Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Einar SigurðurÓlafsson fædd- ist í Reykjavík 4. júní 1948. Hann andaðist á heimili sínu, Háholti 6 í Garðabæ, 22. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðrún R. Sigurð- ardóttir húsmóðir, f. á Ísafirði 15. ágúst 1921, d. 4. apríl 1996, og Ólaf- ur J. Einarsson framkvæmdastjóri, f. á Ísafirði 30. ágúst 1920. Systir Einars er Sjöfn, f. 2. júní 1942, maki Eyjólfur Sigurðsson. Einar kvæntist 20. september 1969 Ingu Jónu Andrésdóttur, f. á Akureyri 7. janúar 1949. For- eldrar hennar eru Sigríður Willi- amsdóttir, f. 8. október 1927, og Andrés Guðmundsson, f. 29. maí 1925. Börn Einars og Ingu eru: 1) Ásta Sigríður, f. 4. nóvember 1970, maki Finnbogi V. Finn- bogason, f. 17. apríl 1969, börn þeirra eru Inga Ólöf, f. 11. nóvember 1988, Al- exander Dagur, f. 6. desember 1993, og Einar Auðunn, f. 17. desember 1996. 2) Elínborg, f. 13. mars 1976, maki Örn Þórðarson, f. 18. febrúar 1975. Einar lærði sím- virkjun og starfaði hjá Landssíma Ís- lands. Síðar hóf hann störf við fyrirtæki foreldra sinna, lyfjaheildverslunina Farm- asíu hf., og keypti það fyrirtæki þegar faðir hans lét af störfum. Einar seldi síðar fyrirtækið og stofnaði fyrirtækið E.S.Ó. ehf og rak það til dauðadags. Einar stundaði siglingar og var formað- ur Siglingasambands Íslands 1995-1997. Einar verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Kynni okkar Einars hófust fyrir um það bil fimmtíu árum þegar ég fór að venja komur mínar á heimili foreldra hans Guðrúnar og Ólafs. Það fór ekki mikið fyrir honum á unglingsárunum en seinna kom í ljós að hann fylgdist vel með og áhugamálin voru mörg. Ungur var hann mjög áhugasamur um tækni- nýjungar, hann lá yfir tækniblöð- um og spennuefni þar sem tækni var í fyrirrúmi. Fjarsendingatækni var honum hugleikin og kom það því engum á óvart að hann skyldi hefja nám í símvirkjun hjá Landssíma Íslands og starfa síðan á radíóverkstæði fyrirtækisins um árabil. Þrátt fyrir áhuga hans á tækni- málum var hann undir þrýstingi um að koma til starfa hjá fjöl- skyldufyrirtækinu Farmasía sem faðir hans hafði stofnað og starfaði í lyfjainnflutningi. Einar hafði stofnað til hjúskapar með Ingu Jónu Andrésdóttur og var fyrsta barnið þá þegar fætt og nú var fyrir fjölskyldu að sjá. Kannski réð það úrslitum. Ég er ekki viss um að ákvörðunin hafi verið auðveld fyrir Einar, getan til að skapa fyrir hendi og allt stefndi í þann farveg. Engu að síður lét Einar tilleiðast og hóf störf hjá Farmasíu. Þar starfaði hann við hlið foreldra sinna í áratugi eða þar til fjölskyldan ákvað að selja fyrirtækið er faðir hans lauk störf- um vegna aldurs. Einar sá til þess að nýjasta tækni væri alltaf til staðar í fyrirtækinu enda hans áhugasvið að nýta tæknina. Hann velti stöðugt fyrir sér hagræðingu í rekstrinum og átti hlut í því að nokkur lyfjafyrirtæki stofnuðu dreifingarfyrirtækið Lyfjadreif- ingu hf. sem dró verulega úr dreif- ingarkostnaði. En Einar hafði náð góðum ár- angri á kaupsýslusviðinu og vildi halda því áfram. Hann stofnaði því fyrirtækið E.S.Ó. ehf., starfaði það fyrirtæki í svipuðum farvegi og rak hann það ásamt fjölskyldu sinni til dauðadags. Áhugamálin létu hann ekki í friði. Einn daginn tilkynnti hann að hann hefði fjárfest í „sumar- húsi“, það væri reyndar færanlegt en aðeins á vatni, hann hafði keypt skútu. Hann tók þátt í siglinga- keppnum á skútunni Stjörnunni. Þau hjónin stunduðu siglingar um árabil og auk þess að sigla skút- unni fjárfestu þau í báti sem stað- settur var við Miðjarðarhafið. Bílar, bifhjól og flugvélar heilluðu og safnaði hann að sér upplýs- ingum um nýjungar á því sviði. Hann varð að eignast