Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björn Krist-jánsson fæddist á Steinum í Staf- holtstungum 5. júlí 1920. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Grund 12. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Rannveig Odds- dóttir, f. 11. nóv- ember 1890, d. 23. desember 1986 og Kristján Franklín Björnsson, húsa- smiðameistari, hreppstjóri og bóndi á Steinum í Stafholtstungum, f. 29. febrúar 1884, d. 19. apríl 1962. Systkini Björns voru Málfríður, f. 20. nóv. 1912, d. 15. sept. 1993, Oddur, f. 11. ág. 1914, d. 17. feb. 2005, Kristín, f. 18. júní 1917, d. 3. apr. 2002 og Þur- íður Jóhanna, f. 28. apríl 1927. Uppeldissystir Björns var Sigríður Baldursdóttir, f. 1. nóv 1936, d. 17. feb. 2006. Björn kvæntist 11. nóvember 1944 Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, f. Þórisson, f. 13. júlí 1997. b) Ingi- björg Kristín, f. 2. október 1982, g. 18. júní 2005 Pétri Gunnari Þór Arnarsyni, f. 25. maí 1970. Dóttir þeirra er Guðný Magnea Péturs- dóttir 7. sept. 2005. c) Valdimar Guðmundur, f. 28. apríl 1986. Björn var trésmiður og kennari. Hann lauk sveinsprófi í hús- gagnasmíði 1946 og flutti þá í Borgarnes. Björn lauk sveinsprófi í húsasmíði 1955 og handavinnu- kennaraprófi 1960. Kennari við Iðnskólann í Borgarnesi 1949-1952. Flutti að Varmalandi 1952 og að- stoðaði föður sinn við byggingu barnaskólans að Varmalandi. Fluttist til Reykjavíkur 1955, starf- aði sem smiður fyrstu 3 árin á möl- inni, en var kennari við Breiða- gerðisskóla 1958-1962 og Hagaskóla 1962-1992. Kenndi á veturna en vann við smíðar á sumr- in. Hafði umsjón með byggingu sumarbústaðahverfisins í Mun- aðarnesi um skeið. Starfaði jafn- framt að félagsmálum og var for- maður Borgfirðingafélagsins í Reykjavík í rúman áratug, og for- maður MÍR um skeið. Björn verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 25. mars 1919. For- eldrar hennar voru Guðný Magnea Pét- ursdóttir 3. apríl 1893, d. 9. des. 1978 og Sig- urjón Einarsson bóndi á Hraunkoti í Gríms- nesi, f. 11. apríl 1893, d. 8. október 1975. Dætur Björns og Ingi- bjargar eru: 1) Birna sjúkraliði í Reykjavík, f. 1. febrúar 1947, g. 1. júní 1969 Braga Gísla- syni skólaliða, f. 6. október 1938. Börn þeirra eru Björn Kristján, f. 16. sept. 1983, Sigríður Björk, f. 24. apríl 1988 og Bjarki Steinn, f. 29. mars 1990. 2) Rannveig banka- starfsmaður í Reykjavík, f. 22. apríl 1955, g. 10. nóv. 1973 Þórarni Flosa Guðmundssyni bílstjóra, f. 7. ágúst 1952. Börn þeirra eru a) Birna Lára, f. 5. mars 1977, sambýlis- maður Ríkharður Utley, f. 20. maí 1970. Synir Birnu úr fyrra sam- bandi eru Kjartan Ingi Þórisson, f. 13. júní 1996 og Guðmundur Flosi Björn Kristjánsson hóf kennslu við Hagaskóla 1962 og starfaði þar óslitið til ársins 1992 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Björn átti sérlega létt með að um- gangast fólk, eldra sem yngra, féll vel inn í hópinn, glettinn, hófstilltur og íhugull. Hann hafði einstaklega góða nærveru og reyndist ráðagóður þegar upp komu vandamál. Hann gerði lítið úr greind sinni og hafði stundum á orði að það væri sama hvar gagnslaus gaufaði. Björn var ljúfmenni að eðlisfari, hörkugóður stærðfræðingur enda var stærðfræðin aðalkennslugrein hans í fjölda ára. Hann var snillingur