Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 15 MENNING Í TILEFNI Listasumars á Akureyri verða hádegistón- leikar í Ketilhúsinu í dag. Það er Dúóið Paradís, sem er skipað þeim Hafdísi Vigfús- dóttur á flautu og Kristjáni Karl Bragasyni á píanó, sem leikur á tónleikunum. Það er fátt meira hressandi en að taka smáforskot á helgina og gera sér glaðan dag með því að skella sér á tónleika í hádeginu og mæta endurnærður í vinnuna eftir hádegi. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa í um fimm- tíu mínútur. Miðaverð er 1.000 kr. Tónleikar Dúóið Paradís í Ketilhúsinu Kristján Karl Bragason DJANGOJAZZ Festival Akur- eyri og Jazzklúbbur Akureyrar standa fyrir djasshátíð dagana 20 til 25. júlí. Ein vinsælasta djasshljóm- sveit Ástralíu, Snap Happy, spilar á hátíðinni á fernum tón- leikum: Café Victor Reykjavík í kvöld kl. 23. Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 21. júlí kl. 22, á Gamla Bauk á Húsavík kl. 21 sunnudaginn 22. júlí og miðvikudaginn 25. júlí á Café Cultura í Reykjavík. Síðan munu Hrafnaspark og Mímósa, ásamt Unni Birnu Björnsdóttur og Ingólfi Magnússyni spila á Græna hattinum á Akureyri í kvöld kl. 22. Tónleikar Snap Happy á Djangojazzi Hljómsveitin Snap Happy. Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is Í HAUST verður sett upp verkið Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss í Íslensku óperunni. Verkið er mjög þekkt; í megindráttum er það endurvinnsla á grísku goðsög- unni um Aríöðnu (dóttur Mínosar konungs) og Bakkus (einnig þekktur sem frjósemisguðinn Díónýsos). Arndís Halla Ásgeirsdóttir mun fara með hlutverk Zerbinettu; þeirrar sem gaukar ráðleggingum að Arí- öðnu. Besta leiðin til þess að sigrast á hjartasorg er að verða sér úti um nýjan elskhuga, segir Zerbinetta. Hlutverkið þykir sérlega bitastætt. „Þetta leggst rosavel í mig, verður ábyggilega svakalega gaman,“ segir Arndís Halla. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek fyrir alvöru þátt í uppfærslu heima, og í fyrsta skipti sem ég syng hlutverk eftir Strauss. Áður hef ég bara hoppað inní óperuna heima, en aldrei raunveru- lega tekið þátt í uppfærslu; ég hopp- aði reyndar inn sem næturdrottn- ingin árið 2001 – þá leysti ég af um eina helgi, held það hafi verið tvær sýningar ...“ Á fullu meðal þýðverskra „Ég tek einnig þátt í gríðarstórri fjölskylduskemmtun sem ekki er ósvipuð annarri hátíð, Holiday on Ice, nema hvað við erum ekki með skauta, heldur hesta. Þetta er feikn- armikið „show“ hjá okkur, og tveir túrar í gangi í einu yfir allan vetur- inn; annar túrinn fyrir þýskumæl- andi svæði, en hinn fer um aðra hluta Evrópu. Við sögu komu bestu reiðmenn Evrópu, allskonar hesta- tegundir – þar á meðal íslenskir hestar – svo er Styrmir Árnason knapi og Íslandsmeistari fulltrúi Ís- lendinga.“ Þessi herlegheit eru að sögn gríð- armögnuð sýning með glæsilegum dönsurum, mikilfenglegri ljósahönn- un og heillandi tónlist. „Og svo er ég díva sýningarinnar – svaka gella,“ segir Arndís og hlær. „Já, þú ert sumsé rúsínan í pylsuendanum,“ flýtir blaðamaður sér að segja og Arndís grípur orð hans á lofti: „Já, ég er rúsínan ...