Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 33 ✝ Vera JóhannaValtýsdóttir fæddist í Lübeck í Þýskalandi 12. nóvember 1928. Hún andaðist á elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund 12. júlí síð- astliðinn. For- eldrar hennar voru Anna Kreutzfeldt, f. 14. janúar 1901, d. í maí 1993, og Walter Kreutz- feldt, f. 18. maí. 1900, d. í maí 1974. Bræður Veru eru a) Walter Kreutzfeldt, f. 14. janúar 1934, d. 1997, kvæntur Dorit Kreutzfeldt, börn þeirra Mike og Stefan, þau eiga fimm barnabörn og b) Rolf Kreutzfeldt, f. 1938. Eiginmaður Veru var Einar Kárason, f. 18. mars 1914, d. fleiri stúlkum á árunum eftir stríð. Hún réð sig sem ráðskonu við virkjun á Sauðanesi í Laxár- dal í Austur-Húnavatnssýslu. Fór aftur út tveimur árum síð- ar, en þar sem lítið var um vinnu að hafa í Þýskalandi kom hún aftur til Íslands. Vann á matstofu Austurbæjar í Reykja- vík þar sem hún kynntist eig- inmanni sínum, Einari Kárasyni leigubifreiðarstjóra. Vera starf- aði á tímabili í fiskvinnslu og við umhirðingarstörf á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Lengstan hluta ævinnar var hún húsmóðir og jafnframt tók hún virkan þátt í kvenfélagsstörfum, þar á meðal hjá Hreyfli og í Bú- staðasókn. Vera var búin að berjast hetjulega við þann ill- víga sjúkdóm krabbamein sl. 11 ár. Hún fór á Dvalarheimilið Blesastaði 20. mars 2002 og 20. september 2006 fór hún á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund, þar sem hún var orðin það mik- ið veik, og var þar þar til hún andaðist. Vera Jóhanna verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. 1969. Börnin þeirra eru: 1) Guðmundur Valdi, f. 7. febrúar 1955. 2) Gísli, f. 23. júní 1956, unnusta Svandís Kjartans- dóttir. Dóttir hans og Lilju Kristjáns- dóttur, f. 11. mars 1970, er Jóhanna Kristín, f. 23. janúar 1987. 3) Einar, f. 23. júní 1956, kvæntur Sigurbjörgu Gyðu Tracey, f. 22. júlí 1967. Börn þeirra eru: a) Anna Rósa, f. 10. janúar 1979, gift Sigurjóni Sveinssyni, f. 12. nóv 1979. Börn þeirra eru Ísar Máni, f. 9. ágúst 2004, og Aþena Rós, f. 21. desember 2006. b) Elísa, f. 7. október 1986, unn- usti Sigurður Einar Einarsson, f. 17. júlí 1981. Vera kom til Íslands ásamt Elsku mamma, við erum svo þakklátir fyrir að hafa átt þig sem móður. Þú hugsaðir alltaf svo vel um okkur, þó við værum þér stundum erfiðir. Þetta var erfið barátta hjá þér og þú varst svo sterk. Það var sárt að horfa upp á þig þjást síðasta árið, en nú ertu loks búin að fá hvíldina sem þú þráðir síðustu vikurnar. Eftir að þú ert búin að fara í gegnum móð- una miklu vitum við að þú ert hjá pabba. Við kveðjum ykkur með söknuði en minningarnar munu lifa. Hvílið saman í friði, ykkar synir Guðmundur og Gísli. Elsku Vera, nú hefur þú kvatt þennan heim og farið á betri stað, eftir þrautagöngu erfiðs sjúkdóms. Ég minnist þín sem þrautseigrar „klassa“-konu og heimsborgara, því það varst þú, ætíð vel til höfð og vönduð. Ég minnist frásagna þinna af ferðum þínum um allan heim, en þau eru fá löndin, sem þú ekki varst búin að ferðast til. En samt er það efst í huganum þegar þú aðeins 19 ára þá eftir stríðið ákvaðst að fara til Íslands. Og lýstir því með kímni hvernig landið, sem varð svo