Morgunblaðið - 06.07.2007, Side 40
Ég vil afsaka atvikið
með regnhlífina. Ég
var að undirbúa mig fyrir
hlutverk í kvikmynd … 42
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
HIN góðkunna Dead-útgáfa færir út kvíarnar
þessa dagana. Föstudaginn 6. júlí gefur hún út
svokallaðan mini-cd, eða „dvergdisk“ eins og
blaðamaður kýs að kalla fyrirbærið. Samdægurs
verður jafnframt opnuð ný Dead-verslun við
Laugaveg 29. Á fyrrnefndri hljómskífu getur að
heyra frumraun nýstofnaðrar hljómsveitar, The
Way Down, en platan kallast hinu ögrandi nafni
See You in Hell. Ari Eldon Jónsson fer þar
fremstur í flokki; „en auk mín eru í hljómsveitinni
Magnús Þorsteinsson sem spilar á trommur, og
Riina Finnsdóttir á gítar.“
Þreyttur á prog-rokki
„Hljómsveitin er stofnuð í kringum þessa plötu
og til þess að fylgja henni eftir. Það er ekki mjög
djúpt plott á bak við þetta allt saman,“ heldur Ari
áfram. „Svo ætlum við bara að reyna að gera eins
margar plötur og við getum. Ætlunin er einnig að
halda útgáfutónleika í byrjun ágúst.“
Spurður út í það hvernig músíkin hljómi stend-
ur ekki á svörum: „Þetta er popp í sem allra ein-
faldastri mynd. Markmiðið var að hafa einfald-
leikann að leiðarljósi. Ég nenni ekki lengur að
spila framsækna tónlist, lög sem eru lágmark sex
mínútur og með kafla- og taktskiptum og svona.“
Ýmislegt mallar í potti Dead
„Þetta er komið til að vera hjá okkur,“ fullyrðir
Jón Sæmundur, eigandi Dead-útgáfunnar, um
hina nýju og víkkuðu útgáfustarfsemi. „Þegar við
verðum búin að selja nokkra diska af nýju plöt-
unni höldum við bara áfram; ég er til að mynda
með ákveðna myndlistartengda útgáfu í huga. Þú
getur kallað það fyrirbæri hljómsveit en kannski
væri betra að kalla þetta svona performansa-
tónleika.“
„Annars erum við opnir fyrir öllu. Hljómsveitir
geta haft samband við Dead og komið með demó í
búðina.“ Og Jón bætir svo við: „En þetta snýst
ekki bara um útgáfuna. Bönd eru kannski að fara í
túr og vilja gera, segjum einhverja tuttugu boli, –
þá reddum við því einnig.“
Þetta er því að stórum þætti hugsjónastarf hjá
Dead-útgáfunni. Þannig segir líka í broti úr
stefnuyfirlýsingu hins nýstofnaða plötuarms
hennar: „Eina markmiðið er að finna eða fram-
leiða góða tónlist og gefa hana sjálfstætt út, sem
söluvöru í Dead-búðinni og annars staðar. Mein-
ingin er að láta reyna á þá trú að við höfum allt
sem til þarf til þess að gera góðar og eigulegar
plötur án þess að leggja út í risakostnað og að
slíkar plötur þurfi síðan ekki að selja á okurverði.“
Hittumst í helvíti
Ljósmynd/Davíð Arnar Runólfsson
Leiðin niður The Way Down með Ara Eldon Jónsson og Riinu Finnsdóttur í broddi fylkingar. Hljómsveitin leikur einfalt popp enda þreytt á framsækni.
Fatamerkið Dead færir út kvíarnar og gefur út sveitina The Way Down
http://www.myspace.com/thewaydownspace
www.dead.is
Ríó voru Lenny Kravitz, Macy
Gray og Pharrell Williams auk
brasilískra tónlistarmanna. Fyrstu
tónar Live Earth verða slegnir í
Sydney í Ástralíu á morgun en svo
taka við borgirnar Tókýó,
Sjanghæ, Jóhannesarborg, Ham-
borg, London og nú New York þar
sem ekki verður af tónleikunum í
Ríó.
Þriðja borgin sem fellur út
Á tíma stóð til að níundu og tí-
undu tónleikarnir færu fram í
Reykjavík og Istanbúl en samn-
ingar náðust ekki milli tónleika-
haldara og yfirvalda í löndunum.
SUÐUR-Ameríkuhluta heimstón-
leikanna Live Earth hefur verið af-
lýst eftir að dómari í Rio de Ja-
neiro úrskurðaði að borgaryfirvöld
gætu ekki mætt kröfum um örygg-
isgæslu á tónleikunum. Lögreglan
í borginni hafði áður tilkynnt að
hún hefði ekki mannskap til að
gæta tónleikagesta á útitónleikum
á Copacabana-ströndinni.
Live Earth hefst í Sydney
Aðstandendur tónleikanna hafa
sagt að þeir muni gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að af tón-
leikunum geti orðið. Á meðal
þeirra sem áttu að koma fram í
Engir Live Earth-
tónleikar í Ríó
Associated Press
Aflýst Lenny Kravitz var á meðal
þeirra hljómlistamanna sem áttu að
spila á tónleikunum í Ríó.
Associated Press
Copacabana Á þessari frægu baðströnd hafa oft verið haldnir stórir tón-
leikar. Strandgestir verða þó að láta sér sjávarniðinn nægja að þessu sinni.
Hljómsveitirnar Changer, Boot-
legs, I Adapt og Trassar leiða sam-
an rokkhesta sína og halda stór-
tónleika á Gauknum í kvöld. Það er
ekki á hverjum degi sem svo öflug-
ar hljómsveitir koma saman á einni
kvöldstund. Tónleikarnir hefjast kl.
23 og það kostar 1.000 krónur inn.
Þungarokk á Gauknum
Ef frá eru taldir Sigmund, Hall-
dór Baldurs og Hugleikur Dagsson
eru myndasöguhöfundar á Íslandi
nánast „incognito“. Einhverra
hluta vegna eru myndasögur – sem
annars staðar í veröldinni eru tald-
ar hámenningarleg fyrirbrigði –
ekki hátt skrifaðar af ráðandi öfl-
um íslensks menningarlífs og er
það miður.
Það skýtur því ekki skökku við
að eina íslenska myndasögublaðinu
sem komið hefur reglulega út frá
1996 er stýrt af Frakka, Jean Anton
Posocco. Nýjasta tölublað Neo-
Bleks er komið út, en blaðið er 60
bls. og í því eru viðtöl og myndasög-
ur. Það fæst bæði í Nexus og hjá
Froski útgáfu.
Nýjasta tölublað
Neo-Bleks komið út
Hálf-íslenski leikstjórinn Vito
Rocco leitar eftir stuðningi á My-
Space þar sem hann keppir við tvo
aðra leikstjóra um fjármagn fyrir
næsta leikstjórnarverkefni sitt Fa-
intheart sem verður gamanmynd
og gerist á meðal fólks sem klæðir
sig upp í víkingabúninga. MySpace
býðst til að fjármagna þá kvikmynd
sem hlýtur flest atkvæði. Hver not-
enda MySpace getur greitt atkvæði
einu sinni á dag á vefslóðinni my-
space.com/mymoviemashup en at-
kvæðagreiðslunni lýkur á mánu-
daginn.
Hálf-íslenskur leikstjóri
keppir á MySpace