Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 11 ÚR VERINU Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is NÚ ER unnið að því að hluta í sundur skelfiskveiðiskipið Atlantic Seahunter þar sem það liggur sokk- ið í skipasmíðastöðinni Ching Fú á Taívan. Skipið var þar í smíðum og var stefnt að því að afhenda það eigendum sínum Clearwater Sea- foods í Kanada í haust. Smíði skips- ins var að mestu lokið, þegar verið var að færa það til innan skipa- smíðastöðvarinnar. Það fór þá á hliðina og sökk og hefur verið dæmt ónýtt. Verður skrokkurinn tekinn í brotajárn. Verðmæti smíðasamn- ingsins var um 46 milljónir Kan- adadollara, um 2,6 milljarðar króna, og hefur verið samið um bætur upp á sömu upphæð. Atlantic Seahunter átti að verða fullkomnasta skelfiskveiðiskip heims, sérhæft til veiða á skelfiski (clam). Mörg íslenzk fyrirtæki komu að smíði skipsins, meðal ann- ars Marorka og Naust Marine. Lík- legast er talið að þau muni ekki bíða fjárhagslegt tjón af völdum þessa slyss. Orkustjórunarkerfi frá Marorku Haukur Stefánsson, rekstrar- stjóri Marorku, segir að þeir hafi selt orkustjórnunarkefi um borð í skipið. Sumt af búnaðinum hafi ver- ið komið um borð og hafi verið búið að greiða fyrir það. Eftir standi ým- is vinna, sem unnin hafi verið hér heima. Hann segir að Marorka muni sækja rétt sinn og gerir ráð fyrir því að gert hafi verið ráð fyrir framlagi undirverktaka í trygging- um. Þeir fái því greitt fyrir framlag sitt. Clearwater Seafoods er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Kan- ada með höfuðstöðvar í Halifax á Nova Scotia. Starfsemi fyrirtækis- ins byggist að miklu leyti á skelfiski og er skelin þar mjög mikilvæg. Atl- antic Seahunter átti að verða flagg- skip félagsins á skelveiðunum, búið allri nýjustu og fáanlegri tækni, sem möguleg er. Smíði skipsins hófst árið 2004 og hafði afhendingu þess seinkað nokkuð. Þegar skipið fór á hliðina voru aðeins nokkrar vikur til áætlaðrar afhendingar. Ekki liggur ljóst fyrir hver orsök óhappsins er, en líklega hafa tankar þess ekki verið rétt fylltir. Leita nýs skips Clearwater leitar nú nýs skips til þessara veiða en mikil eftirspurn eftir skipum og skipsskrokkum mun að líkindum valda því að langan tíma taki að gera nýtt skip klárt. Framkvæmdastjóri Clearwater, Colin MacDonald, segir að þetta óhapp muni ekki hafa áhrif á rekst- ur félagsins á þessu ári, enda hafi ekki verið gert ráð fyrir því að skip- ið kæmi inn í reksturinn svo nokkru næmi fyrr en á næsta ári. „Þetta óhapp mun engu að síður seinka þeim vexti sem við höfðum gert ráð fyrir í veiðum og vinnslu á skelinni, sem er um 20% af árlegri veltu.“ Hann segir að seinkunin sé jafn mikil og tíminn sem taki að fá nýtt skip til veiðanna. Fjárfesting í slíku skipi sé enn góður kostur fyrir Clearwater og það sé næsta verk- efnið. Atlantic Seahunter sökk í skipasmíðastöð á Taívan Skipið var í smíðum í Ching Fú Shipbuilding fyrir Clear- water Seafoods í Kanada og átti að afhendast í haust Flutningar Byrjað að flytja skipið milli þurrkvíar og hafnargarðs við skipasmíðastöðina á Taívan með aðstoð dráttarbáta. Óhapp Skipið komið á hliðina og verður nú brytjað niður í brotajárn. Í HNOTSKURN »Mörg íslenzk fyrirtækikomu að smíði skipsins, meðal annarra Marorka og Naust Marine. »Haukur Stefánsson,rekstrarstjóri Marorku, gerir ráð fyrir að fyrirtækið fái greitt fyrir framlag sitt. »Atlantic Seahunter átti aðverða flaggskip Cleawater á skelveiðunum, búið allri nýj- ustu og fáanlegri tækni, sem möguleg er. »Þetta óhapp mun seinkaþeim vexti sem Clearwater hafðigert ráð fyrir í veiðum og vinnslu á skelinni, sem er um 20% af árlegri veltu fyrirtæk- isins. NÆR allur afli Íslendinga úr norsk- íslenzka síldarstofninum í sumar hefur veiðzt innan íslenzku lögsög- unnar. Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu er nú búið að veiða um 58.000 tonn af síldinni, sem er um 39% leyfilegs heildarafla, sem er tæp 150.000 tonn. Góð veiði var á norsk-íslenzkri síld í júní og veiddu íslenzk skip rúmlega 30 þúsund tonn. Þessi afli var að langmestu leyti veiddur á íslenzku hafsvæði eða rúmlega 29 þúsund tonn og afgangurinn var veiddur á færeysku hafsvæði. 40.000 tonn innan lögsögu í fyrra Á síðasta ári veiddu íslenzku skip- in tæplega 157.500 tonn af norsk-ís- lenzku síldinni. Þá veiddust 40.000 tonn innan lögsögu Íslands, 38.000 tonn í lögsögu Færeyja og 79.000 tonn á alþjóðlegu hafsvæði í Síldar- smugunni svokölluðu. Árið 2005 varð aflinn úr íslenzku lögsögunni einnig ríflega 40.000 tonn. Í júní veiddu íslenzk skip rúmlega 34 þúsund tonn af kolmunna. Þessi afli var veiddur að mestu á íslenzku hafsvæði eða um 27 þúsund tonn og á færeysku hafsvæði, rúmlega 7 þús- und tonn. Tveir þriðjuhlutar kvótans veiddir Kolmunnaaflinn alls er nú kominn í 222.400 tonn, sem eru 66,4% af leyfilegum aflaheimildum, 335.000 tonnum. Í lok júní var búið að veiða 220.000 tonn. Mest hafði þá veiðzt innan fær- eysku lögsögunnar, tæp 144.000 tonn. 48.000 tonn voru tekin á alþjóð- legum hafsvæðum. Á síðasta ári var kolmunnaaflinn innan íslenzku lög- sögunnar 47.000 tonn, 200.000 tonn voru tekin innan færeysku lögsög- unnar og 62.400 á alþjóðlegum svæð- um. Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason Veiðar Vilhelm Þorsteinsson EA er á síldveiðum um þessar mundir og ganga þær vel. Nær allur síldaraflinn er nú tekinn innan lögsögunnar. Norsk-íslenzka síldin veiðist innan lögsögu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.