Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 19
AKUREYRI
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Spirulina
Orkugefandi og brennsluaukandi.
AUSTURLAND
Skriðuklaustur | Ingiberg Magn-
ússon opnaði myndlistarsýningu í
galleríi Klaustri á Skriðuklaustri
um síðustu helgi. Sýningin stend-
ur til 25. júlí.
Sýninguna nefnir Ingiberg „Að
heiman og heim aftur“. Heitið
vísar til þess að verkin tengjast
flest bernsku höfundarins á Hér-
aði.
Myndefnið sækir Ingiberg með-
al annars á Héraðssand og í Hall-
ormsstaðaskóg en báðir staðirnir
hafa höfðað til ímyndunarafls
hans frá barnsaldri. Þá sækir
hann hugmyndir í handverk og
hugvit fyrri kynslóða í húsagerð.
„Að heiman og
heim aftur“
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Vopnafjörður | Ágætlega hefur
gengið hjá hákarlaveiðimönnum á
Vopnafirði í sumar. Þessi vika
stendur þó upp úr en sex hákörlum
var landað sama daginn.
Hreinn Björgvinsson á Eddunni
fékk sex væna hákarla í fyrradag.
Hann var heppinn að sonur hans,
Björgvin, var með í vitjuninni og
gat aðstoðað við að koma veiðinni í
land. Sama dag fékk Guðjón Guð-
jónsson tvo hákarla.
„Ég hef verið að reyna mig við
þetta í tuttugu ár,“ segir Guðjón og
bætir því við að hann stundi há-
karlaveiðina vegna þess hvað hún
sé skemmtileg. „Það er stór hluti af
þessu að draga stóran fisk að landi.
Þetta eru 700 til 800 kílóa skepnur,
þú færð ekki stærri fisk hér við
land,“ segir Guðjón.
Hákarlaveiðimennirnir leggja há-
karlalínuna út af Vopnafirði og vitja
venjulega um einu sinni í viku.
Björgvin Hreinsson sem jafnframt
er hafnarstjóri á Vopnafirði segir
að notaðar séu átta til tíu króka lín-
ur og sumir leggi nokkrar línur.
Þeir beita því sem tiltækt er hverju
sinni. Guðjón segir að því miður sé
orðið erfitt að ná í úldið hrossakjöt
en það hafi þótt besta beitan hér
áður fyrr.
Þrír til fjórir bátar stunda há-
karlaveiðar frá Vopnafirði, að sögn
Björgvins, og telur hann að þeir
hafi veitt samtals 15 til 20 hákarla í
sumar. Hákarlarnir verða kasaðir í
haust og látnir hanga þannig að
„sælgætið“ verði tilbúið fyrir þorra-
blótin.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Löndun Hreinn Björgvinsson og Björgvin sonur hans landa einum vænum.
Lönduðu sex hákörl-
um sama daginn
Norðfjörður | Jóhann Zoëga brá sér í heldur óvanalegan göngutúr kvöld
eitt í vikunni. Ólöf dóttir hans hafði komið að sel sem virtist eitthvað ut-
angátta í fjörunni inni á Sandi í Norðfirði. Spáðu menn og spekúleruðu í
hvernig hjálpa skyldi selnum, en hann var heldur grimmur og hvæsti á
mannfólkið.
Það varð úr að selnum skyldi komið í sjóinn á ný til að sjá hvernig hann
spjaraði sig. Jóhann brá bandi um háls selsins og saman röltu þeir félagar í
mesta bróðerni niður í fjöruborðið þar sem bandið var leyst og selurinn
synti út. Höfðu menn á orði að selurinn gengi betur við hæl en margur
hundurinn.
Með sel í bandi á Sandi
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
UM ÞESSAR mundir eru fimmtán
bandarískir nemendur staddir á Akur-
eyri á vegum RES-orkuskólans. Þetta
er fjölbreyttur hópur nemenda úr
ýmsum skólum og ríkjum Bandaríkj-
anna sem sóttu um að komast á nám-
skeið um endurnýjanlega orku í gegn-
um School for International Training í
Vermont, en RES-orkuskólinn annast
umgerð námsins hér á landi.