í stundatöflugerð sem gat verið nokkuð snúin í fjölmennum ungl- ingaskóla með margvíslegt framboð valgreina. Hann virtist geta leyst fyrirhafnarlaust úr þeim hnútum sem þar mynduðust stundum. Björn var félagslyndur og undi sér vel á samkomum starfsfólks, bland- aði geði við yngri sem eldri án allrar fyrirhafnar. Hann var skoðanafastur og rök- fastur en það kom ekki í veg fyrir að hann breytti um skoðun þegar hann speglaði hlutina út frá nýju sjónar- horni. Þótt hann hefði ekki lært brag- fræði af bókum hafði hann afar næmt brageyra og gat með öruggri vissu sagt til um hvort vísa væri rétt eða rangt kveðin. Björn var víðlesinn og hafði yndi af því að ræða gátur tilverunnar og túlka guðfræði og heimspeki með sínu lagi og fór þá létt með að vitna í Biblíuna máli sínu til stuðnings. Björn var hleypidómalaus og vin- margur. Hann virtist alltaf hafa nægan tíma og gekk til vinnu af fórn- fýsi og með gleði og ánægju til starfsloka. Fyrir nokkrum árum hófst þrautaganga hans með alvarlegu heilablóðfalli sem endurtók sig með þeim afleiðingum að hann læstist inni í eigin líkama, ófær um að tjá sig. Okkur vinum hans þótti illt að horfa upp á þessi meinlegu örlög en gátum lítt annað gert en reyna að heimsækja hann öðru hvoru þar sem við urðum vitni að dæmalausri ástúð og umhyggju Ingibjargar, konu hans, sem gerði allt sem í hennar valdi stóð til þess að létta honum líf- ið. Björn kenndi okkur margt með hógværð sinni og mannviti og var hafsjór af fróðleik sem hann deildi út þegar það átti við. Honum eru að leiðarlokum þökkuð frábær störf og leiðsögn við Hagaskóla um þriggja áratuga skeið. Ingibjörgu og fjölskyldu sendum við samúðarkveðjur. Fyrir hönd samferðarmanna í Hagaskóla. Einar Magnússon og Haraldur Finnsson. Elskulegur og ógleymanlegur samferðamaður er fallinn frá eftir erfitt sjúkdómsstríð. Ég vil minnast hans í örfáum orðum og þakka langt samstarf og kynni. Undirritaður hóf störf við Haga- skóla haustið 1963. Að feta fyrstu skrefin í kennslustarfi, lítt reyndur og kvíðandi, er mörgum raun sem erfitt er að yfirstíga. Í skólanum var margt af traustu og góðu fólki sem leiddi nýliða fyrstu skrefin, reiðubúið að styðja og leið- beina. Björn Kristjánsson var ein þess- ara styrku stoða sem greiddu ungum kennurum götuna, glettinn og hlýr með gamanyrði á vör. Björn var afburða starfsmaður og skólanum ómetanlegur, t.d. við stundaskrárgerð sem er vandasam- ur og þýðingarmikill þáttur í skóla- starfi. Þegar BSRB ákvað að hefja bygg- ingu orlofsheimila fyrir félagsmenn sína í landi Munaðarness í Borgar- firði fékk Björn það hlutverk að vera tengiliður samtakanna í sínu heima- héraði. Það starf rækti hann af stakri prýði. Að tilstuðlan hans var undirritað- ur að störfum, ásamt samkennurum, að sumarlagi í Munaðarnesi. Það voru góðir tímar í glöðum félagsskap heimamanna, undir stjórn öðling- smanna svo sem Þórðar á Hreða- vatni og Aðalsteins á Laufskálum. Síðustu árin voru Birni erfið en nú er hann laus úr viðjum og gengur sæll til heima nýrri. Ég kveð hann klökkum huga og sendi Ingibjörgu og fjölskyldunni allri hlýjar samúðarkveðjur. Ingi Viðar Árnason. Björn Kristjánsson ✝ GuðmundurÞorgrímsson fæddist í Borg- arholti í Bisk- upstungum hinn 26. ágúst 1925. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli að morgni 7. júlí síð- astliðins. Hann var áður til heimilis að Snorrabraut 34 í Reykjavík. For- eldrar hans voru Pálína Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 30.9. 1897, d. 17.7. 1979 og Þorgrímur Grímsson, f. 8.10. 1890, d. 3.7. 1948. Systkini Guðmundar eru: Guðbjörg, f. 1.11. 1921, d. 24.7. 1997, Valdís, f. 5.11. 1922, d. 2.4. 1989, Kristjana, f. 9.11. 1923, Þór- gunnur, f. 16.4. 1928, Óskar Mar- inó, f. 2.8. 1929, Karl Þorgrímsson, f. 29.4. 1931, Borghildur, f. 27.2. 1933, Bergþóra, f. 20.5. 1934 og 1992. 3) Dagný, f. 7.3. 1958, sam- býlismaður Hjörtur Þór Hauksson, f. 8.11. 1952. Dagný á tvö börn úr fyrri sambúð með Erni Orra Ein- arssyni, f. 7.4. 1959, þau heita Hild- ur, f. 22.4. 1989 og Daníel, f. 17.2. 1991. 4) Ásdís, f. 19.2. 1963. Hún á tvö börn með fyrrum sambýlis- manni sínum, Páli Arnari Ólafs- syni, f. 6.7. 1963, þau heita Valdís Dröfn, f. 19.8. 1984, sambýlis- maður Atli Marteinsson, f. 12.6. 1985 og Ólafur Starri, f. 29.12. 1995. Guðmundur var við nám í íþróttaskólanum í Haukadal 1942- 1943. Hann starfaði lengst af sem bifreiðastjóri, ók leigubíl hjá Nýju bílastöðinni, Hafnarfirði, stræt- isvagni hjá Landleiðum og hóp- ferðabílum. Ennfremur starfaði hann sem byggingakranastjóri hjá Byggingafélaginu Ármannsfelli. Guðmundur verður jarðsunginn frá Garðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Hörður, f. 21.7. 1942, d. 9.7. 2001. Kona Guðmundar var Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, f. 7.7. 1934, þau skildu. Þau áttu fjögur börn: 1) Guðrún Ingibjörg, f. 11.7. 1954, maki Bjarni Þórðarson, f. 21.3. 1953. Börn þeirra eru: a) Guð- mundur Þór, f. 2.5. 1978, maki Fjóla Loftsdóttir, f. 27.3. 1979, synir þeirra eru Sölvi, f. 9.5. 2004 og Baldur Loki, f. 20.5.2007, b) Hulda Sólrún, f. 24.9. 1986 og c) Berglind, f. 24.12. 1990. 2) Þorgrímur, f. 14.6. 1955, maki Rannveig Guðmunds- dóttir, f. 12.12. 1958. Börn þeirra eru: a) Guðmundur Bjarki, f. 19.10. 1982, sambýliskona Ingunn Jóns- dóttir, f. 3.10. 1983, b) Björk, f. 2.11. 1984 og c) Davíð Þór, f. 15.5. Elsku pabbi, nú er komið að kveðjustund, þú ert farinn frá okkur og á þessari stundu koma margar minningar upp í hugann. Fyrstu minningarnar eru úr Garðabæ þar sem við áttum heima í Ásgarði 4 en seinna byggðum við hús á Löngufit 15. Ég man það enn þegar við fluttum í hálfklárað húsið, enda ekki eins auðvelt að fá lán til bygginga eins og í dag. Þú starfaðir við akstur í langan tíma, bæði á strætó og leigubíl, og þau voru ófá skiptin sem ég rúntaði í Hafnarfjarðarstrætó meðan þú varst að keyra. Seinna keyrðir þú rútur með ferðamönnum um allt land og sagðir oft sögur af því. Þegar þú og mamma skilduð og ég flutti á Ísafjörð urðu samverustundir okkar því miður færri, þó kom ég oft til þín suður og þú varst að vinna um tíma á Ísafirði þannig að við gátum þá hist. Skilnaðurinn hafði mikil áhrif á þig og þitt líf sem varð ekki hið sama upp frá því. Seinni árin vannst þú sem krana- maður hjá Ármannsfelli og varst upp frá því kallaður kranaafi af barna- börnunum þínum. Einnig varstu kall- aður Skódaafi því þú hafðir tröllatrú á þeirri bifreiðategund og áttir nokkra Skóda í gegnum tíðina. Þú varst einstaklega laginn og skemmtilegur afi og barnabörnin