Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 35 Atvinnuauglýsingar Verktakafyrirtæki í byggingariðnaði óskar eftir að ráða góðan smið eða húsasmíða- meistara sem verkstjóra. Verður að hafa góða stjórnunarhæfileika. Upplýsingar í síma 820 7060 eða 820 7062. Starfsmaður í móttöku Starfsmaður óskast í móttöku NordicaSpa, bæði í fullt starf og hlutastarf. Vinnutími í fullt starf er 06.00-14.00 (miðvikudaga og föstudaga) og 14-21.00 (mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga) og 8.30-18.30 annan hvern laugardag. Vinnutími fyrir hlutastarf er 2 kvöld í viku frá 16.00-21.00 og aðra hvora helgi. Vinsamlegast sendið umsóknir til: ragnheiduur@nordicaspa.is. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um starfsemi NordicaSpa er að finna á www.nordicaspa.is. Raðauglýsingar 569 1100 Fyrirtæki Rekstur fiskiðjuvers Til sölu er rekstur fiskiðjuvers á höfuðborgar- svæðinu. Aðalstarfsemi er kaup, vinnsla og sala á ferskum og frystum bolfiski. Langtíma framleiðslu- og sölusamningar liggja fyrir við bæði erlenda og innlenda kaupendur ásamt þróunarverkefnum með erlendum aðilum. Rekstur þessi hefur skilað ágætri arðssemi og stöðugleiki hefur verið í starfseminni sem núverandi eigandi mun aðstoða við að tryggja að framhald verði á. Mjög góður tækja- og vélakostur sem ásamt skipulagi húsnæðis, skapar mikinn sveigjanleika í vinnslu. Öll aðstaða fyrir starfsfólk til fyrirmyndar. Húsnæði og tækjakostur á hagstæðum leigu- samningi til minnst fimm ára. Möguleiki er á að kaupa fasteignina sem hýsir reksturinn. Áhugasamir hafi vinsamlegast samband við Hróbjart Jónatansson hrl. í síma 533 3333 eða hj@jonatansson.is fyrir lok dags 25. júlí nk. Kennsla Waldorfskólinn Lækjarbotnum Óskum eftir að ráða kennara í 100% störf, á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi. Leitum að dugmiklu, jákvæðu og skapandi fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu skólans. Umsóknir sendist á waldorf@simnet.is og thorat@visir.is. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirtalinni eign verður háð, sem hér segir: Lambeyri, fn. 214-1262, þingl. eign Lambeyrar ehf., verður háð á eign- inni sjálfri, fimmtudaginn 26. júlí 2007 kl. 11.00. Gerðarbeiðandi er Byggðastofnun. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 19. júlí 2007. Ríkarður Másson. Til sölu Bókaveislan eina og sanna heldur áfram í Kolaportinu Höfum bætt við fullt af fínum bókum. Erum hafnarmegin í húsinu. Ath. varist eftirlíkingar Opið um helgina kl. 11-17. Ýmislegt Víst eru áhugaverð stefna og störf Þingvallastjórnarinnar. Tekst að hverfa frá ferli opinberra risaframkvæmda, sem reistar eru á ábyrgð og kostnað almennings á svo vesælum forsendum að Alþingi ákvað að leyna þeim? Eða á enn að niðurbjóða aðstöðu okkar og náttúruauðlindir í kapp við þjóðir, sem í neyð brjóta gegn þjóðlegum og alþjóðlegum náttúruverndar- og mengunarmarkmiðum? Hafnfirðingar hafa staðfest breytt viðhorf, svo og Frakkar, sem kusu umhverfisverndar- og hægrisinnann, Sarkozy, forseta. Kjósendur Framsóknar virðast á sömu leið. Fylgi Framsóknar fór úr 23,3% og 15 þingmönnum 1995 í 11,7% og 7 þingmenn 2007. Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. gengur – en pössuðum upp á að teng- ingin á milli okkar rofnaði aldrei al- veg. Einhverju síðar þegar við hitt- umst svo aftur allar þrjár – þá komnar með fjölskyldur – var eins og við hefðum kvaðst deginum fyrr. Alla- vega höfðum við ekki þroskast meira hver frá annarri en svo að þegar við lögðum niður matseðlana og gerðum okkur líklegar til að panta kom jafnan í ljós að okkur langaði allar í sama réttinn. Á þessum vinkonukvöldum kom líka vel fram hversu stolt Böggý var af fjölskyldunni sinni, enda jafn stutt í stóra brosið og áður. Í lok fundanna færðist spjallið oft yfir á andleg málefni og stundum var drukkinn með eins og einn Grand. Alltaf hlæjandi, stöðugt brosandi, þannig var Böggý. En nú þegar við hugsum til baka lýsir það henni kannski best að hún heilsaði fólki nán- ast undantekningalaust með faðm- lagi. Og líka þannig munum við okkur elskulegu vinkonu. Undir lokin tókst hún á við veikindi sín af æðruleysi og hafði meiri áhyggjur af líðan annarra en sinni eigin. Enn hlæjandi, enn með útréttan faðm. Og nú er hún farin. Okkur vinkonurnar skilur hún eftir með minningar um heillandi hlátur, einstaka vináttu og fallegan lífsskiln- ing. Við vitum að Böggý er í ljósinu og biðjum engla guðs að senda fjölskyldu hennar kærleik og styrk í sorginni. Vinkonurnar, Herdís (Heddý) og Hulda. Það er komið að kveðjustund, alltof snemma slokknaði lífsljós Ingibjarg- ar, hennar sem var öllum svo kær sem hana þekktu. Á þessari stundu hugs- um við, Ægiskrakkamömmurnar, til baka og þökkum fyrir þann tíma sem við áttum saman. Vináttuna, hlýjuna og gleðina sem við deildum, þökkum af einlægni margra ára samfylgd og samvinnu sem aldrei bar skugga á. Við þökkum líka alla hjálpsemina og þolinmæðina við börn okkar, á sund- mótum, í æfingabúðum og á keppn- isferðalögum gegnum árin. Þessi hópur, Ægiskrakkamömm- urnar, kynntust á sundlaugabakkan- um þar sem við vorum börnum okkar til aðstoðar og sjálfum okkur til ánægju. Lengi vel þekktum við ekki hver aðra með nafni heldur vorum við kenndar við börn okkar, þ.e. hún var mamma Rikka og Erlu, við hinar vor- um mömmur annarra barna sem æfðu sund á vegum Sundfélagsins Ægis. Samverustundirnar á bakkanum voru skemmtilegur tími. Þessi sundbörn sem einu sinni voru lítil uxu úr grasi og fóru út í lífið og sundið varð ekki leng- ur miðpunktur lífs þeirra. Þá stóðu eftir á bakkanum sundmömmurnar sem höfðu tengst vináttuböndum í gengnum sundiðkun barnanna og ákváðu, án þess að nokkur muni hvort um það var tekin formleg ákvörðum, að halda áfram að hittast reglulega og gera eitthvað skemmtilegt saman. Ingibjörg okkar var ein aðaldriffjöðrin í að halda hópnum saman. Við minnumst margra gönguferða, sérstaklega í Geldinganes. Þar var dúkað borð á steini, góðgerðir dregnar upp úr bakpokum og spjallað og hlegið í rigningarúða langa sumarnótt. Við munum gönguferð um miðbæ Reykja- víkur með heimsóknum í gallerí, og eins og alltaf var talað og hlegið. Það kvöld endaði í kvöldmat á veitingastað og þar setti okkur hljóðar. Ingibjörg sagði okkur að nú hefði dregið ský fyr- ir sólu, heilsu hennar væri