Betsy Dinan, sem tekur þátt í nám-
skeiðinu, lætur vel af umgjörðinni og
verunni hér á landi: „Við komum til
landsins 10. júní sl. og vorum upphaf-
lega í Reykjavík nokkra daga og
hlustuðum á fyrirlestra ýmissa aðila í
orkugeiranum. Við hlustuðum á ólík-
ar skoðanir um endurnýjanlega orku,
til dæmis um Kárahnjúkavirkjun.“
Búa hjá fjölskyldum í bænum
Eftir dvölina í Reykjavík hefur
hópurinn verið á Akureyri og búið hjá
fjölskyldum í bænum. Betsy segir það
hafa kosti í för með sér: „Til dæmis
hafa yngstu dæturnar hjálpað mér að
læra íslensku. Á móti reyni ég að
kenna þeim ensku en þær eru mun
betri í ensku en ég í íslensku. Svo fór
ég með fjölskyldunni minni í ferðalag
í síðustu viku. Við skoðuðum Detti-
foss, Mývatn og Goðafoss.“
Utan frítímans hafa nemendur hins
vegar unnið að því að kynna sér orku-
mál Norðlendinga og m.a. skoðað
Glerárvirkjun og Laugaland í Eyja-
fjarðarsveit. Að auki vinna nemendur
að verkefnum saman þrír og þrír og
munu ljúka vinnslu þeirra á meðan
síðasti áfangi námskeiðsins fer fram,
en það verður á Vestfjörðum.
Þegar innt er svars við hinni ódauð-
legu „How-do-you-like-Iceland“-
spurningu svarar Betsy: „Ég er ást-
fangin af því. Þetta hefur verið ynd-
islegur tími og æðislegt að vera á
Akureyri. Samfélagið er lítið, lands-
lagið frábært og veðrið mjög gott.
Fólkið er vinalegt og allir nemendur
hafa öðlast ótrúlega lífsreynslu.“
„Hefur verið ótrúleg reynsla“
Ljósmynd/Finnbogi Marinósson
Fræðast Nemendurnir skoðuðu meðal annars Glerárvirkjun og Laugaland í Eyjafjarðarsveit á meðan á veru
þeirra stóð norðanlands og í Reykjavík hlustuðu þeir á ólíkar skoðanir um Kárahnjúkavirkjun.
Ljósmynd/Finnbogi Marinósson
Ánægjulegt „Þetta hefur verið yndislegur tími og æðislegt að vera á Akur-
eyri,“ segir Betsy Dinan. Á myndinni eru þátttakendur á námskeiðinu.
Bandarískir nemendur dvelja á Íslandi og læra um endurnýjanlega orku
Samstarfsverkefni á milli SIT í Vermont og RES-orkuskólans á Akureyri
Í HNOTSKURN
»Nemarnir skráðu sig í nám-skeið í endurnýjanlegri orku
á vegum SIT í Vermont.
»RES-orkuskólinn sér umnámskeiðið á Íslandi.
»Nemendurnir búa hjá fjöl-skyldum á meðan þeir dvelja
á Akureyri. Einnig koma þeir við
í Reykjavík og á Vestfjörðum.
Á MORGUN, laugardag, klukkan
14 verður myndlistarsýningin
„Prótótýpa“ opnuð á Café Karól-
ínu. Það er Elísabet Jónsdóttir sem
sýnir að þessu sinni.
Elísabet segir að verk sín sam-
anstandi af „hráunnum verkum og
tilraunum með efni og áferðir.
Hugmyndin að þessari sýningu er
að sýna „prótótýpur“ af hug-
myndum sem á eftir að vinna meira
með og gera að fullkláruðum mynd-
verkum“.
Elísabet lauk BA-prófi í grafískri
hönnun frá Listaháskóla Íslands ár-
ið 2000, en hefur einnig stundað
nám í innanhússarkitektúr í Hol-
landi.
Sýningin á Karólínu er þriðja
einkasýningin hennar, en hún hefur
einnig tekið þátt í samsýningum
hérlendis og erlendis. Sýningin
stendur til 3. ágúst nk.
„Prótótýpur“ á
Kaffi Karólínu
HLÖÐVER Sigurðsson tenór og
Þórunn Marinósdóttir sópran
munu flytja óperuaríur, dúetta og
íslensk sönglög á hádegistón-
leikum Listasumars í Ketilhúsinu í
dag. Tónleikarnir hefjast á slaginu
kl. 12.
Hlöðver og Þórunn hafa verið
þáttakendur á fjölmörgum „master
class“ námskeiðum á Íslandi, en
einnig í Austurríki og í Frakk-
landi. Þau hfa komið fram á tón-
leikum heima og erlendis og tekið
þátt í óperuuppfærslum.
Í lok september á síðasta ári
tóku Hlöðver og Þórunn þátt í
söngkeppninni „Concorso Int-
ernazionale di Canto Lyrico di
Brescia“ á Ítalíu. Þáttakendur
voru yfir 150 manns, og komust
þau bæði í undanúrslit keppninnar.
Hádegistón-
leikar í dag