Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 31

Morgunblaðið - 06.07.2007, Page 31
heimurinn sé mun fátækari án þín munt þú alltaf lifa í yndislegu fjöl- skyldunni þinni. Elsku Einar, ég veit að þú ert á betri stað og þú þjáist ekki lengur. Þú sagðir stuttu fyrir andlát þitt í tölvubréfi að við sæjumst öll síðar einn dag- inn á betri stað. Takk fyrir að snerta líf mitt eins og þú gerðir. Elsku Inga, Ásta, Elínborg, Bogi, Örn og barnabörn, ekkert sem ég segi getur hjálpað ykkur að takast á við þessa gríðarlegu sorg en þið eruð í bænum mínum og Guð geymi ykkur öll. Jessica Leigh Andrésdóttir. Elsku Einar, nú hefur þú kvatt okkur öll eftir baráttu við illvígan sjúkdóm sem náði yfirhöndinni að lokum. Þú sýndir svo mikinn styrk í veikindum þínum. Við sitjum hér eftir og söknum þín sárt, en við reynum að hugga okkur við góðar minningar um samverustundir með þér. Við teljum okkur vera einstak- lega lánsöm að hafa kynnst þér á lífsleiðinni. Þú hafðir einstaklega góða nærveru svo öllum leið vel í kringum þig og sóttust í fé- lagsskap þinn, þar sem alltaf var stutt í gleði og hlátur og þú dróst fram það besta í okkur. Það var alltaf svo gott að koma til þín og Ingu, þar sem maður var alltaf svo velkominn. Við eigum margar góðar minn- ingar með þér og fjölskyldu þinni. Þú varst svo mikill fjölskyldu- maður. Þið voruð svo samrýnd fjölskylda og studduð hvort annað í gleði og sorg eins og kom svo greinilega í ljós á þessum erfiða tíma hversu samrýnd þið voruð. Þetta líf er fallvalt og stundum er erfitt að skilja af hverju hlut- irnir fara eins og þeir fara. Við kveðjum þig að sinni elsku Einar. Hvíl í friði. Elsku Inga Jóna, Ásta Sigga, Elínborg og aðstandendur, guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. „Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá, „svo hug minn fái hann skilið“, en morgundagurinn endaði á að ennþá jókst milli’ okkar bilið. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur, að albesta sending af himnunum send er sannur og einlægur vinur. (Höf. ók.) Kveðja, Guðmundur, Ásthildur, Eva Katrín og Erla Björk. Elsku Krulli minn. Þetta er ennþá svo óraunveru- legt að þú sért farinn. Að kveðja þig var eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera því við vorum svo góðir vinir. Það er þér að þakka að ég er komin með mót- orhjól í dag, ég man ennþá eftir leyndarmálinu sem þú sagðir mér þegar ég var yngri, að ef ég mundi fá mér mótorhjólapróf mundir þú gefa mér eitt af þínum. Og þá ætl- aði ég svo að fá mér prófið. Þú spurðir mig svo á hverju ári hvort ég ætlaði ekki að fá mér prófið þegar ég væri eldri og ég man ennþá svipinn á þér þegar ég sagði þér loksins að ég væri komin með prófið. Þú varst svo ánægður og stoltur. Þú ert ástæðan bakvið þetta allt. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar. Ég endaði alltaf í bílskúrnum að skoða hvað þú varst að smíða í það og það skiptið og settist á hjólið þitt og ímyndaði mér að ég væri að aka hjólinu þínu. Því miður fékk ég aldrei að sjá flugvélina sem þú smíðaðir en ég veit að hún var al- veg sú flottasta. Öll áramótin eru ábyggilega sá skemmtilegasti tími sem við höfum átt, þú alltaf inni í bílskúr í bláa kraftgallanum þínum að undirbúa allar sprengjurnar með krakkaglottið alveg út í eitt. Þú varst skemmtilegasti frændi í heimi. Ég mun sakna þín óend- anlega mikið, elsku Einar minn. Ég elska þig meira en þú vissir. Þú átt stóran stað í hjarta mínu, þú varst og ert minn uppáhalds- frændi. Við munum hjóla aftur saman. Inga, Ásta og Elínborg, þið eruð í bænum mínum. Þín litla frænka Kristína Elísabet. Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands Það er búið að vera fallegt veður í Garðabænum undanfarna daga. Gróðurinn skartar sínu fegursta, fuglarnir syngja í görðunum og mannlífið blómstrar. Á Hnoðra- holtinu myndast stórkostlega fal- lega bláar breiður af lúpínu á sumrin. Í birtu undanfarna daga er þetta afar falleg sýn. Á svona dögum skynjar maður sterkt hið bjarta og fallega í kringum okkur. Mér var því nokkuð brugðið þegar ég las dánarfregn um góðan félaga minn, Einar S. Ólafsson, í Morg- unblaðinu. Reyndar vissi ég að Einar hafði ekki gengið heill til skógar í nokkurn tíma en einhvern veginn fannst mér að veikindi hans væru ekki á það alvarlegu stigi sem raun bar vitni. Einar S. Ólafsson var kjörinn formaður Siglingasambands Ís- lands árið 1995 og gegndi for- mennsku þar í tvö ár. Á þessum tíma fóru fram afar stór og mik- ilvæg verkefni fyrir siglingaíþrótt- ina. Haldnir voru Smáþjóðaleikar á Íslandi sumarið 1997 og kom það í hlut Einars að leiða undirbún- ingsvinnu siglingamanna í sam- starfi við ÍSÍ um þetta mikla verk- efni. Undirritaður var framkvæmdastjóri leikanna og átti afar farsæl samskipti við Einar, kynntist mannkostum hans og sterkum félagsanda. Einar var settlegur maður, rólegur, form- fastur en stutt í grínið. Hann hafði þægilega nærveru og maður vissi alltaf að þau verk sem hann tók sér fyrir hendur yrðu kláruð á til- skildum tíma. Einar var sjálfur virkur keppandi í siglingum um árabil. Hann var virtur og vel lið- inn leiðtogi siglingamanna. Nú getur Einar ekki notið leng- ur útsýnisins í Hnoðraholtinu. Góður drengur er fallinn frá allt of snemma en minning hans lifir. Við leiðarlok sendir Íþrótta- og Ól- ympíusamband Íslands fjölskyldu Einars og ástvinum samúðarkveðj- ur og þakkar fyrir framlag hans í þágu íslenskrar íþróttahreyfingar. Hans verður sárt saknað. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Með örfáum orðum langar okkur til að minnast Einars S. Ólafs- sonar. Fyrstu kynni okkar af Einari var þegar við fyrir mismörgum ár- um hófum störf í fyrirtæki hans Farmasíu. Það er margs að minn- ast frá þessum tíma en Farmasía var fjölskyldufyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn var ekki stór og því myndaðist mjög sérstakt og skemmtilegt andrúmsloft. Ógleym- anleg eru öll hádegin þegar við sátum saman og ýmislegt var látið flakka og Einar gat oft hlegið mik- ið af vitleysunni í okkur. Skemmti- legar voru líka ferðirnar sem við fórum í út á land í staðinn fyrir að halda hefðbunda árshátíð. Við fór- um í mjög vel heppnaða ferð á Njáluslóðir sem endaði með hum- arveislu á Stokkseyri, um Snæ- fellsnesið þar sem m.a. var farið upp á Snæfellsjökul og einnig í vel heppnaða helgarferð til Akureyr- ar. Einars er minnst í okkar hópi sem hjartahlýs manns, sem lét sér annt um starfsfólk sitt, aðstæður þess og áhugamál. Elsku Inga Jóna, Ásta, Elínborg og fjölskyldur við biðjum góðan Guð um að styrkja ykkur í sorg- inni. Unnur, Dagný, Þorgerður, Súsanna og Daníel. