Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja fram tillögu á kirkjuþingi í haust þess efnis að breyta eigi starfs- reglum í ráðningarferli presta. Að sögn Guðmund- ar Þórs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Kirkjuráðs, verður þetta gert til að bæta ferlið en hann segir reglurnar í dag vera óljósar. Starfs- reglurnar séu útfærslur á lögum og sé ætlunin með tillögunni að settar verði starfsreglur sem geri ráðningarferlið skýrara. Þetta var ákveðið í kjölfar máls séra Carlosar Ferrers, prests í Tjarnarprestakalli, sem hefur vakið töluverða athygli. Hann var ráðinn í emb- ættið, sem nær yfir sóknir í Hafnarfirði og á Vatnsleysuströnd, til fimm ára og gerði ráð fyrir endurráðningu. Fyrir skömmu var hins vegar ákveðið að framlengja ekki samninginn við Carlos heldur velja séra Báru Friðriksdóttur í starfið. Meirihluti safnaðarnefndar á Vatnsleysuströnd greiddi atkvæði með auglýsingu embættisins og samþykkti sóknarnefndin að sú leið yrði farin. Sérregla í þjóðkirkjulögum um ráðningu presta kveður á um að söfnuðum sé gefinn kostur á því að krefjast auglýsingar embættis þegar fimm ára ráðningarsamningur rennur út. Ágreiningur í annarri sókninni Að sögn Ragnhildar Benediktsdóttur, skrif- stofustjóra á Biskupsstofu, veitir 40. grein kirkju- laganna heimild til þess að söfnuður geti óskað eft- ir því að embætti verði auglýst laust til umsóknar og þarf slík tillaga að koma fram átta mánuðum áður en skipunartíminn rennur út. Leita þurfi álits úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar sem fékkst í þessu tilviki og síðan var málinu skotið til val- nefndar. Spurð hvort óánægju hafi gætt með störf Car- losar hjá söfnuðinum segir Ragnhildur það greini- legt að safnaðarmeðlimir vilji hafa eitthvað um það að segja hvaða prestur verður þarna áfram. „Úr því að þeir óskuðu eftir því að þetta yrði aug- lýst að nýju þá hafa verið einhverjar ástæður hjá söfnuðinum fyrir því að hann yrði ekki þarna áfram.“ Hún segir þó ekki hafa verið beinlínis kvartað undan Carlosi en á einhverju tímabili hafi verið uppi ágreiningur í Kálfatjarnarsókninni, sem er önnur tveggja sókna kirkjunnar. Hin sókn- in ákvað að fara ekki fram á að staðan yrði auglýst en Ragnhildur segir nægja að óskin komi fram frá einum söfnuði. Alls sóttu níu um starfið. Valnefndin, sem valdi séra Báru Friðriksdóttur í stöðuna, samanstóð af sóknarnefndum úr báðum sóknum. Lagt verður til að reglum um ráðningu presta verði breytt Ráðning prests ekki framlengd eftir atkvæðagreiðslu einnar sóknar Í HNOTSKURN »Söfnuður Kálfatjarnarsóknar nýtti sérsérreglu í þjóðkirkjulögum um ráðn- ingu presta sem segir söfnuði geta krafist þess að embættið verði auglýst þegar fimm ára starfssamningur rennur út. »Séra Carlos Ferrer mun láta af störfum1. september. DALVEGUR var opnaður laust eftir klukkan fjögur í gær en lögreglan hafði lokað hluta hans í fyrrakvöld. Það var gert af öryggisástæðum en á kaflanum milli Digranesvegar og Dalsmára voru framkvæmdir í gangi og hafði verktakinn ekki gengið frá akstursleið meðfram 5 metra djúpum skurði með viðunandi hætti. Mikil slysahætta þótti vera á ferðum og að sögn lögreglu var ekkert sem hindraði það að fólk lenti ofan í skurðinum, fipaðist við aksturinn eða sæi hreinlega ekki skurðinn. Frágangurinn væri einfaldlega óviðunandi. Nokkrar appels- ínugular keilur væru meðfram götunni til að vekja athygli á framkvæmdunum en vegrið vant- aði við djúpan skurðinn sem lá meðfram götunni. Að sögn verktakans var hafist handa við að lagfæra öryggismálin strax í gærmorgun. Hann segir sökina ekki alfarið verktakafyrirtækisins þar sem unnið var eftir ákvörðun útboðsgagna í málinu en reynt hafi verið eftir fremsta megni að tryggja öryggi vegfarenda. Mikil slysahætta sökum slæms frágangs Eftir Andra Karl andrikar@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness sýknaði í gær Ás- geir Þór Davíðsson, eiganda næturklúbbsins Gold- finger, og nektardansmey af sama stað af ákæru um að sýna nektardans í lokuðu rými. Nærri fimm hundruð þúsund króna málsvarnarlaun ákærðu vegna málsins greiðast úr ríkissjóði. Í dómnum segir að lögreglumenn hafi leitað á Goldfinger í október 2005 vegna gruns um ætluð brot rekstraraðila staðarins á lögreglusam- þykktum