bifhjól og naut þess að fara um nágranna- byggðir á fáki sínum. Síðustu árin þegar hann hafði verið greindur með þann sjúkdóm er dró hann til dauða fann hann sér enn nýtt verkefni, hann ákvað að smíða sér litla flugvél, fis. Hann hóf smíðar í bílskúrnum. Það tókst og jafnframt að ljúka sólóprófi. Sl. sumar flaug hann heimasmíðaðri flugvél sinni. Einar gekk í Kiw- anisklúbbinn Elliða í Reykjavík, starfaði þar um árabil og var for- seti klúbbsins 1976-1977. Þau hjónin eignuðust tvær dæt- ur og barnabörnin eru þrjú. Einar var mikill fjölskyldumaður og naut þess að vera í návist barna og barnabarna. Það er mikil sorg sem hvílir yfir nánustu ættingjum, á fjórða ár barðist hann við sjúkdóminn, bar höfuðið hátt og neitaði að gefast upp en að lokum varð hann að gefa eftir. Einar fór alltof fljótt, hann var í blóma lífsins, nú var tími til að njóta árangurs ævistarfsins. En honum tókst að tryggja fjölskyld- unni örugga framtíð með útsjón- arsemi og forsjárhyggju, það ásamt öllum samverustundunum verður þeim öllum huggun í harmi. Ég þakka mági mínum góð kynni. Far þú í friði. Eyjólfur Sigurðsson. Elsku Einar frændi, nú hefur þú lokið ferð þinni á þessum stað um leið og þú hefur ferðalagið á þeim næsta. Það var ávallt skemmtilegt og upplífgandi að vera í kringum þig, þú varst með svo frábæra kímni- gáfu sem við vorum allar sérlega hrifnar af enda komstu okkur auð- veldlega til að hlæja. Æðruleysi þitt á dánarbeðnum var einstök upplifun fyrir okkur systurnar. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Ingu í Háholtið, svo ekki sé nú minnst á dásamlega kaffið sem boðið var upp á og konfektið með. Með þessum orðum viljum við kveðja þig og óska þér góðrar ferðar á nýjan stað. Elsku Inga, Ásta og Elínborg takk fyrir að leyfa okkur að fylgja honum síðustu sporin, það var okkur ómetanlegt. Við biðjum góðan guð að veita ykkur mæðgum, fjölskyldum ykk- ar, mömmu og afa styrk í sorginni. Minn hugur spannar himingeiminn. Mitt hjarta telur stjörnuseiminn, sem dylur sig í heiðlofts hyl. Svo hátt og vítt mér finnst ég skynja, Guðs veröld! Andans hlekkir hrynja sem hjóm við þetta geislaspil. Mér finnst ég elska allan heiminn og enginn dauði vera til. (Einar Benediktsson) Guðrún, Erla og Katrín Björk. Elsku Einar, ég er búin að reyna skrifa þessa hinstu kveðju í þrjá daga en í hvert skipti sem ég reyni hljómar hún eins og hver önnur minningargrein. Í mínum huga er það ekki nógu gott því þú varst svo einstaklega sérstakur maður að orð fá því ekki nærri því lýst. Þú varst öllum svo góður, með hjarta á stærð við heiminn og í því var stórt pláss fyrir alla sem þér þótti vænt um. Hver einasti maður sem þér þótti vænt um fann það vel að mínu mati. Ég get sagt með nokkuð mikilli vissu að þú varst uppáhaldsfrændi okkar systkina. Þú hafðir alltaf endalausan áhuga á því sem var að gerast í lífi okkar, hvort sem við vorum börn, unglingar eða full- orðin. Í mínum huga varstu sér- stakur af annarri ástæðu. Fjöl- skyldan okkar er frekar lokuð og hefur aldrei verið mikið fyrir að tala um tilfinningar og ýmis mál- efni sem koma upp. Ég er and- stæðan við það og er því alveg sama þó að ég tali um frekar við- kvæmt mál innan fjölskyldunnar. Ég vildi bara óska að ég hefði haft kjarkinn til að segja þér þetta persónulega áður en það varð um seinan. Ég kom inn í fjölskylduna þriggja ára gömul sem barn móður minnar. Þú, elsku Einar, varst einn af þeim fáu fullorðnu sem litu á mig sem dóttur pabba míns al- veg frá byrjun og ég fann alltaf fyrir frá þér að ég væri hluti af fjölskyldunni, sama hvaða blóð rynni í æðum mér. Þegar foreldrar mínir skildu og þeir sem þekkja til vita að það gekk ekki friðsamlega