GI ;I IG EI IE H;I <I; FEI< ;EIH ;<I FEI< EIH GIH ;<I; HEIF HFIF I HEI FGI ;FIF GI; HHI; I; FI ;IH IF <GI IEH H;<I <I FEIF EIF ;EI< FI ;GI GIG A6'#C'!J ".  -&K$"0" !+ 8(+  6'#  ;; E ;E  < H  FG <G ; HG E H  ; H 5 ;  H< 5 5 5  5 5 0   0 6'& !6 &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG &G&HG HE&<&HG &G&HG &G&HG &G&HG H&<&HG H&<&HG H&<&HG &G&HG H&G&HG H&<&HG „NÚ hefði verið lag að hefja vaxta- lækkunarferli,“ segir Vilhjálmur Eg- ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um ákvörðun Seðla- bankans að halda stýrivöxtum óbreyttum. Vilhjálmur undrast þá greiningu sem kemur fram í Peninga- málum. „Ætla mætti að álit bankans sé að undir öllum kringumstæðum skuli hækka stýrivexti.“ Vilhjálmur telur bankann hafa ætl- að sér um of í baráttunni við verðbólg- una. „Peningamálastefnan hefur reynst gagnslaus. Takmörk eru fyrir því hverju hægt er að áorka með vaxtastefnu,“ segir Vilhjálmur sem segir vandann fyrst og fremst liggja í hækkun fasteignaverðs. Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans, sagði í gær að verðbólguhorfur til næsta árs hefðu versnað síðan í mars og útlit væri fyr- ir að verðbólgumarkmið næðist síðar en áður var talið mögulegt. Þetta kom fram þegar stjórn bankans kynnti ákvörðun sína um stýrivexti. Ákveðið var að halda vöxt- unum óbreyttum, þ.e. 13,3%. Davíð kvað allt benda til að ekki verði hægt að lækka stýrivexti fyrr en á fyrri helmingi næsta árs, en fyrri spá gerði ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist á fjórða ársfjórðungi 2007. Gengi krónu áhættuþáttur Í ávarpi sínu lagði Davíð áherslu á áframhaldandi aðhald í opinberum fjármálum. Versnuðu verðbólguhorf- ur marktækt frá því sem reiknað væri með í grunnspánni mundi banka- stjórnin grípa til aðgerða. Í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar Seðlabanka Íslands segir að verð- bólga hafi hjaðnað hægar en spá bankans í mars sl. hafi gert ráð fyrir þó gengi krónunnar hafi hækkað meira en reiknað var með. Verðbólga mælist nú 4% en áætluð undirliggj- andi verðbólga um 6%. Ákvörðun bankastjórnar að halda stýrivöxtum óbreyttum þrátt fyrir verri verðbólguhorfur tekur mið af tvennu, að sögn Davíðs. „Annars veg- ar eru raunstýrivextir orðnir háir og hafa haft vaxandi áhrif á ávöxtun bæði óverðtryggðra og verðtryggðra skuldabréfa. Stefnuyfirlýsing banka- stjórnar og stýrivaxtaferillinn sem birtust í síðasta hefti Peningamála virðast því hafa haft tilætluð áhrif. Gengi krónunnar hefur einnig hækk- að umfram spár síðan í mars. Núver- andi stýrivextir veita umtalsvert að- hald gagnvart verðbólguþrýstingi.“ Sem fyrr er gengi krónunnar stærsti áhættuþátturinn að mati bankans sem segir raungengi krón- unnar á ný orðið mjög hátt og feli í sér auknar líkur á gengislækkun. „Heim- ilin sækjast nú mjög eftir lánum sem bundin eru gengi lágvaxtagjaldmiðla. Hætta er á að þau vanmeti áhættuna sem í þeim felst,“ segir Davíð. Eftir Bjarna Ólafsson og Halldóru Þórsdóttur Davíð Oddsson Davíð segir stýri- vexti óbreytta út árið „Lag að hefja vaxtalækkanir,“ segir framkvæmdastjóri SA ● SÉRFRÆÐINGAR Jyske Bank spáðu óbreyttum stýrivöxtum Seðlabanka og telja ekki að hag- kerfið sé á leið í niðursveiflu enda séu merki um að einkaneyslan sé aftur á uppleið og því fylgi hætta á að verðbólga geti tekið við sér á nýjan leik. Þá sé fast- eignamarkaðurinn sterkur og verð á húsnæði hafi hækkað. Þeir telja að Seðlabanki muni lækka stýrivexti en eru á því að vaxtalækkunarferlið muni verða nokkuð hægara en marg- ir gera ráð fyrir. Af þessum sökum eru sérfræðingar Jyske Bank á því að íslenska krónan muni styrkjast