“ Arndís Halla Ásgrímsdóttir syngur í Íslensku óperunni í haust Óperusöngur og hestasýningar Í HNOTSKURN » Arndís Halla Ásgeirsdóttirhefur stundað söngnám í Reykjavík og Berlín. » Hún er búsett í Berlín oghefur sungið í Komische Oper óperuhúsinu í Neustrelitz. » Hún á mikilli velgengni aðfagna í Þýskalandi um þessar mundir. » Í haust syngur hún hlutverkZerbinettu í Ariadne auf Naxos eftir Richard Strauss. „ÉG ER til dæmis nýbúin að gefa út disk hérna úti, ætla svo að reyna að gefa hann út heima í haust,“ segir Arndís. Hún hefur mótað persónulegan músíkstíl á umræddri hljóðskífu – „í tónlistinni heyrist meðal annars litur af Íslandi, maður heyrir íslensku hljómana, fimmundirnar, rytmann ...“ Keimur af Íslandi FRAMLAG Íslendinga til Feneyja- tvíæringsins í ár, sýning Steingríms Eyfjörð, Lóan er komin, er í flokki þess markverðasta sem fyrir augu ber á tvíæringnum að mati veftíma- rits Saatchi-gallerísins. Steingrímur sæki innblástur að verkum sínum í þjóðsögur, Íslend- ingasögurnar, kvennablöð, trúar- brögð, hjátrú og listfræði. Af öðrum sýningum sem þykja þær athyglisverðustu á tvíæringn- um má nefna sýningu hinnar pólsku Moniku Sosnowska, Bretans Tracey Emin, Ástralans Callum Morton og Bandaríkjamannsins Felix Gonzales-Torres. Á vefsíðu tvíæringsins segir að 66.290 manns hafi sótt hann frá opnunardegi 10. júní. Það sé aðsóknarmet, 17,93% fleiri gestir í ár en í hitteðfyrra. Framlag Íslands með því besta Lóan Verk á sýningu Steingríms. SÝNINGARHALD í galleríi versl- unar Sævars Karls í Bankastræti verður áfram óbreytt fram á næsta ár, þrátt fyrir að Sævar og eigin- kona hans hafi selt verslunina. „Við erum bú- in að bóka nokkrar sýn- ingar í gallerí- inu. Kolbrá Bragadóttir ætl- ar t.d. að sýna á Menningarnótt, mjög spennandi innsetningu,“ sagði í Sævar í gær. „Það verður vonandi áfram, þeir stefna að því að gera allt saman betur en ég,“ svaraði Sævar þeirri spurningu hvort nýir eigendur ætl- uðu að halda áfram sýningarhaldi. Tilkynnt var 15. júlí sl. að Vestur- höfn ehf., í eigu Páls Kolbeinssonar og tengdra aðila og Arev N1, einka- fjármagnssjóður sérhæfður í smá- sölu, hefðu keypt verslunina. Áfram sýnt hjá Sævari Sævar Karl JBK Ransu myndlist- armanni var í vikunni veittur 15.000 dollara starfsstyrkur úr sjóði The Pollock Krasner foundation í Banda- ríkjunum. Sjóðurinn er nefndur eftir Jack- son Pollock heitnum og var stofnaður árið 1985 af myndlistar- konunni Lee Krasner, eiginkonu Pollocks. Pollock er einn áhrifa- mesti og þekktasti myndlistarmaður Bandaríkjanna fyrr og síðar. Á annað hundrað listamenn víða að úr heiminum fá úthlutaðan slíkan styrk, en skilyrðið er að hafa starfað að myndlist um nokkurt skeið. Ransu segist hafa sótt um styrkinn fyrir tveimur árum, en fengið hann fyrst nú. Hann hafi far- ið utan og þá hafi beiðni verið send til Ís- lands um að hann sendi frekari gögn. Hann gerði það, sendi mikið magn ýmissa gagna, m.a. þrjú meðmæla- bréf. „Ég þurfti meira að segja að senda skattaskýrsluna mína,“ segir Ransu hlæjandi. Krafa hafi verið gerð um að hann sýndi fram á að hann myndi nýta styrkinn til myndlistarstarfa. Ransu hefur á seinustu árum málað verk sem hann nefnir XGeo. „Þau eru að hluta út frá slettumál- verkum Jacksons Pollocks, blanda saman geómetríu og aksjón-mál- verkinu,“ segir Ransu. Hann segir hljómsveitina Prodigy í raun hafa verið kveikjuna að XGeo verkunum, lagið Firestarter. „Mér fannst svo magnað að þarna væru pönkarar að gera dansmúsík […] eins og Sex Pi- stols og Donna Summer í einni hljómsveit.