Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 19
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Draumahelgin mín snýst auðvitað umsól og blíðu. Ég myndi byrja daginná sundi, síðan tæki gönguferðin viðog svo myndi ég örugglega vilja vera á hnjánum í garðinum með græna fingur ásamt hinum fjölskyldumeðlimunum því nú erum við að taka garðinn okkar í gegn með blómabeðum og pöllum. Fiskur á grillið og rólegheit í faðmi fjölskyldunnar um kvöldið yrði svo fínn endir á góðum degi,“ segir Linda María Ásgeirsdóttir, húsfreyja í Hrísey og formaður markaðsráðs Hríseyjar. Um helgina ætla Hríseyingar og gestir þeirra að vera í hátíðarskapi undir merkj- um Fullveldishátíðarinnar, sem fyrst var haldin fyrir tíu árum. Þrátt fyrir að Hrísey hafi sam- einast Akureyri árið 2004 halda eyjarskeggjar í þá hefð að halda fjölskylduhátíð fullveldisins með pomp og prakt og fá allir, sem á hátíðina koma, sérstakt vegabréf við komu til eyj- arinnar. Fjölbreytt fjölskylduhátíð Að sögn Lindu Maríu verður dagskráin fjöl- breytt með fjölskyldulegri stemningu og er að- gangur ókeypis. Boðið verður m.a. upp á óvissu- ferðir fyrir börn og fullorðna, söngvarakeppni barna, skeljasúpu, skeljakappátt, sædýrasafn, leiktæki, grill, dráttarvélaferðir, vitaferðir, sjóstangakeppni, ratleik, flugmódelasýningu, kvöldvöku, varðeld, brekkusöng og flugeldasýn- ingu. Fjölskylduhátíðin í Hrísey hefur vaxið að vin- sældum á ári hverju. Fyrst voru það aðallega brottfluttir Hríseyingar sem sóttu eyjarskeggja heim en nú er ferðamannaflóran orðin mun fjöl- breyttari. Íbúar eyjarinnar eru rúmlega 170 að tölu. Umhverfismálin í brennidepli „Það er voða gott að búa í Hrísey,“ segir Linda, sem starfar sem leiðbeinandi á leikskól- anum Smábæ auk þess sem hún situr í um- hverfisnefnd Akureyrarbæjar fyrir Samfylk- inguna. „Ég hef mikinn áhuga á umhverfismálum og ferðaþjónustu og á svona litlum stöðum er svo auðvelt að fá fólk til að vinna að góðum málefnum. Skólarnir okkar hér í Hrísey eru t.d. þeir fyrstu á Norðurlandi sem fengu grænfánann.“ Linda segist vera að skjóta rótum í Hrísey nú í þriðja sinn, en hún hafi sex ára reynslu af bú- setu í Reykjavík og níu ára búsetureynslu frá Siglufirði. „Ég er algjör dreifbýlistútta. Eftir að ég náði mér í mann og eignaðist börn, sem nú eru 17, 15 og 4 ára, kom ekkert annað til greina en að ala börnin upp úti á landi þar sem ég þekkti það af eigin raun hversu gott það er. Og eiginmaðurinn, sem er Garðbæingur í húð og hár, malar af ánægju hér í eyjunni og vill hvergi annars staðar búa. Hann sækir þó atvinnu sína til Akureyrar, tekur bara ferjuna á morgnana og kemur sömu leið til baka þegar kvölda tek- ur.“ Alveg laus við veiðibakteríuna Linda María segist hafa mikla ánægju af ferðalögum innanlands, en hún hafi afgreitt út- lönd að mestu áður en hún festi ráð sitt, að sögn. „Við vorum með kanadíska gesti í sumar sem við fórum með í dagsferðir á alla þessa staði sem maður sýnir útlendingum. Og svo erum við að byrja í sumarfríi um helgina og þá verður m.a. farið í sumarbústað og austur á Hérað til að leita að hreindýrum því eiginmanninn langar svo mikið til að sjá hreindýr. Ég er hinsvegar al- gjörlega laus við veiðibakteríuna og íþróttir skipta mig heldur engu máli. Ég verð svo að koma leiklistinni að. Það er voða gaman að starfa með leikfélaginu, sem hefur nú verið end- urreist hér í eyjunni,“ segir Linda að lokum. „Ég er algjör dreifbýlistútta“ Varðeldurinn Ungir sem aldnir ætla að skemmta sér sam- an á fjölskylduhátíð í Hrísey um helgina. |föstudagur|20. 