Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 45 / AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. EVAN ALMIGHTY kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ DIE HARD 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS ÁSTIN ER BLIND HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT? eee S.V. MBL. "LÍFLEG SUMAR- SKEMMTUN" eee L.I.B. TOPP5.IS tv - kvikmyndir.is eee LIB, Topp5.is eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. WWW.SAMBIO.IS MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI BLIND DATING kl. 8 - 10:10 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ Það var hellirigning og ilm-andi leðja sem tók á mótimér þegar ég mætti á Hró- arskeldutónlistarhátíðina í Dan- mörku um miðjan dag í gær. Rignt hafði á svæðinu í nokkra daga en hámarkinu var víst náð í gær enda líklega erfitt að toppa aðra eins skúr og dundi á tónleikagestum þá. Gestir byrjuðu líka að mæta á svæð- ið síðastliðinn sunnudag og því hafði gefist góður tími til að hræra upp í forarleðjunni sem var það mikil að venjuleg gúmmístígvél og 66°c norður regngalli dugðu ekki til að halda sér þurrum og hreinum og erfitt var að komast áfram í leðj- unni, aðallega spólað í sömu spor- unum. Ekki var laust við að mikillar til- hlökkunar gætti hjá mér í gær- kvöld enda áttu Arcade Fire, The Killers og hún Björk okkar að koma fram en eins og gefur að skilja setti veðrið strik í reikninginn. Arcade Fire lék í Arena-tjaldinu mörgum til furðu enda hljómsveit af slíkri stærðargráðu að hún ætti fremur heima á stærsta sviðinu sem nefnist Orange. En bandið lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að fá ekki stærsta sviðið. Flest lögin sem óm- uðu má finna á nýjasta diski þeirra, Neon Bible. Ekki get ég sagt að tón- leikar Arcade Fire hafi verið eft- irminnilegir þó svo að þeir brygð- ust ekki aðdáendum sínum, líklega spilaði það inn í að ég stóð fyrir ut- an tjaldið í hálfgerðu ræsi. Merki- legt þótti mér samt að sjá að 10-11 (búðar) fáni sást blakta í áhorf- endahópnum, spurning hverjir veif- uðu honum.    The Killers tók svo til leiksklukkan átta og þá var dansað í rigningunni, þvílík frammistaða! Auðvitað voru lögin af Sam’s Town í meirihluta en aðrir eldri smellir heyrðust líka. Brandon Flowers var svo flottur á sviðinu að rigningin og drullan gleymdust um tíma og stemningin magnaðist. En svo lauk tónleikunum og rennblautur raun- veruleikinn tók aftur við. Ég varð m.a. vitni að því að stúlka gekk ber- fætt um svæðið og maður lét sig detta í drulluna sér til skemmtunar, ég var hins vegar farin að kvíða því að tjalda í þessum viðbjóði enda hafði ég hvorki séð né heyrt af tjaldi sem var þurrt að innan á svæðinu. Björk lauk síðan fimmtudags- kvöldinu með stæl og þyrptust aðdáendurnir að henni þrátt fyrir veðurhaminn, en veðrinu hafði ekki enn slotað þegar leið á kvöldið. Þar sem ég var orðin blaut í gegn og með drulluna upp á mið læri ákvað ég að slútta kvöldinu í byrjun Bjarkartónleikanna og leita á náðir vina í Kaupmannahöfn enda ekki þurr þráður á mér. Björk náði ekki að yfirbuga hugsunina um heita sturtu og þurrt rúm. Hróarskelda er rétt að byrja, veðrið á víst að batna og tónlist margra góðra tónlistarmanna framundan svo maður lætur ekki smáleðju setja strik í reikninginn. Í hellirigningu og ilmandi leðju »Ég varð m.a. vitni að því að stúlka gekk berfætt um svæðið og maður lét sig detta í drulluna sér til skemmtunar … Forarsvað Þúsundir tónlistaráhugamanna vaða leðjuna uppí hné á Hróarskelduhátíðinni. Menn reyna þó að láta veðrið ekki á sig fá og ösla skítinn á milli hljómleikatjalda. ingveldur@mbl.is AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir Morgunblaðið/Ingveldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.