þitt, kom þér fyrir sjónir við fyrstu sýn. Norður- land með bláum, háum fjöllum, litlum bóndabæ, lengst inni í dal. Það sem ég sé þig fyrir mér hrista voðirnar, sópa rykinu út um bæj- ardyrnar, og allar gluggakistur fullar af tómataplöntum og ag- úrkuplöntum sem þú ræktaðir af fræjum frá Þýskalandi og varst brautryðjandi að hér á landi. Já, áræðnin og dugnaðurinn hefur allt- af fylgt þér. Það er margt sem þú hefur gengið í gegnum um ævina og það kennir okkur að láta ekki deigan síga. Til Reykjavíkur lá þín leið, þar sem þú bjóst lengst af á Sogaveg- inum með börn og buru, þar var alltaf heitt á könnunni, stollen- brauð og tertur sem voru engu lík- ar, flottar og góðar, matagerðin þín var snilld, garðurinn sólríkur með blómum og berjum. Ég minnist daganna í garðinum Ég minnist Þýskalandsferðarinnar. Þroskað axið lútir kolli nú er baráttan búin. Regnið sólin vindar allt lífið er fallandi valt. Elsku Vera, ég þakka þér af al- hug fyrir alla góðu minningarnar og góðu stundirnar. Guð geymi þig, þín Sigurbjörg Gyða. Elsku Vera amma, megi Guð geyma þig og við vonum að þér líði vel núna. Þú sýndir það og sannaðir að það er hægt að sigrast á mörgu, og kunnum við ekki að telja allt það upp sem þú hefur lent í um ævina. Þú komst hingað til landsins frá Þýskalandi, aðeins 19 ára gömul og byrjaðir að vinna hérna á Íslandi eins og margar aðrar konur. Við þökkum Guði fyrir að þú komst til Reykjavíkur og fannst hann Einar, þinn elskaða eigin- mann. Með honum eyddir þú því- næst um 20 árum þar til krabbinn tók hann. Þú syrgðir hann alla tíð og sagðir að þið hefðuð átt mjög gott hjónaband. Þegar Einar afi féll frá voru faðir okkar og tví- burabróðir hans aðeins 12 ára gamlir. Með þrjá unga syni léstu samt ekki deigan síga og vannst af hörku til að hafa í þá og á, samt fannstu alltaf einhverja leið til að skrapa saman aura og flakka um heiminn. Ævintýramennskuna höf- um við systurnar sennilega erft frá þér. Þú varðst himinlifandi þegar faðir okkar sagði þér tíðindin að nú værir þú að verða amma og ekki síður glöð og hissa þegar ég tilkynnti þér fyrir tæpum þremur árum að þú værir orðin langamma. Þá fannst þér þú vera orðin gömul. Þú hafðir yndi af börnum og eitt sinn sagðir þú okkur að þig hefðir alltaf dreymt um að verða ljós- móðir. Með þrjá syni, þrjú barnabörn og tvö barnabarnabörn, ertu rík kona. Ekki gleymum við Snotru, hvítu kisunni þinni sem var alin upp á rjóma og rækjum, hamingju- samari köttur hefur varla verið til, enda lifði hún fram í háa elli. Minningar okkar eru margar frá Sogaveginum, þar sem þú bjóst, ásamt tveimur sonum þínum. Sól- ríkur garðurinn á sumrin, angandi af sólberjum og rifsberjum. Þar sast þú oft og dáðist að fegurðinni. Það var, höldum við bara, alltaf sól í garðinum þínum. Þegar líða tók að jólum angaði húsið þitt af pip- arkökum og framandi hunangskök- um, sem þú fékkst sendar frá Þýskalandi. Aldrei fór maður svangur heim frá þér, því þú dróst alltaf fram allskonar góðgæti af bestu sort. Við systurnar erum sólgnar í salatið sem þú kenndir mömmu að framreiða og er það fastur liður á borðum okkar. Þú hafðir yndi af bókum og reyfurum og last allt á íslensku, enda leistu á þig sem sannan Íslending. Við söknum