Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
REYKVÍKINGAR hafa notið mikillar veðurblíðu
síðustu vikur, svo mikillar að mörgum hefur þótt
nóg um og beðið veðurguðina um svolitla vætu.
Þeim varð að ósk sinni í gær þegar hellirigndi í
höfuðborginni.
Þessi kona lét rigninguna ekki á sig fá og hjól-
aði ótrauð út í Gróttu, en þar í kring eru góðir
hjólastígar, fallegt umhverfi og fuglalíf. Gróttu
er lokað snemmsumars á hverju ári til þess að
varpfuglar fái frið til að liggja á eggjum og
koma upp ungum, en þar fyrir utan þarf fólk að
gæta sín á sjávarföllum til þess að lokast ekki úti
í eynni. Í dag er óhætt að vera þar frá því uppúr
tvö til sex og njóta fegurðarinnar og kyrrð-
arinnar, sama hvernig viðrar.
Morgunblaðið/Frikki
Síðdegisskúr eftir langan blíðviðriskafla
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
HEIÐAR Helguson knattspyrnu-
maður skrifaði í gær undir þriggja
ára samning við enska úrvalsdeild-
arliðið Bolton og
kom ákvörðun
Heiðars mörgum
á óvart. Enskir
fjölmiðlar hafa á
undanförnum
vikum leitt að því
líkur að Heiðar
myndi fara til
síns gamla félags,
Watford, sem
leikur í 1. deild á
næstu leiktíð, en
Heiðar átti eftir tvö ár af samningi
sínum við úrvalsdeildarliðið Ful-
ham.
Bolton greiðir tæplega 160 millj.
kr. fyrir Heiðar en hann hafnaði á
dögunum tilboði frá fyrstudeildar-
liðinu WBA sem er frá Birmingham.
Ekkert frést
„Þetta kemur vafalaust mörgum á
óvart að ég skuli vera kominn til
Bolton enda hefur ekkert frést af
þessu. En ég er afar ánægður með
þessa niðurstöðu og ég lít á skiptin
sem stórt skref upp á við fyrir mig.
Það var alltaf vilji hjá mér til að
vera áfram í úrvalsdeildinni og það
verður spennandi að spila fyrir Bolt-
on,“ sagði Heiðar í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Heiðar er þrítugur að aldri og
verður hann fjórði Íslendingurinn til
þess að leika með aðalliði Bolton,
hinir eru Arnar Gunnlaugsson, Eið-
ur Smári Guðjohnsen og Guðni
Bergsson. Heiðar hefur verið at-
vinnumaður frá árinu 1998 er hann
gekk í raðir norska liðsins Lille-
ström frá Þrótti í Reykjavík. Wat-
ford keypti hann árið 2000.| Íþróttir
„Stórt
skref upp
á við“
Heiðar Helguson
leikur með Bolton.
Heiðar Helguson
samdi við Bolton
„ÞAÐ ER á ögurstundu að fólk trúir
því að friðarumleitanir skili því ein-
hverjum árangri, einhverjum betri
lífskjörum og einhverjum möguleik-
um til framtíðar,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
í samtali við ríkissjónvarpið í gær-
kvöldi eftir að hafa fundað með pal-
estínskum ráðamönnum. Morgun-
blaðið náði ekki sambandi við
ráðherrann í gærkvöldi.
Ingibjörg Sólrún heimsækir þessa
dagana Ísrael, Palestínu og Jórdan-
íu.
Hún hitti í gær forsætisráðherra
palestínsku bráðabirgðastjórnarinn-
ar, Salam Fayyad, og forseta lands-
ins, Mahmoud Abbas. Hún heimsótti
einnig læknamiðstöð og átti fund
með þingkonunni Hanan Ashrawi.
Ingibjörg Sólrún segist hafa heyrt
það bæði hjá ráðamönnum í Ísrael
og Palestínu að nú sé tækifæri til
friðarumræðna, því tíminn sé að
hlaupa frá ráðamönnum beggja
þjóða. Málin séu komin í algert öng-
stræti, því mikil pólitísk, efnahags-
leg og félagsleg kreppa sé í Palest-
ínu og Ísraelsmenn eigi engra kosta
völ nema að semja við bráðabirgða-
stjórnina. Annars blasi alger upp-
lausn við með tilheyrandi hættu á
hryðjuverkum.
