Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Guðbjörg ÓskGunnarsdóttir fæddist í Miðbæ í Haukadal í Dýra- firði 7. febrúar 1954. Hún lést á heimili sínu að kvöldi þriðjudagsins 10. júlí síðastliðins. For- eldrar hennar voru Gunnar Einarsson, bóndi og sjómaður í Dýrafirði, f. 13. júlí 1905, d. 23. maí 1984 og Unnur Þórarins- dóttir húsmóðir og fiskverkakona í Dýrafirði, f. 13. maí 1919, d. 27. febrúar 2003. Þau bjuggu í Miðbæ í Haukadal í Dýra- firði og eignuðust 13 börn. Þau eru Katrín Jóna, f. 25. september 1933, Ragna Halldórsdóttir (ættleidd), f. 19. mars 1935, d. 21. maí 1993, Ól- ína Guðrún, f. 22. mars 1937, d. 24. júní 2005, Ingibjörg Ólafía, f. 1. júní 1938, Erla Ebba, f. 31. júlí 1939, Garðar Rafn, f. 1. september 1941, d. 19. janúar 1966, Einar Halldóra Dögg Hjörleifsdóttir, f. 27.8. 1979, sambýlismaður Jón Emil Svanbergsson, f. 11.7. 1976, börn þeirra eru Svanlaugur Atli Emilsson, f. 15.2. 1998 og Tanja Lilja Emilsdóttir, f. 11.2. 2002. 3) Þorsteinn Óskar Þorsteinsson, f. 4.3. 1987, unnusta Maria Kuz- menko Alexandersdóttir, f. 6.4. 1988. Stjúpbörn Guðbjargar eru tvö: 1) Hafþór Hafsteinsson, f. 3.1. 1966, kvæntur Hjördísi Líney Pét- ursdóttur, f. 17.4. 1972, synir þeirra eru Andri Pétur Hafþórs- son, f. 21.8. 1998 og Arnar Hugi Hafþórsson, f. 3.8. 2006. 2) Íris Mjöll Hafsteinsdóttir, f. 10.10. 1970, sambýlismaður Ríkarður Sigmundsson, f. 26.2. 1972, dætur þeirra eru Lilja Karen Þrast- ardóttir, f. 22.9. 1989, Silja Rut Ríkarðsdóttir, f. 3.2. 2004 og Arna Rakel Ríkarðsdóttir, f. 18.4. 2005. Guðbjörg fór ung að heiman og vann til margra ára á veitinga- staðnum Múlakaffi, í ein 21 ár, en þaðan minnast hennar margir. Síð- an í Tindaseli, sambýli fyrir fatl- aða. Síðustu 6 árin vann hún í mötuneyti B.M. Vallár. Útför Guðbjargar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkju- garði. Gísli, f. 5. janúar 1944, Sigurður Þór- arinn, 12. mars 1945, Una Hlín, f. 1. októ- ber 1947, Guðberg Kristján, f. 28. mars 1949, Jónína Sig- urborg, 16. ágúst 1952, Guðbjörg Ósk, 7. febrúar 1954, d. 10. júlí 2007 og Höskuld- ur Brynjar, f. 8. mars 1959. Guðbjörg giftist í Haukadal í Dýrafirði hinn 15. júlí 2006 Haf- steini Bergmann Sigurðssyni, f. 7. ágúst 1943. Móðir hans er Ingveld- ur Magnúsdóttir, f. 18.4. 1919 og stjúpfaðir Ágúst Herbert Péturs- son, f. 14.9. 1916. Guðbjörg átti þrjú börn. Þau eru: 1) Gunnar Ragnar Hjartarson, f. 21.1. 1976, sambýliskona Þorbjörg Guð- mundsdóttir, f. 24.1. 1973, synir þeirra eru Þorgrímur Magni Sveinsson, f. 15.6. 1994 og Guðberg Ólafur Gunnarsson, f. 6.11. 2005. 2) Kveðja frá eiginmanni. Englarnir í himnaríki að Gullnu hliði gæta, því Guðbjörg Ósk til dvalar þar er tilbúin að mæta. Hún hefur góðar væntingar um heimkomuna hlýja og hlakkar til að starfa á vettvanginum nýja. Í Haukadal í Dýrafirði átti hún æskusporin eltist þar við lambærnar í móunum á vorin. Skömmu eftir fermingu flutti hún að heiman, en fegurðinni vestfirsku aldrei tókst að gleyma. Út á vinnumarkaðinn sem unglingur hún sótti og ákaflega duglegur starfsmaður hún þótti. Gestirnir í Múlakaffi fljótir voru að finna að fúslega hún Guðbjörg öllum vildi sinna. Næstum aldarfjórðung þar undi hún sínum högum (það er ákaflega sjaldgæft í vinnu nú á dögum). Og starfsfólk BM Vallár störfin hennar metur, þar stóð