um um það bil 5% á næstu mánuðum. Jyske Bank spáir styrkingu krónunnar ● KAUPÞING banki hefur ákveðið að hækka vexti á nýjum íbúðalánum um 0,25 prósentustig frá og með deg- inum og í dag og verða verðtryggðir íbúðalánavextir því 5,2%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bank- anum en þar segir jafnframt að frá síðustu vaxtabreytingu bankans hafi verðtryggðir vextir íbúðabréfa Íbúða- lánasjóðs hækkað umtalsvert. Jafnframt er breytingu þessari ætl- að að brúa bilið á milli verðtryggða og óverðtryggðra vaxta í kjölfar lækk- andi verðbólgu. Kaupþing hækkar verðtryggða vexti HF. EIMSKIPAFÉLAG hefur stofnað til stærstu lánsheimildar í sögu félagsins og hljóðar hún upp á allt að 300 milljónir evra, jafngildi um 25,4 milljarða króna. Lánið sem ABN Amro í London veitir er til fimm ára og kemur bankinn til með að selja hluta af láninu til annarra banka og fjármálastofnana á sambanka- markaði. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá Eimskipafélaginu en þar segir jafnframt að fjármagnið sem tekið er að láni verði nýtt til „frekari fjárfestinga og vaxtar í flutninga- starfsemi og kæli- og frysti- geymslum í samræmi við stefnu fé- lagsins.“ Stefán Á. Magnússon, fjármála- stjóri Eimskipafélagsins, segir í sam- tali við Morgunblaðið að unnið hafi verið að þessari lántöku um nokkurt skeið. „Miðað við allar þær breyting- ar sem hafa orðið á samstæðunni er það mikið hrós fyrir okkur að bank- inn skuli vilja ráðast í þetta samstarf með okkur. Fyrirtækið er skuldsett- ara en við myndum kjósa til skemmri tíma litið og við höfum ekki gengið frá sölu á fasteignum og öllum flug- rekstri. Þetta er til marks um trú ABN Amro á félaginu,“ segir Stefán. Hann segir kjörin á láninu vera breytileg en afar góð miðað við að ekki sé um veðlán að ræða. Stærsta lán í sögu Eimskipafélagsins Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is MAREL hf. heitir nú Marel Food Systems, en tillaga þess efnis var samþykkt á hluthafafundi í gær. Þá voru einnig samþykktar tvær aðrar tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. Annars vegar fékk stjórn félags- ins heimild til að hækka hlutafé um allt að 100 milljónir króna næstu 18 mánuði. Hins vegar var samþykkt að auka við tilgang félagsins, en nú mun rekstur fasteigna, kaup og sala verðbréfa og eignarhald á dótturfélögum einnig falla undir móðurfélagið Marel Food Systems. Tillagan um aukningu hlutafjár felur í sér að hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum. Heimilt verður að ráðstafa nýju hlutunum sem greiðslu fyrir hluti í öðrum félögum eða til fjármögnunar ytri vaxtar Marels. Hörður Arn- arson forstjóri sagði aukninguna sem nú var samþykkt veita félaginu möguleika á yfirtöku fyrirtækja að virði allt að 300-400 milljóna evra án frekari hlutafjáraukn- ingar. Hún væri því mikilvægt skref til frekari vaxtar fé- lagsins. Stefnir í stórræði ef sameining næst Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður fjallaði um nýlegan 19,5% eignarhlut Marels í Stork. Viðræður um möguleg kaup Marel á dótturfélaginu Stork Food Syst- ems hafa nú staðið í 19 mánuði án árangurs. Sem stærsti einstaki hluthafi væru möguleikar fyrirtækjanna tveggja til samstarfs auknir, sem Marel þætti ákjósanlegt. Bæði fyrirtækin væru nú þegar leiðandi á sínu sviði og áætla mætti um 20% hlutdeild á „prótínmarkaði.