blæsins í röddinni þinni, sem var alla tíð með þýskum hreim og skrýddur fáum þýskum atviks- orðum. Þú hafðir reglulega sam- band við ættingja þína úti, bræður þína og þá helst Valda bróður þinn og konu hans Dorit, ef til vill hafið þið talað tímunum saman í síma og skipst á fréttum af fjölskyldunni, það var svo fyrst fyrir nokkrum dögum að ég heyrði í henni Dorit. Það kom þó ekki í veg fyrir að við töluðum heillengi saman, þó þýsk- an mín sé ekki upp á marga fiska. Henni þótti mjög miður að heyra fréttirnar og bað fyrir bestu kveðj- ur til okkar allra á þessum sorg- ardegi. Bróðir þinn Rolf var einnig hryggur og bað fyrir kveðjur. Seinasta hluta ævi þinnar bjóstu á heimili að Blesastöðum og síðast Grund. Þar var hugsað vel um þig og þar leið þér vel. Það var svo krabbinn sem á endanum tók þig eins og eiginmann þinn og hvílir þú nú við hlið honum. Guð geymi þig og hann. Anna Rósa Einarsdóttir, Elísa Einarsdóttir. Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót. (Stephan G. Stephansson.) En á ný er maður minntur á fall- valtleika lífsins, þegar einu og einu okkar er kippt í burtu og spurnir kvikna „Hver er næstur?“ Þau eru orðin æði mörg skörðin sem komin eru í hóp fyrstu íbúa við Sogaveg. Vera var ekki einungis ein af fyrstu íbúum við Sogaveg, heldur innflytjandi til landsins – nýbúi. Hún var ein í hópi glæstra kvenna sem komu til landsins frá Þýska- landi, ráðnar til að stunda störf í sveitum landsins, sem þá skorti vinnuafl, ekki síst vinnu kvenna. Það átti samt ekki fyrir Veru að liggja að verða sveitakona, þó að ég efist ekki um að þar hefði hún blómstrað, sökum dugnaðar og verkfærni. Snilli hennar við mat- argerð var rómuð, allt varð að veisluréttum í höndum hennar. Fljótlega eftir komu hennar til landsins kynntist hún verðandi eig- inmanni sínum Einari Kárasyni og eignuðust þau þrjá syni. Fáum ár- um síðar flytja þau í næsta hús við mig og okkar kynni hefjast. Þar að auki voru menn okkar báðir leigu- bílstjórar á sömu stöð. Við vorum báðar meðlimir og stofnendur Kvenfélags Hreyfils og störfuðum þar á meðan það félag var til. Á sínum barns- og unglingsárum kynntist hún eldmóði Hitlersæsk- unnar, lifði sem unglingur hörm- ungar stríðsins og niðurlægingu þýsku þjóðarinnar. Þetta var lífs- reynsla sem aldrei gleymist. Vera var alla tíð mikill ættjarðarvinur og undir lok æviskeiðsins, var hún með óljósa þrá, eða drauma um afturhvarf á æskuslóðir. Ég var svo heppin að ferðast með henni og undir hennar stjórn um æsku- slóðir hennar og fór með henni og foreldrum hennar í árlegt sumarfrí þeirra til Austurríkis og dvaldi í bændagistingu hátt til fjalla. Það var ógleymanlegt ævintýri. Öðru sinni fórum við til Ítalíu til að njóta baðstrandarlífs, sem hún kunni vel að meta. Um miðbik ævinnar glímdi hún við erfið veikindi. Hún þufti að fara í stóra krabbameinsaðgerð, ásamt öllu því sem því fylgir. En þrátt fyrir það vann hún ýmis störf utan heimilis, t.d. fiskvinnu og eld- hússtörf, þar á meðal á Hjúkr- unarheimili Grundar. Eftir lát eiginmanns bjó hún sonum sínum tveim heimili á Soga- veginum, en sökum lélegrar heilsu og þverrandi krafta var talið nauð- synlegt að hún færi á umönnunar- stofnun, sem ekki eru á