Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 34
34 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
V i n n i n g a s k r á
12. útdráttur 19. júlí 2007
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 2 3 6 4
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
4 5 7 6 6 6 3 2 3 7 7 7 8 6 7 7 9 8 6 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
11708 35730 38808 42383 61111 71888
13897 36891 41753 48087 71112 79255
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 2 3 7 0 1 8 1 6 5 1 7 2 9 1 8 1 4 0 0 6 4 5 2 0 5 4 6 0 5 2 7 7 3 5 6 7
1 4 7 5 7 6 2 1 1 7 2 1 1 3 0 1 5 7 4 0 4 8 1 5 2 3 5 7 6 1 0 8 7 7 4 0 7 1
1 7 1 9 7 7 4 0 1 7 9 5 2 3 0 7 7 8 4 0 5 2 6 5 4 5 7 0 6 1 7 3 5 7 4 2 7 0
2 6 3 0 8 5 3 2 1 8 1 0 5 3 0 7 8 8 4 1 3 1 4 5 4 6 4 2 6 3 0 4 1 7 4 7 6 6
2 6 4 9 8 7 9 1 1 8 3 7 7 3 1 2 1 2 4 1 3 2 4 5 5 6 0 2 6 3 4 9 2 7 5 3 6 1
2 7 3 8 8 8 1 0 1 8 3 8 5 3 2 2 2 8 4 1 9 0 2 5 5 7 2 1 6 3 6 1 2 7 8 6 5 7
3 5 1 8 9 4 4 0 1 9 5 6 7 3 2 9 5 5 4 3 4 5 4 5 5 8 1 2 6 3 8 5 4 7 8 8 6 4
3 5 9 2 1 0 1 4 4 2 0 8 4 2 3 4 0 9 0 4 4 8 4 7 5 6 6 2 1 6 4 2 6 5 7 9 6 4 2
3 5 9 6 1 1 0 6 4 2 2 6 9 3 3 4 9 8 4 4 5 5 2 8 5 8 5 2 5 6 5 5 4 3 7 9 9 4 6
4 9 0 9 1 1 7 3 7 2 3 4 1 7 3 6 3 4 4 4 6 0 7 4 5 9 2 5 7 6 6 5 6 0
5 8 8 1 1 2 9 5 8 2 5 5 3 7 3 6 7 1 2 4 7 6 8 0 5 9 7 8 7 6 7 9 1 4
6 2 0 7 1 3 7 0 6 2 6 1 3 6 3 7 6 5 8 4 9 8 9 9 6 0 0 0 9 7 3 0 4 9
6 3 2 4 1 3 9 2 7 2 7 4 9 0 3 8 8 0 4 5 0 3 8 7 6 0 4 0 0 7 3 4 9 7
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
3 4 9 7 7 2 2 0 7 5 4 3 3 2 8 6 4 1 9 6 0 5 2 4 2 0 6 0 3 8 5 7 2 4 2 4
1 0 3 1 0 2 3 6 2 3 5 0 7 3 3 6 3 8 4 2 7 9 5 5 2 7 3 2 6 1 5 7 4 7 2 5 0 6
3 1 5 1 0 4 2 2 2 3 7 0 7 3 3 9 1 2 4 3 1 2 3 5 2 7 7 2 6 1 8 1 0 7 3 5 2 2
9 3 1 1 0 4 4 7 2 3 8 5 9 3 4 5 3 5 4 3 2 6 2 5 3 4 3 6 6 2 1 9 7 7 4 6 6 1
1 2 6 2 1 1 1 3 3 2 4 5 2 8 3 4 9 2 3 4 3 7 7 8 5 3 4 6 6 6 2 3 7 6 7 4 9 7 1
1 3 5 3 1 1 5 4 9 2 4 7 9 6 3 5 0 3 3 4 4 1 1 9 5 3 6 6 8 6 2 8 9 4 7 5 6 7 6
2 0 8 4 1 1 7 9 5 2 5 1 4 3 3 5 4 9 4 4 4 7 6 2 5 4 2 5 4 6 2 9 4 7 7 5 9 1 5