þá varst þú aftur einn af þeim fáu sem tóku aldrei afstöðu fyrir fram- an okkur börnin og þú lést aldrei eitt neikvætt orð út úr þér um for- eldra mína fyrir framan okkur. Ég veit einnig að þú varst einn af þeim virkilega fáu sem sáu sér fært um að tala við mömmu mína eftir sársaukafullan og erfiðan skilnað. Ég veit að henni þótti mjög vænt um það og einnig mér. Þetta er aðeins örlítið brot af því sem gerði þig að einstökum manni og mér þykir svo sárt að ég sagði þér aldrei hversu mikið ég kunni að meta þig. Ég hef svo oft heyrt að það sé auðveldara að kveðja einhvern þegar maður veit að viðkomandi er veikur og getur undirbúið sig en í rauninni er það ekki. Ég hélt í vonina um að þú myndir ná þér al- veg til síðustu mínútu og að fá fregnirnar af andláti þínu skilur eftir sig stórt gat í hjarta mínu. Ég get ekki sagt nógu oft hversu yndislegur maður þú varst og það sést svo greinilega í dætrum þín- um og barnabörnum. Þó svo að Einar S. Ólafsson Lokað Vegna útfarar EINARS S. ÓLAFSSONAR verður skrifstofa okkar lokuð í dag, föstudaginn 6. júlí. E.S. Ólafsson ehf., Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík. ✝ Okkar ástkæri og yndislegi, HAFÞÓR SVEINJÓNSSON, Burwell, Cambridge, Englandi, sem lést föstudaginn 22. júní verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 9. júlí og hefst athöfnin kl. 15:00. Elsa Jensdóttir, Kristján Hafþórsson, Tinna María Hafþórsdóttir, Alexandra Hafþórsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Sveinjón Björnsson og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SUMARLÍNA JÓNSDÓTTIR, Stekkjarholti 20, Akranesi, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Súsanna Steinþórsdóttir, Jón Jóhannsson, Ingibjörg Steinþórsdóttir, Jón Kristinn Baldursson, Jónína Rikka Steinþórsdóttir, Böðvar Ingvason, Sigurður Mýrdal Steinþórsson, Áslaug Róbertsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGIMUNDUR EINARSSON áður bóndi í Leyni, Laugardal, Fossvegi 4, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni miðviku- dagsins 4. júli. Jarðarförin verður auglýst síðar. Lilja Guðmundsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Þórir Snorrason, Svanheiður Ingimundardóttir, Magnús Guðjónsson, Guðmundur Óli Ingimundarson, Roswitha M. Hammermuller, Fjóla Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓHANNA HAUKSDÓTTIR frá Neðri - Hrepp í Skorradal, verður jarðsungin frá Hvanneyrarkirkju, þriðjudaginn 10. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra aðstandenda, Einar Jónsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, KRISTINN GÍSLASON, Borgarheiði 2, Hveragerði, sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu á Kirkju- bæjarklaustri, mánudaginn 2. júlí, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju, laugardaginn 7. júlí kl. 13.30. Fjóla Baldursdóttir, systkini og aðrir vandamenn. ✝ Okkar hjartans þakklæti til allra þeirra sem með hringingum, kortasendingum og samúðarskeytum veittu okkur ómetanlegan stuðning við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLÍNU RAGNHEIÐAR ÓLAFSDÓTTUR, Sævarstíg 6, Sauðárkróki, sem lést föstudaginn 22. júní og var jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. júní. Sérstakar þakkir færðar starfsfólki heilbrigðisstofnunar Skagafjarðar fyrir alúðlega umönnun. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur, Gunnar og Ragnar Sigurðssynir. ✝ Séra Guð-mundur Óli Ólafsson fæddist í Reykjavík 5. desember 1927. Hann lést á heim- ili sínu aðfara- nótt 12. maí síð- astliðins og var útför hans gerð frá Skálholtskirkju 18. maí. Meira: mbl.is/minningar Guðmundur Óli Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.