Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 37 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin frá kl. 9-16.30. Bingó kl. 14. Bólstaðarhlíð 43 | Saltfisksetrið í Grindavík heimsótt fimmtu- daginn 26. júlí. Ekið suður í Hafnir og þaðan til Grindavíkur. Kaffiveitingar á veitingastaðnum Salthúsinu. Lagt af stað kl. 12.30, verð 2.100 kr. Skráning og greiðsla eigi síðar en 24. júlí. Allir velkomnir. Uppl. í síma 535 2760. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin og heitt á könnunni til kl. 16. Hádegisverður kl. 11.40. Allir eru velkomnir að líta við, kíkja í blöðin, taka í spil eða bara spjalla. Félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10 vefnaður og ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Félagsstarfið Langahlíð 3 | Handverks- og bókastofa opin. Kl. 10 blaðaklúbbur og umræður. Kl. 13 opið hús, brids/vist spiluð. Kl. 14.30 kaffiveitingar. Furugerði 1, félagsstarf | Myndbandssýning í dag kl. 13.45. Stiklur Ómars Ragnarssonar. Kaffiveitingar kl. 15. Allir velkomn- ir. Hraunbær 105 | Kl 9 kaffi, spjall og dagblöðin, baðþjónusta, kl. 12 hádegismatur, kl. 15 kaffi, kl. 14.45 bókabíllinn. Hvassaleiti 56-58 | Hádegisverður kl. 11.30. Bingó kl. 13.30 spilaðar 6 umferðir, kaffi og meðlæti. Hársnyrting, s. 517 3005/849 8029. Blöðin liggja frammi. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15- 14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13.30- 14.30 sungið við flygilinn. Kl. 14.30-14.45 Kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í aðalsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Bingó í dag kl. 13.30, allir velkomnir. Félagsmiðstöðin er opin öllum óháð aldri. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin kl. 17-22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. ÞYKKVABÆJARKLAUSTURSKIRKJA | Haldið verður upp á Þorláksmessu í sumar með kvöldguðsþjónustu kl. 20. Sr. Ingólfur Harvigsson leiðir stundina. Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir söng. Georges Antoine Geigy leikur á sekja- pípu. Kaffiveitingar í Herjólfsstaðaskóla að lokinni guðsþjón- ustu. 90ára afmæli. Í dag, 20.júlí, er sr. Húbert Óre- mus CM níræður. Hann starf- aði sem kaþólskur prestur í tæplega 30 ár á Íslandi. Hú- bert syngur messu (Þorláks- messu á sumri) í dag, í Krists- kirkju, Landakoti, kl. 18. Að athöfninni lokinni tekur hann á móti gestum í safnaðarheim- ilinu, Hávallagötu 16. 25ára afmæli. GunnarÖrn Ingólfsson er tutt- ugu og fimm ára í dag. Í tilefni dagsins deilir hann súkku- laðiköku með sínum nánustu og tekur á móti hugskeytum frá öðrum vinum og vanda- mönnum frá kl. 18-22. dagbók Í dag er föstudagur 20. júlí, 201. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.) Hátíð verður haldin á Húsavíkvikuna 23. til 29. júlí. Mar-grét Kröyer er verkefn-isstjóri Húsavíkurhátíðar sem hefst með Sænskum dögum og lýkur með Mærudögum: „Sænskir dag- ar verða settir á mánudag og standa út fimmtudag og verður heilmikið um að vera í bænum,“ segir Margrét en Hús- víkingar hreykja sér af því að hinn sænskættaði Náttfari hafði fyrstur manna vetursetu á Íslandi skammt þaðan sem Húsavíkurbær stendur nú árið 870. „Við fáum í heimsókn til okkar stóran kór frá Svíþjóð og munu með- limir hans taka þátt í námskeiðahaldi sem hefð er fyrir á Sænskum dögum. Nefna má sem dæmi námskeið í leiklist og keramík, kynningu á verkum Ast- ridar Lindgren, leiðsögn í hnýtingu siglingahnúta og siglingu eftir stjörn- unum.