7. 2007| mbl.is daglegtlíf Geimferðir fyrir almenning gætu orðið að veruleika á næstu árum – að minnsta kosti fyrir þá efnameiri. » 21 ferðalög Ís er sú fæða sem er hvað lík- legust til að kalla fram sælusvip á andlitinu og þá sérstaklega hjá Ítölum. » 20 ís Hollustan er í fyrirrúmi hjá matgæðingnum Sigrúnu Þor- steinsdóttur, sem lumar á úr- vali uppskrifta. » 22 matur Besta sundlaugin: Sundlaug- in í Hrísey er hreint æðisleg. Fallegasti staðurinn: Ekkert jafnast á við Hrísey. Uppáhaldsmaturinn: Nauta- kjöt, fiskur og slátur. Besti veitingastaðurinn: Ítalía á Laugavegi hefur verið í uppá- haldi undanfarin tuttugu ár. Fallegasta gönguleiðin: Mjög fagurt er að ganga yfir Siglufjarðarskarðið. Linda María mælir með… Hríseyingurinn „Það er afskaplega gott að búa í Hrísey,“ segir Linda María Ásgeirsdóttir. Eyjan Í Hrísey búa nú rúmlega 170 íbúar. Eftir að ég náði mér í mann og eign- aðist börn, sem nú eru 17, 15 og 4 ára, kom ekkert annað til greina en að ala börnin upp úti á landi. www.hrisey.net MARGIR þekkja það af eigin raun hvað andvökunætur geta verið erf- iðar en fæstir hefðu kannski rennt grun í að vandamál af þessu tagi plöguðu konur fremur en karla. Það er ný rannsókn á vegum The Nat- ional Sleep Foundation, sem fjallað er um á vef breska blaðsins The Gu- ardian, sem segir frá þessu. Könnunin náði yfir tvö þúsund konur og kemur þar fram að tveir þriðju hlutar kvennanna hafi átt erf- itt með svefn í það minnsta einn dag í viku eða jafnvel fleiri. Í samanburð- arhópi karla var þetta hlutfall tals- vert lægra en aðeins helmingur karla þjáðist af svefnleysi á sama stigi. Rannsakendurnir tengja svefn- leysi kvennanna við hormónabreyt- ingar, t.d. á breytingaskeiði, á með- göngu eða við blæðingar en einnig að konur í nútíma samfélagi séu undir meira álagi en áður og því sé stress meiri áhrifavaldur en áður. Richard Gelula hjá bandarísku svefnsamtökunum segir að þetta sé alvarlegt mál. Konur í dag brenna hratt út vegna hlutverka þeirra heima við og í atvinnulífinu að sögn Gelula og eykur það verulega á stress sem aftur eykur líkurnar á svefnleysi. Draga úr heilsusamlegum áhugamálum Könnunin sýndi að svefnleysi hef- ur víðtæk áhrif á konur og einnig að 80% kvennanna sætta sig við ástandið og reyna þær heldur að vega á móti þreytu með því að neyta t.d. kaffidrykkja. Í stað þess að taka frí frá vinnu draga konurnar heldur úr heilsu- samlegum áhugamálum sínum, svo sem hreyfingu, hollum mat og kyn- lífi. Þannig kemst fljótlega á víta- hringur svefnleysis. Í greininni í The Guardian er minnst á að fyrrum forsætisráð- herra Margaret Thatcher hafi kom- ist af með aðeins fjögurra tíma svefn og samt getað sinnt starfi sínu sem forsætisráðherra. Reyndar er einnig minnst á að Thatcher, sem er ekki kölluð járnfrúin að ástæðulausu, hafi sagt að „svefn væri fyrir aumingja“. Þegar vinnan kallar viðurkennir helmingur kvenna að aukinn tími í vinnu komi niður á svefni og hreyf- ingu. Niðurstaðan er oft að konur greinast ekki með svefntruflanir þar sem einkenni þeirra eru öðruvísi en karla og enda því í ástandi sem mætti segja að væri mitt á milli svefns og vöku. Konur þjást frekar af svefnleysi en karlar Morgunblaðið/Sverrir Svefnleysi Streita er einn af áhrifavöldum svefnleysis. Margir leita á náðir svefnlyfja til þess að geta hvílst er andvökunætur reynast um megn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.