hverju strái. Hún var nokkur ár á dval- arheimilinu Blesastöðum, þar sem henni leið vel, en þrátt fyrir gott atlæti þráði hún að vera nær sín- um nánustu. Síðustu mánuði ævinnar dvaldi hún á Dvalarheimilinu Grund. Ég sendi öllum ástvinum sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Veru Jóhönnu. Rósa Sveinbjarnardóttir. Þá ertu farin, mín kæra vinkona. Vera mín, ég sit hér í sólinni og rifja upp þær ánægjustundir sem við höfum átt í 45 ár. Vera kom til Íslands, ásamt fleiri þýskum stúlkum, og giftist Einari Kárasyni leigubílstjóra og eignaðist með honum þrjá drengi. Fjölskyldan bjó á Sogavegi 128. Dag einn bankaði sorgin upp á hjá þeim þegar Einar greindist með krabbamein og lést hann haustið 1969. Fljótlega fór Vera að vinna á elliheimilinu Grund og vann þar í nokkur ár. Síðar vann hún við hót- elstörf og líkaði vel. Þegar við hjónin fluttum á Sogaveginn bjuggu þar fyrir skemmtilegir ná- grannar. Lífið var eins og í litlu þorpi, fólkið var innilegt og hjálp- samt, það heimsótti hvað annað og spjallaði saman um tilveruna. Vera mín, ég minnist þess með ánægju þegar þú baðst mig um að koma með þér til Lübeck í Þýska- landi þar sem þú ert fædd og upp- alin. En þangað fórstu eins oft og þú hafðir möguleika á, til að sjá móður þína og fólkið þitt. Þegar til Þýskalands var komið tók bróðir þinn á móti okkur. Það var ánægjulegt að kynnast þínu fólki sem dekraði við okkur á allan hátt. Þetta var yndislegt ferðalag, við fórum upp Rínardalinn og til Sviss. Allan tímann var sólskin og gott veður og þú varst frábær ferða- félagi. Síðar fórum við saman í fleiri skemmtilegar ferðir, m.a. til Grikklands og Spánar. Ekki má gleyma öllu búðarápinu og Kringluferðunum. Við nutum þess saman að skoða í búðarglugga og fá okkur kaffi og meðlæti þegar búið var að versla. Þú varst mikil matreiðslukona og elskaðir að búa til góðan mat, smyrja fínirís brauð og baka. Enda varst þú í kven- félaginu hjá Hreyfli og Bústaða- kirkju. Það var alltaf nóg að gera og svo var gott að heimsækja þig og komast í kræsingarnar hjá þér. Hin síðari ár fór heilsuleysið að hrjá þig þannig að þú gast ekki verið lengur ein heima. Svo þú fluttist austur að dvalarheimilunu á Blesastöðum. Við höfðum alltaf símsamband svo ég gæti fylgst með þér. En að lokum varstu orðin svo veik að þú varst send á elli- heimilið Grund. Þá gat ég komið til þín og setið hjá þér, Vera mín. Ég þakka þér fyrir samfylgdina í gegnum árin. Guð blessi fjölskyldu þína. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka þér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Hvíl í friði, elsku Vera. Eygló Benediktsdóttir. Vera Jóhanna Valtýsdóttir Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar (Þorsteinn Erlingsson.) Hvíl í friði, elsku amma Vera. Jóhanna Kristín og Arnþrúður. HINSTA KVEÐJAstefndi og hjarta mitt fylltist af gleði og tárin runnu niður kinnarnar. Þetta brúðkaup var eitt það fallegasta sem ég hef orðið vitni að. Gugga var kraftakona og sagt er að Guð leggi ekki meira á menn en þeir þola. Ég get fullyrt að hún Gugga mín var með ansi breitt bak. Þegar ég frétti af því að hún hefði greinst með krabbamein varð ég svolítið reið og sár. Mér fannst þetta ekki rétt að