ógnað. All- ar munum við viðbrögð okkar á þeirri stundu. Okkur datt ekki í hug annað en að hún næði fullri heilsu, hún sem gekk yfir fjöll og firnindi, hjólaði yfir Pyreneafjöllin og um Spán, svoleiðis manneskju tekst allt sem hún ætlar sér, héldum við. Raunin varð önnur, rúmlega tveggja ára baráttu lauk með ósigri, þó að allt væri reynt og hún legði á sig hvað sem var, til að eiga að- eins lengri tíma með ástvinum sínum. Ingibjörg var einstök manneskja, þar fór saman glæsilegt útlit, gáfur, einstök hjartahlýja og trygglyndi. Öll- um manneskjum, ungum sem öldnum sýndi hún virðingu og hlýju. Við Ægiskrakkamömmurnar send- um Kidda, Rikka, Erlu, móður Ingi- bjargar, systur hennar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Arna, Álfheiður, Guðrún, Inga, María, Pirkko, Ragnheiður, Ragna, Þórunn J. og Þórunn G. Við sjáum, að dýrð á djúpið slær þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng að þar heyrast englar tala. Og einn þeirra blakar bleikum væng svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Í ljóði Davíðs Stefánssonar má skynja djúpa en milda tjáningu á því þegar ástvinur skilur við og fer yfir mærin miklu. Það gæti sefað hjarta okkar stutta stund þegar við hugsum að með þeim viðskilnaði kemst kyrrð og friður á. Þegar við kveðjum ástvin í hinsta sinn getum við fundið sem við værum að kveðja ákveðinn hluta af okkur sjálfum því þegar við elskum gefum við af okkur óskilyrt og fáum gjarnan að gjöf ákveðinn stað í hjarta þess sem við elskum. Þegar við getum ekki lengur faðmað og notið samfélags sem við þekktum og gaf okkur til- gang, verðum við að láta okkur duga minningar. Minningar eru þess eðlis að við getum séð ljóslifandi fyrir okk- ur aðstæður og umhverfi sem við höf- um verið í og getum endurupplifað til- finningarnar sem við fundum. Þeir einstaklingar sem næstir standa hjartanu eru forsenda fyrir þeim góðu minningum sem við eigum, því án þeirra værum við ein. Ingibjörg var gædd eiginleikum sem eru eftirsóknarverðir í mannlegri tilveru, það þekktum við sem hana áttum að vinkonu. Við kynntumst í öldungadeild FB, þegar við ákváðum að taka stúdentspróf á fullorðinsár- um, en við áttum einmitt 15 ára stúd- entsafmæli í maí sl. Þann dag reikaði hugur minn að útskriftardeginum og ég skoðaði myndir sem teknar voru af okkur. Þar brostu tvær konur, lífs- glaðar og nokkuð sáttar við frammi- stöðu sína enda ekki ástæða til ann- ars, það var uppskerudagur og við vorum ávaxtaprinsessurnar. Ég geri mér grein fyrir hversu ótrúlega dýrmæt hver stund er í þessu lífi, meðan við getum notið sam- félags við þá sem eru okkur kærir. Við höfum aðeins þessa stund, gær- dagurinn er liðinn og morgundagur- inn ekki vís. Við verðum því að vaka til að vera fær um að skynja það mik- ilvæga sem gerist á hverri líðandi stund. Ég tel það leiðina að fjársjóði sem felst í að sjá hversu lífið og hver einstök manneskja er dýrmæt. Ingi- björg mun alltaf eiga stað í mínu hjarta, ljósið sem frá henni lýsti, verð- ur minning um heila og sterka konu sem alltaf geislaði af krafti og hlýju. Ég bið góðan Guð að varðveita og styrkja fjölskyldu hennar og vini á komandi tímum. Hulda