2 1 1 3 1 2 6 3 4 2 5 3 8 9 3 5 5 4 8 4 4 8 0 6 5 4 2 6 0 6 3 3 6 3 7 6 2 2 5
2 2 2 4 1 2 9 9 9 2 5 8 2 3 3 5 6 5 8 4 5 4 7 1 5 4 3 7 1 6 4 0 9 0 7 6 4 9 7
2 8 3 6 1 3 0 5 7 2 6 1 2 7 3 6 1 0 8 4 6 1 7 9 5 4 4 2 5 6 4 2 1 5 7 6 5 3 1
3 0 7 2 1 3 4 9 5 2 6 1 7 8 3 6 2 6 1 4 6 4 9 5 5 4 6 0 0 6 4 5 1 3 7 6 7 8 5
3 1 2 1 1 3 9 3 6 2 7 0 3 4 3 6 6 4 5 4 7 4 7 2 5 4 6 1 0 6 4 7 2 2 7 7 0 4 7
3 1 7 8 1 4 2 5 6 2 7 2 9 1 3 6 8 3 0 4 7 6 0 9 5 5 1 0 1 6 4 8 5 4 7 7 6 3 6
3 8 2 3 1 4 3 0 2 2 7 5 9 3 3 6 8 8 8 4 7 8 4 8 5 5 1 3 6 6 5 2 5 0 7 7 6 6 8
3 8 6 5 1 4 3 6 4 2 8 2 0 3 3 7 2 3 7 4 8 1 6 4 5 5 2 0 9 6 5 3 7 9 7 7 7 1 4
5 2 3 0 1 4 6 0 2 2 8 6 1 3 3 7 5 3 4 4 8 2 4 7 5 5 2 5 9 6 5 8 5 1 7 7 8 1 2
5 3 5 5 1 5 5 6 5 2 8 6 9 8 3 7 8 4 2 4 8 3 0 2 5 5 6 3 4 6 6 1 5 1 7 8 4 1 1
6 3 1 3 1 5 5 8 7 2 8 7 1 5 3 7 9 7 1 4 8 4 3 6 5 5 9 7 4 6 6 3 2 9 7 8 5 3 9
6 3 3 3 1 5 9 9 1 2 8 7 8 2 3 8 0 5 0 4 8 5 2 9 5 6 6 4 5 6 7 0 5 2 7 9 0 3 6
6 5 2 4 1 6 2 8 4 2 9 7 0 6 3 8 2 9 1 4 8 7 4 1 5 6 9 4 4 6 7 5 5 6 7 9 1 2 6
6 7 6 9 1 6 3 1 2 2 9 7 9 7 3 8 6 7 8 4 8 9 2 5 5 7 1 3 2 6 8 3 6 1 7 9 1 9 3
6 7 9 5 1 6 6 6 5 2 9 8 4 1 3 8 7 9 2 4 8 9 8 9 5 7 3 2 2 6 8 5 2 0 7 9 5 0 0
7 1 7 1 1 6 7 3 5 3 0 6 7 7 3 8 8 0 0 4 9 1 7 2 5 7 7 4 4 6 9 2 5 2 7 9 5 7 6
7 2 4 4 1 6 7 6 6 3 0 9 9 6 3 9 1 4 9 4 9 2 2 4 5 7 7 9 0 7 0 0 0 7 7 9 6 0 8
7 5 0 5 1 7 4 4 7 3 1 1 6 1 3 9 4 9 4 4 9 3 3 4 5 7 8 4 4 7 0 3 0 0 7 9 8 3 0
7 6 9 6 1 7 6 3 2 3 1 4 4 8 3 9 6 9 3 4 9 7 8 0 5 7 9 5 0 7 0 4 9 5 7 9 9 7 2
7 9 6 7 1 7 7 1 4 3 1 5 8 1 4 0 2 1 0 4 9 8 2 3 5 8 1 6 9 7 0 5 2 1
8 0 8 5 1 7 8 2 0 3 1 8 1 6 4 0 4 0 6 4 9 8 6 0 5 8 2 7 2 7 0 6 1 1
8 4 7 3 1 7 9 2 3 3 2 1 9 2 4 0 8 1 7 4 9 9 9 6 5 9 0 9 2 7 0 6 1 5
9 0 6 5 1 8 2 1 7 3 2 3 8 7 4 1 0 9 7 5 0 6 7 2 5 9 8 4 9 7 0 7 7 7
9 5 0 3 1 9 3 7 4 3 2 4 5 4 4 1 5 2 3 5 1 4 4 1 6 0 0 5 7 7 1 1 4 3
9 6 0 0 1 9 7 6 0 3 2 8 7 2 4 1 9 1 1 5 1 6 4 5 6 0 2 6 2 7 2 2 0 0
Næstu útdrættir fara fram 26. júlí,& 2. ágúst, 2007
Heimasíða á Interneti: www.das.is
✝ Ingibjörg Rich-ardsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 18.