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 31 ✝ FreysteinnJónsson, bóndi í Vagnbrekku í Mý- vatnssveit, fæddist 17. maí 1903. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Seli á Akureyri 24. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jón Kristjánsson, f. 20.12. 1866, d. 23.10. 1931, og Guðrún Stefánsdóttir, f. 14.11. 1863, d. 9.3. 1952. Systkini Frey- steins voru: Stefán, f. 1889, d. 1907, Kristján, f. 1890, d. 1890, Frey- steinn, f. 1891, d. 1894, Helgi, bóndi á Grænavatni í Mývatnssveit, f. 1893, d. 1943, Kristbjörg, húsfreyja á Geirastöðum í Mývatnssveit, f. 1896, d. 1979, Sigurbjörg, hús- freyja á Ófeigsstöðum í Köldukinn, 29.1. 1980. 2) Hjálmar, f. 18.5. 1943, kvæntur Sigríði Jórunni Þórðardóttur, f. 15.1. 1945. Börn þeirra eru Guðbjörg Helga, f. 25.7. 1966, Anna Þórunn, f. 11.6. 1971, og Þórður Örn, f. 17.4. 1976. 3) Guðrún, f. 12.9. 1952, gift Húni Snædal, f. 13.7. 1944. Dætur Guð- rúnar eru Kristín Álfheiður, f. 5.8. 1972, og Freydís Helga, f. 17.5. 1978, Árnadætur. Dætur Húns eru Þórný, f. 14.8. 1966, og Katrín, f. 18.8. 1971. 4) Egill Arinbjörn, f. 18.5. 1958, kvæntur Dagbjörtu Sigríði Bjarnadóttur, f. 22.5. 1958. Dætur þeirra eru Halldóra, f. 20.11. 1991, Helga Guðrún, f. 25.9. 1995, og Margrét Hildur, f. 7.7. 1998. Sonur Dagbjartar er Bjarni Jónasson, f. 15.11. 1977. Langafa- börn Freysteins eru 20. Freysteinn ólst upp í Mývatns- sveit og átti þar heima alla ævi, lengst var hann bóndi í Vagn- brekku. Útför Freysteins verður gerð frá Skútustaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. f. 1898, d. 1985, Krist- ján, bóndi á Græna- vatni í Mývatnssveit, f. 1900, d. 1946, og Hólmfríður, hús- freyja á Akureyri, f. 1907, d. 1959. Freysteinn kvænt- ist 22. október 1939 Guðbjörgu Helgu Hjálmarsdóttur frá Vagnbrekku, f. 5.10. 1915, d. 22.1. 2003. Foreldrar hennar voru Hjálmar J. Stef- ánsson og Kristín H. Jónsdóttir. Freysteinn og Helga eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Áslaug, f. 14.3. 1941, gift Guð- mundi Þórhallssyni, f. 24.11. 1944. Synir þeirra eru Þórhallur, f. 20.1. 1963, Freysteinn, f. 13.7. 1964, d. 28.12. 1980, Erlingur, f. 16.4. 1971, Sverrir, f. 26.2. 1973, og Ævar, f. Með örfáum orðum langar mig að minnast tengdaföður míns Frey- steins Jónssonar. Freysteinn fæddist á Arnarvatni í Mývatnssveit 17. maí 1903, hann bjó í Mývatnssveit alla ævi og unni sveit- inni af heilum hug. Á uppvaxtarárun- um bjó fjölskylda Freysteins við bág kjör og aðstæður sem fæst okkar geta gert sér grein fyrir. Árið 1939 kvænt- ist hann Guðbjörgu Helgu Hjálmars- dóttur frá Vagnbrekku og þau bjuggu þar þangað til Helga lést hinn 22. jan- úar 2003, þá flutti Freysteinn til Ak- ureyrar og bjó fyrst á heimili Áslaug- ar dóttur sinnar, en dvaldi á hjúkrunardeild í Seli síðustu árin. Freysteinn var bóndi alla ævi og var mjög umhugað um búskapinn og allt sem viðkom lífinu í sveitinni. Hann hafði áhuga á þjóðmálum, íþróttum, veiðum og ekki síst var honum mikils virði að fylgjast með afkomendum sínum. Freysteinn var að nálgast nírætt þegar ég kynntist honum, hann bar aldurinn vel, hár og myndarlegur, viðræðugóður, með