hún meðan stætt var, þangað til í vetur. Vel að sinni fjölskyldu gætti Guðbjörg líka já, gæfa var það börnunum að eiga móður slíka sem umvafði þau hlýju, hlustaði og skildi og heimilinu stýrði með umhyggju og mildi. Barnabörnin níu sem ömmu sáran sakna, af sælum ljúfum draumi á morgnana hér vakna Þar birtist hún þeim frískleg og faðmar vel og lengi fallegustu hnátur og þæga ömmudrengi. Ég trúi að hún sendi mér sólargeisla hlýja og sé á englavaktinni í dvalarstaðnum nýja. Að halda áfram einsamall, það er þyngsta þrautin en þó er mikil huggun hve ljúf var ævibrautin. Ég sakna þess að fá ekki að faðma hana lengur en finn að aldrei nokkurn tíma slitnar þessi strengur sem tengir saman ástvini óháð tíma og rúmi og ylinn veita minningar, þó um stund nú húmi. Guðbjörg hefur lokakafla í lífsbókina skrifað, þó lengur hér á jörðinni hún hefði viljað lifa. Hjá englunum á himnum endurnýjast kraftur, þar ætlar hún svo sannarlega að hitta okkur aftur. (UH) Þín er sárt saknað, þinn Hafsteinn. Elsku mamma, hve ég sakna þín mikið. Þú sem varst alltaf mín stoð og stytta, minn kennari og besti vinur. Alveg frá upphafi til fullorðinsára höf- um við gert allt saman. Þú kenndir mér að labba, hlaupa, tala, syngja, hjóla og jafnvel að sparka bolta. Þú kenndir mér líka umburðarlyndi og manngæsku, sem þú ljómaðir af alla þína ævi, alveg fram á síðasta dag. Enda held ég að hún hafi líka end- urspeglast í matseld þinni. Margir matreiðslumeistararnir myndu gefa mikið fyrir snilli þína við eldavélina og eins og margir vita er ég lifandi sönn- un þess hve maturinn þinn var góður. Ég verð þér ævinlega þakklátur fyrir þá ást og umhyggju sem þú gafst mér. Þvílík hetja sem þú varst, ein kona með þrjú börn og aldrei skorti mann neitt. Þú varst mamma, þú varst pabbi, vinur og átrúnaðar- goðið mitt. Ég vona svo sannarlega að þú getir litið á mig og verið stolt af sköpunarverki þínu, því ég mun alltaf reyna að lifa undir þínum merkjum, því það er alltaf betra að elska en að hata. Þú elskaðir alltaf alla, sást alltaf það jákvæða í öllum og gerðir aldrei upp á milli neinna. Elsku mamma, ég vona að þér líði vel og ég veit að þú átt eftir að passa okkur öll. Takk fyrir að hafa verið til! Með miklum söknuði, þinn sonur að eilífu Gunnar Ragnar. Elsku besta mamma mín. Nú ertu farin úr lífi okkar en lifir í hjarta okkar með yndisleg margar minningar. Þú varst svo hugrökk og dugleg í veikindum þínum og barðist hetjulega við þennan ógnvekjandi sjúkdóm og svo sterk huggaðir þú okkur hin. Þegar ég hugsa um mömmu mína dettur mér bara allt það besta og góða í hug og ég fyllist stolti af að hafa verið dóttir þín og barnabörnin þín höfðu notið þeirra forréttinda að eiga ömmu Guggu faðm því amma Gugga gat gert allt. Elsku mamma mín, mig langar til að þakka þér fyrir að hafa gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Þú varst ekki bara yndisleg mamma og amma heldur líka besti vinur í raun og alltaf á bakvakt fyrir alla því hjálp- semin og góðsemdin skein úr augun- um þínum. Engin nema mamma gat búið til ástríkt heimili og fjölskyldu úr hóp ósamstæðra einstaklinga. Takk fyrir okkur, mamma mín. Guð geymi þig. Ástar- og saknaðar- kveðja. Þín dóttir, Halldóra Dögg. Elsku Gugga, þú fórst fyrr en við áttum von á. Alltaf heldur maður í einfeldni sinni að