Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FERÐAMÖNNUM sem koma til
landsins um Leifsstöð fjölgaði um
19,2 prósent á fyrri helmingi þessa
árs miðað við sama tíma í fyrra.
Ferðamönnum frá Bretlandi fjölg-
aði mest, en 5.823 fleiri Bretar
heimsóttu landið það sem af er
árinu. Alls fór 177.831 erlendur
ferðamaður um flugstöðina á fyrri
helmingi ársins. Athygli vekur að
bandarískum ferðamönnum fækk-
ar um 9,3 prósent í ár.
Ársæll Harðarson, forstöðu-
maður markaðssviðs Ferða-
málastofu, segir þessa fækkun að-
allega skýrast af minna framboði
af flugsætum í vetur frá Banda-
ríkjunum. Ferðamönnum hafi
fjölgað þegar sumaráætlun tók
gildi og sætaframboð jókst. Lágt
gengi dollarsins á móti krónunni er
að hans mati ekki farið að hafa
áhrif enn. „Þetta er aðallega vegna
þess að Flugleiðir hættu að fljúga
til New York og Minneapolis, það
bara voru ekki sæti fyrir ferða-
menn. Við höldum að það hafi
meiri áhrif en gengið.“
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, staðfesti að
dregið hefði verið úr framboði á
ferðum milli Íslands og Bandaríkj-
anna í vetur. Áherslum í sölu hefði
verið breytt vegna styrks krón-
unnar.
Framboð skýrir líka fjölgun
Framboð af flugsætum skýrir
einnig fjölgun ferðamanna annars
staðar frá, að mati Ársæls. Hann
nefnir sem dæmi að bæði Iceland
Express og SAS fljúgi á milli Ís-
lands og Noregs í ár, en það hafi
hvorugt flugfélagið gert í fyrra.
„Þegar sætaframboðið eykst svona
mikið verður verðsamkeppni og
menn auglýsa meira og þá kemur
kippur í söluna.“
Að sögn Ársæls bar á því um
tíma að hótel önnuðu ekki eft-
irspurn á háannatíma. Það vanda-
mál væri úr sögunni eftir mikla
uppbyggingu á nýju gistirými und-
anfarið. Þá hefði markaðssetning
fyrirtækja og á vegum hins op-
inbera skilað árangri og ferða-
mannastraumur til Íslands aukist
meira en til landanna í kringum
okkur.
20% fjölgun ferðamanna
Ferðamönnum frá Bandaríkjunum
fækkar um 9% það sem af er árinu
!
" #
$ %
&'(&)
*+,-..
--,/+0
1/,2.*
1.,/30
1*,*-0
1-,*02
/,2.3
.,-.-
+,2*-
-,42*
-,0/+
-,-1.
1,323
1,/2+
*+,0+/
1//,4*1
-4,+*-
-.,24*
1+,++4
1-,111
12,3.4
11,.-1
0,44*
+,-.+
*,+2/
-,/1*
-,233
1,+*0
1,*0*
1,+11
-*,21*
1+3,1*-
ELÍZA M. Geirsdóttir
Newman sendir frá sér
fyrstu sólóskífuna á
næstu dögum eftir að
hafa gert garðinn fræg-
an með ýmsum hljóm-
sveitum síðustu fimm-
tán árin. Plötuna gefur
hún út sjálf, bæði hér á
landi og víðar um heim-
inn.
Platan, Empire Fall,
kemur út 15. ágúst hér á landi og 1. októ-
ber í Bretlandi og Bandaríkjunum, en hún
kemur einnig út í stafrænu formi um líkt
leyti.
Fyrsta sólóskífa
Elízu væntanleg
Elíza M. Geirs-
dóttir Newman
TVÆR konur og ungbarn voru flutt með
sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akranesi á
tíunda tímanum í gærkvöldi eftir bílveltu
á Melasveitarvegi. Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi var aðeins um minniháttar
meiðsl að ræða en öruggast þótti að færa
konurnar og barnið til skoðunar.
