Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 06.07.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 41 Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 7. júlí kl. 12.00: Karel Paukert, orgel 8. júlí kl. 20.00: Hinn virti orgelleikari Karel Paukert, leikur verk eftir Bach, Liszt, Franck og frumflytur verk eftir Tékkann Jiri Teml. www.listvinafelag.is Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu! Miðasala á netinu! www.leikhusid.is SÝNINGAR Á SÖGULOFTI MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson 13/7 kl. 20 uppselt,14/7 kl 15 laus sæti, 14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 laus sæti, 12/8 kl. 20 laus sæti, 18/8 kl. 20 laus sæti, 19/8 kl. 20 laus sæti, 25/8 kl. 20 laus sæti, 26/8 kl. 20, 30/8 kl. 20 laus sæti, 31/8 kl. 20 laus sæti Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningu Leikhústilboð í mat: Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600 Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200 Miða- og borðapantanir í síma 437 1600 Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is         Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Raddirnar þeirra eru ótrú-legar. Ég trúði ekki mín-um eigin eyrum þegar égheyrði þá syngja,“ segir Kristjana Stefánsdóttir söngkona. Hverjir eru það sem fá þvílíkt hrós frá einni bestu söngkonu landsins? Jú, það er hin nýstofnaða Luxor, fimm manna sveit sem Kristjana og Einar Bárðarson settu saman eftir áheyrnarpufur fyrr á árinu. Nú hefur sem sagt verið kunn- gjört hverjir fimmmenningarnir með gullraddirnar eru sem náðu eyrum þeirra Einars og Kristjönu umfram tugi stráka sem þreyttu áheyrnarprufurnar. Luxor-menn eru Rúnar Kristinn Rúnarsson, Heimir Bjarni Ingimarsson, Arnar Jónsson, Edgar Smári Atlason og Sigursveinn Þór Árnason, kallaður Svenni. „Valið var í raun frekar erfitt vegna fjölda hæfileikaríkra ein- staklinga sem mættu í prufurnar,“ sagði Kristjana sem sá um valið ásamt Einari. „Við vorum í raun alveg bit yfir því hvað landið býr yfir miklum sönghæfileikum. Við áttum ekki von á þessu.“ „Allt jákvætt í kringum þá“ Hún segir þau ekki hafa haft fast- mótaða skoðun á því í upphafi hverju þau væru nákvæmlega að leita að í fari strákanna þótt góð söngrödd lægi valinu vissulega til grundvallar. „Nei það réðst eiginlega í pruf- unum í hvaða átt við færum með þá. Það kom svo hægt og rólega hvern- ig þeir yrðu endanlega sem hópur,“ segir Kristjana. Hún bætir við að strákarnir fimm hafi ekki síður ver- ið valdir sem hluti af heild en einir og sér. „Þetta urðu auðvitað að vera strákar sem geta unnið vel saman. Svo hafa þeir rosalega góða fram- komu og eru aðlaðandi og skemmti- legir strákar.“ Kristjana verður listrænn stjórn- andi Luxor en starf hennar felst í því að þjálfa raddir strákanna og auk þess útsetja lög þeirra að ein- hverju leyti. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson kemur til með að stjórna upptökum ásamt Vigni Snæ Vigfússyni. Kristjana segir þau reyna að leita ekki til erlendra fyrirmynda við uppbyggingu sveitarinnar. „Það getur verið að strákarnir eigi eftir að fá á sig alls konar stimpla en það sem ég held að eigi eftir að koma fólki mest á óvart er hvað þeir eru ótrúlega hæfi- leikaríkir söngvarar. Þeir eru allir mjög ólíkir en þeir syngja saman eins og þeir hafi aldrei gert neitt annað. Það er allt jákvætt í kring- um þessa drengi,“ segir Kristjana að lokum, greinilega ánægð með sína menn. Blaðamaður náði sam- bandi við einn fimmta Luxor, áð- urnefndan Svenna, í gær. Honum virtist í mjög fersku minni stundin sem hann frétti að hann yrði með í sveitinni. „Já ég fékk símtal 29. maí minnir mig. Ég var staddur úti í Noregi og beið eftir svari og var auðvitað mjög ánægður að heyra niðurstöðuna,“ sagði Svenni. „Snilldargaurar“ er orðið sem Svenni notar um félaga sína fjóra í sveitinni. „Við smellum alveg rosa- lega vel saman.“ Stífar æfingar munu einkenna næstu vikur og mánuði hjá Luxor enda er plata í bígerð. Hún lítur dagsins ljós hinn 29. október næst- komandi. Landsmenn þurfa þó ekki að bíða svo lengi til að fá að heyra í sveitinni því þeir þreyta frumraun sína í framkomu hinn 17. ágúst. Svenni sagði staðsetningu fyrstu tónleikanna þó ekki alveg komna á hreint. Tónlist sveitarinnar verður að sögn Svenna í rólegri kantinum. „Ætli orðið poppklassík lýsi ekki tónlistinni best,“ segir hann. Frábær sönghópur En hvaðan skyldi nafnið Luxor koma? „Við sátum allir saman og vorum að ræða hugsanlegt nafn á sveitina. Sjónvarpið mitt er svo af tegundinni Luxor og það fannst okkur fyndið. Það var svo bara ákveðið,“ segir Svenni. Aðspurður hvaða merkingu þeir fimmmenningar leggi í orðið Luxor stendur ekki á svari: „Frábær sönghópur,“ segir Svenni. Kristjana er greinilega á sama máli því hennar svar við sömu spurningu var: „Lúxuspiltar.“ Svenni sagðist vona að viðtök- urnar við fyrsta íslenska drengja- bandinu yrðu góðar. „Það verður sprengja, eigum við ekki bara að segja það,“ segir hann og hlær en bætir svo við: „Þetta er annars mjög fágað sem við erum að gera og þetta er alls ekki grín hjá okkur.“ Nefndir eftir sjónvarpstæki Morgunblaðið/Sverrir Snilldargaurar Stífar æfingar koma til með að einkenna næstu vikur og mánuði hjá Luxor enda er plata í bígerð sem líta mun dagsins ljós 29. október n.k. Ljósmynd/Sigurjón Ragnar Hressir ,,Við smellum alveg rosalega vel saman,“ segir Sigursveinn Þór um söngfélaga sína í Lúxor. Söngsveitin Luxor gerð opinber

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.