leggja þetta á hana elsku frænku mína, sem hafði nú barist fyrir sínu. Ég veit að þetta var oft mikill áhyggjutími hjá Hafsteini og börnun- um. Gugga var sterk í veikindum sínum og þegar kallið kom þá brá mér. Ég hélt að maður gæti undirbúið sig en það skal með sanni segja að ég var ekki undirbúin og sennilega fæstir. Börnin mín hugsa mikið um hvað hún frænka sé að gera núna og ég hef sagt þeim að núna líði Guggu vel. Núna finnur hún ekki til. Skömmu síðar sögðu þau að núna væru Elli afi og Gestur afi að spjalla við hana Guggu og þeir myndu passa hana vel fyrir okkur. Ég var sammála því. Og svipur hennar sýndi, hvað sál hennar var góð. Það hló af ást og æsku, hið unga villiblóð. Ég bý að brosum hennar og blessa hennar spor, því hún var mild og máttug og minnti á – jarðneskt vor. (Davíð Stefánsson.) Elsku Hafsteinn, Gunni, Hadda, Þorsteinn, Hafþór, Íris, tengdabörn og barnabörn ég hugsa mikið til ykk- ar. Megi guð blessa ykkur og varð- veita. Ingibjörg Gestsdóttir. Það eru rétt 15 mánuðir síðan hún kom til mín til að segja mér að hún hefði verið að fá þann úrskurð að hún gengi með krabbamein. Það sama og systir hennar hafði látist úr árinu áð- ur. Í huga hennar var þó ekkert víl eða ótti, erindið hennar var einfalt til viðbótar því að láta mig vita vildi hún ganga úr skugga um að starfið biði hennar þá hún hefði sigrast á sínum sjúkdómi. Sú fullvissa var henni auð- fengin af minni hálfu því hún var slík- ur starfsmaður okkur hjá BM Vallá að leitun var að hennar jafnoka. Í hennar hugarheimi var ekki til neitt það orðtæki eins og „þetta er ekki hægt“ eða „þetta get ég ekki“. Hjá henni var sýnin alltaf: Hvernig leys- um við málið? Er ekki öruggt að við vinnum þetta verkið eða hitt? spurði hún þegar umræðan um komandi stórverkefni fór fram í mötuneytinu og brýndi okkur til dáða. Metnaður hennar fyrir okkar hönd var mikill og hún vildi ekkert annað en að við værum fremst á hverjum tíma „áfram með ykkur, strákar“ „drífið í þessu“ hljómaði ósjaldan í mötuneytinu hjá henni þegar hún hvatti liðið. Hún var valkyrja í hug og hjarta og vestfirsk að auki. Sigur vildi hún helst í hverju máli. Að minnsta kosti að hver gerði sitt besta og legði sig allan fram. Það gerði hún sjálf svo sannanlega í sínu lokastríði við sín mein og dró hvergi af sér. Í því stríði skiptust á skin og skúrir og nokkrum sinnum kom hún til að láta okkur samstarfs- fólk sitt fylgjast með og þá sérstak- lega þegar hún sjálf eygði von um bata. Hún varð þó að lokum að lúta í lægra haldi þegar hún lést á heimili sínu hinn 10. júlí. Hún gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana því eitt hennar síðasta verk var að ferðast með eig- inmanni sínum til Danmerkur í júní og að síðustu á heimaslóðir í Dýrafirði rétt áður en hún dó. Hún dó svo sann- anlega standandi eins og valkyrju sæmdi. Við samstarfsmenn hennar hjá BM Vallá sendum Hafsteini og allri fjöl- skyldu þeirra okkar dýpstu samúðar- kveðjur og geymum með okkur góðar minningar um einstakan starfsfélaga. Víglundur Þorsteinsson.  Fleiri minningargreinar um Guð- björgu Ósk Gunnarsdóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu á næstu dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.