Varðar öryggi fólks alls staðar
í hinum vestræna heimi
Hún segir það hafa komið sér í
opna skjöldu þegar ísraelskir þing-
menn stungu upp á því að Íslend-
ingar tækju við því hlutverki sem
Norðmenn gegndu í friðarviðræðum
þjóðanna á milli. „Ég skal ekkert um
það segja hvort við getum gert það,
en ef það er möguleiki þá eigum við
að gera það, vegna þess að þetta
varðar ekki bara stöðu fólks hér í
landinu og samúð okkar með því,
heldur öryggi fólks alls staðar í hin-
um vestræna heimi.“
Ingibjörg Sólrún verður í Jerúsal-
em í dag, þar sem hún heimsækir
meðal annars Aida-flóttamannabúð-
irnar og ræðir við leiðtoga úr hópi
ísraelskra og palestínskra kvenna.
Ingibjörg Sólrún segir
ögurstund vera runna upp
Fundur Ingibjörg Sólrún ræddi í gær við Abbas, forseta Palestínu.
Umleitanir Ísraela
komu utanríkisráð-
herra í opna skjöldu
FÍKNIEFNABROTUM fækkar í júní miðað við
sama tímabil á undanförnum tveimur árum.
Fækkun milli ára er um 22%, að því er kemur
fram í bráðabirgðatölum afbrotatölfræði embætt-
is ríkislögreglustjóra fyrir júnímánuð.
Þar kemur jafnframt fram að í ár hafi færri
hegningarlagabrot verið skráð í málaskrá lögregl-
unnar en í fyrra og árin 2003 og 2004, en heldur
fleiri brot voru skráð í júní árið 2005. Mest jukust
brot á umferðarlögum og helstu skýringar á því
eru aukið eftirlit lögreglu, lækkun vikmarka og
fjölgun bifreiða. Umferðarlagabrot hafa ekki ver-
ið fleiri undanfarin fimm ár.
Fjölgun brota gegn valdstjórn
Lögreglan bendir sérstaklega á þróun brota
gegn valdstjórninni. Í janúar sl. voru framin sex-
tán slík brot en með vorinu og fram á sumar hefur
brotum fjölgað og voru þau í júní alls þrjátíu.
Bendir lögreglan á að refsirammi brota gegn
valdstjórn hafi nýlega verið hækkaður úr sex ára
fangelsi í átta ár.
Þá er einnig komið inn á að sífellt fjölgi öku-
mönnum sem aki undir áhrifum fíkniefna. Þannig
voru sextán ökumenn kærðir í janúar en 61 öku-
maður í júnímánuði. Aukið eftirlit er meginskýr-
ingin en reynsla er enn að komast á breytingu um-
ferðarlaga þar sem miðað er við „ekkert
umburðarlyndi“ þegar kemur að fíkniefnanotkun
og akstri ökutækja.
Fíkniefnabrotum fækkaði milli ára
Færri hegningarlagabrot skráð í málaskrá lögreglu í júní en í sama mánuði
í fyrra, árið 2003 og 2004. Fækkunin er um 22% miðað við árið 2006
Leit 61 var kærður fyrir að aka und-
ir áhrifum fíkniefna í júnímánuði.
♦♦♦
ENGAN sakaði þegar eldur kvikn-
aði í potti í Hafnarfirði í fyrra-
kvöld. Húsmóðir þurfti að bregða
sér frá matargerðinni yfir í næsta
herbergi en á örskotsstundu gaus
eldur upp í eldhúsinu. Heimilis-
manni tókst að ráða niðurlögum
eldsins með handslökkvitæki og
koma í veg fyrir stórtjón. Mikill
reykur mætti lögreglu og slökkvi-
liði á vettvangi, en heimilisfólki
hafði tekist að koma sér út af
sjálfsdáðum. Nokkrar skemmdir
urðu á eldhúsinnréttingu en um-
fang reykskemmda er óljóst.
Eldur í
eldhúsinu