Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 21
mælt með… MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 21 Útsölurölt Nú þegar útsölur eru víða er um að gera að skella sér í almennilegt búðaráp. Ef miðbærinn verður fyrir valinu á morgun þá er Hamingjumarkaður- inn í Skólastrætinu opinn frá 12 til 18 og um að gera að kíkja á hann í leiðinni því framtakið er frábært. Hann er reyndar opinn líka á sunnu- dögum og þá er tilvalið að skella sér fyrst á listasafn í bænum, kíkja kannski niður að höfn og enda heim- sóknina með góðum kaffibolla. Hátíð í Árbæjarsafni Á sunnudag verður ÍR-dagur á Árbæjarsafni í tilefni af 100 ára af- mæli félagsins og opnun gamla ÍR- hússins. Í húsinu er safn gamalla og nýrra muna sem segja sögu ÍR í máli og myndum. Hátíðin stendur frá eitt til þrjú. Þar verða deildir ÍR með sýn- ingar, viðburði og ýmislegt fyrir fólk sem vill reyna sig. Grillveisla verður í boði ÍR, smáfólkið fær blöðrur og ís- bíll verður á svæðinu. Afmælismót skáta Skátar verða með hátíðarhöld á Úlfljótsvatni sem lýkur á sunnudag. Mótið er liður í hátíðarhöldum skáta- hreyfingarinnar í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fyrstu skátaútilegunni á Brownsea-eyju. Öllum er velkomið að mæta á Úlf- ljótsvatn og taka þátt í afmælisfagn- aðinum. Starfræktar verða sér- stakar búðir fyrir fjölskyldur, eldri skáta og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemi skátahreyfing- arinnar. Írskir dagar á Akranesi Nú standa yfir írskir dagar á Akranesi og það er um að gera að smyrja samlokur, setja kaffi á brúsa og skella sér af stað upp í Hvalfjörð. Eftir að hafa borðað nesti í fallegri laut (eða inni í bíl ef veðrið leikur ekki við ferðalanga) þá skal brunað á Akranes. Þar verður ýmislegt um að vera. Hljómsveitir leika, víkingastemning verður á Safnasvæðinu, götugrill, kvöldvök- ur, Stuðmenn, siglingakeppni, kas- saklifur og unglingaball. Þá geta gestir tekið þátt í sandkastalakeppni, tekið þátt í dorgveiðikeppni eða heimsótt tívolíið á Jaðarsbökkum svo dæmi séu tekin. Áfram amma er einn liðurinn á dagskrá. Í fyrra mættu um 60 ömmur á vítapunktinn – hvaða amma rústar þessu í ár? Rúsínan í pylsuendanum er auðvitað hin ár- vissa keppni þar sem valinn verður rauðhærðasti Íslendingurinn, en hún fer fram á Jaðarsbökkum. Skráning er á staðnum, á www.irsk- irdagar.is, í síma 431 5566 eða með tölvupósti: loa@akranes.is. Með vinum í gönguferð Hvernig væri nú að stefna vin- unum saman í gönguferð á morgun? Alla laugardaga klukkan eitt eftir hádegi er farið í lengri gönguferðir á Þingvöllum þar sem fjallað er um mannvist og nátt- úru í Þingvallahrauni. Á leiðinni er til dæmis komið við á eyðibýlunum Skógarkoti og Hrauntúni og rifjaðar upp sögur af íbúum og búskap- arháttum. Göngugarpar hittast við þjónustumiðstöðina á Leirum og þremur tímum síðar er hægt að ljúka góðri útivist með grillveislu eða laut- arferð með gamla laginu. Passið að taka með regnfötin, góða skó og vatnsbrúsa. Nudd getur gagnast einstakling- um, sem þurfa að undirgangast læknismeðferðir því í nuddinu handleikur nuddarinn mjúka vefi líkamans, vöðva, hörund og sinar með því að nota fingurgóma, hendur og hnefa. Nudd getur hjálpað til við að slaka á, en er kannski ekki líklegt til að „lækna“ allt sem er að angra viðkomandi einstakling. En ef illa er að verki staðið, getur nuddið líka meitt. Nudd hjálpar til við að draga úr spennu í vöðvum og flestir nota það sem slökunarmeðal eða til að minnka vöðvaeymsli. Nuddið getur líka losað um náttúruleg verkjalyf, sem líkaminn ræður yfir til að styrkja ónæmiskerfið. Nuddið er talið gagnast:  Kvíða  Verkjum  Fæðingarhríðum  Ungbarnaþroska  Börnum með sykursýki  Íþróttameiðslum  Alkóhólmeðferð  Ónæmiskerfinu  Krabbameinssjúklingum  Sjálfsálitinu Nudd er almennt hættulaust svo lengi sem viðurkenndir nuddarar sinna því, að því er segir á netsíðu bandarísku sjúkrastofnunarinnar MayoClinic, en það getur í verstu tilfellum valdið innvortis blæð- ingum, taugaskemmdum eða tíma- bundinni lömun. Nudd er hins- vegar ekki fyrir alla því það getur verið hættulegt ef viðkomandi er t.d. með brunasár eða önnur opin sár á nuddsvæðinu, hefur nýlega fengið hjartaáfall, blóðtappa eða er með beingisnun og alvarlegar gigtarbólgur. Einnig skal forðast beinan þrýsting á æxli krabba- meinssjúklinga. Nuddið linar streitu og verki Novator eignarhaldsfélag ehf. vekur athygli á því að yfirtökutilboð þess í hlutafé Actavis Group hf. rennur út næstkomandi mánudag, 9. júlí, kl.16. ÍS LE N SK A S IA .IS /L B I 3 82 91 0 7/ 07 Nánari upplýsingar um yfirtökutilboðið er að fá hjá Landsbanka Íslands hf. og á vefsíðu bankans, www.landsbanki.is. Ennfremur geta hluthafar haft samband við Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040 ef óskað er frekari upplýsinga, auk þess sem hægt er að senda fyrirspurnir á tölvupóstfangið Actavis-tilbod@landsbanki.is. Yfirtökutilboð Actavis Group hf. Þeir hluthafar sem vilja samþykkja yfirtökutilboð Novators þurfa að skila rétt útfylltu samþykkiseyðublaði. Hægt er að skila eyðublaðinu með þrennum hætti: • Til Landsbanka Íslands hf., Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, merkt „ACTAVIS YFIRTÖKUTILBOД • Á faxnúmerið 410 3002 • Á vefsíðu Landsbankans, www.landsbanki.is Samþykki hluthafa Actavis verður að hafa borist fyrir kl. 16:00 mánudaginn 9. júlí 2007. Hluthafar eru hvattir til að skila samþykkiseyðublaðinu rétt útfylltu hið fyrsta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.