það sé aðeins meiri tími. Það er skrítin tilfinning að koma í Stararimann að hitta pabba, börnin og barnabörnin ykkar, fjölskyldu og vini og þú ert ekki þar að stjana í kringum alla. Við erum samt öll hand- viss um að þú sért með okkur öllum um ókomna tíð og passir upp á okkur. Hvíldin er komin, það hefði ekki verið þú að vera veik í lengri tíma og geta ekki sinnt þínum nánustu og heim- ilisgestum. Dugnaðurinn og ósér- hlífnin um þína ævi var með ólíkind- um og aldrei kvartaðir þú þrátt fyrir mikla vinnu í gegnum tíðina og miklar þrautir þegar veikindin sóttu að. Þú ert okkur ógleymanleg enda tókstu á móti okkur og drengjunum okkar sem amma þeirra af miklum kærleik frá fyrstu stundu og eru sam- verustundirnar með ykkur pabba okkur kærar sem geymast í minning- unni. Þær hefðu þó mátt vera fleiri og minnir sorglegur missir okkur á að hver stund er dýrmæt með ástvinum. Það var svo sannarlega þér að þakka að ég náði saman við pabba og það var yndislegt þegar þið voruð með okkur við háborðið í brúðkaupinu okkar. Við erum þér ómetanlega þakklát fyrir þann tíma sem þið áttuð saman, voruð og eruð svo sannarlega sálufélagar og var yndislegt að sjá hversu kært var á milli ykkar. Pabbi hefur nú misst sína stoð og styttu, þig sem varst honum allt og leiddir hann styrkri hendi inn í bjartari framtíð eftir erfiða tíma. Börnin þín og barnabörn eru vitn- isburður um hversu frábær mamma og amma þú varst. Missir þeirra er mikill enda óraunverulegt að þú sért farin svo skyndilega. Við stöndum öll saman á erfiðri stundu og hjálpum pabba og fjölskyldunni að komast í gegnum missinn og halda kærri minningu þinni á lofti um alla framtíð. Elsku pabbi, Gunni, Obba, Hall- dóra, Jón Emil og börn, Þorsteinn og María, Guð gefi ykkur styrk. Hafþór, Hjördís, Andri Pétur og Arnar Hugi. Móðir mín Gugga hélt í hendur mínar fyrstu árin en mun halda í hjartað alla ævi. Minningar þínar munu aldrei gleymast en heldur betur geymast. Loksins er núna búin veikin og nú ert það þú sem verður hreykin. Megir þú hvíla í friði og seinna hittumst við aftur hjá hinu Gullna hliði. Elsku mamma, ástar- og saknaðar- kveðja. Þorsteinn Óskar. Þín við söknum, þig við lofum. Þú gafst okkur allt sem þú áttir. Þú vakir nú á meðan við sofum, og varðveitir okkur um draumsins gáttir. Þú ert hér, þar og alls staðar í minningum, sál og líkama. Okkar bestu kosti fram í okkur laðar. Þú, sem okkur ert, vinur, amma og mamma. Þín við söknum, þig við elskum. Þú átt okkur öll. Í minningum okkar þig við frelsum, til að lifa án sjúkdómsins, ógnarköll. Takk fyrir að hafa verið til! Takk fyrir að lifa! Minning þín að eilífu vil í okkar hugum sem lífsins klukka tifa! Til þín við viljum koma og í fangi þínu vera. En langt er ei að sækja í minningarnar sem að eilífu munu lifa! Við eigum stóra draumahöll, þú ert það sem þar býr. Við söknum þín, þú eilífa sýn. Mamma mín, amma mín og það besta sem hér í heimi býr. Minn- ingin er þín! Þín Þorbjörg G., Guðberg Ólafur og Magni. Lífsbók elsku Guggu, yndislegrar mágkonu, systur og frænku er lokað. Síðasti kaflinn í hennar lífi hefur verið skráður og eftir sitjum við lömuð af sorg og eigum bágt með að trúa sorg- legum endi í sögu mikillar hetju. Nú er hún laus við þjáningar og komin í faðm foreldra og systkina, sem tekið hafa á móti henni