mars 1953. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi, laugardaginn
14. júlí síðastliðinn,
eftir nær þriggja
ára hetjulega bar-
áttu við brjósta-
krabbamein. Hún
var dóttir hjónanna
Richards Jónssonar,
f. 30. ágúst 1920, d.
8. desember 2005,
sonur Jóns Sigurðssonar, f. 1882,
d. 1973, og Guðrúnar Halldóru
Sigurðardóttur, f. 1889, d. 1948,
með Jóhönnu Vigdísi Guðmunds-
dóttur, og Erlu, f. 20. mars 1979, í
sambúð með Snorra Bjarnvin
Jónssyni. Fyrir átti Kristinn, Ingi-
björgu, f. 21. október 1971, í sam-
búð með Hans Welling og eiga
þau Emil Daniël og Isabel Að-
alheiði.
Ingibjörg ólst upp í miðbæ
Reykjavíkur hjá foreldrum sínum,
systrum og móðurömmu. Ingi-
björg og Kristinn bjuggu alla sína
hjúskapartíð í Engjaseli 54 með
börnum sínum. Ingibjörg lauk
gagnfræðaprófi úr verslunardeild
Gagnfræðaskóla Austurbæjar.
Hún útskrifaðist sem stúdent frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
árið 1992 af viðskiptasviði. Ingi-
björg vann síðustu 12 ár hjá DV
sem síðar varð 365 Ljós-
vakamiðlar. Hún starfaði síðast í
reikninga- og innheimtudeild.
Ingibjörg verður jarðsungin frá
Digraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
og Erlu Þórð-
ardóttur, f. 26. des-
ember 1928, dóttir
Þórdísar Guðmunds-
dóttur, f. 1897, d.
1983, og Þórðar Er-
lendssonar, f. 1892,
d. 1970. Ingibjörg
átti tvær systur, Þór-
dísi, f. 3. nóvember
1951, í sambúð með
Per-Otto Sylwan, og
Guðrúnu Halldóru, f.
8. apríl 1948, d. 29.
september 2003.
Ingibjörg giftist
Kristni K. Dulaney, 21. febrúar
1976 og eiga þau saman börnin
Richard, f. 14. júní 1976, í sambúð
Lífsgleði og kraftur lýsa sennilega
best hvernig var að alast upp hjá
elskulegu móður okkar. Við systkinin
eigum margar fallegar og skemmti-
legar minningar um hana sem við
munum geyma í hjörtum okkar.
Mamma gaf okkur svo mikið og ól
okkur upp á einstaklega náinn hátt.
Hún kenndi okkur að vera alltaf já-
kvæð og að njóta hvers dags. Hún var
okkar besta vinkona og var alltaf til
staðar fyrir okkur, sama hvað bjátaði
á. Hvort sem við þurftum að ræða
hluti sem tengdust skólanum, sund-
inu eða lífinu. Hún ræddi og leysti öll
mál sem upp komu á hlutlausan hátt
og oft var talað um að hún væri sál-
fræðingurinn á heimilinu.
Þú ert ljósið í lífi okkar, elsku
mamma. Við munum fagna því fallega
lífi sem þú áttir með okkur og pabba,
þó að við munum alltaf syrgja ótíma-
bært fráfall þitt. Þú ert hetjan okkar
og við trúum því að þér líði betur nú,
þegar erfið veikindi eru að baki og þú
hefur fengið frið.
Megi guð og englarnir geyma þig.
Þín elskandi börn,
Richard og Erla.
Þó að ekkert okkar eigi auðvelt með
að sætta sig við ótímabært andlát
elskulegrar tengdamóður minnar má
segja að sólríki sumardagurinn sem
henni var valinn hafi, eins og allt ann-
að fallegt, farið henni vel. Fáir báru
með sér jafn mikla fegurð, lífsgleði og
hlýju og Böggý, sem smitaði út frá sér
til allra sem umgengust hana.
