Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 13 ERLENT Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is RÚSSNESK stjórnvöld hafa ákveð- ið að reka fjóra breska stjórnarer- indreka úr landi en þessi ákvörðun þeirra er nýjasti leikurinn í harðn- andi deilu breskra og rússneskra stjórnvalda sem tengist morðinu á njósnaranum fyrrverandi, Alexand- er Litvínenkó, í London í fyrra. Stjórnarerindrekarnir verða að yfir- gefa Rússland innan tíu daga og þá ætla yfirvöld í Moskvu ekki að gefa út vegabréfsáritanir til handa bresk- um embættismönnum. Aðgerðirnar eru svar við þeirri til- kynningu breskra stjórnvalda á mánudag að fjórum rússneskum stjórnarerindrekum yrði vísað úr landi vegna tregðu ráðamanna í Moskvu til að framselja Andrej Lúgovoj, sem grunaður er um morð- ið á Litvínenkó, til Bretlands. Nýtt kalt stríð? Litvínenkó flúði Rússland á sínum tíma, hafði lent upp á kant við ráða- menn þar. Hann var orðinn breskur ríkisborgari þegar hann hitti Lúgó- voj, annan fyrrverandi liðsmann rússnesku leyniþjónustunnar, á hót- eli í London 1. nóvember í fyrra. Þann sama dag kenndi Litvínenkó sér meins og var lagður inn á spítala. Kom þá í ljós að hann hafði orðið fyr- ir eitrun – um var að ræða pólóní- um-210 – og lést Litvínenkó 23. nóv- ember 2006. Degi síðar birtist yfirlýsing, sem Litvínenkó hafði skrifað, en þar er Vladimír Pútín Rússlandsforseti sakaður um að bera sök á dauða hans. Moskvustjórn hafnaði beiðni Breta um framsal Lúgovoj á þeirri forsendu að í stjórnarskrá landsins sé lagt bann við því að rússneskir ríkisborgarar séu framseldir til ann- arra landa. Bresk stjórnvöld segja hins vegar að Rússum sé vel kleift að framselja Lúgóvoj á grundvelli al- þjóðasáttmála sem þeir séu aðilar að. David Miliband, utanríkisráð- herra Bretlands, sagði í breska þinginu fyrr í vikunni að Litvínenkó hefði dáið hræðilegum dauðdaga. Bresk stjórnvöld litu málið afar al- varlegum augum og það væru mikil vonbrigði að rússnesk stjórnvöld hefðu ekki áttað sig á alvöru málsins. Óhjákvæmilegt væri annað en grípa til einhverra aðgerða. Undir þessi sjónarmið var tekið í leiðara The Times. Litvínenkó hefði verið breskur ríkisborgari, morðið á honum tilraun til að þagga niður í há- værum gagnrýnanda stjórnvalda í Moskvu. Flest benti til að morðingj- arnir hefðu leynt og ljóst notið stuðnings rússneskra stjórnvalda. Rætt hefur verið um að deila Breta og Rússa sé liður í „nýju köldu stríði“ Rússa og Vesturlanda; en þar er m.a. vísað til ákvörðunar Rússa að hætta þátttöku í CFE-samningnum um takmörkun vígbúnaðar í Evrópu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær – um leið og hún hvatti rússnesk stjórnvöld til að verða við beiðni Breta um framsal Lúgovojs – að vissulega væru „afar stór vandamál“ í samskiptunum við Rússa. Rússland væri þó eftir sem áður mikilvægur bandamaður, m.a. í stríðinu gegn hryðjuverkum, og að aðstæður væru aðrar nú en á dögum kalda stríðsins. Samskiptin við frostmark Rússar gjalda líku líkt og vísa fjórum breskum stjórnarerindrekum úr landi Reuters Morðingi? Andrej Lúgovoj segist alsaklaus af öllum ásökunum. London. AP. | Breskir feðgar hafa fundið yfir 600 myntir og tugi dýr- gripa sem faldir voru fyrir um þús- und árum og er þetta einn mesti fjársjóður sem fundist hefur í heim- inum frá víkingatímanum. Feðgarnir David og Andrew Whelan fundu fjársjóðinn með málmleitartæki á túni bóndabýlis nálægt Harrogate á Norður-Eng- landi. Gareth Williams, sérfræð- ingur við breska þjóðminjasafnið, sagði þetta mesta fjársjóð frá vík- ingatímanum sem fundist hefði í Bretlandi í rúm 150 ár. Stærsti hluturinn sem fannst er gullhúðað silfurílát frá níundu öld sem líklegt er að hafi verið tekið úr klaustri. Víkingar fylltu það af myntum og dýrgripum áður en þeir grófu fjársjóðinn. Meðal dýrgrip- anna er gullarmband, silfurstangir og silfurbrot. Talið er að víkingarnir hafi safn- að dýrgripunum á Írlandi, Frakk- landi, Rússlandi og Skandinavíu. Rekja má suma dýrgripina allt austur til Afganistans. Sérfræðingar breska þjóðminja- safnsins sögðu að fjársjóðurinn hefði verið falinn eftir fall konungs- ríkis víkinga í Norðymbraland árið 927. Safnið vonast til þess að geta keypt að minnsta kosti hluta fjár- sjóðsins af Whelan-feðgunum eftir að verðmæti hans verður metið. Fundu mikinn fjársjóð frá víkingatímanum París. AP. | Franskur dómari yfir- heyrði í gær Jacques Chirac, fyrr- verandi forseta Frakklands, vegna gruns um að hann hefði tengst nokkrum málum, sem snúa að ólög- legri fjármögnun stjórnmálaflokka, þegar hann var borgarstjóri í París frá 1977 til 1995. Chirac hef- ur alltaf neitað allri sök. Chirac naut friðhelgi á meðan hann var forseti en þegar hann lét af störfum þann 16. maí sl. lauk frið- helginni. Lögmaður hans var við- staddur fundinn með dómaranum í gær en þetta er í fyrsta skipti sem fyrrverandi þjóðhöfðingi Frakk- lands er yfirheyrður með þessum hætti. Ekki er ljóst hvort Chirac sætir nokkurn tímann ákæru vegna málsins en ljóst er að það mun ætíð varpa skugga á fjögurra áratuga langan stjórnmálaferil hans. Saksóknarar halda því fram að flokksmenn RPR-flokks Chiracs hafi verið á launaskrá Parísar en þannig hafi rekstur flokksins verið fjár- magnaður. Er talið að jafnvirði millj- óna evra hafi með þessum hætti ver- ið svikið út úr sjóðum borgarinnar. Yfirheyrður vegna spill- ingarmála Jacques Chirac ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Mercedes-Benz B-Class er hinn fullkomni fjölskyldubíll og býr yfir sveigjanleika sem fáir aðrir bílar geta státað af. Hann er ótrúlega rúmgóður miðað við hversu nettur og lipur hann er auk þess að vera kraftmikill, þægilegur og sportlegur, allt í senn. Hann er nefnilega fjölhæfur eins og þú og er bæði fáanlegur með bensín- og dísilvél. Fjölhæfur eins og þú Verð frá 2.590.000 kr. ÍS L E N S K A S IA .I S O R K 3 81 51 0 7 /0 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.