“ Loftbelgur verður á Húsavík á með- an á hátíðinni stendur og býður upp á ferðir kvölds og morgna og styttri ferð- ir yfir daginn ef veður leyfir, lifandi tónlist verður öll kvöld niðri við Húsa- víkurhöfn og nútímasirkusinn Lice de Luxe kemur alla leið frá Barcelona til að halda sýningar fyrir hátíðargesti þriðjudag og miðvikudag: „Sænskum dögum lýkur svo formlega með harm- onikkuballi á fimmtudeginum í tjaldi við höfnina þar sem heimsþekktir harmonikkuleikarar frá Svíþjóð, Nor- egi og Íslandi spila saman í einu alls- herjar fjöri.“ Mærudagar er húsvíska fyrir Nammidagar og er dagskrá helg- arinnar eftir því: „Á Mærudögum í ár verður m.a. bílasýning á vegum Ferða- klúbbsins 4x4 og bifhjólasýning, skot- bakkar og spákona. Ball fyrir 18 ára og yngri verður haldið á fimmtudags- kvöldinu og Ína og hljómsveit spila á balli á föstudaginn en á föstudag verð- ur einnig haldin flugeldasýning,“ segir Margrét. „Leikklúbburinn Lotta flytur leikritið Dýrin í Hálsaskógi í skrúð- garðinum á laugardag og við höldum útimarkað og tívolí og laugardagsball með hljómsveitinni Hefner.“ Finna má nánari upplýsingar um dagskrá Húsavíkurhátíðar á slóðinni www.nordurthing.is. Boðið er upp á rútuferðir frá Raufarhöfn og Kópa- skeri til Húsavíkur á föstudag og laug- ardag. Fögnuður | Sænskir dagar og Mærudagar haldnir á Húsavík 23. til 29. júlí Húsvíkingar halda hátíð  Margrét Kröyer fæddist á Ak- ureyri 1967. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1987, lauk námi í grafískri hönnun frá Mynd- listarskólanum á Akureyri 1996 og lagði stund á við- skiptanám við HA. Margrét starfaði við umbrot og auglýsingagerð, og hefur í þrjú ár starfrækt auglýs- ingastofuna Imago. Hún tók við starfi verkefnisstjóra Húsavík- urhátíðar árið 2007. Sambýlismaður Margrétar er Magnús Gehringer við- skiptafræðingur og eiga þau sam- anlagt þrjár dætur. Tónlist Duus hús | KK & Maggi Eiríks halda tónleika í Bíósalnum í Duushúsum í Keflavík á föstu- dagskvöldið kl. 20.30. Á efnisskránni verða m.a. lög af nýrri plötu þeirra félaga, „Lang- ferðalög“, auk annarra þekktra sönglaga úr fórum þeirra félaga. Miðasala er við inngang- inn og hefst kl. 20. Ketilhúsið Listagili | Tónleikar með Dúóinu Paradís kl. 12. Hafdís Vigfúsdóttir á flautu og Kristján Karl Bragason á píanó. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og tónleikarnir standa í um 50 mín. Myndlist Gallerí Tukt | Torfi Fannar sýnir málverk og skúlptúra. Skemmtanir Vélsmiðjan Akureyri | Geirmundur Valtýsson spilar föstudag og laugardag. Húsið opnar kl. 22, frítt inn til miðnættis. UNGUR drengur stekkur út í sundlaug í Vín, höfuðborg Austurríkis í gær. Kælingin hefur eflaust verið kærkomin fyrir dreng- inn og vini hans því óvenju miklir hitar hafa verið í landinu að undanförnu. Sam- kvæmt veðurspá fyrir daginn í dag nær hit- inn í Vín allt að 38 gráðum á hádegi. Hvergi í Evrópu sjást hærri hitatölur um þessar mundir þótt hitinn fari um og yfir 30 stig á Spáni og Ítalíu í dag. Kærkomin kæling Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um stóriðju, nátt- úruvernd og vistvæna orkustefnu: „Þing- flokkur Vinstrihreyf- ingarinnar – græns fram- boðs lýsir miklum áhyggjum vegna þeirrar stefnu ríkisstjórn- arinnar að heimila að áfram sé haldið undirbúningi álverk- smiðja í Helguvík, í Straumsvík, á Húsavík og víðar í skjóli út- gefinna rannsóknaleyfa til orku- öflunar. Yfirlýst