Slysið varð með þeim hætti að bifreið-
inni var ekið eftir malarvegi, ökumaður
ætlaði að beygja frá holu í veginum en
missti við það stjórn á bílnum sem hafnaði
utan vegar og valt. Bifreiðin er gjörónýt.
Lögregla segir að þakka megi það bíl-
beltanotkun að ekki fór verr en vill jafn-
framt benda ökumönnum á að sökum
þurrka er mikil lausamöl á malarvegum.
Því beri að fara afar varlega við akst-
urinn.
Flutt á sjúkrahús
eftir bílveltu
ÞRÁTT fyrir að fjölmargir hafi svarað
kalli Blóðbankans í gærdag má betur gera
ef duga skal. Rík þörf og mikil hefur skap-
ast eftir blóðhlutum á sjúkrahúsum vegna
sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og
slysa á undanförnum dögum. Þar að auki
gengur oft erfiðlega að halda uppi birgð-
um á þessum árstíma, s.s. sökum sumar-
fría blóðgjafa.
Bankinn leitar sérstaklega eftir blóð-
gjöfum í O mínus en hvetur einnig alla
virka blóðgjafa í öllum flokkum til að gefa.
Blóðbankinn er til húsa á Snorrabraut 60
og opið er til hádegis í dag.
Óskað eftir blóð-
gjöfum í O mínus
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
„ÞETTA er allt annað líf, tækið er
miklu léttara og það gerir manni
kleift að ferðast í fimm til sex tíma
í senn. Það hefur gjörbreytt öllum
lífsskilyrðum hjá mér,“ segir Jón
Árni Einarsson, en hann er einn
súrefnisnotenda sem fengið hafa til
reynslu létta og hreyfanlega súr-
efnissíu í stað hinna hefðbundnu
þrýstihylkja í kerrupoka. Ferða-
sían, sem gengur fyrir hleðsluraf-
hlöðum, býr til súrefni úr andrúms-
loftinu og skilar því til notandans.
Hún vegur minna en tvö kíló og
hentar því álíka vel til ferðalaga og
hliðartöskur sem margar konur
geta ekki verið án, að sögn Jóns.
„Þetta gjörbyltir öllu fyrir okk-
ur. Fólk hefur hingað til verið að
þvælast með stór þrýstihylki inn og
út úr bílnum, í búðir, bíó og leikhús
og það var hálfómögulegt. Ferða-
sían er svo miklu meðfærilegri og
lágværari en kúturinn að það er
vel hægt að tala um að allt annað
líf fylgi tækinu,“ segir Jón.
Jón lætur sér þó ekki nægja að
snattast fram og til baka í bænum
með tækið, heldur fer hann fjöll
eins og kálfur að vori. „Já, og
miklu meira en það, það héldu okk-
ur engin bönd, við þvældumst fram
og aftur um hálendið og ferða-
félagar mínir, sem ég hef ferðast
með síðan við vorum strákar, voru
því fegnir að þurfa ekki að bera
súrefniskútana fyrir mig,“ segir
Jón, en fram að þessu hefur hann
þurft að bera tveggja kílóa þrýsti-
kútana sjálfur og treysta á aðstoð
félaga sinna við burðinn. „Nú er
hægt að þvælast með karlinn hvert
á land sem er, nú eru engin grið
gefin með það,“ segir Jón og hlær
innilega.
Fyrsta ferðalagið með nýja tæk-
ið fór Jón sama dag og hann fékk
það afhent. „Ég fékk tækið þarna
um miðjan júlí og hélt strax af stað
í tíu eða ellefu daga fjallatúr.“ Í
ferðinni gekk Jón Lakagíga, Gæsa-
vatnaleiðina inn í Öskju, Herðu-
breiðarlindir, Hvannalindir, Kverk-
fjöll, Kárahnjúka, niður á
Bakkafjörð og Loðmundarfjörð og
svo heim aftur. Að sögn Jóns hefur
hann aldrei komið á þessa staði, að
Lakagígum undanskildum. „Nei,
ég hef aldrei komið til þessara
staða nema í draumum. Villtustu
draumar mínir voru þeir að kom-
ast einhvern tímann á fjöll á nýjan
leik og nú hafa þeir heldur betur
ræst,“ segir Jón en hann hafði
gaman af veiði og hvers kyns
fjallabrölti áður en hann varð háð-
ur súrefnisinntöku.