þín voru þér mikils virði. Það var nú ekki ónýtt að fá að gista hjá afa á Snorra- brautinni og vera í pössun þar því að þá var margt skemmtilegt brallað. Alltaf mátti plata afa til að kaupa eitt- hvað nammi, horfa á mynd eða lesa bækur. Einnig var afi laginn við að búa til sögur og gátur og brandararn- ir hans voru sér á báti. Einnig kom það fyrir að kindakæfa var búin til á Snorrabrautinni með tilheyrandi við- búnaði og þvílík kæfa! Þú komst oft til okkar á Sauðárkrók og varst hjá okk- ur yfir helgi eða lengri tíma. Það voru skemmtilegar stundir sem gott er að eiga minningar um á þessari stundu. Valdís dóttir mín rifjar oft upp það at- vik þegar þið fóruð á Skódanum niður á sanda og festuð bílinn, þetta var fyr- ir tíma gemsa þannig að það leið nokkur stund áður en ykkur var bjargað úr sjálfheldunni en guli Skód- inn var ekki beint torfærubifreið! Þú hugsaðir og talaðir mikið um gömlu tímana og oft sagðir þú sögur frá þeim tíma þegar fjölskyldan þín bjó á Kálfhaga í Kaldaðarnesi á með- an að breski herinn var með aðsetur og flugvöll skammt frá. Þar fékkst þú þína fyrstu launuðu vinnu sem ung- lingur og lærðir fljótt að tala ensku, sem var ekki algengt í þá daga. Þessi tími var þér ofarlega í huga enda ef- laust mjög sérstök reynsla fyrir ung- an sveitadreng að upplifa herinn og allt það sem honum fylgdi. Síðustu árin varst þú til heimilis á Skjóli, þar leið þér vel og var vel hugs- að um þig. Elsku pabbi! Ég er þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér dagana áður en þú kvaddir, það var mér mikils virði. Ég veit að nú líður þér vel þar sem þú ert, ég og börnin mín þökkum fyrir allar samverustundirnar og biðjum góðan Guð að blessa þig og englana að gæta þín. Þín dóttir, Ásdís. Elsku afi. Hvar ertu? Því er örugg- lega ómögulegt að svara en við erum alveg sannfærð um það að himnarnir séu miklu sætari núna eftir að þú sveifst þangað upp með kíló af kandís í farteskinu að ógleymdum súkku- laðistykkjum frá honum herra Síríusi. Þannig að við höldum að það væsi ekkert um þig þarna uppi í háloftun- um. Allar sögurnar og gáturnar sem við efumst um að Guð geti leyst. Auðvitað vorum við löngu farin að kunna svörin utanað. Að ógleymdri sveitinni þar sem þú kynntir okkur fyrir lömbunum hverju á fætur öðru. Sveitasælan. Því mun- um við seint gleyma. Lyktin af ný- fæddum lömbum. Hey. Hrjúfar hend- ur. Vindlareykur. Góðlegt andlit. Góðlegt andlit sem við störðum á með galopin augun og hlustuðum. Hlust- uðum með athygli á allar sögurnar streyma úr sætum munni. – Þekkirðu þennan? spyr gamall afi og réttir fram vinstri hnefann. Lítill strákur hristir hausinn. – Þetta er bróðir hans, segir afinn og réttir fram þann hægri og fylgir örlítið glott með. Afi verður alltaf afi í minningunni og hún mun lifa að eilífu. Við vonum að þú hafir það gott, elsku afi. Betra en hérna á jörðinni þína síðustu daga. Heimurinn þér horfinn er á himnum líður vonandi betur þó við viljum halda þér þarna uppi þú meira getur. Minningarnar far’á fætur fylgj’ okkur um æviskeið. Við höfum á þér heljarmætur þó horfinn sért af okkar leið. Söknuðurinn aldrei sest syndir í hjörtum okkar. Munum þó mætast fyrir rest er moldin okkur til sín lokkar. (Björk Þorgrímsdóttir.) Guðmundur Bjarki, Björk og Davíð