stefna ríkis- stjórnarinnar breytir að mati talsmanna orkufyrirtækjanna engu um þessi framkvæmda- áform, þótt annað hafi verið gef- ið í skyn af iðnaðarráðherra. Þingflokkur VG krefst þess að hvorki verði gerðir samningar við stóriðjufyrirtæki né úthlutað rannsóknaleyfum til orkufyrir- tækja á meðan unnið er að nátt- úruverndaráætlun fyrir tímabil- ið 2008–2012 og lokið við rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Sá tími sem ætlaður er til þess verks fyrir árslok 2009 er augljóslega of knappur, ljóst er að Alþingi þarf meira ráðrúm til úrvinnslu og ákvarðana en ríkisstjórnin gerir ráð fyrir. Fjölmörg atriði styðja þá skoðun að nú beri að staldra við með alla frekari stóriðjuupp- byggingu hérlendis,“ segir m.a. í ályktuninni. „Þingflokkur VG leggur áherslu á nauðsyn þess að horf- ið verði frá stóriðjustefnunni og telur mikilvægt að þeir sem taka undir þau sjónarmið tali skýrt og láti verkin tala í þeim efnum. Tryggja þarf með lögum heildstæð tök löggjafar- og framkvæmdavalds á orkumálum og að skipulagsákvarðanir um uppbyggingu meiri háttar iðn- aðar og orkuframkvæmda séu teknar á landsvísu en ekki af handahófi og vegna skamm- tímasjónarmiða,“ segir enn- fremur. VG vill falla frá stóriðjustefnunni Steingrímur J. Sigfússon SJÓVÁ Forvarnahús vill koma á framfæri upplýsingum um hina svokölluðu „beltisstýr- ingu“ fyrir barnshafandi konur. „Sá misskilningur virðist vera í gangi hér á landi að „beltisstýring“ (meðgöngubíl- belti) fyrir barnshafandi konur sé nauðsynlegur öryggisbúnað- ur sem eigi að nota með bílbelt- inu. Búnaðurinn er ekki örygg- isbúnaður, heldur einungis til þæginda fyrir konuna. Búnað- urinn hefur ekki hlotið viður- kenningu sem öryggisbúnað- ur.“ Einnig kemur fram að engar kröfur séu til um öryggi bún- aðarins sem gerir það að verk- um að ekki er hægt að prófa hann og gefa honum viðurkenn- ingu sem öryggisbúnaði. „Beltisstýring“ aðeins þægindi 80ára afmæli. Í dag, 20.júlí, er áttræður Pétur Jónsson frá Hólmavík. Pétur bjó lengst af á Akranesi og vann þar sem vélamaður í Haferninum hf. sem hann var hluthafi í. Hann er núna bú- settur í Reykjavík. Pétur verður að heiman í dag. Rangt netfang ÞAU leiðu mistök urðu í Við- skiptablaði Morgunblaðsins í gær að rangt netfang var gefið upp með grein eftir Önnu Díu Erlingsdóttur eiganda Golf- leikjaskólans. Rétt netfang er golf@golfleikjaskolinn.is. Þá var fullt nafn Önnu Díu einnig gefið upp, sem er Anna Sigríður Erlingsdóttir. Hún er hins vegar betur þekkt undir nafninu Anna Día Erlingsdóttir. Þúsund tonn af brotajárni VIÐ frágang fréttar um brota- járnshreinsun á Þórshöfn og nágrenni sem birtist á bls. 17 í blaðinu í gær skolaðist til magnið sem náðist að hreinsa upp. Þar var um að ræða á ann- að þúsund tonn af brotajárni. Ekki í Bárubúð Í grein í blaðinu í gær, þar sem sagði frá minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, var rang- lega sagt að Bríet hefði fyrst kvenna flutt opinberan fyr- irlestur í Bárubúð. Hið rétta er að fyrirlesturinn var fluttur í Góðtemplarahúsinu í Reykja- vík, þann 30. desember 1887. Minnisvarðinn mun rísa á horni Amtmannsstígs og Þingholts- strætis. Nafn misritaðist NAFN Hrannars Baldurssonar, þjálfara heimsmeistara Sala- skóla í skák, misritaðist í blaðinu í gær og hann var sagð- ur Bjarnason. Hann er sem sagt Baldursson og er beðist velvirðingar á þessum mistök- um. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.