mikla kímnigáfu og ótrúlegt minni. Það var hlutskipti mitt að búa á loftinu hjá honum og Helgu tengdamóður minni í tæp 11 ár. Sú sambúð var góð og börnin mín nutu besta atlætis og umhyggju sem hægt er að hugsa sér. Afi og amma höfðu alltaf tíma, komu fram við þau af fullri virðingu og fylgdust af ein- lægum áhuga með þroska þeirra og áhugamálum. Öll barnabörn Frey- steins og Helgu dvöldu um lengri eða skemmri tíma hjá þeim í Vagn- brekku, þau eiga dýrmætar minning- ar og reynslu úr sveitinni. Lífið í sveitinni á árum áður var andstaða þess lífs sem flestir lifa í dag. Enginn asi, allt í föstum skorðum og allt hafði sinn tíma. Börn fylgdu fullorðnum til verka og lærðu að vinna, Freysteinn var einstaklega barngóður og dug- legur að hafa börnin með sér, hvort sem það var í fjárhús eða á vatnið. Það var Freysteini mikið áfall að missa Helgu og þá gat hann ekki búið lengur heima. Eftir að hann flutti til Akureyrar naut hann einstakrar um- hyggju barna sinna, tengdabarna og barnabarna og þau endurguldu hon- um ríkulega árin sem þau höfðu átt í sveitinni. Síðari árin varð honum tíðrætt um þau húsakynni sem hann bjó í í bernsku og gjarnan bar hann þau saman við nýbyggingu á hans jörð, ekki til að hneykslast á íburði heldur til að gleðjast yfir framförunum. Hann saknaði Helgu sinnar og var viss um að þau myndu hittast á ný, þeir endurfundir verða vonandi í Mý- vatnssveit, því þar leið þeim best. Hugur hans var þar, hann hringdi heim flesta daga til að spyrja eftir líð- an heimilisfólksins, stelpunum, veðr- inu, hvort ís væri á vatninu, heilsufari í sveitinni og margs annars. Nú hringir Steini ekki aftur heim, en víst er að hans verður oft minnst og sakn- að. Þótt Freysteinn hafi saknað sveit- arinnar talaði hann oft um hvað hon- um liði vel í Seli og allt væri fyrir hann gert sem hægt væri. Í Seli naut hann góðrar aðhlynningar og um- hyggju, fyrir það er fjölskylda hans þakklát. Heiðarleiki, hreinskiptni, nægju- semi og að gleðjast yfir litlu eru þeir eiginleikar sem helst prýddu Frey- stein Jónsson. Hann átti langa starfsævi og kvaddi saddur lífdaga, sáttur við hlutskipti sitt. Ég verð Freysteini alla tíð þakklát fyrir það hvað hann var mér og börnunum mínum góður, við munum búa að því alla tíð. Með virðingu og þökk kveð ég Freystein Jónsson, blessuð sé minning hans. Dagbjört Bjarnadóttir. Einhvers staðar stendur að tíminn sé afstæður en hvað sem því líður þá eru 104 ár langur tími á mælikvarða mannsævinnar. En nú er komið að leiðarlokum og með nokkrum orðum langar okkur systkinin að minnast Freysteins Jónssonar í Vagnbrekku, sem við höfum aldrei kallað annað en Steina. Steini giftist Helgu Hjálm- arsdóttur föðursystur okkar og tóku þau árið 1939 við búi af afa okkar og ömmu í Vagnbrekku. Þar bjuggu þau alla tíð upp frá því og lengst af, eða 1948-1982, í félagi við foreldra okkar, Arinbjörn og Halldóru Sigríði. Á langri ævi er margs að minnast og ekki er auðvelt að setja saman minningarorð sem hæfa þeim höfð- ingja sem Steini var. Sjálfur hefði hann getað sagt þá sögu svo miklu betur því skemmtilegri sögumaður var vandfundinn. Hann var líka minnugur svo af bar. Allt fram undir það síðasta fylgdist hann vel með því sem fram fór í umhverfinu og