með útbreiddum faðmi á ókunnri strönd. Guðbjörg Ósk hét hún fullu nafni, var falleg jafnt utan sem innan. Hrein og bein og með gríðarstórt hjarta. Alltaf var hún fyrst til að rétta þeim hjálparhönd sem á þurftu að halda. Mikið og traust samband var á milli okkar. Við áttum svo góðar stundir saman og minningar um þær munum við geyma alla tíð í hjörtum okkar. Fjölskyldan var Guggu mikilvæg. Hún var drifkraftur í stórum systk- inahópi og dáð af systkinabörnunum. Alltaf var gott að koma til hennar. All- ir alltaf velkomnir á fallega heimilið hennar og Hafsteins. Fyrst og fremst var Gugga falleg og góð móðir og amma. Börnin hennar voru henni allt. Fyrir þau lifði hún og var þeirra besti vinur. Hún studdi þau og hvatti og tók virkan þátt í þeirra lífi. Eina huggun okkar sem eftir erum er að nú er hún laus við miklar þjáningar og að hún hefur fengið góðar móttökur ástvina sinna. Sagan hennar lifir meðal okkar og heldur áfram að breiða út boðskap sinn. Við erum betri manneskjur eftir að hafa þekkt og umgengist Guggu. Við höfum lært af henni hvað virki- lega skiptir máli í lífinu. Elsku Haf- steinn, mundu að þú grætur vegna þess sem var gleði þín, kærleikur og ást. Guð gefi þér styrk til að halda áfram, elsku vinur. Elskulegu börn, tengdabörn og barnabörn. Tíminn sem þið áttuð með mömmu ykkar, tengdamömmu og ömmu er dýrmætur og enn dýrmæt- ari eru nú minningarnar fallegu sem þið eigið. Hún gaf ykkur gott vega- nesti út í lífið og við vitum að hún mun halda áfram að vaka yfir ykkur og vernda. Kæru ættingjar og vinir, góð- ur Guð styrki ykkur öll og blessi minningu um góða konu, Guðbjörgu Ósk Gunnarsdóttur. Ástvinir munu þér aldrei gleyma,meðan ævisól þeirra skín.Þú horfin ert burt til betri heima.Blessuð sé minning þín. (Theodór Einarsson) Hinsta kveðja Ólafía, Kristján og fjölskylda. Elskuleg mágkona mín, hún Gugga, er látin langt um aldur fram. Ég kynntist henni fyrir nokkrum ár- um þegar bróðir minn kom með hana í heimsókn til mín norður á Akureyri. Um leið og ég tók í hönd hennar og heilsaði fann ég strax að þar fór traust og trygglynd kona. Já það var ein mesta gæfa bróður míns, hans Hafsteins, að kynnast henni Guggu sinni. Það var einhvern veginn eins og hún hefði alla tíð verið í þessari fjöl- skyldu. Strax bast hún foreldrum mínum sterkum böndum, aldraður faðir minn, sem var orðinn lúinn og lasburða, átti góða velgjörðarkonu þar sem Gugga var og síðari árin var hún styrkasta stoðin hennar móður minnar og hefði ég viljað getað þakk- að henni það betur. Í u.þ.b. eitt ár hefur Gugga mín barist við illvígan sjúkdóm og hafa börnin hennar og Hafsteinn verið hennar styrkur í veikindunum. Já ég segi börnin hennar, það fann ég að þau voru gullmolarnir í lífi hennar. Því ein var hún lengi vel með börnin sín þrjú, en dugnaður og seigla var hennar aðalsmerki og öll eru þau frá- bærir einstaklingar, hún gat verið stolt af lífsstarfi sínu þótt það væri allt of stutt. Í september sl. komum við systkinin og afkomendur saman í tilefni af því að faðir minn hefði orðið 90 ára, þá var Gugga orðin veik og maður ýtti undir það að hún tæki því rólega í undirbúningnum. En það var nú ekki aldeilis það sem hún vildi, fyr- ir Hafstein sinn skyldi hún standa í stykkinu. Fyrir rétt um ári hittust Gugga og hennar ættingjar fyrir vestan, á