Kópavogsbæjar. Í samþykktunum er lagt bann við nektarsýningum í lokuðu rými með við- skiptamanni. Lögreglumenn sem á staðinn fóru sáu klefa ætl- aða fyrir einkadans og var dregið fyrir þá alla með tjaldefni. Þegar lögregluþjónn dró tjaldið frá einum klefanum var ákærða í málinu þar að dansa afar fá- klædd fyrir viðskiptavin. Bæði nektardansmærin og Ásgeir Þór játuðu fyrir dómi að einkadans hefði farið fram á Goldfin- ger í umrætt sinn. Í niðurstöðu dómsins er hins vegar bent á að hvorki í lögreglusamþykktinni né öðrum rétt- arheimildum sé að finna skilgreiningu á lokuðu rými. Einnig er komist að þeirri niðurstöðu að auð- velt sé fyrir lögreglumenn að halda úti eftirliti á Goldfinger þar sem engin fyrirstaða sé af hálfu rekstraraðila. Er þar m.a. litið til framburðar lög- regluþjóns fyrir dómi sem sagði afar auðvelt að draga tjaldið frá. „Útbúnaður á næturklúbbnum var því ekki með þeim hætti að komið væri í veg fyrir eftirlit með því sem gerðist að tjaldabaki í þeim klefum sem einka- dans fór fram,“ segir m.a. í dómnum. Dómurinn segir ennfremur að skýra verði „lokað rými“ þannig að miðað sé við að það sé ekki lokað með þeim hætti að hindri störf lögreglu. Héraðsdómarinn Sveinn Sigurkarlsson kvað upp dóminn. Karl Ingi Vilbergsson, fulltrúi lög- reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sótti málið og Brynjar Níelsson hrl. og Guðmundur Óli Björg- vinsson hrl. vörðu ákærðu. Héraðsdómur Reykjaness sýknaði eiganda næturklúbbsins Goldfinger af ákæru um að hafa staðið fyrir sýningu nektardans í lokuðu rými Hindrar ekki störf lögreglu Morgunblaðið/Golli Ánægðir Brynjar Níelsson lögmaður og Ásgeir Davíðsson, eigandi Goldfingers. ALLMIKIL aukning hefur verið í ferðum hjá ferðaþjónustubátnum Ramónu ÍS 190. Í sumar hafa nærri eitt þúsund farþegar farið með hon- um í Jökulfirði og austur um strand- ir en voru 1.410 allt sumarið í fyrra. Friðrik Jóhannsson er skipstjóri á bátnum og húskarl á Sútarabúðum í Grunnavík. Friðrik sér verulegar breytingar á ferðamynstrinu þar sem fólk vilji í auknum mæli gista í húsum ef mögulegt er en tjaldbú- skapur fer minnkandi. Í samtali við vikari.is segir hann, að dagsferðum, trúss- og lúxusferðum fari fjölgandi. Friðrik og Sigurrós, eiginkona hans, reka einnig gistiskála í Sútara- búðum í Grunnavík. Hafa þau verið að vinna að endurbótum á húsinu og bjóða upp á svefnpokagistingu fyrir 14 manns og eldunaraðstöðu. Friðrik er með fastar áætlunarferðir til Grunnavíkur þrisvar í viku og til Að- alvíkur tvisvar í viku auk margra aukaferða norður sem eru sérstak- lega auglýstar á heimasíðu fyrirtæk- isins, grunnavik.is. Frá þessu var greint á vikari.is. Aukning í ferðum Ramónu ÍS HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri, en hann var síðast dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness 12. júlí sl. – þá í 30 mánaða fangelsi fyrir margvísleg brot. Hann sætir gæsluvarðhaldi til 13. ágúst nk. Maðurinn var hnepptur í gæslu- varðhald 30. janúar sl. en 2. júlí var hann látinn laus er Hæstiréttur sneri við ákvörðun héraðsdóms. Fjórum dögum síðar var hann færður í gæsluvarðhald á nýjan leik, en á tímabilinu varð hann uppvís að auðgunarbrotum, til- raunum til ráns og brotum á um- ferðarlögum. Búið er að gefa út ákæru á hendur honum vegna brotanna. Maðurinn er í mikilli fíkniefna- neyslu og fjármagnar hana með lögbrotum. Þykir því auðséð að hann muni halda áfram að brjóta af sér verði hann látinn laus. Gæslu- varðhald framlengt LANDSMÓT unglingadeilda Slysa- varnafélagsins Landsbjargar stend- ur nú yfir á Gufuskálum og lýkur á morgun. Ríflega 170 unglingar eru þar saman komnir ásamt 50 umsjón- araðilum. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og í gær unnu unglingarnir að ýms- um verkefnum; lærðu meðal annars að vinna með vogarafl auk þess sem kennsla í skyndihjálp, leitartækni og umgengni við báta fór fram. Veður á mótsstað hefur ekki verið upp á marga fiska. Rigning hefur herjað á harðduglega unglingana sem flestir hafa aðeins í köld tjöld að venda. Í gærkvöldi létti þó aðeins til og útlit er fyrir að allir hafi gengið til rekkju skraufþurrir og spren- glærðir í skyndihjálp og leitartækni. Landsmót á Gufuskálum Morgunblaðið/Júlíus ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.