aldrei stóð á svari þegar spurt var fregna af búskapnum heima. Í dag væri eflaust talað um Steina sem náttúruunn- anda. Hvernig má heldur annað vera fyrir þann sem elst upp í nánu sam- býli við náttúru Mývatnssveitar. Steini kom úr dæmigerðu íslensku bændasamfélagi sem staðið hafði að mestu óbreytt um aldir og lifði því mikla breytingatíma. Búskapurinn var hans líf og yndi og allt sem hon- um viðkom. Einnig veiðiskapur, bæði í vatninu og skotveiði, ásamt áhuga á góðum reiðhestum. Hann vildi hvergi annars staðar vera en í sveit- inni sinni, í húsinu uppi á hólnum. Þar bjó hann á meðan heilsan leyfði og naut þess að geta setið á rúminu sínu og fylgst með lífinu út um gluggann. Því var vel til fundið er hann var gerður að heiðursborgara í Mývatnssveit á 104 ára afmælinu í vor. Sambýli fjölskyldnanna í Vagn- brekku var náið og því nutum við systkinin alla tíð mikillar nálægðar við frænku og Steina. Honum var einkar vel lagið að leiðbeina okkur krökkunum við vinnu og gaman var að vera með honum hvort heldur við heyskap eða á vatninu. Þannig höfum við vonandi náð að meðtaka og nýta okkur einhverja þeirra mörgu góðu kosta sem Steini var búinn. Hnyttin tilsvör hans, jafnaðargeð og létt lund eru meðal þess sem fyrst kemur upp í hugann og mætti vera mögum fyr- irmynd. Enginn æsingur eða fyrir- gangur að óþörfu en heldur engin lognmolla. Alltaf var hann tilbúinn að sjá spaugilegar hliðar tilverunnar við hvaðeina sem upp kom og mikið mátti vera ef í kjölfarið fylgdi ekki ein góð saga frá fyrri tíð. Eftir að 100 árunum var náð voru heimsóknir blaðamanna nánast árvissar og þótt spurningarnar hafi e.t.v. ekki alltaf verið gáfulegar þá voru svörin jafnan fyrsta flokks. Steini getur verið stoltur af því sem hann skilur eftir, ekki síst stórum hópi afkomenda sem nú sér á bak ættarhöfðingjanum. Sannarlega er það mikill missir en við vitum að sjálfur var hann orðinn tilbúinn. Án efa heldur hann líka áfram að fylgj- ast með okkur hinum úr fjarlægð og ekki væri úr vegi fyrir okkur að svip- ast annað slagið um eftir neftóbak- skornum. Með þakklæti í huga kveðj- um við Steina. Kristín, Þórarinn, Halldór, Hjálmar og Ásdís. Freysteinn Jónsson Félag íslenskra há- skólakvenna og Kvenstúdentafélag Íslands minnist Brynhildar og þakkar henni störf í þágu félaganna en hún átti sæti í stjórn þeirra á árunum 1957-78 og þar af nokkur ár sem gjaldkeri. Þegar félögin tóku að sér sölu á jólakortum barnahjálpar Samein- Brynhildur Kjartansdóttir ✝ BrynhildurKjartansdóttir, fyrrverandi stærð- fræðikennari, fædd- ist í Kaupmanna- höfn 17. júní 1920. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 25. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hallgríms- kirkju í Reykjavík 4. júlí. uðu þjóðanna fól þá- verandi formaður, Ingibjörg Guðmunds- dóttir, henni og dótt- ur hennar Erlu Elínu Hansdóttur að sjá um sölu þeirra á Ís- landi. Fáir hefðu getað gert það betur og mikil vinna var unnin þar í sjálfboðavinnu. Brynhildur var heiðursfélagi félag- anna. Við kveðjum Bryn- hildi með þökk fyrir unnin störf og frábæra kynningu. Þórey Guðmundsdóttir, fyrrverandi formaður og Geirlaug Þorvaldsdóttir, núverandi formaður Félags háskólakvenna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.