Ég var svo heppin að fá að kynnast
Böggý, fyrst sem vinkona Áslaugar
systurdóttur hennar, og seinna sem
kærasta Rikka, sonar hennar. Það var
ekki annað hægt en að dást að sam-
heldni og kærleika þessarar yndislegu
stórfjölskyldu. Hvort sem um var að
ræða elsku Gunnu, mömmu Áslaugar
og Trausta og systur Böggýjar, sem
einnig féll frá fyrir aldur fram, ömmu
Erlu og afa Rikka eða Böggý og
Kidda var öllum vinum Áslaugar,
Trausta, Rikka og Erlu tekið opnum
örmum. Okkur vinkonunum fannst
við alltaf vera hluti af stórfjölskyld-
unni, enda tíðir gestir í Yrsufellinu hjá
Gunnu og í Möðrufellinu hjá ömmu
Erlu og afa Rikka, þar sem okkur
þótti fátt skemmtilegra en að heyra
afa Rikka segja sögur af siglingum
með Gullfossi eða því hvernig hann
kynntist ömmu Erlu.
Það er erfitt að sjá æðri tilgang í því
að svo langvinn og illvíg veikindi séu
lögð á manneskju með jafn mikinn
lífsvilja og lífsgleði og Böggý, sem
þráði ekkert heitara en að lifa það að
verða amma litla barnsins sem Erla á
von á og að sjá Rikka ljúka doktors-
námi. Líf, veikindi og loks andlát Bög-
gýjar hefur þó kennt okkur öllum það
mikilvægasta sem hægt er að læra;
hvernig við eigum að leitast við að lifa
lífinu og hvað það er sem raunveru-
lega skiptir okkur máli. Böggý var
miðpunkturinn hvar sem hún kom,
falleg og fyndin, jákvæð og með ein-
stakt lag á skella fram pínulítið tví-
ræðum athugasemdum. Þegar litið er
yfir lífshlaup Böggýjar virðist það
vera spegilmynd hennar sjálfrar,
bjart, jákvætt og fallegt. Hún og
Kiddi áttu langt og hamingjuríkt
hjónaband og einstaklega náið og fal-
legt samband við börnin sín. Við sem
eftir lifum finnum tilgang með því að
læra af Böggý, lífshlaupi hennar og
lífsviðhorfi.
Hin langa þraut er liðin,
Nú loksins hlaustu friðinn,
Og allt er orðið rótt;
Sofðu vel, elsku Böggý, þú lifir allt-
af í hjarta okkar.
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir.
Kynni okkar Ingibjargar tengda-
móður minnar hófust fyrir tæpum níu
árum þegar við Erla urðum ástfangin.
Ég hafði heyrt að við makaval ætti
maður að líta á móður dömunnar áður
en ákvörðun um samband væri tekin
því þar sæi maður inn í framtíðina.
Þegar ég hitti Ingibjörgu fyrst varð
Erla mjög líklegur kandídat í eigin-
konu.
Þær mæðgur voru afskaplega sam-
rýndar. Báðar voru þær fæddar í
fiskamerkinu og báðar völdu þær sér
maka í vatnsberamerkinu með öllum
þeim einkennum sem þeim fylgja.
Þegar þær voru saman var eftir því
tekið hversu fallegar og líkar þær
voru.
Ingibjörg var ákaflega hlý og hafði
góða nærveru. Þau hjón lögðu ríka
áherslu á að eyða frítíma sínum sam-
an, sinna áhugamálunum, rækta vina-
böndin og hlúa að hjónabandinu sem
við Erla tökum okkur til fyrirmyndar.
Sárt þykir mér að litla stúlkan sem
við Erla eigum von á í september fái
ekki að kynnast ömmu sinni. En hún
fær að heyra hversu yndisleg og góð
manneskja hún var.
Með söknuði kveð ég frábæra
tengdamóður.
Snorri Bjarnvin Jónsson.
