Morgunblaðið - 20.07.2007, Qupperneq 8
Morgunblaðið/Eggert
Átök Andrew í viðureign við KR-inga í efstu deild í fyrra.
Eftir Ómar Garðarsson
omar@eyjafrettir.is
FORRÁÐAMENN Fjölnis sáu
ástæðu til að biðja Eyjamenn af-
sökunar á framferði stuðnings-
manna sinna eftir leik Fjölnis og
ÍBV í fyrstu deildinni á Fjölnisvelli
á mánudaginn. Ástæðan var meint-
ir kynþáttafordómar gagnvart And-
rew Mwesigwa, leikmanni ÍBV sem
er frá Úganda.
Eyjamenn vilja ekki gera mikið
úr þessu og segja að fleiri í ÍBV-
liðinu hafi fengið gusur frá stuðn-
ingsmönnum Fjölnis. Það sé hluti
af leiknum þótt einhverjir hafi e.t.v.
farið yfir strikið. Sjálfur tekur And-
rew í sama streng, segist hafa skilið
þegar honum var líkt við eina af
stóru stjörnunum í ensku deildinni.
Það hafi hann tekið sem hrós en
hafi einhver skoðun á honum sem
leikmanni verði hann að taka því
eins og aðrir knattspyrnumenn,
hvar sem er í heiminum.
Einn af strákunum
Andrew Mwesigwa byrjaði hjá
ÍBV í fyrra og lætur vel af dvölinni
í Eyjum þó munurinn sé mikill sé
miðað við Úganda. Hann er 23 ára
og hefur leikið með landsliði Úg-
anda í fjögur og hálft ár. „Hér hafa
allir reynst mér mjög vel og ég hef
ekkert að kvarta yfir. Fólk hefur
tekið mér vel og hjá ÍBV er ég bara
einn af strákunum,“ sagði Andrew.
Hann segir að fátt í Vest-
mannaeyjum minni á sínar heima-
slóðir en því verði hann að taka sem
atvinnumaður í knattspyrnu. „Ég
tek því sem að höndum ber en ég
verð að viðurkenna að það getur
orðið kalt á Íslandi. En ég get borð-
að allan mat sem þið eruð með og
fólkið er hlýlegt sem hjálpar mik-
ið.“
Þegar talið berst að atvikinu í
leiknum á mánudaginn vill Andrew
ekki gera mikið úr því, segist ekki
hafa heyrt neitt sem var meiðandi.
„Það kallaði einhver til mín og líkti
mér við Makalele, sem leikur með
Chelsea. Það var það eina sem ég
skildi. Ég tók það sem hrós en ekki
sem kynþáttafordóma á nokkurn
hátt. Í fyrra varð ég fyrir aðkasti í
leik gegn FH en ég held að það hafi
verið vegna þess að þá var ég nýr í
íslenskum fótbolta.“
Andrew segir að köll inn á völlinn
séu ekkert einsdæmi á Íslandi,
menn geti líka fengið það óþvegið í
Úganda. „En það má ekki vera
meiðandi eða niðurlægjandi fyrir
leikmanninn á nokkurn hátt. Ég er
ekkert merkilegri en aðrir og vilji
einhver segja álit sitt á mér sem
leikmanni er það bara allt í lagi.
Segi einhver að ég sé lélegur knatt-
spyrnumaður verð ég að sætta mig
við það. Þannig er nú bara fótbolt-
inn.“
ÍBV féll niður um deild í fyrra og
er nú í 5. sæti fyrstu deildar. And-
rew segir að mikill munur sé á
deildunum en hann segir að ÍBV
eigi heima í úrvalsdeild. „Það geng-
ur vel og illa í fótboltanum og núna
erum við búnir með slæma kaflann.
Við mætum sterkir í leikina sem
eftir eru og ætlum okkur að komast
upp,“ sagði Andrew að endingu.
Kynþáttafordómar af og frá
Heimir Hallgrímsson, þjálfari
ÍBV, segir af og frá að það sem
gerðist á Fjölnisvelli á mánudaginn
eigi eitthvað skylt við kynþáttamis-
rétti eða fordóma. „Það var margt
fyndið sem kom frá stuðnings-
mönnum Fjölnis sem studdu sitt
lið,“ sagði Heimir.
„Mér fannst þeir skemmtilegir,
sungu af krafti og hvöttu sína menn
áfram eins og stuðningsmenn eiga
að gera. Það gerist alltaf að ein-
hverjir fara yfir strikið en margt af
því sem íslensku leikmennirnir
fengu á sig var miklu verra en það
sem sagt var um Andrew. Það sem
sagt var við hann voru ekki kyn-
þáttafordómar, það er af og frá að
halda því fram. Ég vil þó leggja
áherslu á að ef það má segja niðr-
andi hluti um íslenska leikmenn
verða erlendir leikmenn að sætta
sig við það sama, hverrar þjóðar
sem þeir eru og hver sem litarhátt-
urinn er. Það verður sama yfir alla
að ganga,“ sagði Heimir að lokum.
Báðust afsökunar
Viðar Elíasson, formaður knatt-
spyrnudeildar ÍBV, vill heldur ekki
gera mikið úr málinu en segist ekki
vita nógu mikið til að geta lagt dóm
á það sem gerðist í leiknum.
„Maður verður að vita alla mála-
vexti og á meðan vil ég ekki dæma
kannski þá sem eiga það ekki skil-
ið,“ sagði Viðar.
„Það sem ég veit er að for-
ráðamenn Fjölnis komu til okkar
eftir leik og báðust afsökunar á því
sem þeir kölluðu kynþáttafordóma.