María Mikaelsdóttir Tölgyes. Böggý mín, nú hefur þú fengið hvíldina sem þú, á stundum, varst far- in að þrá enda líkaminn þinn fallegi í fjötrum síðustu mánuðina. Núna sit ég með votan hvarm úti í fallegri nótt- inni aðeins örfáum tímum eftir að þú kvaddir og minningarnar streyma fram. Sorgin er sár en þakklætið yfir að hafa fengið að njóta vináttu þinnar og elsku í meira en 20 ár mildar sárs- aukann. Sólarlagið var svo fallegt í kvöld og fannst okkur Bigga sem litadýrðin, einstakt skýjafarið og Snæfellsjökull- inn í allri sinni dýrð væru sérstaklega að heiðra þig, kæra vinkona, enda varst þú náttúrubarn af Guðs náð og kunnir svo vel að njóta þess sem land- ið okkar fallega hefur upp á að bjóða. Fjallgöngur, skíði og hjólreiðar voru nokkuð sem þú og Kiddi þinn stund- uðuð stíft og það ekki einungis hér heima, heldur og erlendis og höfðuð þið m.a. hjólað Jakobsveginn, heila 1.000 km, örfáum mánuðum áður en þú veiktist. Þegar þú veiktist í byrjun árs 2005 ætlaðir þú þér að sigra og með já- kvæðnina og óbilandi viljastyrk að vopni hélstu á vit lyfjameðferða, geisla og annarra læknaúrræða. Því miður dugði það ekki til en eldmóður þinn var einstakur og lætur hann ekk- ert okkar, sem fylgst höfum með bar- áttu þinni, ósnortið. Ég er þér afar þakklát, Böggý mín, fyrir að þú sem ávallt hefur gefið svo mikið með hlýju þinni og einlægni, varst tilbúin að þiggja þegar á reyndi og munu stund- irnar sem við áttum saman síðustu mánuði, í faðmi yndislegs starfsfólks Líknardeildarinnar í Kópavogi, lýsa sem ljós í safni minninganna. Við höf- um spilað allan tilfinningaskalann með mismiklum átökum þessa síðustu mánuði en sem betur fer náði styrkur bænarinnar að losa um mestu reiðina og hjálpa okkur að sjá ljósið. Við nokkrar vinkonur þínar fengum tækifæri til að standa vaktina ásamt yndislegri fjölskyldu þinni síðustu vik- urnar og er ég afar þakklát fyrir það. Það að hafa kynnst nánar vinkonum þínum, elskulegri móður þinni og ein- stakri konu sem hún Dísa systir þín er, er nokkuð sem skilur mig eftir „ríkari“ en áður. Þökk sé þér! Far þú í friði, kæra vinkona, fullviss þess að við sem eftir erum hlúum hvert að öðru, rétt eins og þér var svo einstaklega lagið að gera. Ég kveð þig með ljóðinu sem snart mig svo mjög eina nóttina í vor en það er úr ljóðabókinni „Bleikt eins og kær- leikurinn“ sem ég greip á borðinu hjá þér og opnaðist hún á ljóðinu Vinkona kvödd. Það birtir að vori, hvert blómstur nú vaknar og bráðum mun sólin reka myrkrið á flótta en hjarta mitt grætur og hugurinn saknar því hönd þín er köld og mín sál fyllist ótta. Þá man ég hlýju orðin þín, mildina þína og mannkærleikann, sem fyllti þitt hjarta. Ég brosi í gegnum tárin, brátt mun sorgin dvína og bjartar nætur vorsins lýsa myrkrið svarta. Við sjáumst ekki aftur, söngur þinn er hljóður en sálir okkar mætast í ljósinúeins og fyrrum. Tíminn sem við áttum var tær og hreinn og góður Tryggðarböndin ofin á ljúfum stundum kyrrum. (Rut Gunnarsdóttir) Guð verndi þig, kæra vinkona. Jóhanna og Birgir úr Engjaselshópnum.  Fleiri minningargreinar um Ingi- björgu Richardsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.