“ „Við erum sannfærð um að takist sameining Marel og Stork Food Systems verði þar klár leiðtogi á markaði með getu og kraft í margra ára farsælan rekstur,“ sagði Árni. Hins vegar væri líklega lítil og jafnvel neikvæð samleið með öðrum dótturfyrirtækjum Stork. Aukning hlutafjár til vaxtar hjá Marel Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ánægðir Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður og Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems. ● HEILDARVIÐSKIPTI í kauphöll OMX á Íslandi í gær námu 21,8 millj- örðum króna en þar af voru viðskipti með skuldabréf fyrir um 17,6 millj- arða. Viðskipti með hlutabréf námu um 4,1 milljarði króna en þar af skiptu bréf Straums-Burðaráss oft- ast um hendur, velta með þau nam 1,1 milljarði króna. Mest hækkun varð á bréfum Atorku, 4,52%, en bréf 365 lækk- uðu um 1,45%. Úrvalsvísitalan lækk- aði um 0,25% og var 8.520 stig. Vísitalan lækkar HÆKKUN húsnæðisverðs hefur valdið um helmingi verðbólgunnar frá árinu 2003. Þetta kemur fram í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 21% frá ársbyrjun 2003 til júní 2007 en einungis um 11% þegar hækkun húsnæðisverðs er undanskilin. Á sama tíma hefur verðbólgan verið 4,4% á ári að jafn- aði en 2,4% sé húsnæðisverðshækk- un dregin frá. Hækkun húsnæðisverðs var 84% á tímabilinu, sem jafngildir um 15% á ári að jafnaði. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SA, telur brýnt að stjórnvöld grípi til ráðstafana til að stuðla að jafnvægi á fasteigna- markaði. Lækkun lánshlutfalls Íbúðalánasjóðs sé skref í rétta átt en nauðsynlegt sé að afmarka starf- semi sjóðsins við félagslegt hlut- verk og eftirláta bönkum og spari- sjóðum almenna íbúðalánastarf- semi. Þá sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið að skilaboð ríkis- stjórnarinnar með lækkun lánshlut- falls gæfu til kynna alvöru atlögu að verðbólgunni. Vaxtastefna Seðla- bankans dygði ekki til. Verðbólga vegna hús- næðisverðs 2,4% ef hækkun er undanskilin HLUTABRÉF í Kína féllu um ríf- lega 5% í gær. Fallið er rakið til ótta við aukinn fjölda skráninga og nýrr- ar hlutabréfaútgáfu sem gæti rýrt verðgildi núverandi bréfa. Er haft eftir greiningaraðilum að blómstr- andi markaður Kína, sem hafi gefið besta ávöxtun í Asíu, hafi nú náð há- marki sínu. Á vef BBC segir að fjár- festar hafi haft varann á síðan í maí þegar Bejing reyndi að róa mark- aðinn með því að hækka stimpilgjöld á viðskipti með hlutabréf. Stjórnvöld eru einnig sögð vilja halda verðbólgu í skefjum og hemja vaxandi jákvæð- an viðskiptajöfnuð. Hlutabréfavísi- talan í Kína hefur tvöfaldast á árinu og farið yfir 4.000 stigin. Er það m.a. rakið til þess að einkafjárfestar hafa notað sparifé til að kaupa hlutabréf síðasta eitt og hálfa árið en þeir eru fjórðungur þeirra sem hafa opnað nýja reikninga á þessum tíma. Eft- irspurnin skilaði sér í auknum fjölda skráninga inn í kínversku kauphöll- ina. Neikvæða hliðin er hins vegar sú að fyrirtæki í ríkiseigu reyna að lækka verð með því að selja mikið magn bréfa í einu. Kínverski markaður- inn fellur Skráning Fjárfestar í Kína fylgjast óró- legir með auknum skráningum á markað. ♦♦♦ EVRÓPSKU olíurisarnir Shell og BP, sem samkvæmt lista banda- ríska viðskiptatímaritsins Forbes eru annað og þriðja stærsta olíufé- lag heims, eiga nú í samruna- viðræðum samkvæmt frétt breska blaðsins Times. Þetta mun reyndar ekki vera í fyrsta skipti sem fyrirtækin ræða saman en á sínum tíma átti Browne lávarður, sem síðar hrökklaðist úr starfi, frumkvæði að sams konar viðræðum. Nú hefur eftirmaður hans, Tony Hayward, óskað eftir að viðræður fari fram á ný. Ekki liggur fyrir hvort sameinað fyrirtæki yrði stærra en Exxon- Mobil en verði af samrunanum gæti verðmæti samlegðaráhrifa orðið um 2,5 milljarðar punda. Risar ræða saman ÞETTA HELST ...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.