Elsku, hjartans systir mín, þú ert
farin. Samveru okkar er lokið og ég
sakna þín sárt. Ég er þakklát og stolt
yfir að þú varst systir mín, leikfélagi
þegar við vorum börn og einnig, sér-
staklega undanfarin ár, trúnaðarvin-
kona.
Þakka þér fyrir allt hið góða og fal-
lega sem þú gafst mér, fyrir gleði þína
og lífsorku sem smitaði frá sér, ein-
lægnina og að leyfa mér að vera hjá
þér þínar síðustu vikur. Klukkustund-
ir og mínútur urðu okkur afar dýr-
mætar og það sem við vorum hvor
fyrir aðra þar og þá mun ég geyma
ásamt öðrum minningum mínum um
þig í hjartanu.
Þegar ég sé þig í huganum ertu
fyrst og fremst falleg. Þú barst af öðr-
um hvar sem þú fórst og þar held ég
að ekki hafi aðeins verið um ytra útlit
að ræða, fegurðin kom jafn mikið að
innan.
Í æsku vorum við nánar og aðeins
rúmt ár á milli okkar. Við vöknuðum
og sofnuðum saman og sögðum
stundum á kvöldin að sú sem sofnaði á
undan ætti að láta hina vita. Ólíkar
um margt, þú sífellt á hreyfingu með-
an ég sat og lét mig dreyma. Við vor-
um nær alltaf saman, lékum okkur úti
og inni og vildum skipta öllu jafnt.
Stundum rifumst við, klipum og klór-
uðum rendur í kinnarnar hvor á ann-
arri. Við vorum öfundsjúkar út í
Gunnu stóru systur sem átti svo fínt
dót en vildi ekki lána okkur það,
hrædd um að litlu ólátabelgirnir
myndu bæði brjóta og týna. Þegar ég
flutti til Svíþjóðar um tvítugt fórum
við að fylgjast með lífi hvor annarrar
úr fjarlægð, en fundum hvor aðra aft-
ur þegar ferðum mínum til Íslands
fjölgaði.
Þú varst félagslynd manneskja og
vinsæl. Fyrir utan góðar stundir með
fjölskyldunni naustu þín hvað best
með Engjaselssystrum, í saumó eða
innan um aðra hressa og káta vini.
Margt var brallað og mikið hlegið. Þið
hélduð hópinn hvað sem á dundi og
hafa vinirnir veitt þér – og þínum nán-
ustu, ómetanlegan stuðning á erfiðum
tíma. Ákveðin og framkvæmdasöm
kona varst þú og sagðir þína mein-
ingu ef þörf var á. Þú gerðir ekki úlf-
alda úr mýflugu, varst viljug og fljót
að leysa úr málum.
Þið Kiddi og börnin ykkar hafið bú-
ið í Engjaseli frá því að þið giftuð ykk-
ur fyrir meira en þrjátíu árum. Þang-
að var gott og gaman að koma, sitja
við eldhúsborðið með kaffi og beyglu,
horfa í kringum sig og dást að öllu
sem þú hafðir áorkað frá síðustu
heimsókn minni. Þú hafðir unun af að
nostra og skreyta heima fyrir og það
af listfengi og smekkvísi. Svo léstu
mig draga rún úr rúnapokanum þín-
um; þú vildir einnig næra andann.
Elsku systir. Það er ekki á mínu
valdi að telja upp alla þá góðu kosti
sem þig prýddu. Minnisstætt er mér
hvað þú studdir Gunnu systur okkar
dyggilega í veikindum hennar og eins
hafið þið Kiddi alla tíð létt undir með
foreldrum okkar og þú verið stoðin og
styttan hennar mömmu.
Síðast en ekki síst varst þú kjark-
mikil! Kjarkur þinn kom best í ljós
þegar þú neyddist til að horfast í augu
við ólýsanlega erfiðleika í baráttu
þinni við krabbameinið.
Guð varðveiti þig.
Þín systir,
Þórdís.