„Löngu búið að afskrifa mig“
„Ætli ég sé ekki búinn að glíma
við lungnateppuna í tíu ár, hef far-
ið í lungnasmækkunaraðgerð og
það er löngu búið að afskrifa mig
sko, ég veit ekki alveg af hverju ég
er að skrölta hérna í dag,“ segir
Jón og skellir upp úr. „Sennilega
vegna þess að Dóra [Lúðvíksdóttir,
lungnalæknir] hefur verið svo dug-
leg við að hvetja mig áfram. Svo er
þetta náttúrlega líka viljinn; það
gerist ekkert nema maður geri það
sjálfur. Það geta allir staðið upp og
gert eitthvað, maður þarf bara
vilja og smáfrekju við sjálfan sig.
Sjálfur er ég óttalega leiðinlegur
við sjálfan mig og tek mig alveg í
gegn daglega fyrir helvítis letina.“
Að sögn Jóns hefur meðfæri-
legra súrefnistæki hvatt hann til
aukinnar hreyfingar, sem er mjög
nauðsynleg þeim sem glíma við
sjúkdóma á borð við lungnateppu.
„Maður þarf alltaf að vera á ferð-
inni og má ekki loka sig inni. Þá
gerist hreinlega ekkert nema það
að maður dregst allur saman og
verður alveg ónýtur, kvíðir fyrir
öllu.“ Um helgina hyggst Jón
leggja leið sína að Langasjó, á
Breiðbak og Fögrufjöll og í því
ferðalagi mun hin nýja súrefnissía
eflaust leika stórt hlutverk.
Villtustu draumar verða að veruleika
Ljósmynd/Jón Árni Einarsson
Bylting Sían hefur orðið þess valdandi að Jón getur ferðast út um allt. Súr-
efnið er framleitt jafnóðum og Jón nýtur fjallasýnarinnar áhyggjulaus.
Ferðast um fjöll og firnindi þrátt fyrir að glíma við lungnateppu
GEIR H. Haarde forsætisráð-
herra heimsækir nú Kanada, en í
gær kom hann við í bænum Ár-
borg í Manitoba-fylki. Skoðaði
hann þar sögustaði Íslendinga,
meðal annars Arnheiðarstaði þar
sem minnisvarði hefur verið reist-
ur um Íslendinga. Þá skoðaði
hann safn gamalla húsa sem sögu-
frægir Íslendingar bjuggu í og
þáði hádegisverð í boði bæj-
arstjórnar Árborgar, þar sem
barnakór Nýja Íslands söng þjóð-
söngva beggja landa undir stjórn
Rósalindar Vigfússon. Að því
loknu var haldið til bæjarins
Lundar þar sem stór bújörð var
skoðuð og boðið til kaffisamsætis
í boði bæjarstjórnar og formanns
Íslendingafélagsins, Ellen Stein-
þórsson.
Í dag hittir Geir forsætisráð-
herra Manitoba-fylkis, John Har-
vard. Munu þeir ræða um hið sér-
staka samband sem ríkir milli
fylkisins og Íslands.
Á söguslóð
í Kanada
Ljósmynd/Rúnar Hreinsson
Minning Davíð Gíslason hjá Þjóðræknifélagi Íslendinga, forsætisráðherrahjónin Geir Haarde og Inga Jóna
Þórðardóttir ásamt Randy Sigurdson, bæjarstjóra Árborgar, við minnisvarða um íslenskt landnám.