Ég treysti þeim og forystu KSÍ til
að taka á málinu því hörundslitur
leikmanna á ekki að skipta máli.
Gerist það er illa komið fyrir okkur.
En hvað var sagt og hver sagði
hvað veit ég ekki.“
Hann sagði að fleiri leikmenn
ÍBV hefðu fengið skot frá áhorf-
endum. „En það má ekki dæma alla
áhorfendur fyrir það sem einn eða
tveir úr hópnum segja. Þetta er nú
einu sinni leikur og fari eitthvað úr-
skeiðis er það dómarans að gefa
skýrslu og KSÍ að taka á málinu.“
Viðar sagði að málið hefði ekki
verið rætt innan ÍBV og það væri í
þeirri trú að þetta gerðist ekki aft-
ur. „Sama gerðist reyndar í fyrra
að Andy varð fyrir áreitni í leik
gegn FH. Það var tekið á því máli,
bæði hjá FH og KSÍ,“ sagði Viðar
og varar við svona sé blásið upp.
„Við Eyjamenn erum heldur ekki
saklausir og hún á við setningin
gullvæga; maður, líttu þér nær.
Flestir knattspyrnumenn á Íslandi
þekkja Hólinn við Hásteinsvöll í
Vestmannaeyjum. Þar kunna menn
að koma orðum að hlutunum.“
Kynþáttafordómar enn á dagskrá í íslenskri knattspyrnu
Liturinn á ekki að skipta máli
Mogunblaðið/Ómar.
Svart og hvítt Andrew Mwesigwa og Heimir Hallgrímsson, þjálfari Eyja-
manna, vilja ekki gera mikið úr köllum frá áhorfendum í hita leiksins.
Andrew Mwesigwa frá Uganda og leikmaður Eyjamanna í knattspyrnu kippir sér ekki upp við að
hrópað sé á hann á knattspyrnuvöllunum og leiðist ekki að vera líkt við Makalele í Chelsea
8 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MÁVURINN hefur verið umdeildur
mjög meðal höfuðborgarbúa í sum-
ar, en nú ber svo við að hann er
nánast alveg horfinn þaðan sem
helst hefur verið kvartað yfir hon-
um. Gunnar Þór Hallgrímsson, líf-
fræðingur hjá Náttúrustofu
Reykjaness, hefur fylgst með máv-
unum og segir hann þessa hegðun
heldur óvænta. „Núna, eins og
fingri sé smellt, hefur þessum máv-
um sem hafa verið í kringum
Reykjavíkurtjörn og eins lækinn í
Hafnarfirði fækkað alveg veru-
lega,“ segir Gunnar. Nú þurfi því
að kanna hvað valdi þessari skyndi-
legu breytingu. „Það bendir margt
til þess að einhvers staðar hafi
fundist fæða og þeir hafi þá allir
hópast þangað, en við höfum ekki
áttað okkur á því ennþá hvar það
er.“
Önnur möguleg skýring að mati
Gunnars gæti verið sú að mávarnir
hafi einfaldlega gefist upp á lang-
dvölum þar sem litla fæðu sé að fá,
og því yfirgefið landið. Sílamáv-
urinn er eini mávurinn sem er al-
gjör farfugl og dvelur hann við
strendur Pýreneaskaga og NV-
Afríku á veturna. Yfirleitt er hann
þó á Íslandi fram í september og
væri því óvenjusnemmt ef fuglarnir
væru þegar flognir. „Það er alla-
vega víst að þetta hefur ekkert með
eitranirnar að gera, því þetta virð-
ist vera af eðlilegum ástæðum,“
segir Gunnar og bendir á að ein-
ungis hafi verið eitrað fyrir varp-
fugla, en það hafi ekki haft áhrif
því fuglafjöldinn haldi sér enn í
vörpunum umhverfis Reykjavík.
Náttúrustofa Reykjaness vinnur
nú að því að merkja mávana með
radíósendum til að fylgjast með
ferðum þeirra og er ætlunin að
merkja 30 máva í Reykjavík og 15 á
Suðurnesjum, en aðeins þrír höfðu
þegar verið merktir þegar máv-
inum tók að fækka. „Þetta er
óheppilegt fyrir okkur og orðið erf-
iðara núna því það gengur ekki eins
vel að lokka þá með brauðinu.“
Gunnar segir þó óvíst hvort ástand-
ið sé varanlegt eða hvort mávurinn
muni snúa aftur innan skamms, t.d.
ef nýfengin fæða verður étin upp.
„En akkúrat núna er ástandið eðli-
legt, eins og það ætti að vera þegar
allt er með felldu.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Bjargar sér Sumum hefur þótt mávurinn fullaðgangsharður í fæðuleitinni.
Sílamávurinn lætur sig hverfa
PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23
SÍMI: 568 1888 • FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
ClickBoard
BYLTINGARKENNDAR
VEGG- OG LOFTPLÖTUR
Parket & Gólf býður einstaka lausn fyrir vegg- og
loftplötur frá þýska framleiðandanum Parador
HDF plöturnar frá Parador
hafa nær engin sýnileg
samskeyti og eru einstaklega
auðveldar í uppsetningu.
KOSTIRNIR ERU AUGLJÓSIR
Hagkvæm og ódýr lausn • einföld uppsetning - 50% fljótlegra
höggþolið • auðvelt að þrífa • lítil eða engin sparslvinna
losnar við allt ryk • 50 kg. burðarþol á skrúfu
stílhreint og nútímalegt útlit • 10 ára ábyrgð
Komdu við í verslun okkar og kynntu þér
þessa einstöku lausn - við tökum vel á móti þér
ka
ld
al
jó
s
20
06