Í upphafi ársins 1973 þurftum við að
glíma við þá tilfinningu að syrgja en á
sama tíma að vera þakklát að langri
veikindabaráttu lauk. Það var pabbi
okkar sem hafði staðið í þessari bar-
áttu í nokkur ár. Á þessum tíma kom
Kiddi bróðir með Böggý inn í fjöl-
skylduna. Það hefur eflaust ekki verið
auðvelt fyrir hana en þetta höndlaði
hún óaðfinnanlega. Alla tíð síðan hefur
Böggý verið einn af hornsteinum fjöl-
skyldu okkar og öll samskipti hafa
verið á þann veg að aldrei hefur fallið
skuggi á. Hvort sem málin voru alvar-
leg eða á léttari nótum var hún alltaf
þátttakandi og nóg átti hún af um-
hyggju hvort sem var fyrir mömmu,
okkur eða fjölskyldum okkar.
Við eigum einungis góðar minning-
ar af öllum samvistum við Böggý á
þessum tæpum þrjátíu og fimm árum.
Það má segja að við séum að ganga í
gegnum svipaða reynslu og í upphafi
er lýst nú þegar tæplega þriggja ára
veikindabaráttu hennar er lokið. En
ljóst hefur verið í nokkurn tíma að
þetta færi bara á einn veg.
Þetta hefur verið erfiður tími fyrir
Kidda, Rikka, Erlu, Ingibjörgu og
fjölskyldur þeirra sem og Erlu móður
hennar sem hefur nú á stuttum tíma
misst eiginmann og tvær dætur eftir
erfið veikindi.
Minningin um Böggý mun lifa með
okkur.
Guðjón, Margrét og Magnús.
Okkar yndislega vinkona Böggý er
látin. Það var mikið áfall þegar hún
greindist með krabbamein fyrir rúm-
lega tveimur árum, en hún var stað-
ráðin í að sigrast á sjúkdómnum og
barðist af æðruleysi og krafti. Oft á
tíðum héldum við að það tækist en nú
hefur verið höggvið stórt skarð í vina-
hópinn.
Böggý var stórglæsileg kona og
með geislandi framkomu sinni vakti
hún athygli allra. Hún var ekki bara
falleg heldur umvafði hún líka alla með
hjartahlýju sinni og var ávallt tilbúin
að hjálpa öðrum. Hún laðaði fólk að
sér, enda var hún vinmörg sem glögg-
lega kom í ljós í veikindum hennar.
Hún hefur kennt okkur margt um
lífið og tilveruna og þá sérstaklega að
horfa á jákvæðu hlutina í lífinu. „Ef
þig langar að gera eitthvað gerðu það
þá núna, ekki bíða með það,“ sagði
hún.
Við vorum fimm vinkonurnar ungar
að árum sem stofnuðum saumaklúbb
og höfum við hist í rúmlega þrjátíu ár.
Síðari ár höfum við ásamt mökum
okkar ferðast víða og hafa margar
ógleymanlegar ferðir verið farnar.
Einnig minnast Sigga, Símon, Krist-
ján og Guðbjörg Huld allra hinna
mörgu ferða með Böggý, Kidda,
Rikka og Erlu um fjöll og firnindi. Þá
var farið á ótrúlegustu staði að
ógleymdum skíðaferðunum sem farn-
ar voru um hverja helgi. Þá var hringt
í Kidda og hann spurður: „Hvaðan
blása vindar í dag? Förum við í Skála-
fell eða Bláfjöll?“ Allra þessara ferða
minnumst við með þakklæti og sér-
staklega síðustu ferðar okkar vin-
kvennanna sem við fórum saman til
Kanaríeyja í ágúst síðastliðnum en sú
ferð verður okkur ógleymanleg í
minningunni.
Við vottum Kidda, Rikka, Erlu,
Erlu móður Böggýar og öðrum ætt-
ingjum okkar dýpstu samúð.
Minning hennar lifir.
Guðlaug, Páll, Hildur, Atli,
María Júlía, Símon Ó.,
Sigríður og Símon K.
Elsku hjartans vinkona okkar,
Böggý, hefur yfirgefið þetta jarðlíf.
Nú þegar við kveðjum hana rifjast upp
gamlar minningar. Minningar um
unglingsárin í Þverholti þar sem gamli
vinahópurinn sat inni í herbergi heilu
kvöldin og spilaði plötur. Minningar
um dillandi hlátur, stórt bros og hlýjan
faðm. Og minningar um góðu árin
okkar saman í Glaumbæ. Þegar við
héldum út í lífið misstum við sjónar
hver af annarri í nokkur ár – eins og
Ingibjörg
Richardsdóttir