“ Hann hafi hrifist af því að jafn- ólíkum hlutum, í raun andstæðum, væri skellt saman. Í fyrstu verkum sínum blandaði Ransu saman popp- list og litaflæmi. „Táknin eru sam- félagsleg og litaflæmið andlegt,“ segir Ransu. Upp úr því spratt XGeo. Ransu sýnir þessa dagana með Birgi Snæbirni Birgissyni í gallerí Suðsuðvestri undir yfir- skriftinni Hreinn hryllingur. JBK Ransu hlaut styrk frá Pollock Krasner Foundation Firestarter með Prodigy innblásturinn að XGeo Merktur XGeo-málar- inn JBK Ransu. RITHÖFUNDURINN Ólafur Jóhann Ólafsson er einn 34 smá- sagnahöfunda sem tilnefndir eru til Frank O’Connor-smásagnaverð- launanna írsku, fyrir bókina Aldin- garðinn. Á morgun kemur í ljós hvort hann verður einn fjögurra sem að lokum bítast um verðlaunin, komast á stutta listann svonefnda. Dagblaðið Irish Times birtir stutta listann og verða verðlaunin svo veitt 23. september. Til mikils er að vinna, 35.000 evrur í verð- launafé, tæpar 2,9 milljónir króna, að ónefndum heiðrinum. Eitt af stórmennum bókmenntanna, Haruki Murakami, hlaut verðlaunin í fyrra. „Á stuttum tíma hafa þessi verð- laun áunnið sér nokkuð styrkan sess. Sjónum er eingöngu beint að smásagnasöfnum og það er mikið gert í kringum þetta,“ sagði Ólafur Jóhann í gær. Verðlaunaupphæðin væri sú hæsta sem veitt væri fyrir smásögur, að hans viti. Önnur álíka mikilvæg verðlaun væru hin bandarísku O. Henry Prize, en safn smásagna verðlauna- hafa er gefið árlega út vestanhafs. Ólafur tekur undir það að mikill heiður og kynning sé fólgin í því að komast á lista tilnefndra, en Aldin- garðurinn hefur fengið afbragðs- dóma og góðar viðtökur í Banda- ríkjunum. Ólafur segir útgefendur sína í Bandaríkjunum hafa fagnað tilnefningunni og auðvitað enn frekar ef hann kemst á stutta listann. „Það er miklu betra að fá hól en spark í rassinn,“ segir Ólafur. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem til- nefndur er til verðlaunanna. Tilnefndur til írskra smásagnaverðlauna Ólafur Jóhann tilnefndur til verðlauna sem Haruki Murakami hlaut í fyrra ♦♦♦ FINNSKI listamaðurinn Janne Laine opnar sýningu sína Night Reflections í Jónas Viðar Galleríi á Akureyri á morgun kl. 15. Laine er vel þekktur grafíklistamaður frá Finnlandi, en hann hefur hald- ið fjölda sýninga víða um heim. Hann starfar sem svokallaður master-prentari við hið þekkta grafíkverkstæði Himmelblau í Tampere. Laine hefur oft komið til Íslands og orð- ið fyrir áhrifum af íslensku landslagi, auk þess að hafa kennt við Myndlistaskólann á Akureyri. Á sýningunni sýnir hann nýleg helíógrafík-verk, en hún stendur til 12. ágúst. Myndlist Finnsk grafík undir íslenskum áhrifum Úr verki Laine.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.