Þór. Okkur langar til að kveðja með nokkrum orðum afa okkar, hann Guð- mund Þorgrímsson. Afi var einstak- lega skemmtilegur og hjartastór maður sem ávallt hafði okkur barna- börnin í fyrirrúmi. Þegar við systkinin vorum lítil skildu mamma og pabbi, á þeim tíma var mamma að vinna vaktavinnu og var því venjan að afi Guðmundur passaði okkur. Mikið var brallað í þessum pössunum. Hann eldaði alltaf fyrir okkur besta hafragrautinn og oftar en ekki sagði hann okkur skemmtilegar sögur úr sveitinni. Við spiluðum líka ólsen ólsen, marga klukkutíma í senn, hann passaði sig þó ávallt á því að láta okkur vinna. Það hefur þó ekki alltaf verið létt að ráða við okkur gríslingana, aldrei skammaði hann okkur og var óend- anlega þolinmóður og ekki voru regl- urnar hennar mömmu að þvælast fyr- ir honum, við fengum að gera ýmislegt sem ekki var leyft annars. Upp í kollinn skjótast skemmtileg- ar minningar, eins og þegar hann kom í heimsókn til okkar út til Noregs og þegar mamma manaði hann í renni- brautina á Selfossi, sem endaði ekki betur en svo að hann festist og mamma þurfti að fara á eftir honum og ýta honum niður. Það er svo skrítið að hugsa til þess afi sé farinn frá okkur, hann sem var svo mikilvægur í lífi okkar þegar við vorum að alast upp. Að lokum viljum við þakka þér, afi, fyrir þær góðu stundir sem við áttum saman, það voru forréttindi að fá að kynnast þér. Hildur og Daníel. Elsku afi minn, nú ertu farinn og kominn á betri stað. Ég sakna þín. Þú varst besti afi í heiminum og þú lifðir fyrir barnabörnin þín. Þú hafðir mikla trú á Skódanum þínum og áttir nokkra í gegnum tíðina. Ég man að ég kallaði þig Skódaafa þegar ég var krakki og fannst bíllinn þinn alveg hreint ótrúlegur, því að skottið var að framan og vélin að aftan. Alltaf vildi ég gista hjá afa á Snorrabraut og suðaði í foreldrum mínum hverja einustu helgi um að fá að gista. Fannst það hreint frábært fyrir alla aðila, því ég var einbirni og þá höfðu foreldrar mínir næði til að búa til systkini handa mér! Alltaf þegar ég gisti hjá þér, eða þú varst að passa mig, þá brölluðum við ýmislegt saman, til dæmis límdum við peninga fyrir neðan gluggann á Snorrabrautinni og fylgdumst svo með gangandi vegfarendum reyna að tína þá upp. Einnig gerðum við ýmis hljóð út um gluggann og fólkið á göt- unni vissi ekkert hvaðan þessi hljóð komu og síðan hlógum við dátt. Þú varst alltaf til í allt, að fara með mig í tívolíið í Hveragerði, fara í ísbílt- úr, skreppa til Gegnishóla til Kalla, Óskars og Björgu með mig og Huldu frænku. Þær helgar sem ég fékk að gista hjá þér á Snorrabrautinni fékk ég að vaka eins lengi og ég vildi (mátti ekki segja mömmu) og horfa á bann- aðar myndir og ég man vel eftir því að við horfðum oft saman á Derrick sem var vitanlega bannaður börnum. Svo fengum við okkur nætursnarl seint á kvöldin og ávallt var það góða kæfan þín sem þú bjóst til sjálfur, rúgbrauð og mjólkurglas. Þegar ég hugsa til þín, þá sé ég þig fyrir mér með hatt- inn og vindilinn í gula skódanum, þú varst frábær afi. Ég á endalaust góðar minningar um þig sem ég varðveiti í hjartanu, alltaf. Ég sakna þín sárt, elsku afi minn, megi englarnir vaka yfir þér, þín Valdís Dröfn. Guðmundur Þorgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.