ætt- arsetri hennar í Dýrafirði. Öllum að óvörum varð messan að brúðkaupi, þar sem hún og Hafsteinn gengu í hjónaband, ég hitti þau stuttu síðar og gleðin ljómaði af henni er hún sagði mér og manninum mínum frá þessari stóru stund í lífi þeirra og eins hvað einfaldlega gekk vel að leyna þessu fyrir fólkinu. Ekki veit ég hvort hana grunaði hve stutt væri eftir af lífsgöngunni en eitt er víst að þrátt fyrir mikið heilsuleysi dreif hún sig snemma í sumar í ferð með eigin- manni og börnum til Danmerkur og naut þess mjög vel, ennfremur fór hún ferð á æskustöðvarnar sem henni þótti alla tíð mjög vænt um. Síðustu mánuðir hafa markast af meðferðum af ýmsum toga og veit maður að oft komu erfiðir tímar ef allt gekk ekki upp en þá kom enn og aftur þraut- seigja þessarar vestfirsku kjarna- konu í ljós. En að lokum var þessari baráttu lokið í faðmi eiginmanns og Unu systur hennar. Elsku bróðir minn, Gunnar, Hall- dóra, Þorsteinn, Hafþór, Íris, makar ykkar og litlu ömmubörnin, Guð styrki ykkur í sorginni. Elsku Gugga mín, þín leið er inn í ljósið, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín mágkona Ásgerður. Elsku Gugga frænka mín er nú bú- in að kveðja okkur. Ég minnist nú margra góðra daga með henni, alls staðar sem Gugga var þar var gaman. Fyrstu minningar mínar af Guggu eru í eldhúsinu í Norðurfelli, hún sat við eldhúsborðið með kaffi og spjall- aði við mömmu á meðan mamma prjónaði. Hún ól börnin sín þrjú upp ein og gerði það vel. Alltaf vann hún mikið en Gunni og Halldóra voru oft hjá okkur á meðan Gugga vann. Seinna þegar Þórsteinn Óskar fæddist voru margar stundirnar sem ég man eftir úr Engihjallanum þar sem Gugga kom oft. Mér fannst alveg yndislegt þegar Hafsteinn kom inn í fjölskyld- una. Þau voru svo góð saman og ég sá það strax að með þessum manni yrði nú hún Gugga hamingjusöm. Hún frænka mín gat gert margt og alltaf var hægt að leita til hennar. Það var alveg sama um hvað var spurt. Mér er ofarlega í huga þegar ég hélt upp á 30 ára afmælið mitt. Ég spurði Guggu út í hina ýmsu rétti og áður en ég gat sagt nokkuð var hún búin að ákveða að gera nokkra fyrir mig. Ég fékk ekkert um það að segja. Það eina sem hún vildi í staðinn var að njóta dags- ins með mér. Þegar Gugga og Hafsteinn fluttu svo í fína húsið sitt í Stararima kíkti ég ósjaldan í kaffi. Ég var svo ánægð fyrir þeirra hönd, enda var húsið mjög fallegt. Síðastliðið sumar stóðu Gugga og Hafsteinn öllum að óvörum fyrir ættarmóti. Öllum var safnað saman í stóra tjaldið en mamma hafði spurt mig hvort hún fengi afnot af tjaldvagninum mínum sem ég jánkaði auðvitað. Stuttu seinna kemur prest- ur út úr tjaldvagninum í fullum skrúða og örfáum mínútum síðar renna Gugga og Hafsteinn í hlað uppábúin og fín. Ég sá strax í hvað Guðbjörg Ósk Gunnarsdóttir Það er nú orðið langt síðan við unnum saman í „Dúkn- um“ í Hagkaup, Gugga mín. Þá var oft mikið um að vera, og glatt á hjalla. Þarna myndaðist skemmtilegur hópur, og þú varst „yfir- strumpurinn“ okkar. Svo skildi leiðir. Hver og einn fór að lifa sínu lífi, en stundum hittumst við þó. Þá var alltaf eins og við hefðum hist síðast í gær. Nú kveð ég þig að sinni, vinkona. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Kveðja. Ingunn Guðnadóttir. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.